نخستین 200 خط.
Í kvöld, einkaviðtal 60 Minutes.
Fyrir tíu árum vissi enginn á jörðinni
að við værum þegar undir vernd einhvers sem kallaði sig Green Lantern.
Síðan, án fyrirvara, gerði hann vart við sig,
kom á dramatískan hátt í veg fyrir að loftsteinn legði Victoria Falls í rúst.
Eða hann sýndi sig að hluta.
Hér færum við ykkur fyrsta einlæga samtalið við ofurhetju.
Ertu óstyrkur?
Verð ekki óstyrkur.
- Hluti af starfslýsingunni. - Auðvitað.
Spenntur.
Hver ertu þá?
Ég er Hal Jordan.
- Fjandinn, Marcus! - Þú kemur okkur öllum í vandræði.
Fylgstu bara með glugganum.
Hvað viltu að heimurinn viti um þig?
Ég er fyrrverandi flughermaður. Ég er fyrrverandi tilraunaflugmaður.
Og í raun...
bara að ég er venjuleg manneskja...
eins og þið.
Nema hvað þú ert einnig fyrsti Green Lantern á jörðinni.
Líka það.
Á margan hátt var Hal Jordan fæddur í hlutverkið er hann lék á endanum.
Faðir hans var verðlaunaður tilraunaflugmaður
sem lést í hörmulegu slysi þegar Hal var átta ára.
Hal hélt áfram að fylgja í fótspor föður síns...
Helvítis. Hann er kominn heim!
Fjandinn. John, slökktu á sjónvarpinu.
Ég er sá eini hérna, en við erum eins og hverfislöggur.
Hvert okkar og eitt
- er með hluta af vetrarbrautinni. - Slökktu!
Hvernig ertu valinn fyrir þennan hluta?
- Er próf? - John!
- Slökktu á sjónvarpinu. - Bara ein spurning.
Við erum dauðir.
„Ertu hræddur?“
Og þú sagðir: „Nei.“
Ég gerði það.
Versti ótti sérhvers barns er að missa foreldri.
Þegar það gerist...
er ekkert að óttast lengur.
STEWART BANDARÍSKI SJÓHERINN
Ætlar þú að segja mér nafn hans?
Hal eitthvað.
Hal?
Já, herra.
Út, núna.
Ertu hræddur?
Nei, herra.
Fáum okkur borgara.
Ég er seinn.
Já, herra.
Ætlar þú ekki að segja neitt?
- Ertu örugglega ekki reiður? - Nei, herra.
Ég yrði pirraður.
Hverf í tvær vikur.
Engin útskýring. Mæti með timburmenn. Seinn.
Þú hlýtur að vera reiður?
Nei, herra.
Dálítið órór?
Nei, herra.
Hví hljómar „herra“ í hvert skipti meira og meira eins og „éttu skít“?
Ég hef ekki hugmynd... herra.
Hlýtur að undrast hvar ég var.
Hefurðu heyrt um Pharon 4?
Við erum í þjálfun. Ekki komnir af plánetunni.
Já, það er rétt.
Skítapláneta sem var á barmi borgarastyrjaldar.
Málið er,
ef ég er timbraður var ég að fagna nýjum friði.
Hvernig fórstu að því?
Dálítil diplómatía, smá kýlingar. Þú þekkir þetta.
Reyndar ekki, herra.
Já, þú hefur allan tímann í heiminum.
Með fullri virðingu,
við höfum gert þetta, hvað, í tvo mánuði?
Ég hef ekki enn notað hringinn.
Ekki gleyma þér í skartinu. Þú notar hann þegar hann velur þig.
Ég hélt að Verndararnir hefðu valið mig.
Stóru bláu stjórarnir gætu haldið að þú sért málið,
en þú ert bara fjárans afleysingakennari.
Ekki tilbúinn í framlínuna fyrr en hringurinn segir svo.
Hérna. Vilt þú taka hann?
Er þetta próf?
Það er takóbás um fimm kílómetrum héðan.
Ég hitti þig þar.
- Halló. - Pabbi. Hann reyndi að drepa mig.
Við vorum á leið í flugtíma og hann...
Jordan reyndi að drepa mig.
Getur ekki drepið þig. Reynir bara að koma þér úr jafnvægi.
Ég er ekki úr jafnvægi.
Þá er hann að prófa þig.
Mega taka skapofsaköst, ekki við.
Andaðu rólega, farðu að reglum og vertu klár.
Þarft að vera svalur. Geturðu það?
Já, herra. Ég get það.
