Megamind

Megamind

Stáhnout Icelandic titulky

Informace o verzi

Megamind 2010 ISL 1080p BluRay x264 AC3-Skari11
Komentář od Skari11
Should work for all BluRay releases // Ætti að virka fyrir allar BluRay útgáfur

Tagy

BluRay
x264
AC3
1080
Zveřejněno: 2020-04-01
Stažení: 58
Pro sluchově postižené: No

Náhled titulků v jazyce Icelandic

Prvních 200 řádků.

Svona hefur dagurinn liðið:

fór í fangelsi, tapaði draumastúlkunni minni

og lét sparka allrækilega í rassinn á mér.

Samt gæti ástandið verið verra.

Ó, alveg rétt.

Ég er að hrapa til dauða.

Það gerist víst ekki verra.

Hvernig lenti ég í þessari aðstöðu?

Endalok mín hefjast í upphafi.

Alveg í upphafi.

Já, þetta er ég.

Ég átti nokkuð eðlilega æsku.

Ég kom frá því sem kalla mætti sundrað heimili.

Bókstaflega sundruðu.

HRÆĐSLA

Ég var átta daga gamall og bjó enn í heimahúsum.

Er það ekki sorglegt?

Það var tímabært að koma sér.

Hér er skósveinninn þinn. Hann mun annast þig.

Og hérna er duddan þín.

Þín bíða stórkostleg...

Ég heyrði ekki síðustu orðin en þau virtust mikilvæg.

Hvað bíður mín?

Ég lagði á fund örlaga minna.

En strákur frá Glaupunkt-svæðinu fékk sömu hugmynd.

Það var daginn sem ég hitti herra gúddí-gaur...

og dýrðlegt stríð okkar hófst.

Var þetta lífið sem beið mín?

Draumalíf fullt af munaði.

Greinilega ekki.

Meira að segja örlögin eiga sér uppáhald.

Ekkert stórmál.

Mín biðu allt önnur örlög.

FANGELSI METRÓBORGAR FYRIR FÓLK MEĐ GLÆPAHÆFILEIKA

Barn! En hugulsamt.

Ó, já. Ég sá það og hugsaði til þín.

Sem betur fer fann ég indælan stað sem varð heimili mitt.

Megum við eiga það?

Stað sem kenndi mér muninn á réttu...

og röngu. Herra gúddí-gaur fékk hins vegar

öll heimsins þægindi á silfurfati.

Drengurinn getur flogið.

Já, aðeins það besta handa þér, elskan.

Flughæfileika, ósæranleika og flott hár.

En ég bjó yfir miklu merkilegri hæfileikum.

Afburðagáfum

og getu til að byggja tortímingarvélar.

Eftir nokkur ár, vegna góðrar hegðunar,

fékk ég tækifæri til þess að bæta mig með lærdómi...

FANGABÍLL METRÓBORGAR

á skrítnum stað sem kallaður er sgóli.

Smá' snillingaskólinn Fyrir smá snillinga

Þar hitti ég enn á ný herra gúddí-gaur.

Hann hafði þegar smalað til sín stórum her af heimskum aðdáendum.

Hann heillaði þá með skemmtanalist

og óhóflegum og ljúffengum gjöfum.

Ég get líka búið til poppað korn og unnið hylli þessara heilalausu róbóta.

Ljósin slökkt.

Þá lærði ég erfiða lexíu:

Sá góði fær alla athygli og ást

á meðan sá vondi er sendur í skammarkrókinn.

Ég gat gleymt því að passa í hópinn.

Á meðan þau lærðu Atti katti nóa...

þá lærði ég að þurrka upp hluti og rakahlaða þá aftur.

Suma daga var eins og við Skósveinn værum einir á móti heiminum.

Sama hvað ég reyndi

var ég alltaf útundan,

sá síðasti sem var valinn,

klaufinn, svarti sauðurinn...

Skjótið hann!

vondi strákurinn. -Frík!

Furðufugl!

Voru þetta örlög mín?

Bíðið við. Kannski var það svo.

Ég var góður í að vera vondur.

Þá varð mér það ljóst: Ef mér var ætlað að vera vondur

skildi ég verða verstur allra.

Mér var ætlað að vera ofur-illmenni

og okkur var ætlað að verða andstæðingar.

Það var ekki aftur snúið

og sögulegur ferill okkar hófst.

Og ég var í skýjunum.

HEIMAMAĐUR FER Í HUNDANA

BARDAGI ALDARINNAR

GÓĐA SIGRAR HIĐ ILLA

Stundum vann ég næstum því.

Hann tók sér nafnið Metrómaður, bjargvættur Metróborgar.

MEGAMIND BJARGVÆTTUR METRO BORGAR

Ég ákvað að velja lítillátara nafn: Megamind...

MEGAMIND ENN Á NÝ BAK VIĐ LÁS OG SLÁ

sérlega myndarlegur glæpasnillingur og meistari allra ódæða.

METRÓMANNSSAFNIĐ OPNAĐ!

Lestu heima hjá þér. Opnaðu.

FANGAKLEFI

Daginn, fangelsisstjóri.

Góðar fréttir: Ég er breyttur maður

og tilbúinn að þjóna samfélaginu sem heiðvirður borgari.

