Les 133 premières lignes.
Þrjár vikur og fimm dagar.
Mér finnst vera svo margt sem ég ætti að segja.
En mig skortir orð.
Ég veit bara
að þú hefur verið dáin í þrjár vikur
og fimm daga.
Móðir á ekki að þurfa að jarða barnið sitt.
Ég skil þetta ekki.
Ég reyni en ég get það ekki.
Þú varst hold mitt og blóð, allur heimurinn minn.
Ég elskaði þig.
Af hverju var það ekki nóg?
Það er eins og myrkrið safnist í kringum mig.
Martröðin er að kæfa mig.
FACE TO FACE
Mamma?
Já?
Ég pantaði tíma í síðustu viku til að hætta að reykja.
- Auðvitað. - John.
Já, ég veit.
Gjörðu svo vel.
- Ég kom með kleinuhringi. - En indælt.
SÁLFRÆÐINGUR & DÁLEIÐARI SUSANNE EGHOLM
Fáðu þér sæti. Ég kem rétt strax.
- Stofan mín er þarna. - Já, afsakaðu.
Fallegt að hafa svona vegg. Það heldur minningunum lifandi.
Ég veit ekki hvað þú veist um mig en ég hef verið starfandi í tíu ár
og meðhöndlað skjólstæðinga á erfiðleikatímum,
með fíknivanda og áráttuhegðun, með notkun dáleiðslu.
Er þér sama?
Ég borðaði ekki morgunmat og hann er mikilvægasta máltíðin.
Auðvitað.
Ég vil að þú vitir að þú getur talað opinskátt um hvað sem er.
Móðir mín sagði alltaf að götin í hringjunum væru eitruð.
Þannig að...
Já...
- Hvers vegna viltu hætta að reykja? - Ég reyki of mikið.
- Hvað reykirðu mikið? - Meira en 60.
- Það er mikið. - Það segir konan mín.
- Sendi hún þig? - Nei, ég kom sjálfviljugur.
- Þú vilt sem sagt hætta að reykja. - Svo sannarlega.
Hvers vegna í dag? Af hverju komstu til mín í dag?
Þetta er orðið of mikið, ég meina...
- Ég hugsa ekki um annað. - Á hvaða hátt?
Það er svolítið álag heima fyrir þessa dagana.
Hvernig?
Það er stjúpsonur minn, Benjamin.
Hann er dáinn.
Hann var tíu ára. Fékk hjartastopp.
Hann hneig niður fyrir þremur vikum. Bara upp úr þurru. Dáinn.
Það hlýtur að vera mikið áfall.
Vissulega.
Hann var stjúpsonur minn en ég hafði þekkt hann í átta ár.
Faðir hans er hálfviti, ég var sá sem stóð honum næst.
Hann var góður strákur.
Virkilega.
Hann var með mikið hár,
freknur, stór eyru og brosti alltaf sínu breiðasta.
Alltaf til í allt.
Sagði aldrei nei. Alltaf til í ævintýri.
Svo greip hann skyndilega í hönd mína
með skítugri hendinni sinni.
Hann brosti til mín og ég til hans. Ég var hamingjusamur.
Hvað...
Um hvað ertu að hugsa?
Ég skil hvers vegna þú þarft að tala um þetta.
Það er undarlegt, vegna þess að ég...
Áður hugsaði ég ekkert mikið um dauðann.
Hann var bara þarna fyrir aðra.
En...
Mér líður eins og eitthvað sé fast innan í mér.
Eitthvað sem er ekki gott.
Segðu mér hvað er fast.
Hvernig líður þér?
Reyndu að komast í snertingu við tilfinninguna.
Ég ætti ekki að vera hérna.
Þetta voru mistök.
Það er eðlilegt að hafa tilfinningar og hugsanir sem þú vilt ekki deila.
Þú þarft ekki að deila þeim með mér.
Ég lít á konuna mína og það eina sem ég sé er...
Kjötstykki.
Mikið grátt kjöt sem snöktir og grætur og sýgur upp í nefið.
- Ég get þetta ekki. - Sestu niður, John.
Þú stendur þig vel. Ekki fara núna.
Þegar þú upplifir mikinn missi
getur þér fundist sem líkaminn dofni.
Líkt og taugakerfið lokist við mikinn líkamlegan sársauka.
Reyndu að útskýra hvernig þér líður
þegar þú hugsar um Benjamin og konuna þína.
Ekkert.
Ég fæ sterka löngun í þessar, það er allt og sumt.
- Svo þú hugsar um sígaretturnar? - Já.
Það eina sem ég vil er að reykja. Þú heyrir það, ekki satt?
Það er alveg eðlilegt að vernda sig gegn sterkum tilfinningum.
Maður beinir athyglinni að einhverju áþreifanlegu, til að komast yfir þær.
Eins og sígarettupakka.
Þú tekur eina.
Kveikir í henni.
Þú fyllir lungun af reyk.
Róast.
Eitt augnablik þar sem allt er gleymt.
Hvað með konuna þína?
Er hún líka hrifin af kleinuhringjum?
Já, þessum með kreminu.
Ég kýs þá líka.
- Ég kýs þessa með glassúr. - Ég skil.
- Hvað með Benjamin? - Glassúr líka.
Borðaði hann heldur ekki þar sem gatið er?
Geturðu lesið mikið út úr svoleiðis?
Nei, alls ekki.
Ég er hætt að greina fólk, ég tala bara við það.
Ég ætti kannski ekki að vera að reykja, þú ert hér til að hætta því.
Nei.
Sú síðasta.
Vertu sæl.
Svo þú ert til í að halda áfram?
Hvernig virkar dáleiðslan?
Dáleiðsla er einbeitt athygli í slöku ástandi
en það gerir mér kleift að tala beint við undirmeðvitund þína.
Munum við eingöngu tala um sígaretturnar?
Þú segir ekkert sem þú vilt ekki segja.
Einmitt.
Gerum það.
Gott.
Við verðum þarna inni. Fylgdu mér.
Gjörðu svo vel.
Allt í lagi.
Þú mátt setjast þarna með fætur upp og koma þér þægilega fyrir.
- Líður þér sæmilega? - Já.
Um hvað hugsarðu til að finna til öryggis og friðar.
- Ég hugsa um bátinn minn. - Bátinn þinn. Gott.
Lokaðu augunum og beindu athyglinni að önduninni.
Andaðu inn, rólega.
No comments yet. Be the first to leave one.