Staffel 1

Release Info

Den Som Draeber Fanget af Moerket S01 NORDiC 720p WEB H264-EGEN
Den Som Draeber Fanget af Moerket S01 NORDiC 1080p WEB H264-EGEN
Den Som Draeber Fanget af Moerket S01 NORDiC 1080p RERiP WEB-DL H 264-QUARK
Den Som Draeber Fanget Af Morkret S01 NORDiC 1080p VP WEB-DL DD5 1 H 264-ROLLiT
Ein Kommentar von fluffytoy

Tags

web
720p
720
1080
Web-DL
web-dl
WEB-DL
Veröffentlicht am: 2021-05-21
Downloads: 31
Hörgeschädigt: No

Icelandic Untertitel-Vorschau

Die ersten 188 Zeilen.

ÞAU SEM DREPA

TIL SÖLU

LÖGREGLAN

Góðan dag.

Hæ, Jan. Møller Thomson vill tala við okkur.

-Um hvað? -Hef ekki hugmynd.

Góðan dag. MT vill tala við okkur.

Já, Gitte sagði það.

Hafa tæknimennirnir haft samband vegna tösku Julie?

Það var bara DNA úr henni og móður hennar sem hjálpaði ekki.

-Hvað með símalistana? -Ég fór yfir þá.

Það voru engin ný eða áhugaverð nöfn.

Hvað með gaurinn sem Julie talaði við í partíinu? Axel?

Við höfum rætt tvisvar við hann.

-Hann var sá eini á bíl. -Hann er með fjarvistarsönnun.

Já, móður sína. Við vitum að gerandinn var á bíl.

-Já, sendibílinn. -Hvað ef það er ekki þessi?

Jan...

Hvernig var helgin?

Ég var heima.

Annmarie er ekki búin með salernið. Kassar af flísum alls staðar.

-Við þurfum einhvern tímann að selja. -Ég get hjálpað þér á laugardaginn.

Nei, við ákváðum að Annmarie gerði þetta.

Ég vil ekki byrja á einhverju núna.

Láttu okkur vita ef þú skiptir um skoðun. Ég kem ef ég fæ bjór.

Nei, takk fyrir. Ég þigg þetta samt gjarnan.

Þá hefðirðu átt að koma fyrr.

-Góðan dag. -Hæ.

Eftir gengjaskotárás föstudagsins varð ég að færa fólk til.

Gitte og Dennis, þið haldið áfram með Julie og Jan tekur skotárásina.

-Er hún mikilvægari? -Já, við þurfum að endurforgangsraða.

Rannsóknin hefur varað í hálft ár án þess að hún hafi gengið upp.

-Hvað gerirðu núna? -Segi fjölskyldu Julie þetta.

Leyfðu mér að gera það, Jan.

-Ég hef haft samband við hana. -Já, en...

Hún lagði traust á mig þegar ég sagði að við fyndum Julie.

Ef einhver ætti að segja henni það þá er það ég.

-Þið hafið gefið upp von. -Nei, rannsóknin heldur áfram.

-Þið haldið líka að hún sé dáin. -Hann segir það ekki.

Á laugardaginn er hálft ár frá því hún hvarf.

Ég veit vel að Julie er ekki lengur á lífi.

Ég þarf samt að vita hvað gerðist.

-Ég skil það mjög vel. -Áttu börn?

-Nei. -Þá skilurðu það ekki.

Hættu, mamma. Hann lofaði að finna hana.

Er það ekki, Jan?

Jú.

Ég vil bara lausn málsins.

Ég vil geta grafið dóttur mína.

Það er liðið hálft ár, Jan. Gerðu það, finndu hana.

Ég held áfram að leita.

Ég finn hana.

Ég lofa því.

Hvað sagði fjölskylda Julie?

Hún telur okkur hafa gefist upp.

Að hafa bara tvo í rannsókninni sé eins og við höfum misst vonina.

Ef þú talar við MT get ég tekið skotárásina.

Takk fyrir en það er óþarfi.

