De første 200 linjer.
TAKK FYRIR OKKUR, STAN
HALA HÖFUÐSTAÐUR KREE-ÞJÓÐARINNAR
Veistu hvað klukkan er?
Ég get ekki sofið.
Við eigum töflur við því.
Já, en þá væri ég sofandi.
Draumarnir aftur?
Viltu slást?
Ég rann.
Þú rannst vegna þess að ég kýldi þig í andlitið.
Ég var byrjuð að renna þegar þú kýldir mig óvart.
Þetta tvennt er ótengt.
Segðu mér frá draumnum.
Eitthvað nýtt? - Nei.
Þú verður að gleyma fortíðinni.
Ég man ekki fortíð mína.
Hún fær þig til að efast og efinn gerir þig berskjaldaða.
Hafðu stjórn á þessu.
Ef þú missir stjórnina aftur bíður þín samtal við Yfirgreindina.
Ekkert er skæðara fyrir stríðsmann en tilfinningar.
Gamansemi er truflandi.
Og reiðin? Hún þóknast aðeins óvininum.
Nú eru liðnir 120 dagar frá síðustu Skrull-árás.
Hefur einhver séð hvernig Yfirgreindin lítur út?
Enginn getur séð Yfirgreindina í sinni raunverulegu mynd.
Þú veist það.
Undirmeðvitund okkar velur birtingarmynd þeirra.
Þetta er heilagt og persónulegt.
Enginn Kree segir frá þessu.
Hvern sérð þú?
Bróður þinn? - Nei.
Föður? - Nei.
Gamla foringjann? - Vers.
Sérðu mig ekki?
Ég veit hvað þú ert að reyna.
Virkar það? - Já.
En þér tekst ekki að skipta um umræðuefni.
Til hvers að færa mér þetta...
ef ég má ekki nota það?
Ég vil að þú notir þetta.
Yfirgreindin lagði þá ábyrgð á herðar mér
að kenna þér að nota þetta.
Ég kann það.
Ef það væri satt gætirðu slegið mig niður án þess.
Hafðu stjórn á hvötunum.
Hættu að nota þetta, lærðu að nota þetta.
Ég vil að þú verðir besta útgáfan af sjálfri þér.
YFIRGREINDIN GERVIGREINDARLEIÐTOGI KREE
Vers.
Greind.
Foringinn heldur því fram að þú sért orðin bardagahæf.
Ég er það.
Þú átt í basli með tilfinningarnar
og fortíð þína sem knýr þær áfram.
Þú ert aðeins eitt af fórnarlömbum útþenslu Skrulla
sem hefur ógnað menningu okkar öldum saman.
Þessir loddarar fara Huldu höfði
og taka völdin á plánetum okkar.
Þú manst ýmsan hrylling
en hefur gleymt svo miklu.
Það er allt í móðu. Líf mitt.
Þú átt að taka þér mynd þess sem ég dái mest
en ég man ekki einu sinni hvernig þessi kona tengdist mér.
Kannski er þetta miskunn að hlífa þér við enn dýpri sársauka.
Svo að þú getir gert það sama og aðrir Kree-ar
og lagt þarfir þjóðarinnar ofar þínum eigin.
Við höfum blessað þig með mikilli náðargjöf.
Tækifæri til að berjast fyrir alla Kree-þjóðina.
Ég vil berjast.
Náðu þá tökum á sjálfri þér.
Það sem við gáfum þér getum við tekið til baka.
Ég bregst ykkur ekki.
Það kemur fljótt í ljós.
Þú hefur fengið verkefni.
Sinntu skyldum þínum vel og sómasamlega.
Þetta getur ekki verið gott.
Hlýtur að vera önnur Skrull-árás.
Hvað sem það er, þá er það stórt.
Hefur Skrull líkt eftir þér?
Einu sinni.
Það var mjög óþægilegt. - Hvers vegna?
Því að ég starði í andlit versta óvinar míns
og andlitið sem starði á móti var mitt eigið.
Ef þú værir myndarlegri hefði það verið þolanlegra.
Þú þykist vera fyndin en ég hlæ ekki.
Þú hlærð aldrei.
Ég hlæ hið innra.
Ég geri það ekki núna.
Fyndið, því hlutlaust séð ertu ansi myndarlegur.
Þakka þér fyrir.
Hættið þessu öll.
Jæja.
Búið ykkur undir...
að finna og bjarga njósnara okkar, Soh-Larr.
Skrullar réðust á aðra landamæraplánetu.
