Listen to Me Marlon

Listen to Me Marlon

Unduh Subtitle Icelandic

Informasi rilis

Listen To Me Marlon 2015 Bluray
Komentar oleh qscgy

Tag

BluRay
Diterbitkan pada: 2016-06-04
Unduhan: 46
Tuna Rungu: No

Pratinjau subtitle Icelandic

200 baris pertama.

Á ævi sinni tók Marlon Brando upp marga klukkutíma af hljóðefni,

sem almenningur hefur ekki fengið að heyra fyrr en nú.

Þetta er byrjun upptökunnar.

Þetta er í mónó og við erum í hljóðnema 1.

Ókei.

Hlustið nú, ég ætla að segja ykkur frá nokkru sem ég gerði.

Ég hef látið tölvuvæða hausinn á mér.

Og þeir settu inn Ieiser

og hann snýst í hringi, svona...

og þeir gerðu andlitið á mér stafrænt.

Og ég setti upp mörg svipbrigði og brosti og...

og setti upp sorgarsvip og...

Og þeir settu það allt í tölvu.

Og leikarar verða ekki af holdi og blóði,

þeir verða inni í tölvu.

Sjáið til, þetta mun gerast.

Svo kannski er þetta svanasöngur okkar allra.

Morgundagurinn og morgundagurinn og morgundagurinn...

smeygir sér í þetta fallega andlit frá degi til dags,

til hins hinsta atkvæðis skráðs tíma;

og allir okkar gærdagar

hafa vísað fíflunum veginn að rykföllnum dauða.

Út, út, skammlífa kerti.

Lífið er aðeins skuggi á göngu,

lélegur leikandi sem spígsporar ergilegur sína stund á sviðinu

og þagnar síðan.

Þetta er saga úr munni fávitans,

fyllt hljóðum og reiði, sem táknar...

ekkert.

Skilið. Allt tiltækt lið á vettvang skotárásar.

Lögreglan brást við símtali í neyðarlínuna,

en þetta var ekkert hversdagslegt heimilisfang,

sá sem hringdi enginn almennur borgari.

Marlon Brando var í símanum

að tilkynna um skothríð á heimili sínu.

Eymdin...

hefur komið heim til mín.

Brando fékk Óskarinn fyrir mynd sem var gerð árið 1954,

On the Waterfront.

Þá var hann hylltur

sem besti kvikmyndaleikari sögunnar í Bandaríkjunum.

Þú tekur góðu gjörðirnar frá og áföllin

og átakaruglið og byssubófana og þú ert ekkert.

Stella.

Þú getur verið viss um að áhrif Marlons Brando á kvikmyndaleik

verða enn við lýði eftir 500 ár.

Ég ætla að gera honum tilboð sem hann getur ekki hafnað.

Marlon Brando var hér á heimili sínu þegar skotárásin varð,

en sagði lögreglunni að hann hefði ekki orðið vitni að henni.

Skotárásin beindi sjónum að einkalífi

þeirrar Hollywoodstjörnu sem mest lifði utan kastljóss fjölmiðlanna.

Það hefur verið erfitt að viðhalda geðheilsu og raunveruleikatengingu

sem velgengnin tekur frá manni.

"FLAUTULÚÐUR" VARÐHUNDUR Á LÓÐINNI

Þetta yrði mjög persónuleg heimildarmynd

um lífið sem ég, Marlon Brando, hef lifað.

Við sýnum fram á að hann er mæddur maður,

einsamall, þjakaður af minningum,

ringlaður og leiður,

einangraður í óreiðu.

Svo særður að hann getur ekki átt eðlileg félagsleg samskipti

og verður því eins og upptrekkt dúkka.

Kannski fannst honum hann fá slæma meðferð.

Og er reiður yfir þeirri meðferð.

Hann safnar upplýsingabútum, filmubútum,

til að reyna að útskýra hví hann er eins og hann er.

Tíu, níu, átta, sjö, sex,

fimm, fjórir, þrír, tveir, einn.

SJÁLFSDÁLEIÐSLA #7

SJÁLFSDÁLEIÐSLA #7 Láttu nú huga þinn reika

aftur,

langt aftur í fortíðina,

þegar þú varst mjög ungur,

þegar þú vaknaðir á morgnana,

klæddir þig á meðan aðrir sváfu,

gekkst um gangstéttir Omaha

og settist undir stóra álminn.

Vindurinn lék í birtunni,

skugga laufanna.

Það er eins og yndislegur, blíður draumur

og blærinn blíði kallar.

Það er blær sem þú getur treyst.

Þú ert minningar þínar.

Alla ævi hef ég haft djúpa vissu um að ég yrði að vera frjáls.

Ég var frjáls þegar ég stóð í lestinni.

Ég stóð ívagninum og hlustaði á teinana.

Skilurðu?

Þetta er sérstæður taktu r.

Ég kom til New York með göt á sokkunum og göt á huganum.

Ég man að ég varð fullur

og lagðist til svefns á gangstéttinni.

Enginn truflaði mig.

Ég var alltaf haldinn

óslökkvandi forvitni um annað fólk.

