Manhattan

Manhattan

Download Icelandic ondertitel

Release informatie

Manhattan 1979 WEBRip iTunes
Manhattan 1979 WEB-DL iTunes
Een commentaar door ChristopherCavco
Icelandic

Tags

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
webrip
BRip
Gepubliceerd op: 2022-03-10
Downloads: 15
Slechthorend: No

Voorbeeld van Icelandic ondertiteling

De eerste 200 regels.

"Fyrsti kafli."

"Hann dáði New York. Hann dýrkaði hana úr hófi."

Segðu frekar "Hann gerði hana rómantíska úr hófi."

"Fyrir honum, sama hvaða árstíð var,

var hún ennþá bær í svart hvítu

og sló í takt við frábær lög George Gershwin."

Nei. Leyfðu mér að byrja aftur.

"Fyrsti kafli."

"Hann var of rómantískur varðandi Manhattan, eins og allt annað."

"Hann þreifst á hávaða og látum þvögunnar og umferðarinnar."

"Fyrir honum, var New York fallegar konur

og veraldarvanir gaurar sem virtust þekkja allar beygjur."

Ó, væmið. Of væmið fyrir mann með minn smekk.

Leyfðu mér... reyndu að gera það dýpra.

"Fyrsti kafli. Hann dáði New York."

"Fyrir honum, var hún myndlíking hnignunar nútíma menningar."

"Sami skortur á heiðarleika sem olli því að margir völdu auðveldustu leiðina...

...var hratt að breyta borg drauma hans..."

Nei, þetta er of mikil predikun. Meina, í alvöru, ég vil selja einhverjar bækur.

"Fyrsti kafli. Hann dáði New York,

þrátt fyrir að fyrir honum væri hún myndlíking hnignunar nútíma menningar."

"Það var erfitt að búa í samfélagi ónæmu fyrir eiturlyfjum, hárri tónlist,

sjónvarpi, glæpum, rusli..."

Of reiður. Ég vil ekki vera reiður.

"Fyrsti kafli."

"Hann var jafn harður og rómantískur og borgin sem hann elskaði."

"Bakvið svarta umgjörð gleraugnanna hringaðist

kynlífskraftur frumskógarkattar."

Ég elska þetta.

"New York var hans bær og myndi alltaf verða."

Ég held að kjarni listar sé að mynda nokkurs konar vinna... með aðstæður,

svo að þið getið snert á tilfinningum sem þið vissuð ekki að þið hefðuð.

Hæfileiki er heppni. Það mikilvæga í lífinu er hugrekki.

Þeir hafa rifist um þetta í 20 ár.

Hlustið á þetta dæmi.

Ef fjögur okkar væru að ganga heim yfir brúnna og manneskja væri að drukkna,

myndum við þora að...

Myndi eitt okkar þora að kasta sér út í ískalt vatnið og bjarga henni?

Það er lykil spurning.

Ég, auðvitað, kann ekki sund, svo ég myndi ekki horfast í augu við það.

Ó... Guð.

Hvert okkar?

Viltu aðeins meira? -Nei.

Ó, maður. Þetta er svo frábært.

Þú reykir ekki.

Ég veit ég reyki ekki. Ég anda ekki inn því það veldur krabbameini, en

ég er svo ótrúlega myndarlegur með sígarettu

að ég get ekki ekki haldið á einni.

Líkar þér hvernig ég lít út?

Ögrandi.

Er ég að ná til þín? -Já. Afsakaðu augnablik.

Jesús, hún er gullfalleg.

En hún er 17.

Ég er 42 og hún er 17.

Ég er... Ég er eldri en faðir hennar. Trúirðu því?

Ég er með stelpu og ég gæti lúskrað á föður hennar.

Það er í fyrsta skipti sem það gerist í lífi mínu.

Hann er drukkinn. -Þú ert drukkinn. Ættir ekki að drekka.

Sagði ég þér... að mín fyrrverandi...

Hver, Tina? -Fyrrverandi númer tvö

er að skrifa bók um hjónaband og skilnað okkar.

Það er lákúrulegt. -það er niðurdrepandi, veistu.

Hún ætlar að segja frá öllum smáatriðum, öllum mínum sérkennilegheitum,

og mínum duttlungum og kækjum, og...

Ekki það að ég hafi neitt að fela því, þú veist...

En það eru nokkur ógeðfelld augnablik sem ég sé eftir.

