أول 200 سطر.
Hefur þig dreymt
að þú gerir ein heimskuleg mistök sem eyðileggja líf þitt?
Þannig er staðan hjá mér núna.
Í raunveruleikanum.
Ég get ekkert gert til að stoppa framvindu mála.
Áralangur undirbúningur, tugir þúsunda vinnustunda,
allt horfið á nokkrum sekúndum.
Á þessu síðasta augnabliki. er aðeins ein hugsun sem kemst að...
sem er...
Ég er svo búinn að vera!
Viltu vita hvernig við lentum hérna? Ég skal sýna þér það.
24 TÍMUM FYRR
Gefa fiskunum Senda ástkærum foreldrum skilaboð!
FRAMTÍÐ
mælt Já, við mældum
Ekki grín.
Öryggisviðvörun. Skynja hreyfingu í bakgarðinum.
-Elsa, hvað? - Öryggisviðvörun.
Skynja hreyfingu í hliðargarðinum.
-Elsa, gluggatjöld! - Dreg öll gluggatjöld frá.
Nei, Elsa! Gluggatjöld fyrir! Gluggatjöld fyrir!
Dreg öll gluggatjöld fyrir. Öryggisviðvörun.
- Skynja hreyfingu við aðaldyrnar. -Elsa, þegiðu.
Öryggisviðvörun. Skynja hreyfingu við aðaldyrnar.
Uss!
Fjárinn, fjárinn, fjárinn! Fjárinn.
-Elsa, slökktu ljósin! -Slekk öll ljós.
Fjárinn!
Brett! Sjáðu, smáhestar.
Manstu? Eins og í þriðja bekk. En þetta er öðruvísi.
-Já. Þetta er mikill bjór, maður. -Brett, ertu byrjaður í búningaleik?
Er að læra, reyndar.
Ákvarðanirnar voru teknar. Tölvupóstar fara á morgun. Til hvers eiginlega?
Ég veit ekki, það er bara... Bara...
Hæ, Kayla.
-Stace, gerðu það, enga samfélagsmiðla. -Hvað? En þú lítur svo--
Ég vil ekki halda partý, krakkar! Mér er alvara?
Þú hefur ekki verið fyndinn síðan í sjötta bekk,
að sloppnum frátöldum.
Foreldrar mínir koma eftir 12 tíma. Skilið?
Við vorum að segja það.
-Hvað? Að það verður ekkert partý? -Nei. Það þýðir...
Ellefu komma fjörtíuogfimm klukkutímar af kútaþambi.
-Hey! -Við elskum þig líka!
-Svona nú, Bretty! -Hey!
-Koma svo! -Ókey, áfram, áfram, áfram!
Krakkar! Höldum partýinu á neðri hæðinni. Takk fyrir.
-Áfram, áfram, áfram! -Krakkar, stopp! Stopp.
Nei, nei, nei. Ég sagði enga samfélagsmiðla, Stace.
-Hvað eruð þið að gera? -Hvað?
-Hey! -Ég sagði enga pósta á samfélagsmiðla.
-Hæ, Kayla. -Hæ!
Ég er bara að gramsa í dótinu þínu.
Í alvöru?
Djók. Ég er að bíða eftir klósettinu.
Það er enginn þar inni. Það er ekki einu sinni röð ef þú þarft..
-Farðu bara þangað inn. -Einmitt. Gómaðir mig.
Sjáðu, ég fann þetta, þetta erum við! Manstu eftir samkvæmisballinu?
Veit ekki hví þetta er þarna.
-Skrítið. -Ég elskaði það.
Kurteisi, reglur. Allt svo einfalt.
-Mér fannst það fullkomið. -Já. Mér líka.
Í alvöru? Þú?
Nei. Reyndar, nei. Ég...
Ég meina, mér fannst það flott, það var gaman. Þú varst mjög flott.
Ég?
Alltaf sama prúðmennið.
Bjóst við að þú byðir mér á ball með tímanum.
Hélstu það?
