Prvních 200 řádků.
Hr. Gustafson, ég þarf að tala við þig.
Hr. Gustafson, viltu koma til dyra?
Ég veit að þú ert þarna inni.
Það þýðir ekki að láta eins og allt sé í lagi, hr. Gustafson.
Ég get ekki komið hingað annan hvern dag.
Þú verður að tala við mig.
Hr. Gustafson, ég vil bara hjálpa þér.
Svona nú, opnaðu.
Ég held bara áfram að banka.
Ég kem aftur, svo þú getur alveg eins opnað fyrir mér strax.
Við vitum að þú ert þarna inni.
Hugsaðu um nágrannana, hr. Gustafson.
Hérna er bréf til þín.
Ég legg til að þú lesir það.
- Daginn, asni. - Daginn, fáviti.
Hvað ertu...
Skiptir ekki máli. Gleymdu þessu.
- Hver er að hjakka á hurðinni hjá þér? - Kemur þér ekki við.
"Kemur þér ekki við."
Reimaðu skóinn þinn. Annars detturðu á heimskt höfuðið.
Þegiðu.
Það er heldur betur hitinn.
Nú hitnar í hamsi, í suðrænum dansi
Einhver að flytja í gamla Clickner-húsið.
- Glöggur, Sherlock. - Fyrirgefið.
Ég var að velta fyrir mér hvort þið vissuð
hvar hr. Gustafson er að finna.
Gustafson? Nei, því miður.
- John Gustafson? - Sá er maðurinn.
Áttu við skítmennið, lydduna og ógeðið John Gustafson?
Hefurðu séð hann?
Náunginn er bilaður. Klikkhaus.
Stundar þessa afbrigðilegu næturklúbba
þar sem karlmenn fletta sig klæðum.
Ef hann hefur þá tekið inn lyfin sín.
Lyfin?
Án þeirra gæti hann verið hvar sem er. Einhvers staðar á flandri að tala við trén.
Maðurinn er samfélagsplága. Alltaf á fylleríum, að efna til slagsmála.
Ekki satt?
- En hefurðu séð hann? - Nei, því miður.
Ég held að kannski...
Nei.
Ef þið sjáið hann,
skilið þessu þá til hans og biðjið hann að hafa samband
við hr. Snyder eins fljótt og kostur er.
Það er ég. Það er afar mikilvægt.
Mikilvægt? Já, herra. Við skulum skila því til hans.
Passaðu þig!
Passaðu þig á ísnum.
Hann er háll.
Einmitt.
Heilög Guðsmóðir.
Jesús minn.
Karlmenn að fletta sig klæðum?
Fáviti.
Einn mánuður til stefnu.
Frábært.
LOKAVIÐVÖRUN
Svo hrifinn af Remington MicroScreen rakvélinni,
að ég keypti fyrirtækið.
Hún rakar jafn vandlega og hnífur, ella færðu endurgreitt.
Fyrsta blaðið er svo þunnt að það rakar af mikilli nákvæmni.
Næsta blað rakar enn nær. Remington...
Þú hefðir átt að sjá framan í frú Carlson þegar hann sagði "Þvílíkur fengur."
Er þér nokkuð kalt?
Haltu kjafti, fituhjassi.
Ekki einu sinni komin þakkargjörðarhátíð en samt er haustveðrið komið.
Fimmtán sentimetra snjólag þekur grund
og þar sem viðvaranir hafa verið gefnar út við því að vera á ferli
er best að halda sig heima og fá sér
heitan, heimatilbúinn mat.
Svona lítur vikan út.
Það snjóar, snjóar meira, og svo snjóar meira.
Það mun snjóa á þessu svæði alla vikuna.
Eftir hádegi á sunnudag birtist önnur köld lægð...
Hvað gengur á?
Heilög Guðsmóðir!
Drottinn minn.
Ertu enn að nota þetta ónýta drasl?
Græni geitungurinn hefur veitt meiri fisk en þú hefur veitt í þykjustunni.
Sástu hana?
Hún er hraðskreið á vélsleðanum.
Ansi hreint hraðskreið.
Heyrðirðu hvað kom fyrir Eddie Hicks?
Ofkæling er andstyggð.
Ekki hraðvirk eins og heilablóðfall.
Heilablóðfall er ómögulegt. Þú getur orðið ósjálfbjarga.
Má ég þá frekar biðja um hjartaslag.
Veistu hvað Jacob sagði?
Hann sagði að Billy Hinshel hefði farist í bílslysi.
Lenti framan á vöruflutningabíl.
Bíllinn þeyttist fram af brúnni og ofan í Mississippi-fljótið.
Heppni skratti.
Heldur betur.
Hvernig hefur hann það annars?
Hann er dáinn! Lést við áreksturinn!
Jacob, fávitinn þinn.
Hann hefur það fínt.
Honum gengur vel, hefur alltaf nóg að gera.
Hann lofaði að koma til mín á þakkargjörðinni.
Ætlar hann virkilega í bæjarstjórann?
- Hann yrði frábær bæjarstjóri. - Gott að hann er sonur móður sinnar.