Hann ákveður ekki hvað ég geri í frítíma mínum.

Allt horfið fólk frá 1980. Njóttu.

Bless.

Við fórum tíu ár til baka. Þetta er tímasóun.

Það gætu verið líkindi við eldri mál. Ég þarf að vera viss.

-Nei. -Lítur vel út!

-Hæ, Jan. -Hæ.

Nei. Hættu þessu!

-Það er til pítsa. -Nei, takk fyrir.

-Lokaðirðu á eftir þér? -Já.

Í sambandið við herbergið sagði bróðir minn

að þú þyrftir stað til að vera á í nokkrar vikur.

Það er ekki svo langur tími en nú er lengra liðið.

Það eru liðnir næstum fimm mánuðir og vini hefur verið sparkað út...

-Ég er með mánaðar uppsagnarfrest. -Ég man ekki hvað við sögðum.

Ég man það.

Flyturðu þá út eftir mánuð frá deginum í dag?

HORFIN MANNESKJA

Natasha Markwart Gilholm var tilkynnt horfin 25. apríl 2008 á miðnætti.

Enn ekki fundin.

Leit hætt 10. desember 2009. Mögulegt sjálfsmorð.

Nemandi við Greve-menntaskólann.

GREVE-MENNTASKÓLINN

Natasha? Hún var veik á geði. Hún drekkti sér.

Líkið fannst aldrei.

-Hversu gömul var hún? -17 ára.

Natasha yfirgefur partí í Greve-menntaskólanum

og hverfur á leiðinni heim. Alveg eins og Julie.

Gerandinn gæti hafa gert þetta áður.

Þetta var fyrir tíu árum og var flokkað sem sjálfsmorð.

Það gæti hafa verið rangt. Hefðir þú klætt þig upp á fyrir sjálfsmorð?

-Hvað sögðu foreldrar hennar? -Þeir trúðu því ekki heldur.

Ég þarf að tala við foreldra hennar. Má ég taka þetta?

Góðan dag, MT.

-Hvert fer hann? -Til Køge.

Já, hann þarf að ræða við fólk.

Natasha hafði áður reynt að taka eigið líf.

Hún reyndi að drekkja sér á ströndinni þegar hún var 14 ára.

Eftir það var hún um tíma á spítala.

Hún fékk geðrof og þjáðist af ranghugmyndum.

-Hvernig sýndu þær sig? -Hún taldi sig vera elta.

Hún hélt að einhver fylgdist með sér.

Hún varð samt mun betri eftir meðferð og lyf.

Henni líkaði að fara í skóla.

Trúið þið ekki kenningunni um sjálfsmorðið?

Nei.

Ég þekki dóttur mína. Hún var komin yfir þetta.

Lögreglan hlýtur að hafa kenningu um að eitthvað hafi komið fyrir.

Já, en ekki lengi. Hún leitaði á milli skólans og heimilisins

en þegar ekkert fannst sagði hún að hún hefði drekkt sér.

Henni var sama um þá staðreynd að maður hefði elt hana.

-Hvenær var það? -Nokkrum vikum áður.

Hún hringdi eitt kvöld af stöðinni og sagði að einhver elti hana.

Ég ók þangað til að sækja hana en hann var þá farinn.

Heldur þú, eins og lögreglan, að hún hafi búið þetta til?

Lögreglan sagði hana hafa ímyndað sér þetta.

Natasha var frísk.

Hún var dálítið leið í partíinu. Það var í sambandi við gaur.

Við hvern talaði hún þegar hún var leið?

Ég veit það ekki. Hún átti marga vini.

Átti hún besta vin?

Ditte?

Þær höfðu verið vinkonur frá því í grunnskóla.

Hún gekk ekki í þennan menntaskóla svo hún var ekki í partíinu.

-Hvar bjó hún? -Í þorpinu.

-Hinum megin við skóginn? -Já, nálægt vatninu.

Hæ, Dennis, þetta er ég. Við þurfum að skoða dálítið.

