Huss

Huss

Muat Turun Sari Kata Icelandic

Musim 1

Maklumat siaran

Huss S01E03 MultiSub 720p X265-StB
Ulasan oleh myloc

Tag

720p
720
x265
Diterbitkan pada: 2021-04-04
Muat Turun: 14
Masalah Pendengaran: No

Pratonton sari kata Icelandic

200 baris pertama.

Það hlýtur að hafa verið óreiða frá upphafi.

Kannski er ekki undarlegt að rangar ákvarðanir voru teknar.

Hvað áttu við?

Yfirmaður þinn, Johan Jansson, hefur verið undir miklum þrýstingi.

Sástu það gerast?

-Ég veit það ekki. -Þú veist það ekki?

En miðað við hvar þú sagðist hafa verið, hlýturðu að hafa séð...

Þú hefur ekki verið í óeirðum, er það?

Það gerist allskonar. Sprengingar, fólk að henda grjóti...

hleypur að þér með járnrör.

Það er eins og orrustuvöllur.

-Vatnsglas? -Ég er góður. Takk.

Eftir það sem kom fyrir félaga þinn,

hefurðu fundið þörf fyrir að tala við einhvern?

Nei, mér gengur ágætlega.

Tekur þetta langan tíma?

GÍSLINN

Við erum að elta rauðan Volvo, grunaður glæpamaður.

Númerið er OPP 919. Yfir.

-Farðu frá! -Af hverju færir hann sig ekki?

Svona nú!

Hann reynir að sleppa.

Getum við fengið staðfestingu á númerinu? Yfir.

LÖGREGLA

Gott. Haltu áfram.

Fjárinn...

11-72. Þetta er rangur bíll. Það á að vera hvítur Ford.

Hvítur? Ertu viss?

Ertu viss um að bíllinn sé hvítur? Yfir!

Andskotinn!

Hvað gerum við? Snúum við?

-Höldum við áfram eða snúum við? -Bíddu við.

Meiri upplýsingar um bílinn? Yfir.

Við erum með númerið. Það er OPP 919. Ég endurtek...

-Það var rauði Volvoinn. -Andskotinn!

Í hvert einasta skipti!

Djöfull!

Þú getur hægt á þér. Hann er farinn.

Aktu aftur á stöðina.

Hvað var þetta?

Sjáðu!

Fjárinn! Ef við hefðum fengið réttar upplýsingar hefðum við náð þeim.

Beið einhver hér eftir að sækja þá?

Líklega.

Annars hefðu þeir ekki kveikt í bílnum.

-Slökkviliðið er á leiðinni. -Fjárinn!

-Flottur akstur, Huss. -Já, virkilega.

-Hvað kom fyrir? -Það var innbrot.

-Einhver meiddur? -Við getum ekki sagt frá því.

Vinsamlega haldið áfram.

Sofandi í vinnunni?

Eins og þið vitið, hafa verið nokkur svipuð rán í nágrenninu.

Þetta eru tveir grímuklæddir menn, í samfestingum með skíðagleraugu.

Þeir brjótast inn, eða brjóta sér leið,

taka peninga og verðmæti, og flýja á stolnum bíl, sem þeir brenna svo.

Þeir finna fórnarlömb sín líklega á samfélagsmiðlum

og fylgjast vandlega með þeim.

Til að finna grunsamlegt fólk, munum við auka viðbúnað.

Afsakið. Þetta gæti verið einhver úr nágrenninu.

Eins og iðnaðarmenn.

Ef þú vilt stöðva alla iðnaðarmenn, gerðu svo vel.

Verið vel á verði.

Þeir ráðast oftast á afskekkt hús.

-Eitthvað fleira? -Hvað var þetta?

Má ég ekki lengur koma með athugasemd?

-Fannst þér þetta gott innlegg? -Ég geri það!

-Af hverju ertu svona dónalegur? -Mér líkar ekki við óboðna gesti.

Þú getur ekki birst heima hjá mér eins og þú gerðir í gær.

Þér var sama um það áður.

-Við erum að skilja. Við konan mín... -Og?

Það gefur þér ekki rétt til að lítillækka mig fyrir framan alla.

Hanna,

þú ættir í alvöru að hugsa vel og lengi um framtíð þína.

Hanna vill vinna áður en hún fer aftur í skóla. Hljómar vel.

En grunnnámið er mikilvægt fyrir alvöruframtíð. Það vita allir!

-Hvers framtíð erum við að ræða? -Þína!

Einmitt.

Viltu vinna á kaffihúsi alla ævi?

Þetta er nóg! Ókei?

Hvenær fáum við svo að hitta hann?

-Hitta hann? -Já?

-Eins og koma með hann hingað? -Já!

Væri það ekki fínt? Hitta hann?

Afsakið. Við fórum yfir kjallarann. Það er allt í lagi.

-Takk. -Bæ.

-Keyptuð þið svo loksins hvolp? -Nei, raunar.

Þau seldu hvolpinn áður en við ákváðum okkur.

-Það var leitt. -Svona er lífið.

-Jæja, allt er í góðu lagi. -Allt í lagi, takk. Bæ.

Af hverju nota prjóna? Hvað er að gaffli?

Þannig talar venjulegt fólk saman. Ókei?

Bara svo þið vitið, ef ég skyldi, gegn betri vitund,

koma heim með Priam.

-Á ég að rétta þér gaffal? -Já, takk.

Hæ.

-Hæ. -Hæ.

Hæ, Emelie.

Pabbi, ég ætla að gefa þér dálítið fallegt sem ég bjó til handa þér.

Fallegt!