Þú ert þorpari og verður alltaf þorpari.

Þú breytist aldrei og verður hér til frambúðar.

Þú ert skemmtilegur.

Það kom til þín gjöf.

Er það hvolpur?

Frá Metrómanni. "Nú geturðu talið hverja sekúndu af 85 lífstíðardómum."

Ekki grunaði mig að Metrómaður gleddist yfir óförum annarra.

En hann er með góðan smekk. Ég ætla að eiga úrið.

Geturðu sagt mér hvað klukkan er?

Ég vil ekki mæta of seint við opnun Metrómannssafnsins.

Æ, nei. Mér sýnist þú ætla að missa af því...

um nokkur þúsund ár.

Heldurðu það?

DULBÚNINGSAFLTÆKI VIRKT

Gleðilegan Metrómannsdag.

FELUHAMUR

Þvílíkur dýrðardagur hér í miðborginni

þar sem við ætlum að heiðra dásamlegan mann, Metrómann.

Hjarta hans er haf innan í stærra hafi.

Hann hefur vakað yfir okkur með ofursjón sinni árum saman,

bjargað okkur með ofurstyrk sínum og annast okkur af ofurkærleik.

Það er komið að okkur að sýna þakklæti okkar.

Þetta er Roxanna Richter í beinni

frá vígslu Metrómannssafnsins.

Vá. Það sem þú ert látin segja í loftinu

er alveg massa-sturlað. Algjör bilun.

Ég skrifaði fréttina, Halli.

Ég átti við að...

það er ótrúlegt, í nútímaþjóðfélagi,

að heyra alvöru ljóðlist flutta í fréttunum.

Það mátti reyna, Halli.

Förum og fáum okkur kaffi eða eitthvað?

Svona, hvar er Metrómannsskapið?

Ef ég væri Metrómaðurinn

þá væri Megamind ekki alltaf að ræna þér.

Það væri í fyrirrúmi. -En fallegt af þér, Halli.

Ég myndi gæta þín eins og villuhundur smábarns.

Þetta hljómaði undarlega. -Eilítið, já.

Þú setur upp skrýtinn svip og þá fer ég í flækju.

Ég myndi gæta þín eins og...

Við erum ekki ástfangin. Ég er ekki að játa ást mína.

Ég elska þig eða eitthvað.

Ég á ekki við að ég sé ástfanginn af þér heldur...

Roxanna? Roxarúú?

Hvað gerðist?

Farið að vinna. Þið fáið ekki greitt fyrir slór.

Kyrr! -Hvað er að ykkur, strákar?

Ég er fangelsisstjórinn!

Opnaðu!

Fíflin ykkar. Hann blekkti okkur.

Rétt hjá þér.

Ég verð alltaf þorpari.

Sæll, fríði sveinn. Vantar þig far?

Svo sannarlega, frábæri fiskur.

Sestu inn. -Ég er frjáls!

Nákvæmlega.

Góð hugmynd að senda úrið, Skósveinn.

Það var ekkert. -Allt í botn!

Ég vil sjá hendur á lofti.

Dömur og herrar, Metrómaðurinn ykkar!

Hver er bestur? -Metrómaðurinn!

Já, Metróborg!

Gemmér fimm.

Upp með hendurnar. Gemmér fimm.

Halló, Metróborg.

Við skulum róa þetta aðeins niður.

Aðeins lægra. Takk, strákar.

Verum nú einlæg.

Nákvæmlega.

Þó það sé ofursvalt að fá heilt safn,

viljið þið vita hver mesti heiðurinn er?

Viljið þið vita það? Virkilega?

Ég skal segja ykkur það.

Mesti heiðurinn sem þið hafið sýnt mér er að leyfa mér að þjóna ykkur,

bjargarlausum íbúum Metróborgar.

Og í lok hvers dags

spyr ég mig oft að þessu...

hver væri ég án ykkar?

Ég elska þig, Metrómaður! -Og ég þig, ókunni borgari.

Ég segi það, Skósveinn. Það jafnast ekkert á við illskudyngjuna.

Ég hélt henni kaldri og rakri bara fyrir þig, herra.

Hvernig lít ég út, Skósveinn? Er ég vondur?

Viðbjóðslega skelfilegur.

Þér er aldrei orða vant.

Heilamennin hafa greinilega saknað þín.

Söknuðuð þið pabba? Eruð þið ægilegir tortímendur?

Já, það eruð þið. Bannað að bíta.

Nei, ekkert svona.

Skiptilykilinn? Sækið hann.

Sjá þessi krútt. -Og aftur að hlátrinum.

Hún er vöknuð. Hefjumst handa.

Ungfrú Richter, við hittumst enn á ný.

Hvernig væri að þvo pokann?

Þú getur öskrað að vild, ungfrú Richter.

Það heyrir enginn til þín.

Af hverju öskrar hún ekki?

Ungfrú Richter, væri þér sama?

Öskraðu svona...

Þetta er glatað stelpuöskur.

Hann er aðeins betri.

Er til einhver nördaleg ofurillsku heimasíða

þar sem þið fáið allt þetta blikkandi tæknidrasl?

Flest kemur reyndar frá afsláttarmarkaði í...

More Icelandic subtitles for Megamind

Komentáře

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left