Las primeras 200 líneas.
ÞÁTTARÖÐ ÚR SMIÐJU NETFLIX
12 dögum áður
Tvo Black russian.
Já.
Bíddu.
Bíddu, hann er sonur minn líka.
Ég bara hitti hann þegar mér sýnist.
Ég gerði ekkert við hann.
Ertu snarrugluð manneskja?
Þór, láttu þetta ekki skemma kvöldið fyrir okkur, maður.
Æ fyrirgefðu, ástin mín. Þessi fokking kona.
Ég hefði ekki átt að svara símanum.
Nei!
Halla Ólafsdóttir sagði frá.
Veðurstofan spáir austanátt, 18-28 metrum á sekúndu,
hvassast verður sunnan til.
Mun hægari á Norður- og Austurlandi.
Slydda eða rigning á Suðausturlandi
en annars úrkomulítið.
Hiti verður á bilinu 0-5 stig en minnkandi frost á Norðurlandi.
Það dregur heldur úr...
Hæ.
Hæ.
Getum við aðeins spjallað saman?
Ha? Já.
Kannski inni, það er dálítið kalt.
Já.
-Varstu að koma úr ræktinni? -Koma úr sundi.
Er ekki laugin alveg stútfull af einhverjum...
einhverjum gamalmennum á þessum tíma?
Er nokkuð pláss fyrir fólk að synda?
Kata, síminn þinn.
Kata.
Kata, ertu þarna?
Hvað, ertu búinn að sakna mín?
-Nei, þetta er í sambandi við Kára. -Nú? Hvað er að?
Ég hef bara áhyggjur af honum.
Ég held hann sé byrjaður að drekka.
-Af hverju heldurðu það? -Ég var með matarboð um helgina
svo eftir matinn ætlaði ég að bjóða fólkinu upp á koníak
þá var koníaksflaskan hálftóm.
Það var búið að drekka hálfa flöskuna.
Ókei, spes.
Varstu ekki bara búinn að drekka hana og gleyma því?
Nei, það var ekki svoleiðis.
Svo er hann úti allar nætur með einhverjum nýjum vinum
sem ég þekki ekki og bara eitthvað að slæpast.
-Hann lítur aldrei í bók. -Hann er sextán ára.
Hann var að byrja í menntó, hann kynnist fullt af nýju fólki.
Hvernig varst þú á þessum tíma?
Heyrðu, ekki vera að snúa út úr.
Þetta snýst ekki um mig, þetta snýst um hann Kára.
Ekki vera svona square.
Square? Hvað meinarðu square?
Það getur vel verið að þú finnir ekki fyrir neinu
en ég sé breytingarnar á honum.
Fyrirgefðu, hvað ertu að gefa í skyn hérna?
Ekki neitt.
Ertu að segja að ég sé ekki að standa mig?
-Nei. Ég sagði það ekki. -Nei, einmitt.
-Kata, ekki taka-- -
Af hverju þarftu að taka þessu svona?
Hvað segirðu?
-Í alvöru talað, er þetta-- -Varstu að segja eitthvað?
Útkall!
Getum við talað við hann?
Já, ég skal tala við hann í kvöld.
Nei, getum við... talað við hann?
Já. Hittumst hérna í kvöld.
Ég læsi á eftir mér.
Hæ!
Hvað heldurðu að þú sért eiginlega að gera?
Ha?
Sérðu ekki að þetta er lokað svæði?
-Jú, ég bara vissi ekki að-- -Sérðu ekki borðann hérna?
Hvað er í gangi?
Þú ættir kannski að passa aðeins betur upp á fólkið þitt,
svo það sé ekki að fara inn á lokuð svæði.
Annars getur það endað með kæru fyrir að spilla vettvangi.
-Ég var bara að ná í-- -Hún er að djóka, Kiddi.
Geturðu kommenterað eitthvað á þetta?
-Er þetta morð? -Þú veist að ég get það ekki, Selma.
Bara eitt komment, Kata.
Kata?
Tóti, nennirðu að fara og standa þarna hjá borðanum?
-Vitum við hver þetta er? -Ekkert veski, engin skilríki.
Tíu stungusár allavega.
-Dánartími? -Sólarhringur.
Það er erfitt að segja nákvæmlega út af frostinu.
-Er Miro á landinu? -Já, flýgur út í kvöld.
Gott. Ég mundi ekki nenna að bíða í tvær vikur eftir krufningu.
Blóðblettir sýna að morðinginn hélt honum að sér
meðan hann stakk hann.
Guð minn góður. Hvað er þetta með augun?
Frekar óhugnanlegt.
Útigangsmaður?
Líklega. Það eru nálarför á báðum handleggjum.
Nú, þá ættum við að þekkja kauða.
-Ertu búin að undirbúa ræðuna? -Ha?
