Prvních 200 řádků.
Andrew!
Andrew!
Andrew!
Nei!
Andrew!
Nei!
Þúsundir komu saman í San Francisco í gærkvöldi
til að heiðra fórnarlömb árásanna 2014.
Þetta var hluti af fjöldamótmælum þar sem þess er krafist að leynilegu
skrímslaveiðisamtökin Monarch verði dregin til ábyrgðar.
Nýlega aukningu fjöldadauða í heimshöfunum
mætti rekja til tilrauna til að finna Godzilla
sem hefur ekki sést í rúm fimm ár.
Yfirmenn dularfullu Monarch-samtakanna þurfa að svara erfiðum spurningum
þar sem yfirvöld leita samþykkis fyrir útrýmingu Títana.
Sögusagnir herma að Monarch hafi falið enn fleiri skepnur
síðan árásirnar voru gerðar 2014.
En sá sögulegi harmleikur gjörbreytti heiminum til frambúðar.
Það var þá sem við komumst að því að skrímsli væru til í raun.
Pabbi Hvað segirðu?
Hæ, Madison Ég hef ekkert heyrt frá ykkur.
Hér eru myndir af úlfunum. Kveðja, pabbi
Fyrirgefðu hvað ég svara seint. Ég sakna þín.
En ég þarf að ræða svolítið við þig.
Ég hef áhyggjur af mömmu
Fjandinn.
Fjandinn, fjandinn.
Maddie?
Góðan daginn.
Góðan daginn, mamma. - Almáttugur.
Allt í lagi.
Ég útbjó morgunverð.
Þetta eru...
egg og ristað brauð og þetta var einu sinni beikon.
Hverju mælirðu með?
Brauðinu og eggjunum.
Þakka þér fyrir.
Viltu kaffi?
Hvað varstu að gera í tölvunni?
Skoða uppskriftir.
Að ristuðu brauði?
Pabbi hefur sent mér tölvupóst.
Hann virðist vera í lagi.
Heilbrigður.
Hefurðu svarað?
Ekki enn.
Madison, ég vil bara hlífa þér.
Ég veit.
Einkum vegna alls sem er í gangi.
Ég veit það, mamma.
Ég veit að þú hefur átt erfitt.
En við komumst í gegnum þetta.
Í sameiningu.
Verður allt í lagi með hann?
Hann gæti ekki verið á öruggari stað núna.
Viltu heyra góðar fréttir?
Ég lauk við þetta.
Í alvöru?
Heldurðu að þetta virki?
Þetta virkar.
Þetta fer allt vel.
Dr. Russell, komdu í Afmörkun.
Ég er á leiðinni.
MONARCH-STÖÐ 61 Í YUNNAN-REGNSKÓGINUM Í KÍNA
Hver fjárinn gerðist?
Ekki hugmynd.
Hún svaf eins og ungabarn þar til fyrir klukkustund
þegar geislunin fór upp úr öllu valdi.
Eins og eitthvað hafi komið þessu af stað.
Takk, Tim.
Ég skal taka við. Farðu og hvíldu þig.
Ekki séns.
Hvað sem svefnleysi líður missi ég ekki af þessu.
Afmörkunarteymi í grunnstöður.
Róandi? - Engin áhrif.
Þetta dýr vill fæðast.
Neyðarráðstafanir í gildi.
Tíu sekúndur í lífafmörkun.
Hennar tími er kominn.
Ég kynni Titanus mosura.
Eða eins og við köllum hana...
Mothra.
Stórkostlegt.
Afmörkunarnet virkjað.
Varúð. - Hvað er að gerast?
Varúð. - Eitthvað er að.
Afmörkunarkerfin virka ekki.
Jaðarinn gefur sig og kerfið er að sturlast.
Hvernig má það vera?
Einhver annar ber ábyrgð á þessu.
Afmörkunarteymi, dragið ykkur í hlé.
Dragið ykkur í hlé. Þið hræðið hana.
Nei!
Því miður. Þú þekkir reglurnar.
Við verðum að eyða henni.
Ég sé um þetta.
Mamma, nei.
Bíddu hérna, Madison. Þetta virkar.
Gætið varúðar.
Þetta er allt í lagi.
GREINI LÍFHLJÓÐMERKI
Mamma!
Mamma!
Bíddu, Maddie.
Maddie.
Komdu aftur hingað.
Maddie, farðu til baka.
Mamma. Komdu.
Mamma.
ALFA-TÍÐNI FUNDIN
Fjandinn hafi það.
Þetta virkaði.
Mamma?
Það sem við erum að horfa upp á, þingmenn,
er endurkoma fornrar og gleymdrar ofurtegundar.
