Ang unang 200 linya.
Þú verður að koma með okkur, hr. Jørgensen.
Ég er einfaldur fjölskyldumaður frá Hvidovre.
Ég hef ekki hugmynd um hvað er í gangi.
Ég kem ekki nálægt neinu.
Nú gerirðu það, hr. Vandenbosch. Drífum okkur.
PROS AND CONS
Lengra niður er Svarti demanturinn.
Það er konunglega bókasafnið.
Þar finnast frumritin frá Hans Christian Andersen.
Öll ævintýrin og fullt af bréfum líka.
Þetta er áhugavert. Þið ættuð að fara og sjá.
Höldum áfram.
-Hvenær er þessu lokið? -Eftir tíu mínútur.
Mikill útflutningur er í húfi í þessari ríkisheimsókn.
Hvað þýðir þessi heimsókn?
Er þetta aðallega til sýnis eða nást stórir samningar?
Samningum verður sannarlega náð.
Þarna er pólitísk hlið og viðskiptahlið.
Til að gefa ykkur dæmi reynir Danmörk að...
Hæ, ég er gaurinn sem Kirsten hjálpaði frá Bólivíu.
Er hún heima?
Já, já. Komdu inn.
Þú ert með gesti.
Gjörðu svo vel.
Góða kvöldið.
Góða kvöldið.
Hvað í fjandanum gerirðu hér? Ivo má ekkert vita.
Fyrirgefðu. Ég vissi ekki hvert annað við gætum farið.
Hvað gerðist?
Ja... Ja, Nina var handtekin.
Ég er hræddur um að menn ShuiYue viti af Erik.
Þeir voru í húsinu.
Þú verður að hjálpa okkur, Jacqueline.
Einmitt. Geturðu sagt mér á hvaða stöð henni er haldið?
Klukkan hvað var hún tekin?
Geturðu sagt mér hvaða fyrirtæki sér um þrifin?
Já.
Prófaðu þetta.
Geturðu sent mér teikningar af allri byggingunni?
Þú átt inni hjá mér. Bless.
Hvað gerum við núna?
Ég vil ekki að hún tali á meðan hún er þarna.
Við þurfum að koma henni út eins fljótt og auðið er.
Ég fer og finn súkkulaði handa þér.
-Hann spilar, sá ungi. -Hann er hæfileikaríkur.
Súkkulaðið er hér.
Elskan, þau eiga í vandræðum með ferðina til Bólivíu.
Ég ætla að fara að kíkja á þetta.
-Má ég fara á bílnum? -Auðvitað.
Frábært. Ég fer bara og skipti.
-Takk fyrir að leyfa henni að fara. -Ekkert mál.
Ég reyni að spóla til baka þegar hún kom fyrst
með þessa fölsuðu vöru.
Hvað með sköllótta gaurinn sem hún kom með?
Hversu mikið var satt?
Hún var á tískusýningu Mayu Hartivgs.
Hverju vildi hún ná fram? Hún stjórnaði mér.
Það var hún sem gabbaði mig út í þetta með Amanda Labs.
Damien...
Já, þú myndir aldrei gera mér það.
Nei.
Hún spilaði með mig. Hún er siðblind.
Þetta gera þeir, Damien.
Ætlarðu að segja eitthvað núna?
Þú spilaðir með Amöndu.
Þú misnotaðir traust hennar
til að fá aðganga að trúnaðar- upplýsingum og -efni.
Svo...
Þú kemst ekki héðan fyrr en ég veit hver þú ert.
Hver ertu?
Viltu hringja í einhvern til að bjóða góða nótt? Fjölskyldu eða eitthvað?
Allt í lagi. Sittu bara og hugsaðu málið aðeins lengur.
Þetta er yfirheyrslusalurinn þar sem Nina er.
Þrifageymslan er þarna.
Við verðum með lætin á miðjum ganginum hérna.
-Einhverjar spurningar? -Nei.
-Hvað með pabba minn? -Pabba þinn?
Hann verður í lagi. Hann verður það alltaf.
Við sjáum um það seinna. Nú þurfum við að ná Ninu út.
Nina kemur fyrir dómara innan sólarhrings frá handtöku.
Við þurfum að ná henni út fyrir það.
Í kvöld verða bara nokkrir að vinna.
-Við verðum upptekin. -Við?
Þið gerðuð þetta.
-Varstu ekki hjá Amöndu? -Jú.
Allt í lagi. Ef þeim tekst að bera kennsl á Ninu kemst upp um þig líka.
Þetta er allt þér að kenna.
Fournier og ShuiYue voru þín hugmynd...
Áður en þú ferð í uppnám er þetta ekki mér að kenna, er það?
Þú fékkst þá frábæru hugmynd að plata Patrick í ævintýri.
Ekki tala eins og mamma mín.
Ef við bregðumst ekki við núna sérðu mömmu þína ekki árum saman.
-Allt í lagi. -Frábært.
Það er bara eitt.
Þegar kemur að Kaj
ætti hann að vita út í hvað hann fer ef hann blandast í þetta.
