De første 200 linjer.
Á MEÐAN JÖRÐIN HITNAR Æ MEIRA
OG ÞURRKAR OG SJÚKDÓMAR HRJÁ MANNKYNIÐ,
LEITA VÍSINDAMENN AÐ NÝRRI PLÁNETU
SEM MANNFÓLK GÆTI LIFAÐ Á.
HÚN FINNST ÁRIÐ 2063.
Blái liturinn táknar vatn. Sá rauði er súrefni.
Þetta er besta tækifæri okkar til að finna lífvænlega plánetu
sem við getum flutt til og tryggt framtíð mannkyns.
Aðstæður fara síversnandi hér á jörðinni
svo það er nauðsynlegt að senda könnunarleiðangur fljótt af stað.
Ferðalagið þangað mun taka 86 ár.
Áhöfnin mun því fjölga sér um borð í geimskipinu
og barnabörn þeirra munu ná til plánetunnar.
Nóbelsverðlaunahafi í eðlisfræði...
heilsaðu upp á lífverkfræðing frá MIT-háskólanum.
Fyrsta áskorunin var að finna þrjátíu hæfa áhafnarmeðlimi
sem gætu þolað streituna sem fylgir langvarandi innilokun.
Það ásamt vitneskjunni um að þeir snúi aldrei aftur.
Lausn okkar var að rækta og fóstra eigin áhöfn.
Þjálfa hana í einangrun svo hún sakni ekki jarðarinnar.
Næsta skref er að leggja mat á
hvenær meðlimirnir geta lagt af stað.
Því yngri sem þau eru,
því lengur getum við varðveitt auðlindir
og lengt tímalínu verkefnisins.
En þau verða ein á skipinu.
Og þó ég beri fullt traust til mennta-og umsjónarkerfis okkar
hef ég mestar áhyggjur
af getu þeirra til að takast á við hætturnar sem mæta þeim á leiðinni.
Sumar þeirra erum við rétt byrjuð að skilja.
Afmengumn lokið.
- Richard! - Richard!
Richard.
Hvernig myndirðu leysa þetta?
Gott.
Sofðu vel, Christopher.
Sofðu vel, Sela.
Sofðu vel, Zac.
Ég er hræddur.
Við hvað?
Ég veit það ekki.
Það er ekkert að óttast.
Þú ert öruggur.
Ég vil fara með þeim.
Þetta er ferð aðra leið, Richard. Það er ekki aftur snúið.
Þú munt deyja þarna uppi.
Ég mun deyja hérna niðri að lokum.
Það virðist vera eins fyrir mér.
Ástæðan fyrir að við ölum þau svona upp
er fyrir andlega heilsu þeirra.
Svo þau sakni ekki opinna svæða, sólarljóss, fólks.
Þú aftur á móti munt eiga erfitt með að takast á við...
Ég mun ekki sakna neins.
Það er ekki hluti af áætluninni.
Ég veit, en hugsaðu svona um þetta.
Þið getið skotið á loft fyrr ef ég fer með þeim.
Eftir fjögur ár í stað sjö.
Einhver ætti að vera þarna til að ala þau upp.
Til að vernda þau.
Þú veist að ég hef rétt fyrir mér.
T-mínus 15 sekúndur. Tilbúin til brottfarar.
Þrettán, 12, 11.
Skipti frá stöðvartölvu í flaugartölvu.
Sex, fimm.
Ræsi aðalvélar. Þrír, tveir, einn.
Hæ.
- Er allt í lagi? - Já.
- Gangi þér vel. - Takk.
LOFTLOKI LOKAÐUR
Lúga lokast.
TÍU ÁRUM SÍÐAR
Þið eruð hlekkurinn á milli kynslóða fortíðar og framtíðar
og hefur verið treyst fyrir framtíð mannkynsins.
Þið munuð eignast börn um borð í geimskipinu
og barnabörn ykkar munu lenda á plánetunni.
GEN 24 ÁRA
Fjölgun um borð mun eiga sér stað Í gegnum gervifrjóvgun og ræktun
á 24. aldursári hverrar kynslóðar
til að hámarka auðlindir.
Við erum fyrsta kynslóðin svo við munum aldrei sjá plánetuna.
Við fáum aldrei að vita hvað þau uppgötva.
Það er satt.
Líf okkar eru ekki mikilvæg.
Nei, líf þitt...
líf mitt er jafn mikilvægt og annarra.
Hér eða á jörðinni.
Ég skal sýna þér nokkuð.
Ég má ekki leyfa neinum að sjá þetta.
Þetta er pabbi minn og foreldrar hans.
Afi minn og amma.
Ég kynntist þeim aldrei, en ég veit að þau lifðu heiðvirðu lífi.
Þau önnuðust fjölskyldu sína unnu til að tryggja framtíðina.
Við getum ekki gert mikið meira.
