Threesome

Threesome

Download Icelandic undertekster

Sæson 1

Udgivelsesinfo

Threesome S01 720p WEB-DL H 264 ice
En kommentar af CtrlAltDel

Tags

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
720p
720
Udgivet den: 2022-03-21
Downloads: 12
Hørehæmmede: No

Forhåndsvisning af Icelandic undertekster

De første 147 linjer.

VIÐVÖRUN: Í ÞÆTTINUM BIRTAST ATRIÐI AF KYNFERÐISLEGU TAGI

Viltu fá það?

-Ég vil fá það fyrst. -En ég er svo nálægt því.

Ertu að fá það?

Við getum beðið aðeins, ef þú vilt.

Ég elska þig.

Uss, bíddu.

Halló?

Skiptir engu.

Hvað í andskotanum?

Halló?

Fyrirgefðu! Enginn kom til dyra, svo ég hélt þið væruð að heiman.

-Ég er með aukalykil, til öryggis. -Þetta er allt í góðu.

Ég fékk skilaboðin frá þér um sprunguna í loftinu

og datt í hug að skoða hana áður en ég fer til Durham á morgun.

Meinarðu núna, eða...?

-Já, ef það er í lagi. -Já, ekkert mál...

Bara rétt að kíkja.

Halló!

Þetta eru fjárans árstíðaskiptin,

þau valda hreyfingu í steypunni.

Já, málið er að það er salli og... Hvað kallarðu það?

-Múrhúð. -Múrhúð sem fellur niður,

svo það væri gott að fá þetta lagað sem fyrst.

Já, vitaskuld.

-Virkar vaskurinn alveg? -Já, hann virkar mjög vel, takk.

Gott.

-Þetta er ekki í lagi. -Ég veit það.

-Hún getur ekki bara vaðið inn. -Nei.

-Svo lengi sem hún lætur laga loftið. -Það verður að virða mörk.

-Hún vissi hvað við vorum að gera. -Kannski kom hún inn þess vegna.

Sástu hvernig hún horfði á mig?

Fjárinn.

Það er óþægilegt að hún skuli vera með lykla.

Hún getur komið inn hvenær sem er. Á meðan við erum sofandi.

-Kannski setur hún upp myndavélar. -Nei.

Það er raunar furðualgengt.

Kannski er sprungan út að því, hún kom myndavélum fyrir þar.

Hættu.

Svo situr hún og horfir á þig á meðan hún fitlar við sig.

Andskotinn hafi það.

Hvað ertu að gera?

Ég vil bara að hún fái það sem hún vill.

-Viltu að hún sjái mig? -Já.

-Sjáðu þetta þá! -Hættu.

Ég skal halda sýningu fyrir hana.

Nei, nei! Ég var að grínast, ég tek þetta aftur.

Breiddu yfir þig!

Það er eins og þú sért að pissa á mig.

-Ég þarf reyndar að pissa. -Nei, hættu.

Áttu ekki eitthvað töffaralegra?

Töffaralegt?

Eitthvað meira spennandi.

Er svartur bolur ekki nógu góður?

Það er alltof venjulegt, David.

Þetta verður eins og síðast, við komumst ekki inn.

Siri? Láttu Siri fá símann.

Hæ.

Áttu skyrtu sem þú getur lánað honum?

Það þarf að hressa upp á hann.

-Hvert ætlið þið? -Á Tau.

-Hvar er það? -Í Shoreditch.

Örugglega, ég skal athuga.

Hvað varstu með í huga?

-Ha? -Hvað varstu með í huga?

Skyrtu eða blússu, eitthvað svolítið spennandi.

Hvað með þessa?

Frábært, tökum þessa. Þú ert engill.

Hér er David aftur.

Ég hringi þegar ég legg af stað.

-Sjáumst á eftir. -Bless.

Þetta er flott.

Ég er farinn.

Mig langar líka að eiga líf.

Komdu þá með.

Ég get það ekki, ég þarf að díla við þetta núna.

Lærðu í nokkra tíma og komdu svo.

Ég get það ekki.

Ég þarf líka að mæta í leshópinn á morgun.

Hringdu allavega þegar þú ert búin.

Sjáum til þá.

Góða skemmtun.

-Heyrumst. -Já.

-Bless. -Knús.

Byrjum á viðskiptastefnu...

Stefna þróunarríkjanna

-Hæ. -Jei! Bókaormurinn!

-Velkomin! -Takk.

Hvað langar þig í?

-Cava. -Nei, nei.

Viskí og kokteilar eru málið hér. Kínverskt postulín.

Nú?

Svo þú gafst skít í lærdóminn?

Það er svo mikið lesefni, ég get þetta ekki.

-Ókei, en allt í góðu að öðru leyti? -Já, já, þetta er mikið en...

-Hvað með þig? -Já, allt í góðu.

-Hefurðu ekkert talað við Miriam? -Um hvað? Þig?

Já, hún hætti að fylgja mér á Instagram, sem ég tel óverðskuldað.

-Gleymdu henni bara, gleymdu þessu. -Njah, ég held ekki.

Afsakið, ég pantaði cava, get ég heldur fengið svona í staðinn.

Veistu hvað hún er að gera í kvöld?

Ekki hugmynd, ég hef ekki talað við hana.

-Viltu kannski hringja og athuga? -Nei, Mario, ég geri það ekki.

Fyrirgefið, hvaða tungumál eruð þið að tala?

-Hvað segirðu? -Hvaðan eruð þið?

Svíþjóð.

-Halló, Mario, gleður mig. -Camille, gaman að hitta þig, Mario.

-En þú? -Siri.

Fyndið, ég hélt þið væruð hollensk.

Ég fór nýlega til Amsterdam

og tungumálið ykkar hljómar mjög líkt.

-Finnst þér það? -Já.

-Hvaðan ert þú? -Frá Frakklandi.

París.

Ég dýrka Frakkland.

-Hefurðu komið þangað. -Nei.

Ég fór til Stokkhólms í fyrra.

Fór í janúar með vinkonu minni.

Allir misstu sig, voru alveg

"Hvað í fjáranum eruð þið að gera hér í janúar?"

-Það er kalt. -Ég er samt mjög hrifin af borginni.

Þú ættir að heimsækja Gautaborg, ég er þaðan.

Hún er raunveruleg höfuðborg Svíþjóðar.

Stokkhólmur er meira eins og rassinn,

-þaðan kemur allur skíturinn. -Er það?

Já, ég skal sýna þér Gautaborg og þú sýnir mér París, oui?

Peut-être . Já, ég skal íhuga það.

Hæ.

-Ert þú líka sænskur? -Fyrirgefðu?

David, kollegi, sænskur. Þetta er Camille, útlendingur, frönsk.

Ef þið eruð ekki að ræða eitthvað of persónulegt

þá erum við vinir mínir með borð þarna, velkomin að vera með okkur.

-Já, endilega. -Gaman.

Frábært.

Frá Svíþjóð...

Chanter!

Nei, það þýðir "að syngja".

Ég er listamaður.

Ég fæ einn og ég held að David yrði flottur í...

Opnaðu það.

Hvað eruð þið að gera í London?

Ég er í námi og David vinnur við símasölu.

-Eruð þið saman? -Já.

Hvað hafið þið verið hér lengi?

Í sex mánuði.

Eruð þið ánægð?

Já, það er...

Kommentarer

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left