Die ersten 200 Zeilen.
Redding í Kaliforníu
Björgunarmiðstöð, þetta er Redding 5.
Við nálgumst skógareld við þjóðveg 16.
Eldurinn breiðist hratt út
og fjöldi ökutækja hindrar aðkomu neyðarbifreiða
svo að við sendum stökkvara vinstra megin.
Nálgumst stökksvæðið núna.
Elskan, þetta er slæmt. Ég veit ekki hvenær...
Við sitjum föst hérna. - Hvað getum við gert?
Við þurfum kraftaverk.
Hvar? - Sjáið.
Hvar er Redding-teymið?
Alls staðar!
Vegurinn er stíflaður og við þurfum neyðarteymi hingað.
En nú verðum við að halda eldinum frá bifreiðunum.
Alfa-teymi, ryðjið línu og undirbúið bruna.
Já, herra!
Beta-teymi, fylgið mér.
Elska að fylgja þér, Stjóri.
Eins og Norman Shwarzkopf sagði:
"Ef þú þolir ekki hitann
skaltu hypja þig úr eldhúsinu."
Ekki nálægt því.
Þá erum við ósammála
því ég veit allt um tilvitnanir.
Eldurinn á eftir að snúast í átt frá línunni.
Stjóri. Leysibendirinn.
Áfram. Áfram.
Það er orðið heitt hérna. Heyrið þið það?
Móttekið.
Tvær... ein...
Málið þetta bleikt.
Ég elska lyktina af eldtefjandi efni á morgnana.
Er í lagi með þig?
Allt í góðu.
Takk fyrir að bjarga...
Þú ert hugrakkasti maður sem ég hef séð.
Og sá heitasti.
Takk, frú. En fyrir okkur er þetta hefðbundinn vinnudagur.
Maðurinn minn er tryggingasali.
Taktu mig með þér!
Ég stend bókstaflega við hliðina á þér.
REYKSTÖKKVARAR KALIFORNÍU
Hei, hei, hei, strákar!
Hvuttarnir mínir. Koma svo.
Þið voruð rosalegir þarna úti.
Afsakaðu þetta, Stjóri.
Strákarnir þurftu að fá útrás. Mér þykir það leitt.
Það verður nægur tími til að rasa út síðar.
Það hefur forgang að koma stöðinni aftur í gott horf.
Herrar mínir, þið vitið hve fljótt allt getur farið illa.
Skrambinn...
Pabbi minn var besti reykstökkvari sem hefur unnið hérna.
Þetta er komið núna.
Ég fékk flís.
Hún fór á bólakaf.
Við verðum að vera upp á okkar allra besta,
hverja sekúndu, hvern einasta dag.
Einmitt, og...
Hvar er Redding-teymið? - Alls staðar!
Richards slökkviliðsstjóri, að sjá þig og menn þína
slökkva eldinn í dag var eins og að fylgjast með ofurhetjum.
Ofurhetjum?
Eldsvoðinn í Santa Barbara.
Nei, við erum bara menn með gríðarlega þjálfun á bakinu.
Við stundum stífa líkamsrækt og erum heppnir með erfðir.
Þegar ég segi það upphátt sé ég að við erum ofurhetjur.
Eftir glæstan slökkviliðsstjóraferil
er sagt að þú ætlir þér að hætta störfum, er það satt?
Sögurnar eru sannar.
Þú ættir að verða næsti slökkviliðsstjóri.
Þú hefur æft þig síðan þú bjargaðir LEGO-körlum úr LEGO-eldsvoðum.
Þetta var draumur okkar pabba.
...að geta slökkt elda. - Richards slökkviliðsstjóri.
Óttast þú eitthvað? - Stjóri.
Nei, ég óttast ekki neitt.
Nema mýs. Þær eru ógeðslegar.
Stjóri. - Hvað?
Fyrirgefðu, en við ætlum að ganga í Santa Barbara-teymið.
Við viljum komast í efstu deild.
Þið eruð í efstu deild. Sáuð þið ekki eldinn áðan?
Augabrúnirnar sviðnuðu. Skeggið lyktar eins og grillað svín.
Þetta var óþægilegt.
Öxi, kemurðu með okkur?
Farið. Farið.
Burt með ykkur, svikararnir ykkar.
Ef þið væruð í bræðralagi myndi ég ekki ganga í það.
Kunnið þið að dansa?
Við þörfnumst ykkar ekki.
Við þörfnumst ykkar ekki!
Við þörfnumst þeirra, Stjóri.
Við misstum þrjá bestu stökkvarana og flugmanninn. Hvað gerum við nú?
Það sama og vanalega. - Tökum við til?
Við höldum einbeitingu og treystum á þjálfunina.
En það þýðir samt að ég þarf að fljúga.
Ég veit ekki hvort ég er tilbúinn.
Mér fannst þægilegra að vera varaflugmaður.
Leiðtogahlutverkið hentar mér ekki að svo stöddu.
Til hamingju. Þú varst hækkaður í tign.
En, Stjóri... Ja, hérna...
Eldsvoði við vatnið.