Ég sleppti hvort sem er flestum böllunum. En þú?
Já, nei. Engin böll fyrir mig.
Bjóst aldrei við að þú yrðir með partý.
Þetta er í raun ekki mitt partý, eða jafnvel...
partý yfirhöfuð. Þetta er bara mitt... Bara allra annarra.
Í þínu húsi.
Já. Í mínu húsi, já.
Þú hefur villta hlið hvað sem aðrir segja.
-Bíddu hva... -Hæ vinkona. Er allt í lagi?
Hæ.
Segðu Clint að hitta mig í hjónaherberginu?
Hvað þá?
Clint að hitta mig í hjónaherberginu?
Nei. Nei. Stacy. Það er bannað!
Jeminn! Einbeittu þér að þínu herbergi.
Bíddu, bíddu, bíddu.
-Þú stendur á krossgötum. Taktu eftir. -Getum við bara lokið þessu af?
Ég... Bíddu aðeins. Bíddu.
Brett, mig langar bara að segja að mig langar að skála.
Þú hefur gert allt rétt á þínum 17 árum.
Unnið þér inn fyrir öllu því láni sem framundan er.
-Yfir tíu í meðaleinkunn... -Þökk sé einkakennslu Marheems.
-... 9,9 á samræmduprófunum... -Þökk sé, æfingarprófum Infinite Future.
Það er þessi eina spurning sem leikur sér að manni--
Já, en ríkisviðurkenning fyrir klarínett. Málmblásturshljóðfæri.
Það var mjög snjallt af okkar hálfu.
Nákvæmlega. Eins og ég hef alltaf sagt, að verða besta útgáfan af sjálfum sér,
að fullnýta möguleika sína, það er velgengni.
Og velgengninni fylgir frelsi. Og frelsinu fylgir
-allt það besta-- -Pabbi!
Getum við bara byrjað á þessu?
Áfram með smjörið!
-Búmm! Já! -Vá.
-Já! -Við náðum inn í Cornell.
-Við förum í Cornell. -Ókey.
Ókey. Næst á dagskrá, koma svo.
Guð. Komin inn í Yale. Við förum í Yale!
Fornaldarlegu litlu húsakynnin! Hljóta að hleypa mér inn!
Og Penn! Og Darthmouth! Við erum svo góð í þessu!
-Jæja. Brown, Brown. Búmm! -Brown.
Brown! Smelltu á þann síðasta. Það er Harvard.
Þarna. Smelltu á hann.
Guð minn-- Bíddu. Þú ert á biðlista hjá Harvard.
-Hvað þá? -En Harvard.
En svona nú! Sjö af átta. Það er ótrúlegt! Hvað erum við að væla?
-Tíu. -Tíu! Já, tíu!
Þarna eru þessir stærðfræðihæfileikar að verki.
Til hamingju!
-Hvað er að frétta? -Hvað er að frétta?
-Er þessi ný? -Gaur, ekki láta þetta eftir honum.
-Ég get ekki bara hunsað hann. -Jú, víst.
Hunsaðu bara allt þetta ástand, ókey?
Sitja þau bara um húsið? Eins og...
-Eiginlega, já. Hvað hefurðu heyrt? -Skiptir ekki máli.
Vó, er það slæmt?
-Segðu mér eða þú færð að ganga. -Allt í lagi. Milli mín og þín.
-Af hverju? -Ég vil ekki vera þessi gaur.
-Hvaða gaur? -Gaurinn sem komst inn í Cornell.
Og Yale og Columbia. Og Darthmouth, Penn, Brown og Princeton.
Ertu að grínast í mér? Þetta eru allir skólarnir.
Ekki Harvard. Á biðlista.
Semsagt, ræfill.
Heppinn að hafa skuldbundið þig boltanum.
Þurftir ekki að takast á við öll vandræðalegheitin.
Heyrðu, þú varst að detta í lukkupottinn. Ekki kvarta yfir ferðalaginu þangað.
-Ekki spyrja, vil ekki ræða það. -Wisco og Tulane? Svona nú!