Það er bara slúður. Slúðrið er nýjasta klámið.

Þú ættir aldrei að leyfa mér að drekka. -Ég veit.

Þú ættir aldrei að leyfa sjálfum þér að drekka.

Við ættum að fara því ég fer í próf á morgun.

Ó, í alvöru? Krakkinn þarf að vakna...

Hún þarf að gera heimavinnu. Ég er með stelpu sem gerir heimavinnu.

Hvað? Hvað er að þér?

Þú... Þú... Hvar ertu núna? Það er eins og þú sért langt, langt í burtu.

Ég hef dálítið sem ég vil segja.

Ég bara vissi ekki alveg hvernig ég... færi að því.

Ég...

Fyrir um sjö til átta vikum síðan fór ég í matarboð

og ég hitti konu þar.

Og...

Og ég var hálfpartinn með henni.

Ertu að grínast?

Það byrjaði mjög sakleysislega, ég meina, hittumst í hádegismat tvisvar.

Og núna er þetta, þú veist,

að fara úr böndunum og ég veit ekki hvað ég á að gera í því.

Ég meina, ég er... það er ógnvekjandi.

Nú, hver er hún? Komdu með smáatriðin?

Jæja, hún er blaðamaður.

Hún er mjög...

Er hún gift, líka? -Nei, nei.

Hún er mjög falleg.

Hún er mjög hálfpartinn stressuð, taugaspennt, blekkjandi.

Frábært. Hljómar dásamleg.

Ó, hún er dásamleg. Ég meina, ég hugsa stöðugt um hana.

Hvað ertu að segja mér? Að hjónaband þitt sé...

Ég meina, hversu alvarlegt er þetta?

Ég veit það ekki, en þetta er frekar alvarlegt.

En þú hefur ekki sagt neitt við Emily?

Nei! Guð, nei.

Þetta er ótrúlegt. Ég er steinhissa því, af öllu fólki sem ég þekki,

var ég alltaf viss um að þið Emily væruð í einu af bestu hjónaböndunum.

Það erum við! Ég meina, ég elska hana.

En þú ert að hitta... -Ég veit það.

En öll þessi ár sem við höfum verið gift

hef ég átt, kannski... eitt eða tvö mjög lítilsháttar dæmi með öðrum konum.

Ég meina, mjög... Ég hata allt svona.

Ég hata sjálfan mig þegar ég er að gera svona lagað.

Þetta er bara, þú veist... Þetta er ekki þannig.

Þetta er hræðilegt. Heyrðu, þú ættir ekki að spyrja mig ráða.

Þegar kemur að samböndum, er ég sigurvegari August Strindberg verðlauna.

Jæja, ég held ekki að 17 sé of ung. Fyrir utan að, hún er klár stelpa.

Þú færð engin mótrök frá mér. Ég held hún sé æðisleg.

Þetta gæti verið verra. Hann hefur gert margt verra.

Ég held hann sé að eyðileggja líf sitt.

Hann skrifar þetta rugl fyrir sjónvarp.

Yale, hefurðu nokkurn tíma hugsað eitthvað meira um að eiga börn?

Ó, Guð minn góður. Börn.

Heyrðu, ég verð að klára þessa bók. Það mun aldrei gerast.

Ég verð að safna pening til að koma tímaritinu á laggir, ha?

Börn...

Við tölum alltaf um að flytja til Connecticut. Þú gætir gert það þar.

Connecticut. -Já.

Ég get ekki farið til Connecticut. Það er ekki praktískt.

Allt dótið mitt er hérna.

Vinnan mín er hér. Þetta er bara rangur tími.

Hvað með Isaac? Við getum ekki yfirgefið hann, þú veist?

Getur ekki virkað neins staðar annars staðar en í New York, þú veist það.

Mjög Freudískt.

Ertu að skrifa bók um hjónband okkar?

Láttu mig í friði.

Ertu að skrifa um sambandsslitin? -Við höfum sagt allt sem þarf að segja.

Ég veit að þú ert að gera það ég á vin hjá Random House.

Ég get gert það sem ég vil. -Já, en þetta hefur áhrif á mig.

Svo þú ætlar að segja öllum allt? Líf okkar, kynlíf okkar?

Ertu að njósna um mig?

Nei. Ég var í partýi og einn gaur sagðist hafa lesið kafla fyrirfram

af bók sem konan mín væri að skrifa, þar væru heitar senur. Hann sagði það!