Rólegir, þeir þarfnast okkar ekki.
Það er víst gríðarlegur stormur á leiðinni og þetta...
fær að brenna út í rólegheitum.
Ekkert stress. Verum alveg slakir.
Varðstjóri, það eru hús við vatnið.
Ég er að leita að þeim allra besta.
Manni sem veit hvað eldurinn gerir áður en hann gerir það.
Ef þú hefur áhyggjur getum við kannað þetta.
Sá sem tekur við af mér verður næstum jafnfrækinn og ég.
Skoðum aðstæður. Hringjum í dr. Hicks.
Fóruð þið ekki á nokkur stefnumót? - Stefnumót? Nei.
Það kom tvisvar eða þrisvar fyrir að við borðuðum mat saman.
Sem sagt, stefnumót.
Við erum fagfólk.
Ég ákvað að samvera okkar truflaði mig frá þessu.
Stjóri. - Ég ákvað að bíða og sjá.
Í miðju stefnumóti?
Dr. Hicks.
Hvað er að, Carson stöðvarstjóri?
Hvað ætti að vera að?
Eða hringirðu þrem mánuðum síðar til að biðjast afsökunar
á að hafa farið á salernið í miðjum kvöldverði og aldrei komið aftur?
Hún gerði það ekki.
Afsakið, ég skal vera hérna.
Jæja, það kom upp vandamál.
Líttu í myndavélarnar þínar. Það er eldsvoði við vatnið.
Þarna, þysjaðu inn á bústaðinn.
Nei, ég sé það. Þetta er...
Ef það er stormur í aðsigi kemst hópurinn þarna ekki á staðinn.
Gerið þyrluna klára.
Hvar er Redding-teymið? - Alls staðar!
Alls staðar. Þyrla í loftið eftir fimm.
Við komumst í loftið. Það er ágætis byrjun.
Allt í lagi. Nú læt ég körfuna síga.
Carson!
Takið eftir, strákar. Staðfestur eldsvoði í húsinu.
Hér koma 1.400 lítrar af vatni.
Sleppi vatninu... núna!
Þetta var góð tilraun.
Reynið að sýna stuðning. Ég hef ekki flogið lengi.
Á ég að fara aftur að stöðuvatninu?
Nei, slepptu fötunni. Reddaðu mér lín...
Í lagi? - Já.
Haltu henni stöðugri!
Þrír metrar í þakið.
Leita í öllum herbergjum.
Í lagi!
Ég elska þig.
Kanína. - Ég kaupi aðra handa þér.
Kanína. - Zoey...
Þrír óbreyttir borgarar á bravóhlið hússins.
Eruð þið slösuð?
Ertu slökkviliðsmaður?
Ég er reykstökkvari. Það er enn svalara.
Hvað gera reykstökkvarar? - Stökkva inn í elda til að slökkva þá.
Slökkviliðsmenn slökkva elda.
Það er til milljón slökkviliðsmanna en aðeins 336 reykstökkvarar.
Milljón er meira en 300.
Stundum er minna betra. Hættu, ég hef ekki tíma í þetta.
Hvar eru foreldrar ykkar? - Ekki hérna. Við náum ekki í þá.
Ég hjálpa ykkur út, einu í einu. Þú byrjar. Komdu.
Taktu Will fyrst.
Nei, taktu Zoey, síðan Brynn og loks mig.
Nei, Zoey, svo þig og loks mig.
Nei, gerum það sem ég segi og gerum það núna!
Móttekið, drögum þig inn núna.
Nei. Hvað? Bíddu.
Hættu.
Hættu. - Takkinn er fastur.
Sleppa!
Hættu!
Þess vegna eru til svona fáir reykstökkvarar.
Prófum þetta aftur. Komið með mér.
Æ, nei.
Ég festi okkur saman og við förum öll upp í einu.
Kanína!
Af stað núna. - Núna?
Já, hann sagði "núna". - Hann sagði það áðan.
Hvað ef hann skiptir um skoðun? - Hann gerir það ekki.
Strákar, einbeita sér. Strax!
Þetta er fréttateymi Stöðvar 6.
Við erum að fylgjast með björgun úr lofti, í beinni.
Förum með börnin á St. Stephen's-sjúkrahúsið.
Móttekið.
Hvers vegna? Við erum ómeidd.
Svona eru reglurnar.
Stjóri, stormurinn nálgast.
Vindurinn nær 20 hnútum.
Ég verð að lenda strax.
Farðu aftur á stöðina. Við lítum á þau þar.
REYKSTÖKKVARASTÖÐ REDDING, KALIFORNÍU
Hvað eru þrjú átta ára börn að gera ein í óbyggðum?
Ég er ekki átta ára gömul.
Ef hann segir að þú sért átta ára þá ertu átta ára.
Hvar er súlan? Má ég renna mér niður?
Þetta er ein hæð. Engin súla.
Eruð þið með stigabíl? - Stigabíl? Nei.
Hvers konar slökkvilið er þetta?
Ég sagðist vera reykstökkvari. Það er miklu betra.
No comments yet. Be the first to leave one.