Paint Your Wagon

Paint Your Wagon

دانلود زیرنویس Icelandic

هماهنگ با نسخه‌های زیر

Paint your wagon 1969 bluray is
ناشر Runner
Paint Your Wagon 1969 Remastered 1080p BluRay HEVC x265 5.1 BONE

برچسب‌ها

bluray
resynced
تاریخ انتشار: 2026-07-29
تعداد دانلود: 5
مخصوص ناشنوایان: No

پیش‌نمایش زیرنویس Icelandic

نخستین 200 خط.

Bændur. Komdu.

Bíðið. Þarna er hann!

Komdu hingað. Stoppaðu!

Halló!

Eru þeir dauðir?

Ég vona það,

því ég ætla að jarða þá!

Komum.

Bróðir minn.

Bróðir minn.

Hann er dauður.

Hann er illa brotinn á öxl og fæti.

- Ertu læknir? - Hrossalæknir.

En bein eru hein. Ég er einnig járnsmiður.

Náið í bróðurinn.

Lengra í átt að miðjunni.

Guð við leggjum í hendur þínar

líkama og sál þessa nafnlausa ræfils.

Hann fór þó fljótt og þarf ekki að þjást af skyrbjúg,

blóðsótt, flekkusótt eða kóleru,

svo ekki sé minnst á veikindi sem berast með mökum við vafasamar konur.

Eða eyða árunum í að grafa mold og finna mold, eins og ég hef gert.

- Talaðu um hann! - Vilt þú vera næstur?

Og ef hann hefði lifað það allt, þá hefði hann getað lent undir tré,

dottið niður í námugöng, soltið í hel, verið myrtur

eða framið sjálfsmorð á aðfangadagskvöld.

Það sem ég á við Guð, er að þú sýnir lifandi börnum þínum enga miskunn,

þess vegna biðjum við þig

að sýna þeim aðeins meiri tillitssemi þegar þau eru dauð.

Með fullri virðingu, Drottinn,

felum við í hendur þínar líkama og sál þessa bónda,

að taka við honum og halda honum...

Ég eigna mér þetta svæði fyrir mig og félaga minn, hvað sem hann heitir.

Að eilífu. Amen.

Dragið hann upp.

Nafnleysuborg Íbúar: Karlkyns

- Elisa. Heitir stúlkan þín það? - Já.

- Ég fann þetta. Ég taldi þetta góða hækju,

þar sem þú ert farinn að hreyfa þig þokkalega um.

Takk.

Þetta er ekki sanngjarnt, herra Rumson.

Þú sérð um alla vinnuna og ég fæ helminginn af ágóðanum.

Ég á við, þetta er múldýrið þitt, verkfærin þín og allt saman.

- Þetta var bróðir þinn. - Nú...

Heima erum við varkárir gagnvart ókunnugum sem tala fjálglega.

Telur þú mig vera einhvern bragðaref frá New Orleans?

Sem veitir þér hjálparhönd með einni hendi,

og stelur pyngjunni þinni með hinni?

Það er einmitt það sem ég var að hugsa.

Reyndar hefur þú rétt fyrir þér, en hestaþjófnað hef ég ekki lagst í.

Ég hef saltað skika, já. Og ég hef selt indíánum viskí.

Einu sinni réðist maður á mig með byssu og ég drap hann.

Öll boðorðin hef ég brotið.

Mér líkaði aldrei foreldrar mínir og því síður bar ég virðingu fyrir þeim,

og ég hef ágirnst eiginkonu nágranna míns...

Hvenær sem ég hef haft nágranna og hvenær sem hann átti eiginkonu.

Ég er fjárhættuspilari og svindla í spilum en eitt geri ég aldrei.

Ég svík aldrei félaga mína.

Það eina sem mér bragðarefnum er heilagt, er félagi minn.

Rétt tæplega kíló.

Réttu mér pyngjuna þína svo ég geti sett þinn hlut í hana.

Og félagi, ég skal skipta við þig um pyngju hvenær sem þú vilt.

Ég ætlaði ekki að móðga þig og ég þakka þér fyrir að bjarga lífi mínu.

Viltu vita hvað ég vil í staðinn?

, Einmitt. Ég vil vita hvað er í pottinn búið.

Þegar ég verð dauðadrukkinn og dett í foruga götuna,

vil ég að þú komir og náir í mig, því ég vil ekki deyja haugdrukkinn.

