Die ersten 200 Zeilen.
Mannleg snerting.
Fyrsta tegund tjáskipta okkar.
Öryggi, óttaleysi og vellíðan, allt með blíðri stroku fingurs.
Eða snertingu vara á mjúkri kinn.
Hún tengir okkur þegar við erum hamingjusöm,
styrkir okkur á tímum ótta,
örvar okkur á tímum ástríðu...
og ástar.
Við þörfnumst þessarar snertingar frá þeim sem við elskum
næstum jafnmikið og við þörfnumst lofts til að anda.
En ég skildi aldrei mikilvægi snertingar.
Snertingar hans.
Fyrr en ég gat ekki fengið hana.
Ó, já.
Ó, já. Þetta er fullkomið.
En brúnkulínurnar gætu verið magnaðar.
Hamingjan góða. Þetta hylur ekki hálft brjóstið á þér.
Nei, þú þarft eitthvað...
Þessi er sætur.
Þessi er mjög sætur. - Já.
Leyfðu mér að sjá.
Mér líkar þessi. - Já, þessi er reyndar snotur.
Ég er ekki viss, er hann of gálulegur eða ekki nógu gálulegur?
Halló.
Ertu með okkur?
Hvað haldið þið?
Taylor og Mason hitta okkur á flugvellinum á morgun.
Hvaða svipur er þetta?
Hamingjan góða. - Hvað?
Ég veit, ég veit.
Gaur, Mason og Brooke hættu saman.
Þau gerðu það ekki. - Jú.
Hamingjan góða. Maya.
Þú ætlar að gera það. - Já.
Ég vildi geta verið þar og séð það í eigin persónu.
Það er ömurlegt að þú planaðir þetta í ár og getur svo ekki farið.
Nú,
þú getur fótósjoppað mig inn með flotta klippiappinu þínu.
Um hvað ertu að tala?
Þú veist það. - Nei.
Þetta sem þú notar á bólurnar og falska kinnaroðann.
Þegiðu. - Augnhárin.
Augnhárin þín eru ekki svona löng í veruleikanum.
Ekki láta svona. Takk fyrir hamborgarana.
Það verður svo gaman hjá ykkur.
Allt í lagi? - Allt í lagi.
Bless. Ég ann þér.
Ég ann þér meira.
Ég ann þér.
Sakna þín. - Bless.
Notið vörn.
Takk, mamma.
Halló, heimur.
Ég er komin aftur á spítalann í aðra endurstilling...
Ég þarf nokkrar umferðir til viðbótar af sýklalyfjum
til að jafna mig á hálsbólgunni sem ég hef...
Hæ, Barb.
Hálsbólgu?
Með 39 stiga hita?
Ég hef lent í því verra. Segðu hæ.
Stella, farðu burt með þetta.
Þú lítur vel út.
Ég veit það.
Stella kemur strax aftur Eftir að við gerum hana klára.
Þið heyrðuð hvað stjórinn sagði.
KEM BRÁTTAFTUR!
Mér finnst þetta besta verkið hennar.
Hæ, Stella.
Ja hérna.
Margt hefur breyst á síðustu sex mánuðum.
Já.
Hann er væntanlegur í mars.
Beygðu handlegginn.
Á hvaða stofu er Poe?
310.
Hæ, sæti.
Ég er í 307. Endurstilling.
Og opna.
Allt í lagi.
Hæ! er með berkjubólgu, ég lifi það af.
Komdu við síðar.
Það er allt klárt.
Ég sé þig eftir smástund.
Takk, Julie.
Ja hérna.
Ertu viss um að þetta sé í lagi?
Ég mun samt fylgjast með þér.
Og, já, þetta er í lagi.
Hvað myndi ég gera án þín?
Þú myndir deyja.
Það er satt.
Barb leyfir mér að hafa lyfjavagninn minn inni hjá mér núna.
Og hún skildi eftir helling af pillum.
Dálítinn M-Safa.
Namm. Þetta er fljótandi næring
sem fer beint í magann á mér í gegnum magaraufunarslönguna.
Svo þið stúlkur sem óskið þess að geta borðað 5.000 kaloríur á dag
án þess að þyngjast,
ég skal skipta við ykkur hvenær sem er.
Í dag mun ég líklega endurskipuleggja þetta hérna
því eins og mörg ykkar vita er ég dálítið smásmuguleg.
Með smásmuguleg meina ég með áráttu-og þráhyggjuröskun.
Svo, friður.
