Collide

Collide

Icelandic 字幕をダウンロード

リリース情報

Collide Isltexti(2016)1080p BRRip - Skari11
解説: Skari11
Should work for all BluRay releases // Ætti að virka fyrir allar BluRay útgáfur

タグ

brrip
1080
公開日: 2019-06-05
ダウンロード: 30
聴覚障害者向け: No

Icelandic字幕のプレビュー

最初の200行です。

Ástæður.

Við höfum öll okkar ástæður til að gera geggjaða,

glannalega hlut í lífinu.

En þær hjálpa manni ekki mikið

þegar maður þarf að sópa saman brotunum.

En ef ástæðan er ást

þá er það kannski ekki svo geggjað

því fólk trúir á ástina.

Hún lætur heiminn snúast.

Og núna

er hún það eina sem heldur í mér lífinu.

KÖLN Í ÞÝSKALANDI

Tvöfaldur.

Bandarísk?

Er það svona augljóst? - Nei, ég heyrði í þér á barnum.

Þetta eru örlögin, ekki satt?

Tveir Bandaríkjamenn í miðju reifi í Þýskalandi?

Trúirðu á örlögin? - Er þetta Lína?

Kuldalegt svar. - Með svona Línu skaltu búast við því.

Ég ætla að byrja aftur.

Sæl! - Hæ!

Trúirðu á örlögin? - Ég held ekki.

Það tekur gamanið úr hlutunum.

Hvað ef það gerir þá meira spennandi - Ertu í vímu?

Nei, en sjáðu til, málið er

að allt sem gerist hefur þegar gerst. Það eru örlögin.

Og það er meira spennandi því að

þú hefur þegar látið mig fá síma- númerið þitt, svo hver er munurinn?

Ég vissi að þetta var Lína! - Hún virkaði betur í höfðinu á mér.

Uppbyggingin og allt. - Ég dái undirbúningsvinnuna.

Takk fyrir. Já.

Ég er Casey.

Juliette. - Juliette hvað?

Séu örlögin að verki höfum við sofið saman

Bíddu. Dokaðu við.

Svo hvað ertu að gera hér? - Hvað, á þessum stað?

Í Þýskalandi.

Viltu vita sannleikann?

Helst.

Ég lenti í klandri í Bandaríkjunum. Ekkert alvarlegt,

bara ungur, vitlaus og...

ég ákvað að nota það litla fé sem ég átti

Þarftu að fara til baka? - Nei. Ekkert sem bíður mín þar.

Hvað um þig?

Upphaflega til að fara í nám

og komast burt frá foreldrum mínum.

Þau voru mikið í dópneyslu,

rifust mikið og sinntu foreldrahlutverkinu illa.

Ertu enn í námi?

Ég veit ekki alveg hvað ég er að gera.

Á meðan þú ert ekki viss, langar þig að verja tíma með mér?

Með þér? - Já.

Ja, ég...

Ég kann að meta að þú spurðir og þú ert sætur og indæll og allt...

en ég hef séð þig hér.

Ég veit í hvað þú ert flæktur.

Ég hef ekkert á móti því. Við viljum öll djamma.

En reynslan hefur kennt mér að náungar sem lifa þannig lífi

eru ekki náungarnir sem ég er að leita að.

Nei, ég er ekki dæmigerður... - Nei. Nei, ég...

Ég held ekki að þú sért það.

Og ef þú ákveður einhvern tíma að gera það opinbert

máttu láta mig vita.

Ja hérna.

Það var gaman að hitta þig. - Já, sömuleiðis.

Sjáumst síðar.

Stuðstrákur!

Hvað er á seyði? Hættu að daðra við þessa gellu.

Í alvöru. Komdu, Geran bíður eftir okkur.

Sjáið Þetta. Eruð þið hrifnir af John Travolta?

Hafið þið séð þessa mynd? "Perfect" með Jamie Lee Curtis. Um eróbikk.

Góð mynd.

Ekki leiktilþrifin. En Travolta ætti að hafa fengið Óskar!

Hver er þetta?

Ég er Casey. - Hvað?

Ég hef unnið fyrir þig í hálft ár. - Hvað?

Casey!

Æ, já, Casey! Dópið.

Það hefur áhrif á sjónina.

Hann er stórtækur bílaþjófur í Bandaríkjunum.

Segðu henni hvað þú stalst mörgum bílnum.

Ég veit það ekki Líklega var það einum of mikið.

Viljið þið þéna meira?

Já. -Ég þarf einhvern eins og þig, Burt Reynolds.

Algjört núll en gáfaður. Og einhvern eins og þig, Smurða Elding.

Algjört núll en snaróður.

Nú getið þið unnið ykkur upp! - Hvað er það?

Sérstakt verkefni. Miklir peningar. Eruð þið með?

Já, við erum með. - Andartak. Bíddu, nei.

Hvað er það? Er það hættulegt? - Hvers konar spurning er það?

Auðvitað er það hættulegt!

Viljirðu öruggt starf, fáðu vinnu í IKEA Ekki vefengja mig!

Viljirðu það ekki er mér sama.

Viljirðu hlaupa um og innheimta fé fyrir mig þar til þú verður stunginn

þá máttu það. Ég get skipt þér út á svipstundu.