Ég segi honum það.
Hvað ætlarðu að segja?
Ég frétti að þú hefðir lært að spila á píanóið.
Þetta er flygill.
Geturðu aðeins slökkt á þessu?
Ef ég segi þér leyndarmál geturðu lofað að segja engum?
Ekki einu sinni Mini og Pelle.
Ekki mömmu og pabba heldur?
Reyndar er þetta eiginlega um þau.
Manstu eftir ævintýrinu um nýju fötin keisarann?
Mamma og pabbi eru dálítið eins og klæðskerarnir sem plata hann
til að halda að hann eigi falleg föt.
Hvað meinarðu?
Þau stríða ríka fólkinu.
Dálítið eins og Hrói höttur.
Gefa þau fátækum peninga?
Nei. Þau gefa okkur þá.
Ég vil ekki peninga sem þau stela.
Ég komst líka í mikið uppnám þegar ég komst að því.
Líka þegar þau sögðu mér að taka þátt.
-Ert þú líka með í þessu? -Já.
-Patrick! -Kaj, Patrick er líka með í því.
Mamma þarfnast hjálpar okkar.
Mér þykir þetta mjög leitt, Kaj.
Ég gat bara ekkert sagt þér.
Kaj.
Þú verður að vera hugrakkur svo við getum fengið mömmu heim.
Já?
Við viljum hitta móður okkar. Hún var handtekin í kvöld.
Hæ, Krestin. Geturðu komið niður í móttöku?
Ég held að ég hafi dálítið sem tengist málinu þínu.
Vinsamlegast fáið ykkur sæti.
Já.
Halló.
Ég held að mamma okkar sé hjá ykkur.
Já, hún er það.
Fínt. Fylgið mér. Svona nú.
Heyrðu, bíddu við.
Hvað ertu með undir bolnum?
Ég er hjartveik. Þetta fylgist með hjartslættinum.
Það er í lagi.
Þú fékkst fjölskylduheimsókn.
Viltu vinsamlegast segja mér hvað er í gangi?
Þetta eru ekki börnin mín.
-Mamma. -Nei.
-Farðu. -Hættu þessu, mamma.
Ég veit ekki hvað er í gangi. Ég á engin börn.
Ég þoli þetta ekki lengur, mamma.
Hún hefur gert þetta alla okkar æsku.
Hún hefur notað fölsk auðkenni og platað fólk.
Ég á engin börn.
Hættu þessu nú.
Heyrðu, ég sagði honum hver þú ert.
Þessu er lokið.
Hann veit að þú ert Hanne Mikkelsen og að þú búir í Hørsholm.
Hann veit allt.
Mér þykir þetta leitt. Fyrirgefðu, elskan.
Segðu mér nú...
Hún hefur gert þetta alla okkar æsku.
Mér þykir það leitt, elskan.
Spilaðu bara með. Jacqueline kemur bráðlega.
Ég er Sarah Frederiksen, varnarlögmaður.
Ég er hér að hitta skjólstæðing minn, Bjørn Marcussen.
Já.
Marcussen segirðu?
Ég er ekki með neinn Marcussen, ekki með C-i né K-i.
-Ég vona það sannarlega. -Við erum það ekki.
Við tókum hann í áhlaupinu í Rødovre.
Hann fór þá sennilega til Helsingør.
Þetta er svo dæmigert! Við höfum ekið alla þessa leið.
Geturðu hringt til Helsingør og beðið þá að læsa hann og henda lyklinum?
Þú hefur engar sannanir fyrir að hann hafi átt vopnið
eða jafnvel að hann hafi vitað af því í bílnum.
Mætti ég fá að tala við einhvern sem veit um skjólstæðing minn?
Já, gjörðu svo vel.
Þetta er helvíti fyrir okkur, mamma. Af hverju gerirðu þetta alltaf?
Þú særir fólk. Hver var það í þetta sinn?
Eitthvað snyrtivörufyrirtæki sem heitir Amanda.
Jeminn eini.
Það er brjálæði, mamma. Snyrtivörufyrirtæki?
-Tókst henni að stela einhverju? -Ég held ekki.
Mamma, þetta þarf að stoppa núna! Heyrirðu það?
Þetta skemmir fjölskylduna. Ég þoli þetta ekki lengur!
Fiona.
Er allt í lagi með þig?
Ég get ekki...
Heyrðu!
Hún er með hjartagalla.
Heyrðu! Hjálpaðu mér hérna!
Hringdu í sjúkrabíl. Hún er með hjartagalla.
Ég kann fyrstu hjálp!
Hún féll niður.
Halló?
-Ertu mamma hennar? -Já.
Ég er með unga konu. Fiona... hvað annað?
-Mikkelsen. -Mikkelsen.
Hún er með hjartaeftirlitstæki.
Við gerum sikileysku ekkjuna.
Athugaðu með púls!
Hún er með púls.
Brotnaðu niður núna.
Fiona! Fyrirgefðu.
Fyrirgefðu.
Þetta verður í lagi. Þau koma fljótlega.
No comments yet. Be the first to leave one.