200 baris pertama.
Samkvæmt öðrum lögregluþjónum á staðnum ríkti öngþveiti.
En þú nefndir það ekki í skýrslu þinni.
Ég var ekki þar er það hófst. Ég var við bílinn, talsvert frá.
Þú sagðist hafa farið til að sækja hanskana þína.
E, já. Ég man það ekki alveg en já...
Já, það er hugsanlegt.
Félagar þínir sögðu þig ekki hafa verið þar er Kronvall særðist.
Eftir það stangast frásagnir ykkar á.
ÓEIRÐIRNAR
-Hvað með þennan? -Ekki enn einn.
Hver er munurinn á snigli og fangelsi?
Snigillinn heldur slíminu utan á.
-Það er miðvikudagur á morgun, Paul. -Ég veit. Ég er ekki með krakkann.
-Frábært. Heyrumst. -Allt í lagi, bless.
Hann virðist nær ástfanginn síðan þú ákvaðst að vera um kyrrt.
Við förum alltaf út á miðvikudögum.
Við glápum á lamaðan starfsfélaga á meðan Johan daðrar við konu hans.
Ja, ég veit ekki með "okkur". Hann biður mig ekki lengur.
-Nei. Af hverju ætli það sé? -Tja...
Ég býst við að þið munið fagna brottför minni.
Fjandinn, hvað er í gangi?
50-37-40, líkamsárás í gangi. Takk. Skipti.
-Slepptu henni! -Lögreglan!
Komdu hérna.
-Ertu með eitthvað beitt? -Nei...
Nei, nei, nei! Farðu frá!
-Farðu frá! -Fjandinn hafi þig!
Snúðu þér við. Hægt og rólega.
Heyrðu, bíddu.
-Komdu aftur hingað. -Sestu.
-Hvernig þekkirðu hann? -Sestu niður!
Er allt í lagi með þig?
Er hann maðurinn þinn? Kærasti?
Ertu með einhver skilríki?
Býrðu hérna?
Svaraðu spurningunni.
Katarina?
-Hæ. -Er allt í lagi?
Hæ, strákar.
-Barði hann stelpuna? -Ég snerti hana ekki...
-Vorum við að spyrja þig? -Þið þekkið mig...
Skilurðu ekki sænsku? Þegiðu.
-Talar einhver sænsku? -Lítur ekki út fyrir það.
Það eru fleiri stelpur þarna uppi.
Einmitt. Þú og Björkmyr, farið þangað upp.
-Þekkist þið? -Ég hef rekist á hann áður.
Komum þér inn í bíl. Þarftu aðstoð?
30-30 til 31-60. Grunur um vændi.
Stelpurnar eru líka rúmenskar. Við þurfum túlk.
Hve margar ykkar vinna í þessari íbúð?
Viltu ekki segja það? Viltu ekki tala við lögregluna?
Hvað með þig?
Viltu ekki segja neitt?
30-30 til 31-60, við erum með dáinn mann í íbúðinni.
-Er allt í lagi með þig? -Já... fjandinn!
-Svíður þetta enn? -Það gerir það raunar. Ansi illa.
Paul?
-Leitt að ég skyldi ekki sjá úðann. -Já, hvernig gerðist það?
Mér þykir það leitt.
Heyrðu...
Verðum við félagar í alvöru núna? Rannsóknarlögregla á bakvakt?
-Hvernig fögnum við því? -Ekki í dag.
Paul?
Peo Engman, fráskilinn millistjórnandi hjá HSB.
Dó af innri blæðingum.
Stelpurnar segja að hann hafi verið barinn til dauðs.
Piotr mun eiga erfitt með skapið í sér.
-Ég sá að þú lýstir eftir honum? -Hann mun reyna að fara úr landi.
-Robert þekkti hann. -Hann er fyrrum útkastari.
Hann er með fyrri dóma en ekkert stórt.
Svo að þið Paul komuð þangað á undan hinum?