MONARCH-ÞINGNEFNDARFUNDI Í WASHINGTON
Godzilla, RÓL-verurnar og Kong.
Við teljum að þessir "Títanar"
og aðrir fleiri tryggi nauðsynlegt jafnvægi í heiminum.
Þótt okkur stafi ógn af sumum
eru Monarch-samtökin tilbúin að ákvarða
hvaða Títanar ógna okkur
og hvaða Títönum er ætlað að gæta okkar.
Takk fyrir þessa grunnskólasögukennslu, Coleman.
Við höfum ekki enn heyrt eina góða ástæðu fyrir því
af hverju Monarch ætti ekki að falla undir herinn.
Eða hvers vegna við ættum ekki að eyða skepnunum.
Monarch var falið að finna þessi geislavirku skrímsli og eyða þeim.
En þið getið ekki eða viljið ekki segja okkur
hversu mörg þau eru eða hvers vegna þau birtast.
Kannski er tímabært að herinn jafni um þau.
Það væru mistök að drepa þau.
Þau sneru aftur okkar vegna.
Það voru kjarnorkutilraunir okkar sem vöktu Gojira.
RÓL-verurnar og fleiri komu í ljós við námugröft og skjálftamælingar.
En þetta eru ekki skrímsli.
Þetta eru dýr að endurheimta heim sem tilheyrði þeim áður fyrr.
Hljómar eins og þú viljir vernda þau, dr. Serizawa.
Eins og þú dáist að þeim.
Ég dáist að öllum lífverum.
Þingmenn, ef við ætlum okkur að komast af
verðum við að finna leiðir til að lifa með Títönunum.
Með Gojira.
Það verður eins konar samlífi tveggja tegunda.
Eins og ljónið og músin.
Eða sporðdrekinn og froskurinn.
Viljið þið gera Godzilla að gæludýrinu okkar?
Nei.
Við verðum gæludýr hans.
Nei, það er ekki beint það sem dr. Serizawa á við.
Við verðum að fara. - Enginn gefur í skyn...
Við förum. - ...að við verðum gæludýr.
Dr. Serizawa og dr. Graham,
fundinum er ekki slitið.
Dr. Serizawa, ég vona að þú áttir þig
á afleiðingum þess að ganga héðan út.
Leyfið mér snöggvast að ræða við kollega mína.
Ég skal sýna ykkur stutta og skemmtilega fræðslumynd
um æxlun Títana.
Ég held að kynfærin sjáist ekki í þessari útgáfu.
Annars getið þið kvartað við aðstoðarmann minn.
Þarna slitnar upptakan.
Þeir sem eftir lifðu hafa ekki veitt upplýsingar umfram þessar myndir.
En við vitum að þau tóku eingöngu Emmu og Madison.
Mér þykir þetta leitt, Mark.
Ég hefði átt að vera þarna.
Hver eru þau?
Við vitum það ekki.
Við teljum þau hafa ætlað að ræna þessu.
Þið gerðuð það ekki.
Þetta er ORCA.
Þess vegna þarfnast þau Emmu.
Hún taldi að ef við gætum endurskapað
bergmálsmiðun sem Títanar nota til samskipta...
Ég veit hvað þetta er. Ég hjálpaði til með frumgerðina.
Hver er þetta?
Sam Coleman. Yfirmaður tæknideildar.
Ég hóf störf hjá Monarch skömmu eftir að þú hættir.
Aðdáandi eiginkonu þinnar.
Eða verka hennar og þinna. Þetta hljómaði illa.
Við Emma eyðilögðum frumgerðina.
En síðan ákvað Emma að smíða hana aftur.
Eftir San Francisco fór hún til Boston og þróaði tækið.
Hún taldi það hjálpa...
Með hvað? Að leika Guð?
Að koma í veg fyrir aðra árás.
ORCA var skólaverkefni.
Til að beina hvölum frá ströndinni.
Ekki til að spjalla við litlu dýrin ykkar.
Sannið til. Þau halda að þetta sé eitt þeirra.
Ef þið notið ranga tíðni á þau
berið þið ábyrgð á einhverju þúsund sinnum verra en í San Francisco.
Þess vegna verðum við að ná þessu aftur.
Emma sagði að enginn vissi meira um ORCA en þú.
Þetta ætti ekki að vera til.
Það má vera, Mark. En þetta komst í rangar hendur.
Í augnablikinu er ORCA það eina sem heldur Emmu og Madison á lífi.
Við vitum að þú þjáist.
En ef við finnum ORCA-tækið finnum við fjölskylduna þína.
Ég lofa því.
No comments yet. Be the first to leave one.