Le prime 200 righe.
ABRAM TARASOV
Er allt komið á sinn stað?
Næstum því.
Næstum því.
Herra, með fullri virðingu, ertu viss um að þetta sé besti kostur okkar?
Því getum við ekki bara leiðrétt vandamálið?
Af því að fjandans frændi minn...
drap hund.
Og hann stal bíl.
Bíl...
sem er þessa stundina í vörslu okkar.
Svo við fórnum öllu fyrir bíl?
Þetta er ekki bara bíll.
Þetta er bíll John Wicks.
Nú.
Því skilum við honum ekki aftur?
Hann drap frænda minn.
Bróður minn.
Og tylft manna minna.
Vegna bílsins síns.
Og hvolps.
Og þú heldur að hann hætti núna? Ha?
Hann er einn maður.
Því drepum við hann ekki bara?
John Wick...
er afar einbeittur...
fylginn sér...
og andskotanum viljasterkari.
Hann drap eitt sinn þrjá menn á krá...
Með blýanti. Ég veit. Ég hef heyrt söguna.
Með fjandans blýanti!
Hver í fjandanum getur það?
Ég get fullvissað þig um
að sögurnar sem þú heyrir um þennan mann
hafa, ef nokkuð er, verið þynntar út.
Þú ert með bílinn minn.
Kölski.
Friður.
Getur maður eins og þú þekkt frið?
Hví ekki?
Friður.
Njóttu eftirlaunaáranna...
Herra Wick.
JOHN WICK KAFLI 2
Hæ, vinur.
Heyrðu...
Góður hundur.
Hvað ertu að gera, John?
Horfa á þig.
Hvað ert þú að gera?
Ég er að bíða eftir þér.
Komdu hingað.
Heyrðu, strákur.
Góður og friðsæll staður sem þú átt hér.
Sæll, Aurelio. - Sæll.
John, hver fjandinn? Ég hélt þér þætti vænt um þennan bíl.
Hvað heldur þú?
Vélin er alveg að hrynja úr honum og...
grindin er öll skökk.
Drifskaftið er í rúst.
Og ég veit ekki hvort þú tókst eftir því en það er sprunga í framrúðunni.
Ég meina... hvað heldur þú?
Ég get lagað þetta.
Takk fyrir að finna hann.
Ekkert mál, maður. Ég hringdi bara nokkur símtöl. Ekkert stórmál.
Láttu mig vita þegar hann er tilbúinn.
Allt í lagi. Hann verður tilbúinn um jólin...
Halló, John.
Santino.
Má ég koma inn?
Auðvitað.
Kaffi?
Gott að sjá þig.
Gott að sjá þig.
Mér þótti leitt að heyra um konuna þína, John.
Takk.
Hæ.
Og hundurinn, heitir hann eitthvað?
Nei.
Heyrðu, John,
í fullri einlægni vil ég ekki vera hér.
Gerðu það. Ekki. Ég bið þig að gera þetta ekki.
Mér þykir það leitt.
Enginn hættir og snýr svo til baka...
án afleiðinga.
Mér er óljúft að gera þetta, John.
En mundu, ef ekki væri fyrir það sem ég gerði
kvöldið sem þú tókst á við vonlausa verkið þitt
þá værirðu ekki hér núna.
Þetta er vegna mín. Þetta er að hluta til mitt.
Taktu þetta til baka.
Taka þetta til baka? - Taktu þetta til baka.
Skuldaskildingur er ekkert smáræði, John.
Veiti maður öðrum manni skuldaskilding
er hann að binda sál sína blóðeiði.
Finndu einhvern annan.
Hlustaðu á mig. Hvað er þetta?
Manstu? Þetta er blóð þitt.
Þú komst til mín. Ég hjálpaði þér.
Og ef þú gerir þetta ekki veistu hverjar afleiðingarnar verða.
Ég er ekki lengur sá náungi.
Þú ert alltaf sá náungi, John.
Ég get ekki hjálpað þér.
Mér þykir það leitt.
Já. Það er rétt hjá þér. Þú getur það ekki.
En hann getur það. Ég sé þig brátt, John.
Þú átt fallegt heimili, John.