Ef ég skulda manni $100, vertu borgunarmaður fyrir því,

og ef ég verð þunglyndur, sem gerist stundum,

vil ég að þú sért vinur minn og hughreystir mig.

Hvað gerist ef þú lendir í slagsmálum?

Ef fjórir ráðast á mig í einu, væri gott að fá hjálp.

En fram að því, get ég séð um mig sjálfur.

Sjáðu til, ég nota fantabrögð.

Ég slæst aldrei nema ég nauðsynlega þurfi þess.

Ég er nefnilega skapmikill og ef ég byrja get ég ekki hætt.

Nú, það er gott. Mundu bara með hverjum þú stendur.

Það er smákaupmaður mættur í bæinn með fullan vagn af viskí.

Hvað um að ég hjálpi þér upp á múldýrið og við drekkum okkur fulla?

Ég er heldur lítið fyrir áfengi.

Jæja, það er öfugt með mig.

Bæjarfundur í kvöld! Það verður haldinn bæjarfundur í kvöld!

Bæjarfundur í kvöld, Ben.

- Ben! Ben Rumson! — Mooney! Þetta er félagi minn.

- Varstu ekki á leið til Írlands. - Jú. Ég átti bara leið hjá.

- Þetta er í leiðinni. — Mooney.

„— Hvernig gengur, Willie? - Ég hef ekki unnið í þrjár vikur.

Þetta er félagi minn.

Hann kallar sig Óheppna Willie, en það er til að plata hálfvitana.

Þú getur ekki unnið hann, svo ekki spila.

- Ég stunda ekki fjárhættuspil. - Það gerir hann ekki heldur.

Ég heiti Ben Rumson. Þetta er félagi minn.

Og ég býð hverjum þeim sem getur staðið upp viski.

- Ég sat hérna. - Og núna stendur þú hérna. Viskí!

Ben Rumson, þú skuldar mér $68

frá Yuba-borg, sem þú stakkst af frá.

Stakk ég af? Ég var rekinn í burtu. Manstu það ekki?

Ég vil fá borgað núna, áður en þeir reka þig burt úr þessum bæ.

Leggðu fjandans byssuna frá þér og gefðu þessum strákum viski.

Þurrkaðu þér um hendurnar áður en þú vigtar. Við þurfum vistir.

Hálft kíló af sykri, hálfan kassa af viskí,

og lungnabólgu fyrir Schermerhorn þarna.

Hálft kíló af sykri og eitt kíló af hveiti, takk.

Góða kvöldið. Horace Tabor, Worcester, Massachusetts.

Hvenær komst þú í bæinn?

Ég kom í morgun. Fann æð eftir hádegi,

og ég áforma að vera kominn til Worcester fyrir jól.

Það segir hérna að Kalifornía sé að ganga í ríkjasambandið.

Einmitt það sem þarf...lög og reglu.

- Það eru góðar fréttir. - Ekki fyrir mig.

Það er mín stefna að koma mér burt frá stað daginn sem hann verður ríki

- og stefna í átt að óbyggðum. - Ég er þér ósammála, herra.

Maður horfir á mannkynið og veltir því fyrir sér hvað Guð var að hugsa.

Ben Rumson!

Fjárans gamli svelgurinn þinn!

Brjálaði Jack Duncan! Þetta er félagi minn.

Ég frétti af þér í bænum.

Gettu hvað gerðist með Harry og Ernest og mig.

- Hvað? - Við fórum aldrei heim.

Við erum að halda dansleik. Komið þið með!

Klifraðu á bak, félagi. Við erum að fara á dansleik!

Þessi bæjarfundur er nú settur!

Hljóð!

- Hefur einhver séð Ben Rumson? - Hann fór fyrir 20 mínútum síðan.

- Takk. - Ertu félaginn hans?

Hann skuldar mér $80. Hann sagði þig borga þá.

Félagi.

- Geturðu hjálpað mér upp á múldýrið? - Er allt í lagi með þig?

Ég verð stundum þunglyndur.

Það er algengur kvilli hjá fjallamönnum sem búa einir,

en ef þú verður hjá mér á slíkum stundum verð ég í fínu lagi.

Allt í lagi.

Bað Ezra Atwell þig um $80?

Já. Ég borgaði fyrir þig.