Ég sullaði víni á buxurnar mínar. -Ég vil ekki ræða það.

Þú vilt ekki ræða það. Hvað segir Willie?

Fínt.

Svona, segðu mér smáatriði. Spilar hann hafnarbolta? Klæðist kjólum? Hvað?

Hann klæðist ekki kjólum.

Þú kemst að smáatriðum þegar röðin kemur að þér að sjá hann.

Ekki skrifa þessa bók. Þetta er niðurlægjandi reynsla.

Þetta eru opinská skrif um sambandsslit okkar.

Jesús, allir sem þekkja okkur munu vita allt.

Sjá þig. Þér er mjög ógnað.

Mér er ekki ógnað því ég var ekki sá siðlausi, sturlaði, og lausláti.

Ég vona að ég hafi ekki gleymt neinu.

Ertu að segja mér... að ég... að þú hafir verið með þremur á undan mér?

Því er erfitt að trúa. Það er óhugsandi.

Þegar ég var á þinum aldri, breiddu afi og amma ennþá yfir mig sængina.

Jæja, þeir voru mjög óþroskaður drengir. Þeir voru ekkert líkir þér.

Ekki? Hvað þýðir það?

Nú, ég hef sagt það áður. Ég held ég sé ástfangin af þér.

Heyrðu, ekki ganga of langt, ókei?

Þetta... Þetta er æðislegt, færðu þig... þú veist.

Og við skemmtum okkur vel,

en þú ert krakki og ég vil ekki að þú gleymir því.

Þú átt eftir að hitta marga æðislega menn í þínu lífi

og, þú veist, ég vil að þú njótir mín.

Míns beiska húmor og ótrúlegu kynlífstækni,

en aldrei gleyma að þú átt... þú átt allt lífið framundan.

Berðu engar tilfinningar til mín?

Hvernig geturðu sagt þetta? Ég ber ekkert nema tilfinningar til þín,

en þú vilt ekki binda þig við eina manneskju á þínum aldri.

Þetta er... sjarmerandi, þú veist.

Erótískt. Engin spurning um það.

Svo fremi sem löggurnar brjótast ekki inn,

ég held við eigum eftir að slá nokkur met.

En þú mátt ekki, þú getur ekki.. Það er ekki gott.

Þú ættir að hugsa þér mig sem hliðargötu á aðalgötu lífsins.

Svo klæddu þig þú verður að fara. -Viltu ekki að ég gisti?

Ég vil ekki að þú venjist því

því fyrst verðurðu eina nótt, svo tvær nætur,

og síðan ferðu að búa hérna.

Það hljómar ekki svo illa. -Það er ekki góð hugmynd.

Þér mun ekki líka það, trúðu mér. Ég er erfiður í umgengni.

Förum í bíó á morgun og ég sýni þér Veronica Lake myndina. Ókei?

Ókei. Veronica Lake er forsíðustelpan með rauða hárið?

Nei, það er Rita Hayworth. Þurfum við alltaf að fara yfir þetta?

Rita hver? -Rita Hayworth. Ertu að gera grín að mér?

Auðvitað er ég að grínast! Heldur að ég viti ekki um neitt fyrir Paul McCartney.

Mér finnst þessar myndir áhugaverðar. -Já, sama hér.

Notarðu myndavélina sem ég gaf þér? -Ó, já, ég er alltaf að nota hana.

Ég var að taka myndir í leiklistartíma. Hún er flott, mjög fín.

Þú veist þú hljómar eins og músin í Tom And Jerry.

Ertu að grínast?

Segir hver! Þú ertu með vælutón! -Þú hljómar eins og músin.

Allt í lagi, takk.

Ég veit, ég er vælukjói.

Hvað er þú að gera hér? -Hæ.

Hvað ertu búinn að vera lengi hérna? -Við vorum að tala um þig.

Það er bráðfyndið. Hvað... Varstu að ganga um á eftir okkur eða hvað?

Hvað segið þið? Hæ. -Gott. Það er fyndið. Við vorum að tala um...

Við ætluðum að fara í Shakespeare í garðinum dæmið.

Ó, já, einmitt. Mig langar að gera það.

Ó, þetta er vinkona mín. Mary Wilke, Isaac Davis og Tracy.

Hvað segir þú? -Hæ. Gaman að kynnast þér.

Þér, líka.

Opmerkingen

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left