Die ersten 200 Zeilen.
Góðan daginn.
Það er fólk á þessu hóteli.
Ég sé engan.
Þau geta tekið myndir.
Það er allt í lagi.
Ég myndast mjög vel.
Þetta er svo ósanngjarnt.
Ég kemst ekki yfir það.
Eitt af hamingjusömustu,
rómantískustu pörum sem við höfum þekkt.
Það er enginn fullkominn. Það eru allir með vandamál.
Hefurðu séð gulu peysuna mína?
Að hugsa sér að annar muni vera tekinn skyndilega af...
þessu fyrirbæri.
Þessu hræðilega fyrirbæri.
Ég missi trúna á ástinni sjálfri.
Svo rómantískur allt í einu.
Ekki vera tortryggin.
Pabbi þinn fer úr rómantík yfir í tár og örvæntingu.
Ég verð að hætta í brauðinu.
Ekki byrja, gerðu það.
Ég er að bæta á mig.
Það er ekki hægt að þykjast að við njótum ferðarinnar.
Það er hræðilegt sem hún gerði.
Að fá okkur öll til að koma hingað núna.
Viss um að þetta sé ekki hugmynd pabba þíns?
Hvað heldur þú?
Við köllum þetta La Fonte dos Noivados.
Trúlofunarbrunninn.
Flísaverkið er frá síðari 18. öld frá stjórn Doña Maria I.
Á þeim tíma komu ókvæntar konur alls staðar að
til að drekka úr þessum forna brunni.
Þær fóru í þessa pílagrímsferð af því þær trúðu
að vatnið myndi hjálpa þeim að finna góðan eiginmann.
Og virkaði það?
- Svo er sagt. - En magnað.
Ef það væri bara svo auðvelt.
Þú ert þreytulegur í dag.
Svafstu ekki nóg?
Takk kærlega fyrir.
Svo gaman að heyra þetta í morgunsárið.
Fyrirgefðu. Ég meinti ekki...
Allavega, þreyta er kynþokkafull.
Luciana!
Ég skal þykjast trúa þér.
Þetta eru 14 evrur.
Augun hans eru þrútin.
Hann var að gráta.
Eigðu góðan dag, hr. Jimmy. Skilaðu kveðju til konunnar.
Ég er með ofnæmi, ef þú vilt vita.
Eiginmaður minn líka. Hrikalegt á þessum tíma ársins.
Takk fyrir.
Dugar þessi?
Bíddu aðeins.
Já, er þetta ekki fallegt?
Er þetta alvöru?
Já. Gull frá Búrma og kampavínsdemantar. Gamalt frá Pomellato.
Gjöf frá manni sem ég þekkti á milli Michel og pabba þíns.
Ég var mjög ung.
Það er langt síðan. Það voru þó nokkrir, þú veist.
Ég geng aldrei með þetta.
Ekki út af pabba þínum. Jimmy er sama en þetta er glysgjarnt.
Nei, alls ekki. Þetta er dásamlegt.
Ég er alltaf hrædd um að því yrði stolið en nú segi ég:
„Skítt með það.“
- Má ég máta? - Að sjálfsögðu.
Þessi maður hlýtur að hafa elskað þig.
Elskað? Ég veit ekki.
Honum líkaði vel við mig, og hann var ríkur.
Ég reyni að rugla ekki pening við ást.
Hann sagði að litirnir pössuðu við mig, hvað sem það þýðir.
- Það er leki í herberginu mínu. - Í alvöru?
- Skiptu um herbergi. - Ég spurði. Ekkert laust.
Lak vatnið á þig?
Nei, það er í horninu en þetta er alla nóttina.
Vætl, vætl, vætl.
Vætl, vætl, vætl. Þetta er ómögulegt.
- Þú ert of viðkvæmur. - Viltu skipta um herbergi?
Viltu sofa hjá manninum mínum?
Spurningin er, vilt þú sofa hjá manninum þínum?
- Kemur þér ekki við. - Þú byrjaðir.
Börnin mín, ég hef ekki einu sinni fengið kaffi.
Ég ætla út í sólina.
Þú ættir að prófa það, Paul. Gott fyrir húðina þína.
Vivi!
Fyrirgefðu. Ég gleymdi.
Ekki gleyma sólarvörn, sérstaklega á hliðinni.
Sólin getur verið vægðarlaus á hrukkurnar.
Mamma, ég er óánægður.
Auðvitað ertu það.
Slepptu kaldhæðninni.
Ef einhver hefur ástæðu til að kvarta þá er það ég.
Þú verður að játa að þetta frí er ekki fullkomið.
En þetta er gott fyrir þig.
Þú ert að flytja til New York.
Þú ert ungur, heill til heilsu.
Veðrið er frábært.
Allt á einum fallegasta stað jarðríkis.
- Ég held ég elski Anne-Sophie. - Ó nei.
Það er ekki mögulegt!
Hvers vegna?
Þú ert með stelpum í tvö ár, veltandi fyrir þér hvort þú elskir þær,
þannig að þær fara.
