De første 200 linjer.
Krakkar.
Allir elska þá, ekki satt?
Þú elskar eflaust krakka.
Ég verð að játa...
ekki ég.
Þetta er ég, vel á minnst. Ég er Max.
Ég er litli hundurinn þarna,
þakklátur fyrir að vera ekki undir hrúgu af krökkum.
Bíðið eftir mér!
Trúirðu þessu?
Það virðist gaman að hafa krakka.
Nei, maður. Það er ekki gaman.
Trúðu mér, þegar mannfólkið kemur heim með krakka
er líf þitt ekki samt.
Ég hef séð það allt of oft.
Það breytir þér.
Ég hélt að ég þyrfti aldrei að hafa áhyggjur af slíku.
En svo einn daginn...
- hitti eigandinn minn Kata... - Hæ.
...hann Chuck.
Ertu ómeiddur?
Já.
- Og svo skömmu síðar eru þau gift... - Halló!
...sem... Það er fínt. Chuck er afar...
Hann er góður gæi.
En svo...
gerðist dálítið.
Kata og Chuck eignuðust sinn eigin krakka.
Hann heitir Liam.
Í fyrstu svaf hann öllum stundum.
Dreymdi um, þú veist, hvað sem börn dreymir um.
Hver er sætt, lítið smábarn?
- Hann hafði sinn stað... - Litla krúttið mitt.
...og ég hafði minn.
Hlutirnir virtust ætla að verða í fínu lagi.
Hvað?
Þar til hann fór að tala.
Og að lokum fór hann að skríða.
Þannig lagað.
Og skyndilega var ég ekki lengur óhultur á eigin heimili.
Agnarlítið skrímsli var að yfirtaka það.
Ég reyndi að halda mig í öruggri fjarlægð.
En svo einn daginn...
gerði Liam dálítið sem ég átti ekki von á.
Max!
Ég elska þig, Max.
Og frá þeirri stundu...
var allt breytt.
Við Duke urðum eins konar fyrirmyndir hans.
Hvað get ég sagt? Strákurinn dáir okkur.
Við reynum að hafa góð áhrif.
Og við hjálpum honum þegar við getum.
Krakkinn fattar okkur.
Kúlur!
Já, við skemmtum okkur.
Kúlur!
Og vel á minnst, ég er enn ekkert fyrir krakka.
Nema þennan krakka. Þetta er minn krakki.
Hann er fullkominn.
Og ég ætla aldrei að láta neitt slæmt henda hann.
En ég verð að segja, það er fullt starf að gæta öryggis Liams.
Nei, nei, nei.
Allt í lagi.
Hæ. Halló.
Það er allt í góðu.
Við viljum engin vandræði.
Liam?
Er í lagi með þig, vinur?
Var heimurinn alltaf svona hættulegur?
Góður hundur.
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2
Nei, nei, nei!
Nei.
Daginn, Snjólfur!
Hver er besta kanínan í öllum heiminum?
Hafðu þetta, illvirki!
Skilaðu kveðju til sólarinnar!
Já!
Eyru upp.
Ég lýsi því yfir að þessi fundur Ofurhetjudýravina sé settur.
Ho-Ho hershöfðingi, lestu nú fundargerð síðasta fundar.
Takk fyrir.
Og munið nú, öllsömul, glæpir gerast.
Verum öll viðbúin.
Komdu, Molly, mál að fara.
Ég verð of sein í skólann!
Snjólfur kapteinn, þú stjórnar í fjarveru minni.
Ég vil byrja á að bjóða Hvítu-Þrumu aftur velkomna úr þvottavélinni...
sem var sett þangað inn með rauðu teppi
og mun eftirleiðis kallast...
Bleika-Þruma.
Jæja, ég fer núna í eftirlitsferð.
Góðan daginn, New York borg!
Snjólfur!
Hei, Snjólfur, hvað ertu að gera?
Hvað sýnist þér ég vera að gera?
Ég leita að glæpum, Litli-Hundur.
Ég er að gera ofurhetjudót.
Ég skal segja þér dálítið. Ef einhver kemur hingað í leit að vandræðum
þá hittir hann félaga mína.
Ég er að tala um Loppu og Reglu.
Einmitt, en þú veist að eigandinn þinn er bara í ofurhetjuleik, ekki satt?
Þú ert bara klæddur í ofurhetjunáttföt.
Litli-Hundur, kjáni ertu!
