TRON: Legacy

TRON: Legacy

Scarica il sottotitolo Icelandic

Informazioni sulla release

Tron Legacy Isltexti(2010)1080p BDRip - Skari11
Un commento di Skari11
Should work for all BluRay releases // Ætti að virka fyrir allar BluRay útgáfur

Tag

bdrip
bdr
1080
BDR
Pubblicato il: 2019-07-15
Download: 49
Sottotitoli per non udenti: No

Anteprima dei sottotitoli in Icelandic

Le prime 200 righe.

Hnitanetið.

Stafrænn heimur.

Ég sá fyrir mér upplýsingar á ferð um tölvur.

Hvernig litu þær út?

Eins og skip eða mótorhjól?

Voru rafrásir eins og hraðbrautir?

Ég lét mig dreyma um veröld sem ég hélt að ég sæi aldrei.

En einn daginn...

Komstu inn.

Það er rétt, maður. Ég komst inn.

Þessi heimur var fallegri en mig hefði getað órað fyrir

og hættulegri en ég hafði ímyndað mér.

Farðu nú upp í rúm, vinur.

Ég kynntist hugrökkum stríðsmanni. -Tron.

Tron!

Hann berst fyrir notendur.

Svo sannarlega.

Hann sýndi mér hluti sem enginn hafði nokkurn tíma ímyndað sér.

Þarna fóru fram diskabardagar á stórkostlegum leikvöngum

og þarna voru hjól sem brunuðu áfram á ljósborðum.

Þetta var svo róttækt.

Og saman... - Sköpuðuð þið Hnitanetið.

Við sköpuðum nýtt Hnitanet fyrir forrit og notendur.

Ég gat ekki verið þarna öllum stundum

svo ég hannaði forrit í eigin mynd sem gat hugsað.

Eins og þú og ég.

Ég kallaði hann Clu.

Kerfisbundna eftirmynd.

Einmitt.

Clu, Tron og ég hönnuðum saman kerfi

þar sem allar upplýsingar stóðu öllum opnar.

Það var svo fallegt.

En síðan, einn daginn, gerðist dálítið.

Dálítið stórkostlegt.

Kraftaverk.

Hvað var það?

Ég segi þér það næst.

Ég verð að fara í vinnuna.

Ég vil fara með þér, pabbi. - Er það?

Þú gerir það einn daginn. Ég lofa því.

Förum við í Hnitanetið?

Góða nótt, Sam.

Eigum við að fara saman í leiktækjasalinn á morgun?

Viltu reyna að slá met gamla mannsins?

Fyrsti leikur í mínu boði.

Getum við verið tveir saman í liði?

Við verðum alltaf liðsfélagar.

Framkvæmdastjóri Encom og leikjahönnuðurinn Kevin Flynn

er horfinn.

Hann er þekktastur fyrir leikina Tron og Geimbrjálæðingana,

tvo söluhæstu tölvuleiki sögunnar.

Flynn eignaðist fyrirtækið Encom árið 1982

þegar fyrirtækið þaut á toppinn í tæknibransanum.

En allt breyttist árið 1985 með dauða eiginkonu Flynns

og móður Sams, sonar hans.

Nýlega hefur stjórn Encom

haft áhyggjur af óstöðugri og undarlegri hegðun Flynns.

Þar sem Flynn er horfinn ríkir ringulreið innan fyrirtækisins.

Stjórn Encom ákvað í dag

að svipta Alan Bradley, meðeiganda Flynns, völdum

í þeirri von að fyrirtækið skilaði hagnaði á ný.

Hinn tryggi Bradley staðhæfir að Flynn sé ekki horfinn

heldur þess í stað að eltast við drauma sína

um stafrænan heim til að endurbæta mannkynið.

Þarna inni leynist ný veröld.

Þarna leynist framtíð okkar.

Þarna leynast örlög okkar.

Dyggustu stuðningsmenn Flynns verða að horfast í augu við það

að Kevin Flynn gæti einfaldlega hafa látið sig hverfa.

Á meðan fylgismenn Flynns vonast eftir endurkomu hans

getur enginn óskað sér þess heitar en hinn ungi Sam Flynn

sem er nú í umsjá ömmu og afa, erfingi veldis í óreiðu.

Hann kemur, hann lofaði því.

Þú verður að borða. - Slepptu mér.

Hvað verður um arfleið Flynns og framtíð Encom?

Það ræðst af því hvað verður um drenginn munaðarlausa.

Komdu aftur, Sam.

Þetta er stór hurð.

Velkomin.

Komið ykkur fyrir.

Það er áliðið svo ég kem mér að efninu

og gef stjórnarformanninum Richard Mackey orðið.

Takk fyrir. Þakka þér fyrir, Claire.

Ég tilkynni með stolti að síðasta fjárhagsár Encom

hafi verið það arðsamasta frá upphafi.

Já.

Á miðnætti fer tólfta útgáfa flaggskips stýrikerfa okkar

í verslanir um heim allan.

Það kemur engum á óvart hverjum ber að þakka.

Yfirmanni hugbúnaðarþróunar og syni mannsins

sem átti stóran þátt í að gera Encom að því sem það er í dag.

Edward Dillinger, vel gert.

Vel af sér vikið.