EITUREFNI GREINDIST - ENDURSÍIÐ ÚRGANGSVATN
SKIMA EFTIR 1563 GERVIEFNI EITUREFNAFLOKKUR 2
Hvað er að gerast?
Það er eiturefni í áveituvatninu.
Skiptu um síuna og prófaðu aftur.
Það kemur frá okkur. Það er í þvaginu frá okkur.
Það er úr einhverju sem við borðuðum.
Erum við að borða eitthvað eitrað?
Kannski eitrað fyrir plöntu sem lifir eingöngu á vatni.
En þú ert sterkari en það.
Hvaða efni er þetta?
Ég veit það ekki. Skiptu bara um síuna.
FÆÐUBÓTAREFNI
T56J
ENGAR UPPLÝSINGAR TILTÆKAR
Heyrðu.
Hvað finnst þér um þetta?
Þetta er innihaldsefni Í einhverju sem við borðum.
ENGAR UPPLÝSINGAR FÁANLEGAR SJÁ LEYFI KERFISSTJÓRA
Af hverju eru þær ófáanlegar?
Förum.
Hvernig komstu fram hjá eldveggnum?
Ég tengdist beint við örgjörvann.
Ég komst í skipulagsteikningarnar á sama hátt.
ENGAR UPPLÝSINGAR FUNDUST
Prófaðu næringu.
Það er ekkert þarna.
Er þetta eitthvert vítamiín?
Kannski... lyf.
SAFNAR NIÐURSTÖÐUM, BÍÐIÐ AUGNABLIK
NIÐURSTÖÐUR
Hér kom þetta.
YFIRLIT - STARFSFÓLK IEC EINGÖNGU
"Virkt innihaldsefni Í daglega drykknum A.02.
Blandist við blátt alkalískt síróp til að vinna gegn magaertingu."
Blátt.
Það er blái drykkurinn.
"Virkni eykst við neyslu með mat."
Hvaða virkni?
Ég hélt að þetta væri bara meltingarensím.
"Persónuleiki verður dofinn og rólyndur."
"Útilokar kynferðislöngun og tilfinningar."
"Minnkuð ánægjusvörun."
"Minnkuð ánægjusvörun"?
Ég vil meiri ánægju.
Þau gefa okkur lyf.
Til að stjórna okkur.
Róa okkur niður.
Þau vilja ekki að við fjölgum okkur náttúrulega.
Þau vilja ekki að við eigum kynmök.
Svo við finnum ekki hvernig það er.
Og svo við fjölgum okkur ekki of mikið.
Til að spara mat.
Mér er sama.
Ég drekk þetta ekki.
Þannig að Richard laug að ykkur.
Verkefnið lýgur.
Hverju öðru leyna þau okkur?
Christopher fann falinn klefa.
- Í skipsteikningunum. - Hvar er hann?
Í belg 23. Ómerktur á bak við vegg.
- Hvað er inni í honum? - Ég veit það ekki enn.
Ekki segja Richard að þið hættuð að drekka bláa drykkinn.
Hann neyðir þá aftur til þess hvort sem er.
Kannski, en þá vitum við hvernig það er.
Hvernig tilfinning er það?
Hefur eitthvað breyst frá því að þið hættuð?
- Já, en... - Hvar er ánægjan mín?
Hérna.
Smá stuð.
- Straumur. - Bit.
Þið vitið að þetta er sóun á rafmagni.
Farðu.
Jæja...
um hvað hefur þú hugsað frá síðasta fundi okkar?
Ekkert.
Ekkert, í alvöru?
Ég var kannski að velta því fyrir mér...
af hverju lýgurðu að okkur?
Hverju heldur þú að ég hafi logið?
Ég komst að því að...
Hvað?
Það er til ómerktur klefi.
Í belg 23.
Verkefnið leynir ákveðnum upplýsingum af ýmsum ástæðum.
Jafnvel frá mér.
Það eru ekki alveg lygar, en...
Ég veit hvað þú átt við.
Hvernig fannstu hann?
Ég gerði það bara. Hvað er inni í honum?
Ég veit það ekki.
Ég veit það ekki. Það hlýtur að vera fyrir þriðju kynslóðina.
En af hverju er hann falinn? Ertu ekki forvitinn?
Ég er það.
Hann er líklega fyrir þau. Hann er...
fyrir barnabörn þín.
Það er ótrúleg tilhugsun. Þú munt eignast börn
og þú munt eignast barnabörn.
Hvað finnst þér um það?
Þau eru venjuleg börn, þau eru næm og gáfuð,
sem þýðir að þau vita þegar ég segi þeim ekki satt.
Og það er aðalmálið.
Ég vil vera heiðarlegur við þau um allt.
Annars munu þau...
missa trúna á mér.
Þannig að...
ég þarf að fá fljótt svar frá þér um þetta.
No comments yet. Be the first to leave one.