Bentu mér í átt að einhverju dýri sem þarf hjálp mína
og víktu frá!
Banahögg!
Einmitt, ég náði því.
Svo, er krakkinn þinn farinn í skólann?
Sei, sei, já, hún fer í próf í dag.
Í stafsetningu. Hún fer létt með það.
Hún skrifar öll svörin sín með bleki.
Svo örugg er hún.
Hún hljómar mjög klár en veistu hvað? Liam er líka klár.
Reyndar heyrði ég Kötu segja
að höfuðummál Liams væri í efstu tuttugu prósentunum.
Ó, mjög svalt. Það er mikill haus.
Hei, snögg spurning, pissar hann enn þá út um allt?
Hefur enga stjórn á blöðrunni?
Já, hann pissar.
En öll gæludýr vita, ef þú pissar á það áttu það.
Og Liam er bara framsýnn.
Já, en þú þarft samt að venja hann áður en leikskólinn byrjar.
Þú vilt ekki að Liam fái orð á sig sem einn af pissukrökkunum.
Já, auðvitað. Bíddu, leikskóli?
Já. Hann er á þeim aldri.
Litli fuglinn fer úr hreiðrinu, LH.
Nei, nei. Litli fugl verður kyrr.
Hann þarf ekki leikskóla. Hann, þú veist...
verður heima með mér þar sem er óhætt.
Hei, Max.
Þetta er ekkert stórmál, óþarfi að æsa sig...
en Liam fór út.
Ha, hvað? Hvert fór hann?
Ég veit það ekki, þau segja hundum aldrei frá því.
Allt í lagi, allt í lagi.
Þetta er Heimastöð til allra hópa!
Pakkinn er farinn úr byggingunni. Er einhver með augu á honum?
Ég sé hann ekki, skipti.
FLÖGUR
Hann er ekki í þessum flögupoka.
Skipti!
Einmitt. Vertu...
Bíddu hægur, því ætti hann að vera í flögupoka?
Heimastöð, þetta erArnarauga.
Engar áhyggjur.
Ég hafði augu á pakkanum um leið og hann yfirgaf bygginguna.
Skipti.
Viðfangið er alveg öruggt
og virðist gæða sér á smáköku í lögun eins og elgur.
Fáðu þér.
Nei, bíddu...
þetta er hreindýr.
Einmitt, takk, Norman.
Enn að klóra þér, vinur.
Mér bara...
Mér er illa við það þegar þau fara út með hann án mín.
Hei, Duke!
Hvað er þetta?
Ég veit það! Þetta er bolti!
Sæktu hann!
Hei, Maxí! Eigum við að fara í göngutúr?
Veistu, ég verð að játa, þetta er indælt.
Gott að teygja úr fótunum.
Nei, ég vil ekki fara til dýralæknisins!
Dýralæknisins? Nei!
Nei, nei, nei!
Ekki svalt, þú gabbaðir mig!
DR. FRANCIS DÝRALÆKNIR
Maxí, komdu nú.
Þú hefur verið stressaður að undan- förnu en dýralæknirinn hjálpar þér.
Komdu, vinur.
Jæja.
Fyrsta skiptið hér?
Já.
Doktor Francis er besti dýralæknirinn í bransanum.
Þú verður hrifinn. Sérgrein hans er atferlisvandamál.
- Atferlisvandamál? - Já.
En ég hef engin atferlisvandamál. Ég meina...
ég hef smá áhyggjur, já, en þetta er hættulegur heimur.
Maður væri óður að hafa ekki áhyggjur.
Já, það amar heldur ekkert að mér.
Það er manneskjan mín sem er klikk. Ég meina, þú veist.
Ég færi henni dauðan fugl, hún fleygir honum út.
Ég færi henni dauða mús, fer beint í ruslið.
Er ekkert sem ég geri nógu gott fyrir þig, mamma?
Einmitt...
Ég hleyp og ég hleyp og ég hleyp og ég hleyp og fer út
og hef ekki komist neitt.
Ekki neitt!
Eigandinn minn segir alltaf: „Þú ert svo góður hundur, “
og mér finnst ég vera góður en hvað ef ég er innst inni vondur hundur?
Hvað ef ég er vondur hundur?
Við kveikjum elda.
Max?
Komdu.
Ég veit, vinur.
Þetta er bara þar til við náum stjórn á þessu klóri þínu.
Bjössi Bý!
Max! Max!
No comments yet. Be the first to leave one.