처음 200줄입니다.
Sagt er að auðveldast sé
að stofna vinasambönd í barnæsku.
Þetta er ég, Olli.
Viltu sparka boltanum til okkar?
Einungis átta ára en strax s vakalega töff og vinsæll.
Það vissi bara enginn enn.
Engin furða að enginn velur þig í sitt lið!
En þá kom Matti í bekkinn minn.
Þetta er Matthías, hann er nýr í bekknum.
Segðu okkur frá þér. Hvað finnst þér gaman að gera?
Mér f-f-finnst gaman að s-s-spila fótbolta.
Róið ykkur niður, krakkar. Fáðu þér sæti, Matthías.
Við skulum halda áfram með málfræðina.
Ég heiti Olli.
-M-m-matti. -Líkar þér við fótbolta?
Óliver, ef þú truflar Matthías, þá þarf ég að aðskilja ykkur.
Þ-þ-þetta var mér að kenna.
Ég s-s-spurði hann að einu.
Þarna hafið þið það.
Þar með hófst okkar fallega vinátta.
Ef við tökum ekki af skarið núna, þá mun þetta aldrei gerast.
Þetta er einstakt tækifæri.
Ég færi góðar fréttir. Ég fann íbúð fyrir þig og köttinn.
Á jarðhæð. Flott, ég kem og næ í þig.
Komdu og sjáðu þetta hér.
Hvar er þetta?
Þetta er Sansibar, það er eyja við Tansaníu.
-Hún fer á listann okkar. -Þetta er alveg klikkað!
Ég vissi ekki að ég byði líka upp á stráhús.
Hví ertu ekki að vinna?
É-é-ég…
Ég fann kaupanda fyrir íbúðina á Moltkestrasse.
Hvað hefur þú gert? Annað en að plana ferðina þína?
Ég keypti handa þér uppáhaldsnammið þitt.
Sko þetta.
Ég veit ekki hvort er áhrifameira,
fullkomna tímasetningin þín,
að þú náir að klára allt rétt svo á réttum tíma.
Eða snjalla framaplanið þitt að taka þér ársfrí frá vinnu á fertugsaldri.
Einn kaupandi hefur áhuga á íbúðinni í Mülheim.
En hann kemst bara í heimsókn klukkan sjö. Þetta er heimilisfangið.
Þetta væri þá eftir vinnutíma.
Þú getur þá unnið upp þann tíma sem þú eyddir í að vafra á netinu.
Ég vil ekki sjá kökurnar á kostnaðarskýrslunni þinni.
Keisaraynjan hefði nú getað hrósað mér.
Það var ekki auðvelt að selja þessa íbúð.
Gætirðu séð um þetta, Matti? Ég þarf að kaupa gjöf handa Schmitt.
Ætluðum við ekki bara að kaupa vínflösku?
Mér datt eitt annað í hug.
Þetta hlýtur að vera húsið.
Til hamingju með afmælið, Schmitt!
Þið eruð tveimur tímum of seinir! Við erum löngu búin að borða.
Það er ekkert mál, við erum ekki sárir.
Gjörðu svo vel. Gæti komið sér vel í nýja húsinu.
Takk fyrir. Reynið að haga ykkur vel.
Þetta er ekki djamm sem á að enda hjá lögreglu.
Antje vildi varla bjóða ykkur.
En þetta er afmælið þitt?
Þess vegna leyfði hún mér…
Bíðið aðeins.
Væruði til í að nota þessar hlífar?
Þetta er nýr stíll af gráum lit, í raun blanda af mold og granít.
-Ekki láta okkur trufla. -Ég vonaði að þið væruð í fríi.
Við förum eftir tvo mánuði.
-Þetta er frábært hús. -Takk.
-Ég vissi ekki að pottar seldust svo vel. -Heimilisvörur.
Ég er ekki sölumaður lengur, heldur yfirmaður.
Síðan hvenær?
-Síðan fyrir… -Er þetta rassaskolsklósett?
Já, en þetta er ekki…
Þetta er mjög fallega innréttað.
Takk, við völdum allt saman.
-Er það ekki, elskan? -Alveg rétt.
Er þetta svefnherbergið þitt, Schmitt?
Antje! Ertu ólétt?
Síðan hvenær?
Ég er það ekki enn.
En við verðum líklega þau fyrstu í hópnum.
Ég vil ekki valda þér vonbrigðum.
Olli er nú þegar kominn sjö mánuði á leið, með barnið okkar.
Ég er aftur orðinn svangur. Ég þarf að borða fyrir tvo.
Þið megið fá afgangana.
Þetta er svona snjallheimiliskerfi.
Hvað þýðir þetta?
Ég hef ekki hugmynd.
Hvað hafið þið gert?
Ég ýtti bara á takka.
-Þú kveiktir á þjófavörninni! -Er það?
-Slökktu á kerfinu, Ralf! -Ég er að reyna.
Kanntu ekki kóðann? Þú sást um þetta!