Þá strax uppgötvar þú að þú ert ástfanginn.
Þetta gengur ekki.
Anne-Sophie, Beatrice, Julie. Þú snýst endalaust í hringi.
Anne-Sophie og þú, búin fyrir tveimur árum.
Þú getur ekki enn elskað hana.
Þú ert sú sem trúir á eilífa ást.
Eilífa ást? Ég myndi ekki segja það.
Þú og Jimmy virðast meira ástfangin nú en þegar þið hittust fyrst.
Paul, hún yfirgaf þig. Fáránlegt.
Hittu réttu konuna, og þú munt gleyma henni.
Þekkirðu réttu konuna fyrir mig?
Já, kannski.
Frábært.
Jimmy.
Get ég hjálpað þér?
Já, ég er týnd.
Ég er ekki héðan en hvert ertu að fara?
Jimmy, þetta er ég.
Þetta er ég, Ilene.
Ég vann með Frankie í New York, á Noah Baumbach myndinni.
- Hárgreiðslukonan hennar. - Fyrirgefðu.
Allt í lagi.
Guð minn góður. Lítill heimur.
Minntist Frankie ekki á það?
- Jú, hún talar sífellt um þig. - Það er mjög sætt.
Já, í öll mín ár í kvikmyndum,
er hún eina leikkonan sem ég hef vingast við.
- Já. - Með fjarlægð er erfitt að halda sambandi.
Það var bara um daginn sem ég reyndi að muna veitingastaðinn...
- Síðast í New York? - Hvern?
Ég veit ekki. Ég ætlaði að mæla með því við vin. Klassískt amerískt steikhús.
- Það er Keens, á 36. stræti. - Einmitt, alveg æðislegt.
Já.
- Líkar þér við lambið þar? - Já, ég elska lambið.
Var það síðast sem ég sá þig?
Ég hélt kannski í London líka?
Ég hef ekki farið til London. Ég vonast til að fara.
Hvað ertu að gera hér?
Ég var á Spáni að vinna að nýju Star Wars myndinni.
Þýðir það að Chewbacca fær nýja klippingu?
- Ég prófaði Farrah Fawcett klippingu en... - Heyrðu, við erum bundin trúnaði.
- Allt í góðu. - Fáránlegt.
En þetta er Star Wars, og þeir taka þessu alvara.
Ég heiti Gary, kvikmyndatökumaður.
Þetta er Jimmy. Eiginmaður Frankie.
Ertu giftur Françoise Crémont?
- Já. - Ég er mikill aðdáandi.
- Þú ert heppinn maður. - Ég veit það.
Fannstu það?
Nei, enginn veit.
Ég skil ekki þetta fólk eða það skilur mig ekki.
Þetta er skrýtið því ég hélt þetta ætti að vera...
Kannski get ég hjálpað.
Michel, þetta er Ilene, góð vinkona hennar Frankie frá New York.
- Og þetta er... - Hæ. Gary Tomlinson.
- Ég er fyrsti eiginmaður Frankie. - Já, pabbi hans Paul.
- Ég hef heyrt svo margt um þig. - Ég er ekki viss mér líki vel við það.
Nei, allt góðir hlutir. Frankie segir að þú eigir
- besta sjávarréttastaðinn í París. - Ég veit ekki, það er skoðun Frankie.
Þetta er Tiago, alvöru heimamaður, fæddur og uppalinn í Sintra.
- Ilene. - Hæ.
- Hvert ertu að fara? - Quinta da Boika?
Tiago, Quinta da Boika? Da Boika?
- Boiça, ekki „Boika“. - Boiça.
- Þess vegna fundum við það ekki. - Ég fylgi ykkur.
- Já? - Auðvitað.
- Gaman að hitta þig. - Þig líka.
Viltu bakkelsi?
Endilega.
Gott að sjá einhvern í kvikmyndunum þiggja bakkelsi.
Ég borða allt. Ástæðan til að ferðast.
Þessi staður er magnaður. Þú munt dýrka hann.
Þetta er gómsætt.
Sjáumst.
Ilene!
En það myndi kosta fúlgu.
Dóttir mín byrjar í háskóla bráðum.
Ég þarf ekki tvö böð og mér er sama þótt við förum vestar.
Ókei.
Mamma?
Til samanburðar, kannski. Það er bara of langt.
Hvað ertu að gera?
Takk kærlega fyrir. Bæ.
Náði engu sambandi inni.
Er þetta um íbúðina?
Af hverju heldurðu það?
Af því þú ert að laumast.
Ég náði í WhatsApp fyrir þig.
Þú getur notað netið. Þarft ekki að nota síma.
Ég reyndi en þú verður að sýna mér.
Pabbi spurði hvort þú vissir eitthvað um íbúðina.
Sagðirðu eitthvað?
- Ekki mikið. - Hvað meinarðu, „ekki mikið“?
Ég sagðist ekki vita.
Gott.
Nei, ekki gott.
Maya, hlustaðu á mig.
No comments yet. Be the first to leave one.