Gott. Þú vilt þetta, ekki satt?
Auðvitað vil ég þetta.
Haltu bara áfram á sömu braut og starfið er þitt.
Já, ég geri það.
Helvítis.
Er ég dauður?
- Ha? - Þú ert með hringinn minn.
Á það að vera fyndið?
Gerði ég eitthvað til að angra þig? Ef svo er biðst ég afsökunar.
Þú, Hal Jordan, afsökun?
Rétt.
Örugglega heilahristingur.
Bíddu aðeins. Bíddu aðeins.
Byrjum á byrjuninni.
Hver ertu og hví með hringinn?
John Stewart, lærlingur þinn.
Erum ekki með lærlinga úr eigin geira.
Eru það núna.
Hvaða ár er?
2016.
Hvert í...
Viltu segja mér hvað þú heldur að sé í gangi?
Ég er afrit af vitund Hals Jordan, sameinað skynjun hringsins.
Ég hef skilaboð til mín.
- Ert þú Hal? - Nei. Jú. Að mestu leyti.
Eins og að geyma sjálfan þig í skýinu.
Bara endrum og sinnum er þú þarfnast í raunheimi...
Lanterns, þeim skal hlaða upp vikulega fyrir framtíðina,
ef eitthvað kæmi fyrir okkur.
Ég hefði átt að kenna þér þetta.
Hélt að ég þjálfaði þig.
Já, hélt það líka.
Hvenær varstu síðast afritaður?
Virðist vera fyrir tíu árum.
Ég þarf að finna mig. Hvar er ég?
Þú ert fimm kílómetrum lengra, að borða takó.
Gott, þú getur þá flogið okkur þangað.
Ég hef ekki...
kennt þér að fljúga enn, er það?
Ég skal segja þér.
Þú segir mér það sem þú vilt að ég segi þér.
Treysti ég þér?
Þú veist, við...
semur okkur?
Okkur semur mjög vel.
Haglél í Rushville í Nebraska.
- Er það málið? - Ég mun vita hvað ég á við.
- Hei, Green Lantern. - Er þetta hann?
- Æðislegt. - Takk fyrir.
Sjálfsmynd!
- Aldrei séð hann. - Spyrðu hann.
Leyfið honum að anda.
- Þetta er ekki dýragarður. - Þau trúa þessu aldrei.
Færi þér matinn á borðið, herra Jordan.
- Kærar þakkir. - Kærar þakkir.
- Kærar þakkir. - Komum okkur.
Sjáið! Sjáið þetta! Ég verð að hitta hann.
Heldur þú að dóttir mín gæti kannski...
Algjörlega. Komdu hingað. Komdu.
Gjörðu svo vel.
Gjörðu svo vel.
- Þakka þér fyrir. - Ekkert.
Hún saknar búningsins.
Ég sagði það ekki.
Segðu mömmu þinni að ég fari stundum enn í hann.
Ég hefði getað dáið.
Vildir þjálfun, ég þjálfa þig.
Hvernig bjargaðir þú þér? Hvað bjóstu til með hringnum?
Loftbóluplast.
- Þú ert snillingur. - Já.
Eftirrétturinn er frír.
Kærar þakkir.
Má ég spyrja hví það er bara við sérstök tilefni?
Eins og þegar þú ert ungur og ákafur og vilt sanna þig
svo þú notar bindi svo fólk taki þig alvarlega.
Þegar þú verður eldri og vitrari...
áttar þú þig á að bindi er til óþæginda.
Góður.
Já.
Góður.
Láttu mig fá hringinn.
Þú sendir sjálfum þér skilaboð.
- Um hvað ertu að tala? - Hringinn.
Varavitund þín.
- Þú varst mun ljúfari fyrir tíu árum. - Hvað sagði ég?
„Það er haglél í Rushville í Nebraska.“
Borgaðu reikninginn.
Skrattakollur.
BÍLALEIGA SÆKJA
Því miður, enginn má fara inn.
HÁSKÓLAFÓTBOLTI 2016
Í alvöru? Allur bærinn virðist vera þarna.
Svona nú. Þetta er nóg, finnst þér ekki?
John Stewart. Ég er með Hal Jordan. Við erum félagar.
Ég hélt að væri bara einn Green Lantern.
Tæknilega er ég í þjálfun.
Eins og aðstoðarmaður?
Af hverju spyrðu ekki bara?
Hei, stjóri.
Það er annar.
Ertu að grínast?
Segðu honum að halda sig til hlés með hinum andskotans...
Já, frú.
Hvað er að frétta?