Þú veist að það er búið að boða allar deildir á fund seinna í dag.
Eigum við að einbeita okkur hérna?
Ég veit hver þetta er.
Opnaðu.
Þetta er lögreglan, opnaðu hurðina.
Opnaðu eða við brjótum niður hurðina.
Nei, nei!
Láttu mig vera! Nei, nei...
Sýndu mér hendurnar. Komdu með hendurnar.
Á, á... Nei, nei...
-Komdu með hendurnar. -Þú meiðir mig.
Slakaðu þá á.
Þú meiðir mig. Ég gerði ekki neitt.
Er hún vopnuð?
Hún er clean.
Róaðu þig.
Hjálpaðu mér!
Íris, Íris.
Íris, hlustaðu á mig.
-Hjálpaðu mér. -Íris. Já, bíddu.
Hvað kom fyrir Þórð? Íris mín.
-Íris, hvað kom fyrir Þór? -Hjálpaðu mér.
Hlustaðu á mig. Hvað kom fyrir Þór?
Segðu mér það, Íris?
Æ, þetta gengur ekki.
Þið verðið að fara með hana niður á stöð.
-Við ætlum að velta þér yfir. -Ái.
Komdu.
Ái, ái.
Já, já...
Á, á.
Er eitthvað sem ég get gert fyrir þig til að hjálpa?
Nei, farið þið bara með hana niður á stöð.
Takið sýni, svo bara inn í klefa. Hún þarf að sofa úr sér
áður en ég get farið að tala við hana.
Ókei.
Hæ.
Hæ, Kata.
Er búið að taka skýrslu af stelpunni?
-Írisi? -Já.
Nei, hún var í engu ástandi til að láta yfirheyra sig.
-Heldurðu að hún hafi gert þetta? -Ég veit það ekki.
Gæti þetta tengst einhverri skuld, eiturlyfjum?
Gæti verið. Ég ætla að komast að því á eftir.
Magnús, ég verð að fá aukinn mannskap.
Það á eftir að fara yfir allar myndavélar og--
Já, Helga og Erlingur verða þér innanhandar.
Ókei, flott.
Ég er með mitt eigið mál. Ég hef ekki tíma í neitt annað.
Þrjátíu ára beinagrind getur beðið.
Þetta mál fer í forgang.
Bíddu, hvað með myndirnar sem fóru á fjölmiðla?
Það hlýtur einhver að vera þarna úti
sem kannast við hálsmenið eða kveikjarann.
Magnús, það verður að fylgja þessu eftir.
Ef eitthvað nýtt kemur upp þá verður það athugað
en þangað til þá hjálpar þú Kötu.
Helga, viltu segja við mig eitt orð?
Hæ.
Hæ.
Heyrðu, ertu til í að finna allt um Þór Ingimarsson fyrir mig?
-Er það hinn látni? -Já, hann er á sakaskrá.
-Já, fer í mál. -Bíddu, bíddu, bíddu...
og þegar þú ert búinn að því máttu fara gegnum allar myndavélarnar
í kringum höfnina og nágrennið.
Æi, Kata.
- Halló. - Hæ. Ertu laus?
-Núna? -Ertu búinn að heyra af morðinu?
-Já, fokk. -Hittu mig á Búllunni.
Ókei.
Takk.
-Hæ, meistari. -Jæja.
Næs.
-Nýr jakki? -Þessi? Nýr gamall.
Maður verður að lúkka, skilurðu?
Hvað geturðu sagt mér um Þór?
Hvar fékk hann þessa peninga?
-Var hann í innflutningi? -Þór er fáviti.
Þú veist, var fáviti.
Það fer eftir því hvernig þú horfir á það.
Er þetta satt? Var hann stunginn fimmtíu sinnum?
-Skuldaði hann? -Nei.
Þú veist, þetta er bara einhver nobody.
Þess vegna er þetta fokking skrítið.
Þú veist, spes týpa. Vann aldrei shit.
Dílaði eitthvað smá í gamla daga
en þú veist ekkert til að tala um.
Og svo núna nýverið
allt í einu bara bang lifir hann eins og fokking kóngur.
Alveg mega skítalykt af þessum peningum.
-Var hann byrjaður aftur að selja? -Nei.
Allt of latur til þess. Algjör hálfviti, sko.
Fyrrverandi konan hans, hún gæti til dæmis sagt þér
hversu mikill drullusokkur þessi gæi var.
Ókei.
Ég get ekki sagt að þetta komi á óvart.
Nú? Varstu í einhverjum samskiptum við Þór?
Ég talaði við hann í gærkvöldi
og sagði honum að koma aldrei nálægt syni okkar aftur.
Síðast þegar hann fór til hans kom hann útúrdópaður heim.
Er ekki í lagi með þig?
No comments yet. Be the first to leave one.