Í ár, samhliða útgáfu kerfisins Encom OS-12,

verðum við í fyrsta skipti skráðir í kauphöllina í Tókýó.

Viðskipti með hlutabréf okkar fara fram allan sólarhringinn.

Já.

Afsakið.

Já, Alan.

Vegna kostnaðar kerfisins

fyrir nemendur og skóla...

Hvers konar endurbætur hafa verið gerðar á Flynn...

Ég meina Encom OS-12?

Í ár settum við töluna 12 á umbúðirnar.

OS-12 er öruggasta stýrikerfi sem hannað hefur verið.

Hugmyndin um að deila eða gefa hugbúnað okkar

gufaði upp ásamt Kevin Flynn.

Ég veit af þér.

Auðveldum okkur þetta.

Áfram.

SENDI SKRÁR

Kyrr.

Ef þið hafið engar spurningar

vil ég kynna næstu metsöluvöru.

Encom OS-12.

Einhver hængur á þessu.

Hvað er þetta?

Nú skiptum við yfir í beina útsendingu frá Encom.

Augnablik.

Lagaðu þetta. -Ég reyni.

Hættið því sem þið gerið í eitt augnablik.

Við skiptum yfir til Encom þar sem Richard Mackey kynnir...

Við förum í beina útsendingu eftir hálfa mínútu.

Veit einhver um stofnskrána?

Ég veit um hana.

Hún er á Netinu.

Stöðvum þetta.

Ég á að opna kauphöllina. - Ég veit það.

Stöðvið þetta. - Þetta er læst.

Slökkvið á þessu strax.

Vertu rólegur, Mackey. Við höfum stjórn á þessu.

Rólegur? Verðmætasta og öruggasta stýrikerfið okkar

fæst nú ókeypis á Netinu. Hvernig útskýri ég það?

Ég veit það ekki. Segðu að þetta hafi alltaf verið ætlunin.

Lítil gjöf frá Encom.

Encom-menn virðast eiga í einhverjum tækniörðugleikum.

Leyfum þeim að bæta úr því.

Sæll, pabbi. Hvernig hefurðu það?

Hvert geturðu flúið núna?

Ekki gera þetta.

Lærðirðu aldrei að það væri ljótt að stela?

Maður stelur ekki því sem á að vera ókeypis.

Nú næ ég þér. -Yfirmaður þinn er ánægður með þetta.

Það er hann ekki.

Hann vinnur fyrir sinn yfirmann sem vinnur fyrir hluthafa.

Veistu hver er stærsti hluthafinn?

Einhver strákur.

Ert þú herra Flynn?

Hvers vegna?

Þetta er fyrirtæki föður þíns.

Ekki lengur.

Heyrðu, stráksi. Nei!

Ertu að grínast?

Engar ókeypis ferðir.

Þú verður að borga.

Vertu kyrr. Upp með hendurnar.

Allt í lagi, strákar.

Þið náðuð mér.

Sæll, Karl. -Sæll, Sam.

Njóttu vel, Marv. Þú átt þetta skilið.

Hvað ertu að gera heima hjá mér, Alan?

Þú svarar ekki í símann.

Hvernig hefurðu það?

Þegar ég var 12 ára þarfnaðist ég föðurímyndar en hættu nú.

Ég hef stjórn á þessu.

Greinilega. -Hvað viltu?

Hjálpa mér með heimalærdóminn eða kasta á milli?

Hér er fallegt útsýni.

Ég heyrði að þú hefðir stokkið fram af þakinu áðan.

Var lendingin erfið? - Hefði getað verið verri.

Mér fannst þú senda stjórninni ansi snjöll skilaboð.

Varstu ánægður með þetta? Marv átti hugmyndina.

Alan, eigum við virkilega að gera þetta aftur?

Sýnist þér ég tilbúinn til að stjórna risafyrirtæki?

Nei.

Stjórnendurnir eru ánægðir með þig þar sem þú ert.

Ég skal trúa því.

Þannig geta þeir haldið áfram að gera hvað sem þeim sýnist.

Það sem ég átta mig ekki á er ruglaða góðgerðastarfið

og árlegi hrekkurinn á kostnað fyrirtækisins.

Þú sýnir áhugaleysið á sérstakan hátt.

Hvað viltu?

Símboðinn pípti í gærkvöldi.

Notarðu símboðann ennþá? Gott hjá þér.

Faðir þinn sagði mér að sofa með hann og ég geri það enn.

Símtalið barst frá skrifstofu föður þíns í leiktækjasalnum.

Hvað með það?

Hvað með það?

Þetta númer hefur verið ótengt í 20 ár.

Tveim kvöldum fyrir hvarfið kom hann heim til mín.

Ég fann lausnina, sagði hann.

Hann talaði um erfða-algórytma og skammtafjarflutninga.

Hann sagðist breyta öllu. Vísindum, lækningum og trú.

Hann hefði ekki gefið það upp á bátinn.

Hann hefði ekki yfirgefið þig. - Alan...

Þú ert sá eini sem trúir því ennþá.

Hann er annaðhvort dauður eða slakur á Kostaríka.

Líklega hvort tveggja.

Fyrirgefðu.

Ég er þreyttur og það er fangelsisfnykur af mér.

More Icelandic subtitles for TRON: Legacy

Commenti

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left