Bless.
FÚSIDÍNSÝRA
16. Maya & Camilla heimsókn 17. Skipuleggja lyfjavagn
18. Framhaldslíf...?
LÍF, DAUÐl & ÓDAUÐLEIKl
Byggingarstólpi: Stólpi Byggi 8 af 34 verkefnum
Nýtt barn uppi.
Hittu mig eftir korter.
Hæ, Cynthia.
Hæ, Stella.
Hæ.
Ég hef þegar skoðað dagskrá hjúkrunarfræðinganna
svo ef þið rekið ekki rassinn í kalltakkann
mun enginn ónáða ykkur í klukkutíma.
Hey, ég þarf að sofa í þessu rúmi.
Við erum ekki skepnur.
Engar áhyggjur, þetta tekur ekki svo langan tíma.
Hvað meinarðu eiginlega, Willis?
Allt í lagi, bless.
Bless.
FARSÍMANOTKUN BÖNNUÐ
Ég sá þig flytja dótið þitt inn.
Það var...
Það var mikið af því.
Verðurðu hér í dálítinn tíma?
Halló?
Þú ert heyrnarlaus.
Ættirðu ekki að vera að undirbúa stofuna þína fyrir gesti þína?
Leigirðu klukkutíma í einu?
Svo þetta varst þú að læðupokast á ganginum.
Ég læðupokast ekki og þú eltir mig hingað.
Mig langaði að kynna mig
en þessi framkoma þín...
Leyfðu mér að giska. Þú ert náungi sem hunsar reglurnar
því þér finnst þú þá hafa stjórnina. Er það rétt?
Það er ekki rangt.
Finnst þér það sniðugt?
Finnst þér það sniðugt?
Að lána vinum þínum stofuna þína fyrir kynlíf er viðbjóðslegt, svo, nei.
Líkar þér ekki kynlíf?
Nei, mér líkar...
kynlíf. Mér líkar kynlíf.
Kynlíf er ágætt.
„Ágætt“ er ekki beinlínis rífandi meðmæli
en ég fagna sameiginlegum grundvelli þar sem hann er að finna.
Við eigum ekkert sameiginlegt.
Harkalegt.
Hvað ertu að gera hér uppi?
Sex fet öllum stundum. Þið þekkið bæði reglurnar.
Will, farðu aftur inn til þín.
Þar hefurðu það.
Nafn fyrir sálfræðigreininguna þína.
Ég er Will Newman.
Og þú ert?
Heyrnarlaus.
Stella, takk fyrir að setja grímuna aftur á þig.
Stella.
Þú þarft að létta lundina.
Þetta er bara lífið.
Því lýkur áður en þú veist af.
Svo er hann S.K.-ari?
B. cepacia.
Er þátttakandi í nýju lyfjaprófuninni fyrir sevaflómalín.
Fáirðu hana geturðu...
Þá geturðu kysst möguleikann á nýjum lungum bless.
Það er engin lækning til við þeirri bakteríu.
Haltu þig fjarri.
DAGLEGl ANDARDRÁTTUR MINN
Halló, heimur.
Jæja, AffloVesti í hálftíma í viðbót og svo ertu klár.
Þarftu eitthvað annað áður en ég fer?
Súkkulaðibúðing fyrir tvo?
Hvað? Er ég núna herbergisþjónusta?
Maður verður að nýta sér fríðindin.
Góð stelpa.
Allt í lagi, gott. Einmitt.
Einmitt, vina.
Ég sé þig á morgun.
Bless, Barb.
Allt í lagi.
Líkt og allir krakkar með slímseigjukvilla
fæddist ég ólæknandi,
sem þýðir ekki endilega að ég deyi á morgun...
en ég gæti dáið á morgun.
Hver sem er gæti dáið á morgun.
Ég hef bara aðeins minni tíma en allir aðrir.
Lungun í mér starfa með um 50% virkni núna.
Svo dr. Hamid segir að með þessu áframhaldi þurfi ég ígræðslu
þegar ég verð á þriðja ári í miðskóla.
Það verður gaman.
Hæ, krakkar.
Við erum á vökudeildinni...
því ég er með börn á heilanum.
Og Barb... - Nei, nei, nei.
Hin fallega Barb gefur mér leyfi til að koma hingað alveg ein.
Slímseigjukvilli, eins og þið vitið, er erfðasjúkdómur
sem lætur líkama minn framleiða helvítis helling af slími.
No comments yet. Be the first to leave one.