Við sáum úr bílnum að hann barði stúlku.
-Minntist hún á íbúðina? -Nei.
-Vitið þið hvað er á bak við það? -Engman vildi bera þær út.
Vinnur hann hjá HSB?
Já, stelpurnar segja hann hafa útvegað Piotr íbúðina fyrir kynlíf.
Þeir hafa rekið hóruhús síðan á ESB-ráðstefnunni.
-Og vissum við ekki af því? -Við fengum ábendingu síðasta haust.
En þegar við komum þangað var staðurinn tómur.
Hæ. Afsakið. Ég kom bara til að ná í bíllyklana mína.
-Er hún sú sem þú svafst hjá? -Ég skal fylgja þér niður.
-Voru þau ekki að skilja? -Fer eftir því hvern þú spyrð.
-Góðan dag, Huss. -Góðan dag.
Ég get ekki sótt í dag. Ég vinn frameftir.
Já. Allt í lagi, gerðu það. Frábært.
Athugaðu hjá afa. Kossar.
-Suma daga... -Hin eru í góðu skapi.
Hefurðu ekki heyrt það? Þau hættu við rannsóknina á ESB-ráðstefnunni.
-Sú gagnrýni er ekki ný. -Nei. Það var vitað áður.
-Svo hví þá nýja rannsókn? -Það var pólitísk samstaða um það.
Hann andskotann elskar þessar myndavélar.
Yfir 200 lögreglumenn og aðgerðasinnar voru yfirheyrðir.
Öryggislögreglan og NOA í málinu. Símar kannaðir, myndavélar, loftnet.
Lögreglan var hreinsuð af öllum ásökunum um misgjörðir.
En eru einhver mál þar sem vantar gerendur?
-Eins og við Valdemarsveg? -Já. Sem NOA í Stokkhólmi fæst við.
Það var allt rannsakað við málið. Við getum sagt því lokið.
-Loksins. -Til hamingju, ætti ég að segja.
En til hamingju sjálf. Mér skilst að þér hafi verið veitt staða.
Kadefors er góður yfirmaður.
-Hann hefur ekki rætt við þig? -Nei.
Og ég hef ekki rætt við hann.
Gott. Takk fyrir.
Það var ekkert.
Ég hef ekki tíma fyrir þetta. Hvers vegna er Piotr yfirleitt hér?
-Ég hélt hann væri útkastari þinn? -Fyrir rúmum tveimur árum.
Ja, ræddu við yfirmenn lögreglunnar. Þeir ákveða hvers við leitum.
-Er þetta eldhúsið? -Já, hér inni.
Komum, strákar.
Mansal og morð?
Hann klúðraði hlutunum aldeilis.
-Ertu hissa? -Hálfpartinn.
Pieter var með skap en hann var klár náungi.
-Á hvaða hátt? -Hann kunni að múta.
Hann útvegaði dóp. Lét réttu mennina ganga fyrir.
-Ef þú gerir mér greiða... -Eitthvað svoleiðis.
-Hvar er Robert? -Ég veit það ekki.
Kalle dó í nótt.
Af hverju vilja þau okkur ekki þangað inn?
Pabbi Kalle kenndi lögreglunni um allt sem gerðist.
Þeir vilja ekki hefðbundna lögregluútför.
En vildi Johan það?
Félagar verða að geta kvatt, tjáð virðingu sína.
Hann dó þó við skyldustörf.
Ekki líða illa. Þetta beinist ekki gegn okkur, liðinu.
Hvar er Robert?
Ég næ ekki í hann.
Við skulum muna Karl í ljósi dyggða sinna.
Sem eiginmann, föður og vin.
Munum ástina sem hann færði ástvinum sínum.
Þeir þeirra ykkar sem eru hér í dag til að deila sorginni
og kveðja hinstu kveðju.
Það er huggun á degi sem þessum að Karl er nú frjáls.
Hann er frjáls undan sársauka og þjáningu.