Af því mér er annt um starfsmenn mína býð ég ykkur eitthvað betra.

Viltu það, já eða nei?

Ég gerði það opinbert. - Hvað?

Ég var að gera það opinbert. Ég hætti í starfinu.

Nú hefurðu enga afsökun fyrir að fara ekki á stefnumót með mér.

Algjörlega.

Þú ert ruglaður. - Nei.

Nei, ég tek bara oft áhættu og þú virðist áhættunnar virði.

Gerðu það, bara eitt stefnumót, ég bið ekki um annað.

Veistu að við höfum hist á hverjum degi síðasta mánuðinn?

Já, ég hef verið að elta þig. Fyrirgefðu.

Við ættum að búa saman.

Æði.

Ég elska þig.

Hæ. - Hæ. Hvernig hefurðu það?

Gott. Hvað um þig? - Já, þetta var fínt.

Viltu bjór?

Þú ert sæt.

Komdu hingað.

Hvað hefurðu verið að gera?

Ég saknaði þín. - Ég saknaði þín.

Jæja?

Jæja?

Ég þarf að fara í vinnuna.

Ég er ekki að stöðva þig. - Jú, víst.

Dálítið.

Ég gæti kannski mætt seint.

Geran.

Hagen.

Jæja... - Hvernig hefur fjölskyldan það?

Gott. En þín?

Ég ver meiri tíma með hestunum.

Þeir biðja ekki um eins mikið. - Já.

Um hvað biður þú, Geran?

Og um hvað biðurðu mig?

Jafna hlutdeild.

Ég skil. - Við höfum unnið saman lengi.

Lengi?

Ég hef aldrei svindlað á þér. - Aldrei nokkurn tíma.

Ég tek áhættu. - Ég veit það.

Þú færð megnið af hagnaðinum. - Að sjálfsögðu.

An hans væri ekkert.

Ég viðurkenni það.

Gott.

Gott.

Frá viðskiptalegu sjónarhorni, Geran,

hvaða tak hefurðu á mér til að ég láti þig fá það sem þú vilt?

Þetta snýst um sanngirni.

Þú ert væntanlega að höfða til míns betra eðlis.

Er það slæmt? - Það kemur dálítið á óvart

sem leið til að biðja um meiri pening. - Nei.

Þetta snýst ekki um pening. Jöfn hlutdeild snýst um virðingu.

Já. - Ég á mínum stað, þú á þínum.

Mínir líkar. Heldur okkur á okkar stað. Ég veit að þú segir nei.

Ekki spurning. Ég veit það.

En ég verð að spyrja.

Ég verð að heyra það.

Geran, vinnan sem þú vinnur, áhættan sem þú tekur

gefur þér tilkall til minnst helmings af því sem við öflum saman.

En manneskjan sem þú ert í samanburði við mig

neyðir mig til að hafna og neita því sem þú biður um.

Þetta er spurning um mannkosti, fágun,

gildismat og dyggð, hluti sem þú veist ekkert um.

Vertu sáttur á þínum stað í lífinu, Geran.

Hann hæfir þér vel.

En þú gætir aldrei orðið jafnoki minn

í neinum skilningi þess orðs.

Sjáðu þetta fólk

sem leikur sér í fríinu og heldur að það vari að eilífu.

Hvað er eilíft? - Ekkert. Það er málið.

Almáttugur, það er kalt.

Förum upp. Hlýjum okkur og kúrum. Kannski smákynlíf.

Þú ert svo rómantískur.

Ég er afar heppin stúlka.

Þína skál.

Fyrst þú gekkst burt frá þessum snar...

snaróða tyrkneska brjálæðingi.

Ég er stolt af þér, Casey Stein.

Þetta fór allt vel. - Jæja, áskorunin er...

við förum úr öllu nema nærfötunum, leggjumst í snjóinn

og það fyrra sem stendur upp

og gengur nakið kringum húsaröðina.

Má ég vera í sokkunum? - Nei.

Gott og vel. Því ekki? Gerum þetta.

Nakinn. Strax.

Úr öllu.

Nei, það er kalt. Ég verð í nærbuxunum.

Flýttu þér, flýttu þér! - Þrír, tveir, einn, byrja!

Það er svo kalt!

Þú sigrar. Drífum okkur.

Jules? Elskan. Komdu nú.

Jules.

Hvað gerðist? Elskan? Jules!

Og nú þegar við höfum stjórn á blóðþrýstingnum

ætti ekki að vera frekar hætta áflogum.

Við þurfum að ræða undirliggjandi ástæðuna.

Afsakið, en ég ætla að vera hreinskilin.

Staða þín hérlendis gefur þér ekki rétt til viðeigandi meðferðar hér.

Þér verður vitanlega ekki neitað um blóðskiljun en...

Afsakaðu. Ertu að segja að hún þurfi blóðhimnuskiljun?

Já, auðvitað.

Að lokum er nýrnaígræðsla eina lausnin. Og tíminn skiptir máli.

En við getum ekki hjálpað þér. Mér þykir það leitt.

Því sagðirðu mér það ekki? - Til hvers?

Þú heyrðir hvað hún sagði. Ég þarf ígræðslu sem þau veita mér ekki.

コメント

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left