Jæja, gott kvöld, John.
Hæ, Jimmy.
Gasleki?
Já, gasleki.
Ertu aftur farinn að vinna?
Ég sé þig, Jimmy.
Komdu, strákur.
Góða nótt, John.
Æ, fjandinn.
Ég vil hitta forstöðumanninn.
En gott að sjá þig aftur svona fljótt, herra Wick.
Á ég að gera boð á undan þér?
Já, takk.
Kyrr.
Herra Wick er á leiðinni til að hitta þig.
Óaðfinnanlegir.
Settu þessa í dreifingu.
Hvar er hann?
Takk, kæri vinur. Fallegt handbragð. Fallegt.
Hvað ertu að gera, Jonathan?
Hann brenndi húsið mitt.
Þú hafnaðir skuldaskildingnum hans. Þú ert heppinn að hann lét þar við sitja.
Hvern fjandann varstu að hugsa að láta mann á
borð við Santino D'Antonio fá skuldaskilding?
Það var eina leiðin fyrir mig til að sleppa burt.
Kallarðu þetta "burt"?
Hvað hélstu að myndi gerast? Við hverju bjóstu?
Hélstu virkilega að þessi dagur rynni aldrei upp?
Hvað vill hann að þú gerir?
Ég spurði ekki. Ég sagði bara nei.
Tvær reglur sem ekki má brjóta, Jonathan. Engar blóðsúthellingar
innan veggja Continental og alla skuldaskildinga ber að virða.
Á meðan minn dómur er í formi bannfæringar
krefst Háborðið strangari viðurlaga
séu hefðir þess virtar að vettugi.
Á ég engra kosta völ?
Vanvirðirðu skuldaskildinginn deyrðu.
Drepirðu handhafa skuldaskildingsins deyrðu.
Ef þú flýrð deyrðu.
Þú samþykktir þetta, Jonathan.
Gerðu það sem maðurinn biður um. Vertu frjáls.
Viljirðu síðan elta hann uppi,
brenna húsið hans, gjörðu svo vel. En fram að því...
Reglur.
Nákvæmlega. Reglur.
Án þeirra lifðum við með skepnunum.
Hýsið þið dýr?
Mér þykir leitt að segja, herra, að þessi stofnun gerir það ekki.
Ég, á hinn bóginn, væri fús til að taka að mér
það ábyrgðarhlutverk óskirðu þess.
Ég met það mikils.
Heitir hann eitthvað, herra?
Nei.
Góður hundur.
Kyrr.
Þetta var safn föður míns.
Ég sé lítið annað en bara málningu á striga, vitaskuld.
En ég kann vel við mig hér.
Fáðu þér sæti.
Ég vildi ekki gera þetta, John.
Hefðirðu haldið þig frá starfinu hefði ég virt það.
Að sjá þig.
Þú ert að íhuga það, er það ekki?
Þú ert að telja útganga og verði.
Næðirðu til mín í tæka tíð?
Hvernig myndirðu gera það?
Með penna konunnar þarna?
Stafnum hans?
Kannski gleraugunum hans?
Með berum höndum.
En spennandi.
En þú veist að þú getur það ekki, ekki satt?
Ég sagði þér að ég þurfti þennan náunga...
eins og þú horfir á mig núna.
Ég þurfti Kölska. Ég þurfti John Wick.
Segðu mér bara hvað þú vilt.
Ég vil að þú drepir systur mína.
Hvers vegna?
Það eru tólf sæti við Háborðið.
Camorra. Mafían. Og Ndrangheta.
Kínverjar, Rússar.
Þegar faðir minn dó
eftirlét hann henni sætið sitt.
Hún er núna fulltrúi Camorra.
Og ég get ekki annað en velt fyrir mér...
hverju ég gæti áorkað í hennar stað.
Viltu að ég drepi
Giönnu D'Antonio?
Ég gæti aldrei gert það. Hún er blóðskyld mér. Ég ann henni enn.
Það er ekki hægt.
Hún er í Róm vegna krýningar sinnar.
Þú ferð inn um katakomburnar...
Það skiptir ekki máli hvar hún er.
No comments yet. Be the first to leave one.