Mér fannst gaman að ganga um göturnar og skoða andlitin.

Ég fór að horni Broadway og 42. strætis,

í Optimo-vindlabúðina.

Í þrjár sekúndur horfði ég á fólkið sem átti leið hjá

og reyndi að greina persónuleika þess með því augnatilliti.

Andlitið getur dulið ýmislegt.

Og fólk dylur alltaf eitthvað.

Mér fannst áhugavert að geta mér til um

það sem fólkið vissi ekki um sig sjálft.

Líðan þess, hugsanir, ástæðu líðaninnar.

Hvers vegna breytum við eins og við gerum?

Hvert er svarið?

Er eitthvað svar?

Það er eitthvað sem þú þarfnast djúpt inni í þér.

Einhvers konar samband,

einhver reynsla sem gefur þér fullnægju.

Ég fann sterkt fyrir annmörkum mínum,

að ég vissi ekki nóg,

að ég væri ekki nógu menntaður.

Mér fannst ég heimskur.

Það var ansi mikil tilviljun að ég varð leikari.

Ég fór í New School of Social Research.

sem er ótrúleg menntastofnun.

Kennararnir mínir voru allir Gyðingar,

því að New School var opinn fyrir

Gyðingum sem sluppu frá Hitler.

Þeir nutu mikillar virðingar.

Voru rjómi akademíunnar.

Í þessum tíma byrjið þið að öðlast stjórn á eigin lífi.

Ég lærði hjá konu sem hét Stella Adler.

Hún var góð leikkona,

virkilega frábær leikkona.

Lyktin af Ieikhúsmálningunni

og tæling Ieikhúsreynslunnar,

birtist í kennsluaðferðum hennar.

Leikur hefur ekkert með orð að gera.

Þið leikið ekki með orðum,

þið leikið með sálinni.

Sem barn var ég mjög feiminn.

Viðkvæmur, mjög viðkvæmur.

Í leikhúsinu ræður leikarinn.

Það er ekki í mannlegu eðli að draga sig í hlé.

"Ekki vera hræddur," sagði hún.

"Þú hefur rétt til að vera sá sem þú ert,

þar sem þú ert og eins og þú ert."

Vertu fullkomlega einlægur þarna uppi.

Leyfðu þér að finna,

finna ást og finna reiði.

Orðið þær hugsanir sem kvelja ykkur.

Allir hafa sögu að segja,

eitthvað sem þeir fela.

Ekki koma með neitt inn í nútíðina

sem ekki á sér fortíð.

Við þróum mjög, mjög snemma aðferðir til að leika.

Meira að segja sem börn,

þegar við hendum hafragrautnum á gólfið,

bara til að fá athygli frá mæðrum okkar.

Að leika er að lifa af.

Já, þetta er mamma mín.

Á þessari ljósmynd.

Þetta er málverk af mömmu þegar hún var um fertugt.

Og hún var yndisleg manneskja.

Hún klæddi til dæmis gæs sem við héldum sem gæludýr sem jólasvein.

Hún gerði jólasvein úr henni,

saumaði rauðan búning fyrir hana

og útbjó skegg og allt.

Hún var mjög frjó og listræn kona.

Og ég sakna hennar mjög mikið.

Hjá mömmu lærði ég að meta fáránleikann.

Hún var með falskar tennur.

Af og til hló hún.

Þegar hún hló,

duttu tennurnar af gómunum.

Því meira sem ég hló, því fyndnara fannst henni það

og við skellihlógum bæði.

Mamma kenndi mér að elska náttúruna

og að tengjast dýrum.

Hún gat spilað öll þau lög sem manni datt í hug á píanóið.

Öll.

Mér finnst gott að minnast hennar.

Ég elskaði vínlyktina af henni.

Það var mjög, mjög sæt lykt út úr henni.

Það er indæll ilmur.

Móðir mín var alkóhólisti.

Við bjuggum í smábæ og mamma var þorpsfyllibyttan.

Hún fór að trosna upp.

Og mamma mín hvarf.

Hvarf eitthvert, við vissum ekki hvar hún var.

Ég þurfti oft að leysa hana úr fangelsi.

Enn í dag fyllist ég skömm og reiði við þessar minningar.

Maður þarf sífellt að að vera að leika.

Það er ekki mikilvægt að verja galla sína í Ieikhúisnu.

Það er mikilvægt að sigrast á þeim.

Stella var svo vinsamleg að bjóða mér heim til sín.

Ég varð síðan hluti af fjölskyldu hennar.

Þegar mér leið hvað verst og fann ekki minn stað í lífinu,

sýndi hún mér alltaf mikla ástúð.

Ég hafði aldrei gert nokkuð

sem einhver sagði mig góðan í.

Hún lagði höndina á öxlina á mér

og sagði, "Engar áhyggjur, vinur."

"Veröldin mun brátt heyra frá þér

það sem ég hef séð í þér."

Hann leikur Stanley Kowalski á bolnum í Streetcar Named Desire,

og hlaut alþjóðlega frægð fyrir.

Það er okkur sönn ánægja að bjóða Hr. Marlon Brando velkominn.

Komentar

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left