Með þitt útlit kæmist hann ekki á kjörseðilinn.
Bíttu í þig.
- Daginn, fröken Truax. - Daginn, hvernig hefurðu það?
Heilög Guðsmóðir.
- Gættu þín, fröken. - Takk.
Jesús Kristur.
Ég ók á tunnurnar aftur.
Ég heyrði það.
Hvað segir fúll á móti í dag?
Á hvorki kopp undir hlandið né glugga til að skvetta því út um.
Vantar þig eitthvað?
Kippu of Schmidt og beitu.
- Fiskibeitu eða lirfur? - Láttu mig fá lirfur, hef ekki efni á hinu.
Lirfurnar eru á 75 sent.
75 sent? Glæpsamlegt. Chuck, þetta eru lirfur, ekki kavíar.
Alltaf sama sagan með þig.
Hvar ætlarðu að finna lirfur á þessum árstíma? Framboðið er lítið.
Þú gætir flutt til Flórída fyrir ágóðann af lirfusölunni.
Láttu mig hafa þurrkað kjöt, líka.
5 dalir fyrir bjórinn og lirfurnar.
Þú ert of gamall til að borða þurrkað kjöt.
Árans.
Er pabbi úti í kofanum?
Eins og venjulega.
En fávitinn?
Það er nægur ís þarna úti, Gustafson.
Ætti að vera nóg pláss fyrir ykkur báða.
"Nægur ís þarna úti, Gustafson."
Sæll, pabbi.
Hvernig fiskast?
Hvernig í fjandanum á ég að vita það? Ég var bara að koma.
Mel kom í heimsókn um daginn
og sagði að þú hefðir látið ófriðlega.
Eins og leirgedda.
Ég hef haft um margt að hugsa.
Ég skal segja þér hvað ég var að hugsa.
Það er ískalt hérna og ég var að ljúka við bjórinn.
Það var manneskja að flytja í Clickner-húsið. Kona.
Kona?
- Fórstu upp á hana? - Pabbi þó.
Er hún með stór læri?
Hvað er þá vandamálið?
Ef ég væri ungur maður eins og þú þá færi ég
upp á hverja einustu konu í Wabasha.
Eigðu afganginn.
Sæl, Punky.
Sæll, John.
Græni geitungurinn lætur til skarar skríða.
Veiddi upp í kvótann.
Þú hefur náð einum.
Þetta eru tveir fiskar, þöngulhaus.
Ég skila þeim fiskum sem ég ætla ekki að borða.
Einmitt, eins og 40 punda flikkinu sem þú ert alltaf að gaspra um.
Synd að það eru aldrei vitni að þessum stórfiskaveiðum þínum.
Þú átt eftir að njóta þessa, Goldman.
Gerðu þitt, góurinn.
SKATTSKIL 1993
Hvað gengur á?
Drottinn minn, þeir eru komnir.
Drottinn minn, ég...
Sjáðu til, ég var að...
Ég vona að þér sé sama en ég sá kveikt ljós
og var að velta fyrir mér hvort ég mætti nota salernið.
Ha?
- Er klósettið þitt bilað? - Nei, hreint ekki.
Húsið var bara svo tómlegt og ég er svo hrifin af baðherbergjum.
Baðherbergi getur sýnt manni inn í dýpstu sálarkynni eigandans.
Ég vissi það ekki.
Þarna er það. Get ekki beðið eftir að kíkja inn.
Miklu betra en að láta lesa í lófa.
Ég þarf bara hálfa mínútu inni á baðherbergi einhvers
og þá get ég gefið greinargóða lýsingu á viðkomandi.
- Það er gestabaðherbergi hérna. - Verð bara stutta stund.
Jæja?
Heillandi.
Er ekki kominn tími til þess að þú kynnir þig?
John Gustafson, ekki satt?
Ég tók ögn af póstinum þínum í gær til að grennslast fyrir um þig.
En sá litli póstur sem þú færð gefur ekki mikla heildarmynd af þér.
- Að stela pósti er refsivert. - Ég veit það.
En stundum þarf maður að taka á sig langan krók
til að komast klakklaust stutta leið til baka.
Ertu ekki sammála? Ég er svo hrifin af þessari speki.
Hún er reyndar ekki frá mér komin heldur úr The Zoo Story eftir Edward Albee.
Ég kenni amerískar bókmenntir við Winona State-háskólann.
Ég hóf störf í gær. Ég er svo hrifin af klassískum verkum, en þú?
- Ég les veiðiblöð. - Er það virkilega?
Ég sá heilt bókasafn af þeim þarna uppi.
Það er eitthvað svo hrjúft og karlmannlegt við náttúruna.
Afsakaðu dónaskapinn.
Ég heiti Ariel Truax.
Gleður mig. Ég heiti John Gustafson.
Ég veit það.
Hvenær fluttirðu inn í Clickner-húsið?
Þú ættir að vita það.
Síðan ég kom, hafið þið Max Goldman
gónt á mig út um gluggana ykkar eins og tveir Garfield-kettir.
Eins og þeir sem eru festir innan á bílrúður.
No comments yet. Be the first to leave one.