Og þegar tár okkar eru þorrin mun björt minning hans lifa.
Er hann drukkinn?
-Hvað er í gangi? -Ég er hér að ræða við Lydiu.
Nei, það er ekki gott. Farðu aftur inn í bíl.
-Af hverju má ég ekki vera hér? -Þú ert drukkinn.
-Ég vil ræða við Lydiu. -Nei, hlustaðu á mig.
Ég vil tala við Lydiu. Hvað ert þú að...
-Róaðu þig! -Hvað ert þú, bakvarðarsveit?
-Farðu inn í bíl. -Ha? Nei.
-Farðu inn í bíl. -Hlustaðu á mig!
Hvað er Tommy... Hvers vegna ert þú hér?
Hvers vegna ert þú hér, Tommy? Auminginn þinn!
Af hverju má Tommy vera hér? Fjandann ert þú að gera hér?
-Þú ert helvítis aumingi! -Þetta er nóg!
-Væskillinn þinn! Væskill! -Róið ykkur!
Róaðu þig! Andskotans róaðu þig!
Við vissum ekki að hann myndi birtast.
Andskotinn! Farðu heim.
Fyrir Lydiu. Ha? Farðu heim.
Svona nú. Farðu heim.
-Góðan dag. -Daginn.
Ég verð stuttorður. Pjotr Lubos sást í Majorna í gær.
Við verðum á svæðinu allan daginn, í bílum og fótgangandi.
Einhverjar spurningar? Nei? Allt í lagi.
Eitt í viðbót, við þurfum tímaskýrslur ykkar fyrir föstudag.
Ég veit að ég er alltaf að segja það.
En Anette úr bókhaldinu er alltaf að nuða í mér um það.
Það er fjandans hausverkur, svo afhendið þær og fáið greitt.
Einmitt. Sé ykkur við bílinn.
Paul? Ertu með servíettu?
Takk fyrir.
Notalegt andrúmsloft.
Maður sem samsvarar lýsingu á Pjotr Lubos við Stopet í Majorna.
51-14-20 hér. Hvar er Stopet? Skipti.
Á Valdemarsvegi 11.
Við verðum þar eftir augnablik.
Móttekið. Látið vita er þið komið á svæðið. Skipti.
-Robert, þú mátt sitja hjá núna. -Ha?
Ég hringi á bíl.
Kem ég ekki með?
Kem ég ekki með?
51-14-20. Við erum komin.
Allt í lagi. Bíðið átekta. Sérsveit er á leiðinni. Skipti.
-Móttekið. Yfir og út. -5-0. Yfir og út.
Robert... Robert!
-Robert! -Robert!
Þetta er ekki hann! Þetta er ekki hann!
Hann er ekki í jafnvægi núna, er það svo skrýtið?
-Hann hefur átt í vanda um hríð. -Ég veit ekki með það.
Ertu að grínast?
Síðan við komum hefur Robert hleypt þrisvar af byssunni.
Þeir eru ekki eins og aðrar löggur. Þú veist það.
Hvað viltu að ég geri? Ég hef samþykkt að vera áfram.
-Ég veit það ekki. -Gæti mamma þín gert eitthvað?
Geturðu spurt hana?
Það er nógu erfitt að fá fólk í liðið hans Johans.
Ég skil.
-Það er slæmt ef ég skipti mér af. -Ég veit. Ég spurði þó.
Svo að ég get hjálpað vini þínum en ekki þér?
Í dag skaut Robert næstum því ferðamann.
Ef þú ert að spá í hvers vegna enginn vill vinna með okkur.
-Það er ekki mín ákvörðun að taka. -En heppilegt.
Hættu þessu. Ég þarf að hugsa um mitt starf.
Og að hugsa um það rétta hefur aldrei verið þinn styrkur.
Samt er mín óskað í rannsóknadeildinni.
-Ég hlýt að gera eitthvað rétt. -Já, vafalaust.
No comments yet. Be the first to leave one.