Ég var ekki kominn svo langt.
Finndu þá handbókina!
Áfram með þig!
Ég er í lagi!
Elskan mín? Þetta fólk stóð við dyrnar.
Nágrannarnir hringdu á lögguna.
-Fannstu handbókina? -Nei.
-Haltu áfram að leita! -Allt í lagi.
-Ertu í lagi? -Já.
-Mér þykir þetta leitt. -Má ég reyna?
Já, endilega.
-Takk fyrir. -Verksmiðjukóðinn er yfirleitt 1234.
Ég finn lykt af grasi.
Það getur ekki verið.
Þetta er flott planta.
Þú þarft ekki að skammast þín.
Margir njóta einnar jónu eftir langan dag.
Ég fann handbókina!
Hvað gekk ykkur til að gefa Ralf eiturlyf?
Þið vitið að hann er hættur.
Þið hagið ykkur eins og kjánar og ég vil ekki að þið hittið Ralf lengur.
Burt með ykkur.
Það væri betra ef þið færuð.
Schmitt hélt áður betri partí.
Hann hefur breyst. Fyrir ári var hann alger grashaus.
En núna á hann rassaskolsklósett, þökk sé Antje.
Heldurðu ekki að hann vilji þetta?
Hver myndi vilja snúa lífi sínu svona svakalega við?
Hann missti af tækifærinu til að komast burt í tæka tíð.
Af hverju ætti okkur að vera sama?
Við förum brátt héðan.
Skál fyrir ferðinni okkar.
Fyrir skemmtun lífs okkar.
Er þetta ekki vel uppsett íbúð?
Gamli eigandinn skyldi eftir húsgögn sem þú mátt eiga.
Vá.
-Gæti ég flutt inn um leið? -Auðvitað.
Hún er fullkomin.
-Ég þarf að flytja burt úr minni íbúð. -Vegna samleigjanda?
Nei, samleigjandinn minn er frábær.
En ekki kærastinn hennar og hann er eiginlega fluttur inn.
Ég skil þig. Hann borðar matinn og pissar út fyrir…
Hann er uppáþrengjandi.
Ég get ekkert gert með henni án þess að hann komi með.
Hann hefur líka nýverið byrjað að tala um börn þegar ég er á staðnum.
Ég þarf að flytja áður en þau henda mér út.
Hef ég möguleika á þessari íbúð?
-Þú mátt skrifa undir núna. -Er það?
Vá!
B-bíddu!
É-é-ég…
þ-þ-þarf að…
segja þér eitt.
Hvað?
Í-íbúðin…
Ég gekk í gegnum það sama sem krakki og ég veit eitt ráð.
Hvíslaðu bara því að mér sem þú vilt segja mér.
Það er mygla hérna.
-Þau gátu ekki losað sig við hana. -Af hverju eruði þá að sýna íbúðina?
É-ég…
Ég vissi ekki að mér myndi líka svona vel við þig.
Ætli ég sé þá ekki heppin að þú hafir áttað þig á því.
Þú skuldar mér.
Ég skal finna handa þér aðra góða íbúð.
Ég er með eina í huga nú þegar.
Það líka.
Ég var meira að hugsa um kvöldmat.
Núna?
Við getum varla borðað kvöldmat ef við bíðum til morguns, er það?
Þú munt ekki trúa þessu!
Ræktin við hliðina á matarbúðinni er komin með kuldaklefa.
Frábær leið til að æfa okkur fyrir Ísland.
Þetta er Rebecca. Ég sýndi henni íbúð í dag.
Gaman að kynnast þér.
Sæl.
Hvar get ég farið á klóið?
Þarna til hægri.
Frábært.
Félagi…
Kúnni?
Hún er frábær.
Voða jarðbundin og indæl.
Hún er í tannlæknanámi.
Við vorum úti að borða og ætlum núna á bar.
Allt í lagi.
Komdu með í einn drykk til að kynnast henni.
Af hverju? Við erum að fara eftir nokkrar vikur.
Íbúðin ykkar er mjög fín.
Voða stór.
Þetta er ferðaskipulagið okkar.
-Sagði Matti þér ekki frá ferðinni? -Jú.
Ég fór í svipaða ferð eftir menntó.
-Er það? -Já.
Ég var í tvo mánuði í Ástralíu og Nýja-Sjálandi og einn mánuð í Taílandi.
Bara í þrjá mánuði? Það er ekki almennileg heimsreisa.
Maður þarf að heimsækja allar heimsálfurnar.
Allt í lagi.
Eigum við að fara?
-Já. -Hvert ætlum við?
Hvað er málið?
Þú spurðir hvort ég vildi koma með.
Það er satt.
Förum þá! Ég er að missa vitið hérna inni.
Hæ, Olli!
Hæ!
Halló!
Já, bættu þessu við.
Má bjóða þér?
Ekki skrúfa frá krananum á meðan sturtan er í gangi!
Fyrirgefðu!
No comments yet. Be the first to leave one.