Þetta er það sem þú áttir við, þegar þú sagðist vilja

að ég kæmi og tæki þig haugdrukkinn upp úr götunni.

Og nú ætlarðu að vera vinur minn á meðan á örvilnun minni stendur.

- Ja, þú ert félagi minn, ekki satt? - Mér líkar vel við þig, félagi.

Mér líkar vel við þig, Ben.

Móðir mín og faðir eru látin,

og bræður mínir tveir og ég, við yrktum jörðina.

Á síðasta ári tók elsti bróðir minn sér eiginkonu.

Ég og yngri bróðir minn ákváðum að yfirgefa Michigan og koma hingað,

kannski grafa eftir gulli, safna pening til að kaupa land.

En eftir að hann dó hef ég ekki mikinn áhuga á búskap.

Hvað með stúlkuna þína?

- Stúlku? - Já. Elisu.

Ætlar hún að koma hingað til þín, eða giftist hún bróður þínum?

Í sannleika sagt, þá er engin Elisa.

Ég las nafnið einhvers staðar og bjó hana til.

Þær tilbúnu eru bestar, en núna þarfnast ég þeirra verstu.

Þetta er lifandi helvíti hérna, í þessari fjandans rigningu,

og þessi fjandans einsemd, og þessi, fjandans, fjandans vindur.

Kvenfólk! Sjáið kvenfólkið!

Sjáið! Tvær konur! Sjáið þessar tvær konur!

, Þær eru fimm! Ég ætla að ná mér í eina!

Kvenfólk! Kvenfólk!

Það eru 64 konur að koma í bæinn!

Það eru 80 konur að koma niður eftir ánni!

Frú, ég er með $50 hérna í gullsandi.

Þú mátt eiga þá ef ég fæ að halda á barninu.

Gott og vel. Nei, ég vil ekki fá borgun fyrir.

Þú særir tilfinningar hans, Sarah. Taktu þá.

Sjáið þið augun, glampa líkt og hann hafi dottið í gullpottinn.

Hann er stúlka, ræfillinn þinn!

Langar einhvern annan að halda á barninu?

- Ekki núna, Jacob. - Hvaðan komið þið?

Frá Illinois upprunalega. Ég heiti Jacob Woodling.

- Þetta er eiginkonan mín Sarah. — Og hver er þessi unga dama?

- Hún heitir Elizabeth Woodling. - Er hún systir þín?

Nei. Eiginkona mín.

' Eiginkona þín? Ég hélt að þessi hér væri konan þín.

- Þær eru það báðar. - Heilagur Móses! Þau eru mormónar!

- Guð minn góður! - Vel að verki staðið, gamli minn!

- Getum við fengið að borða hérna? - Með $50 geturðu það. Fylgið mér.

- Hver fjandinn er mormóni? - Ég veit það ekki.

Brúðgumi, mér er skítsama hvernig menn biðja.

Það er pláss í helvíti fyrir okkur alla, en það er ekki sanngjarnt,

að þú hafir tvennt af því sem enginn okkar á ekkert af.

Svo ég ætla að leggja fram tillögu.

Múldýrið þitt er halt og ég er með eitt gott sem kostaði mig $140.

Ég skipti við þig á sléttu, múldýrið mitt fyrir eina konuna þína.

Hver er móðir barnsins?

Guð veit að ég vil ekki aðskilja móður og barn.

- Það er ég. - Gott. Ég hreifst af hinni.

- Þetta er ósiðlegt. - Það ætla ég að vona!

- Konan er gift. - Nei, það er hún ekki!

Við viðurkennum ekki fjölkvæni í Kaliforníu.

Þá bíð ég $250 í gulli fyrir hana.

- 260! - 2651!

Bíðið við! Þið getið ekki keypt konu fyrir peninga.

Reyndu að fá eina án þeirra.

Gott og vel, hvað segið þið um þetta, mormónar?

Jacob, við þörfnumst peninganna,

og ég þoli ekki einn dag í viðbót af þessu píslarvottaandliti.

- Þarna setur hún það upp aftur. - Þetta er ekki svipur píslarvotts.

Þetta er hreinn haturssvipur.

Þögn! Brigham Young á 27 eiginkonur,

og hann hefur ekki átt í öllum þessum vandræðum með þær.

Þá skaltu einfalda líf þitt, Jacob. Seldu mig.

More Icelandic subtitles for Paint Your Wagon

نظرات

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left