Allir uppáhaldslitirnir þínir.

Vaknaðu pabbi! Hvað ætlarðu að sofa lengi?

-Við verðum að fara, því miður. -Ég skil.

Hlýtur að hafa verið eitthvað sem ég borðaði.

Hæ.

-Er allt í lagi? -Já, ekki spurning.

Veistu að það er lögbrot að tala í síma í akstri?

Ég er að segja þér, nei!

Ég er að segja, þetta voru fimm sekúndur.

Það skiptir ekki máli.

-Ertu heimsk í alvöru? -Nei, ég er það ekki.

Farðu til fjandans. Ég tek ekki við þessu.

-Lögguhóra! -Fyrirgefðu, hvað kallaðirðu mig?

-Eitt orð í viðbót... -Robert!

Fjárinn sjálfur!

-Helvítis tussa! -Hvað ertu að gera?

-Haltu kjafti! -Róaðu þig!

Pabbi minn er saksóknari. Þú ert búinn að vera, heyrirðu það?

-Róaðu þig niður. -Ég kæri hann!

-Róaðu þig. -Þið verðið öll rekin.

Náðuð þið því? Þetta var líkamsárás!

-Gerið þið þetta venjulega svona? -Komið honum úr bílnum.

-Komdu út úr bílnum. -Af hverju?

Ef þú vilt senda kvörtun verðurðu að undirrita pappíra.

Þú mátt bóka það.

Róaðu þig.

-Setjið á hann ól. -Hvað er þetta?

-Hvað í andskotanum er þetta? -Við viljum líka vita það.

Vildirðu senda kvörtun?

Komdu með okkur og gerðu það. Við getum rætt um eiturlyfin.

-Ertu að grínast í mér? -Nei, það er ég ekki.

Þetta er bilun.

Ég er þá ekki að senda kvörtun. Ertu ánægður?

-Má ég þá fara, eða hvað? -Já. En við höldum þessu.

-Erum við með upplýsingar um hann? -Já.

Eigðu góðan dag. Haltu símanum í vasanum og aktu varlega.

-Takk. -Þakka þér.

Ég veit hvað þú ert að hugsa.

Nei, við erum ekki með eiturlyf til að koma fyrir hjá fávitum.

Við gripum einn áðan. Ég notaði það.

Ókei. Og hvað gerist ef hann kærir okkur?

Við verðum bara að treysta á að yfirmaður okkar skilja ástæðuna.

Það er ekki alltaf hægt að fylgja öllum reglunum.

Við fylgdum ekki einni í dag. Ég er ekki bara að tala um dópið.

-Ókei? -Það var bara til að verja Robert.

Átti hann að láta gaurinn kæra hann?

Heldurðu að Johan viti hvernig Robert hefur það?

Já... Eða, ég veit það ekki. Það er á ábyrgð Johans.

Hvað ef hann tekur hana ekki?

Þá er það ábyrgð Tomas Torén.

-Hefurðu tíma fyrir bjór? -Tvo snögga.

Eða þrjá!

Kom inn.

Hvað ert þú að gera hér? Ég átti að hitta Tomas.

Lokaðu dyrunum.

Tomas sagði mér frá fundinum, svo ég sagði að ég ætti að taka hann.

Sestu.

Segðu mér. Hvað er vandamálið?

Vandamálið er að við getum ekki verið með stjórnlausan liðsmann.

Ég þekki Robert.

Ekki þú.

Ég sá hann ráðast á gaurinn í bílnum.

Auk þess byrjaði það á spítalanum.

-Þegar dóttir Kalles... -Ég veit.

Þú gefur þig víst ekki fyrr en þú heyrir hvað gerðist.

Í upphafi Evrópufundarins,

voru nokkur mótmæli um allan bæ.

Ekkert alvarlegt.

Þar sem við vorum var rólegt.

Við vorum tekin í bólinu af um 20 aðgerðasinnum

sem birtust upp úr þurru.

Þau hlupu til okkar. Grýttu okkur með steinum.

Við drifum óeirðabúnaðinn upp.

En... Kalle náði ekki að setja hjálminn á sig.

Skyndilega lá hann á jörðinni, hausinn brotinn af steini.

Við lögðum áherslu á að verja hann þar til liðsauki bærist.

Sáuð þið árásarmennina?

Nei.

Eins og þú hefur séð

eru þau okkar sem voru þar ekki áfjáð í að ræða það.

Þetta var helvítis hörmung...

Við erum bara að reyna að gleyma þessu.

Takk...

fyrir að segja mér þetta.

Robert getur rokið upp,

en það má stóla á hann þegar á þarf að halda.

-Hæ. -Hæ!

Hvað ertu að gera hér? Hittirðu Tomas?

Já, eða... átti samtal við Johan.

-Kom eitthvað fyrir? -Nei. Bara að ganga frá ákveðnu.

-Eins og? -Hvernig sumir félagarnir hafa það.

En þetta var gott samtal. Ég sé hlutina skýrar núna.

Við förum út eftir korter.

Starfsþjálfuninni þinni lýkur bráðum. Þá yfirgefurðu þetta lið.

Af hverju ertu að skipta þér af ef þú ert hvort eð er að fara?

Hvað áttu við?

Ég meina það sem ég segi. Liðið hans er ekki í lagi.

Tomas er veiklundaður og leyfir honum að halda áfram.

Það er ekki þín ábyrgð.

Við tökum tvo bíla í staðinn fyrir sendibíl.

Kieri, þú kemur með mér. Huss, þú ert með Robert.

More Icelandic subtitles for Huss

Komen

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left