Í þetta sinn var það Torfa.
Soh-Larr sendi viðvörun.
En þeir greindu merkið og þannig komst upp um hann.
Skrull-hershöfðinginn Talos sendi sveitir til að finna hann.
Ef þeir ná honum á undan okkur
komast þeir yfir þær upplýsingar sem hann hefur safnað í þrjú ár.
Ásakendurnir sprengja upp vígi Skrulla hérna í suðri.
Við laumumst inn, finnum Soh-Larr,
og forðum okkur án þess að þeir taki eftir því.
Íbúar Torfu.
Við komum ekki nálægt þeim eða þeir okkur.
Ekkert má stefna öryggi verkefnis okkar í hættu.
Farið afar varlega.
Fylgið reglunum áður en þið bjargið honum.
Þetta er háskaför.
Verum tilbúin að sameinast Heildinni ef slík verða örlög okkar í dag.
Fyrir alla Kree-þjóðina.
Fyrir alla Kree-þjóðina.
TORFA LANDAMÆRAPLÁNETA KREE
Vers, rektu merkið frá Soh-Larr.
Att-Lass og Minn-Erva, farið ofar.
Heimamenn í grenndinni.
Rúmur tugur.
Minn-Erva?
Heyrirðu í mér? Heyrir einhver í mér?
Segðu þetta aftur.
Merkið berst frá hofinu. Förum þangað.
Nei, þetta er tilvalinn staður fyrir launsátur.
Ein leið inn og út.
Förum fram hjá heimamönnunum.
Við vitum ekki hvort þetta eru heimamenn. Of mikil áhætta.
Ekki fylgja mér. Ég fer ein.
Þú gerir það ekki.
Reynum að halda hópinn.
Ef sambandið slitnar hittumst við hjá Helíon.
Áfram.
Att-Lass, sérðu þetta?
Já, ég sé þau.
Farið frá.
Foringi?
Farið til baka. Farið frá.
Minn-Erva? Sérðu þetta?
Haltu aftur af þeim. Minn-Erva?
Heyrir einhver í mér?
Ég vil ekki gera ykkur mein.
Farið frá.
Farið frá.
Þetta eru heimamenn. Ég fann tvo dauða. Ekkert grænt.
Þau eru bara hungurmorða.
HGX-78.
TRT79-VVX6.
Farið frá.
Skrullar!
Vers!
Vers? Skrullar.
Þetta er launsátur.
Loftárás!
Aftur í Helíon.
Vers. Heyrirðu í mér?
Förum aftur í Helíon.
Svaraðu, Vers.
Hvernig vissirðu lykilorðið?
Ég skal segja þér leyndarmálið mitt
þegar þú hefur sagt mér þitt.
Opnum hana.
Hvar erum við?
Hinkraðu.
Hvar er hausinn á þér?
Í skýjunum, en hausinn á þér?
Á öxlunum og ég ætla að sýna strákunum hvernig þetta er gert.
Ertu tilbúin?
Hærra, lengra og hraðar. - Hárrétt.
Þetta getur ekki verið rétt.
Farðu lengra aftur.
Þú keyrir of hratt. Hægðu á þér.
Hver er þetta? Erum við í rétta...?
Hvað ertu að hugsa? Þú átt ekki heima hérna.
Við fórum of langt aftur.
Þú leyfðir honum að keyra.
Ég ætla að prófa svolítið.
Gefstu upp!
Þú átt ekki heima hérna!
Þú ert ekki nógu sterk.
Þú drepur þig.
Þeir leyfa þér aldrei að fljúga.
Er ég sá eini sem er ringlaður hérna?
Þú ert sæmilegur flugmaður.
En þú ert of tilfinningarík.
Veistu ekki af hverju þetta er kallað "cockpit"?
Gríðarlegar drunur í alheiminum hristu tunglið
og sólina og stjörnurnar á himnafestingunni.
Alouette litla flaug um næturhimininn.
Sástu hana? Þetta var Alouette.
Komið ykkur inn. Það er kominn matur.
Tilbúin fyrir flugtak, vandræðapési.
Falleg minning.
Bíddu við.
Ég held að þetta sé komið.
Gæs líkar vel við þig.
Hún er yfirleitt ekki gæf.
Þú byrjar daginn snemma.
Reyndar vakti ég lengi.
Ég get ekki sofið þegar það er verk að vinna.
Hljómar það kunnuglega?
Það er aldrei eins og vinna að fljúga fyrir þig.
No comments yet. Be the first to leave one.