Á biðlista.
-Þú? -Hann fékk sjö af átta.
Það er rosalegt! En hver þeirra snubbaði þig?
-Harvard. Á biðlista. -Vá.
Á biðlista hjá Harvard. Ræfill, ekki satt? Algjör...
-Plebbi. -Hreinræktaður.
-Fullkomlega. -Algjörlega.
Allt í lagi, ég náði því.
Þú munt komast inn í Wisco eða Tulane. Enginn vafi með þínar einkunnir.
Veit ekki. Meðaltalið lækkar mig. Mæting lækkar mig. Heimurinn er að ræna mig.
Hey, Nick, hversu mörg þjóðerni valdir þú í umsókninni?
-Fjögur. Auk annarra. -Þú ert blautur draumur inntökufulltrúans.
Áreitni.
Þarna ert þú.
CALI MIÐSKÓLINN VEGGUR STYRKÞEGA
Hættu þessu.
Góðan daginn nemendur Cali.
Stór dagur fyrir elstu nemendurna, við vonum að fréttirnar séu gleðilegar.
Við höfum þegar heyrt frá foreldrum eins nemanda
sem hefur hlotið inngöngu í sjö af átta virtustu háskólunum.
Hamingjuóskir til dúxsins okkar hans Brett Blackmore!
Það var lagið!
Stoltur af þér!
-Vel af sér vikið maður! -Takk fyrir.
Þú ert glaðlegur!
-Er það svona augljóst? -Já.
Ég er glaður. En foreldrar mínir hringdu í skólann til að monta sig.
-Já, ég-- -Og þeir hringdu í fréttastöðina,
halda partý fyrir vini sína.
Fréttastöðina, það er pínu skrítið.
-Já. -En þessu lýkur bráðum
-og þú getur farið héðan. -Má ég spyrja þig?
Er ég sá sem gerði ekkert nema læra í fjögur ár?
Já, eiginlega.
-Þannig að ég klúðraði gaggó? -Hvað meinaru með því?
Ég veit ekki, þú þóttist vita
að ég myndi aldrei halda partý og ég ætti mér villta hlið--
Ég var að grínast, halló. Manstu?
Hverjum er annars ekki sama um hvað öðrum finnst?
Augljóslega, ekki mér.
Þér er í alvörunni sama.
-Um hvað öðrum finnst. -Er það svo augljóst?
Ég spurði aldrei. Hefurðu heyrt frá einhverjum?
-Já, ég komst í tvo óskaskólana mína. -Það er frábært. Hvar?
Skiptir ekki máli. Ég hef efni á hvorugum.
-Þú gætir sótt um aðstoð eða eitthvað. -Ég hef hugsað mér aðra lausn.
-Ókey, er það hernaðarleyndarmál? -Kannski.
Kannski ekki. Fer eftir ýmsu.
Eins og hverju?
Þú verður að finna út úr því sjálfur.
FINNDU VINI Kayla deilir nú með þér staðsetningu.
Heyrðu!
FRÉTTASTOFA STÖÐVAR 6
-Þú ert Brett Blackmore. -Nei, því miður.
-Næstum því samt. -Fjárinn.
-Hæ, þekkið þið Brett Blackmore? -Gaurinn er eins og flökkusaga.
Já, fer ekki út úr húsi, alltaf að læra. Leiðinlegasti krakki Ameríku.
Tvöfaldur í boði hússins handa gáfnaljósinu.
Þegiðu. Þú varst hærri en ég á samræmdu og komst í Santa Clara.
-Siturðu um mig? -Kannski.
Mikinn rjóma fyrir Clint. Persónulegt ofanálag á eftir.
Svona nú, Stace, samkomulagið? Það var fyrir tveimur árum síðan.
Samkomulag er samkomulag. Og lokaár okkar er á enda núna, svo...
-Við munum... Þú veist. -Gaur, hættu að láta hana betla.
Hey, förum út bakdyramegin.
No comments yet. Be the first to leave one.