Ég held að ég viti hvað kom fyrir Natöshu Gilholm.

Krufningarskýrslan.

Tannlæknaskýrslur staðfesta að Natasha var í vatninu.

Aðstoðarlögreglustjórinn er hér.

Karlslund, þetta er Jan Michelsen sem fann Natöshu.

-Jan hefur verið hjá okkur í ár. -Við höfum ekki hist.

-Vel gert. -Takk fyrir.

Dennis Højbjerg og Gitte Hermansen þekkir þú.

Hver er áætlunin núna?

Jan vill sameina rannsóknina við málið hjá Julie.

-Gerandinn gæti verið sá sami. -Er eitthvað sem styður það?

Það er ýmislegt líkt. Stelpurnar voru báðar ljóshærðar á sama aldri.

Þær hurfu á sama svæði á sama tíma dags.

Í máli Julie erum við með brunninn bíl, sennilega gerandans.

Þremur dögum eftir hvarf Natöshu fannst svipaður bíll.

-Hann var stolinn og brenndur. -Það gæti verið tilviljun.

-Það eru nú liðin tíu ár. -Gerandinn gæti verið sá sami.

Ég vil sérfræðiálit áður en málin verða sameinuð.

Fólk verður hrætt ef það fréttir að við leitum að raðmorðingja.

Louise Bergstein? Hún er okkar besti afbrota- og sálfræðingur.

Hún var ráðin frá Englandi þar sem hún vann sem greinandi.

-Hún vinnur ekki fyrir lögregluna. -Nei, neyðarmóttöku.

Við höfum unnið saman. Ég gæti fengið hana til að hjálpa.

-Já, já. -Fullkomið.

Ég finn hana núna.

Amanda, hvað viltu ræða í dag?

Ég hitti mann. Getum við rætt um það?

Við getum rætt hvað sem þú vilt.

Hann veit ekki hvað kom fyrir mig.

Ég veit ekki hvenær ég segi honum það.

Hann ætti að vita þetta.

Hvað finnst ykkur?

Ætti nýjum kærasta að vera sagt að þið hafið orðið fyrir nauðgun?

Já, þú ættir að segja honum það.

Mér finnst að þú ættir ekki að segja honum það.

Það sem við upplifum í lífinu verður hluti af okkur

hvort sem okkur líkar það betur eða verr.

-Halló? -Hæ, þetta er Jens. MT.

Hæ, komdu upp.

-Hæ, langt síðan síðast. -Ég frétti að þú værir komin aftur.

-Hver er áætlunin? -Ég kom heim fyrir ári.

-Fyrir ári? -Já.

-Hvernig veistu hvar ég bý? -Við sveitafólkið gerum kraftaverk.

-Sveitafólk? -Já, ég yfirgaf stórborgina.

-Af eigin vali? -Algerlega. Vá.

Þetta er íbúð vinkonu minnar.

Hún flutti til New York með kærasta svo ég framleigi.

-Kaffi? -Nei, takk fyrir.

Ég rannsaka hvarf Julie Vinding.

Já, ég kannast við það. Það fer ekki fram hjá manni.

Við fundum tíu ára lík á sama svæði í gær. Unga konu.

Okkur grunar að gerandinn sé sá sami.

Við myndum gjarnan vilja fá álit þitt á málinu.

-Ég get það ekki. -Við þörfnumst þín virkilega.

Ég vil það ekki. Ég vinn í neyðarþjónustu núna.

-Ég veit það. -Mér líkar það.

Ég virði það en þú kastar hæfileikum þínum á glæ.

Ég tala við fórnarlömb sem ég get hjálpað svo engu er kastað á glæ.

Fræðilega gæti Julie Vinding enn verið á lífi.

Hún hefur verið horfin í hálft ár, ekki satt?

Þú veist að þið leitið sennilega að líki.

Ég bið þig ekki að byrja aftur að vinna sem ráðgjafi okkar.

Ég bið þig um tvo tíma.

More Icelandic subtitles for Darkness: Those Who Kill

Kommentare

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left