The Goldfinch

The Goldfinch

Pobierz napisy Icelandic

Informacje o wydaniu

The Goldfinch 2019 ISL 1080p BluRay x264 AC3-Skari11
Komentarz od Skari11

Tagi

BluRay
x264
AC3
1080
Opublikowano: 2022-03-12
Pobrania: 60
Dla niesłyszących: No

Podgląd napisów Icelandic

Pierwsze 200 wierszy.

Í Amsterdam dreymdi mig að ég hefði séð móður mína aftur.

Hún var jafn ánægð að sjá mig og ég var að sjá hana.

Þessi fallegu fölbláu augu.

Allt hefði farið miklu betur ef hún hefði lifað.

En reyndin var sú að hún lést þegar ég var ungur.

Og þegar ég missti hana...

missti ég sjónar á öllu sem hefði getað vísað mér á gæfuríkari slóðir.

Sjáið til, ég átti sök á dauða hennar.

Allir sögðu mér að svo væri ekki.

Að þetta hefði verið hræðilegt slys.

Það er allt satt og rétt.

En ég trúi ekki einu orði.

Þetta var mín sök.

Rétt eins og allt hitt sem hefur gerst síðan þá.

Málverkið.

Málverkið.

Allt mér að kenna.

KÆRA PIPPA

Ég glataði nokkru sem hefði átt að vera eilíft.

Það var óviljaverk.

En það sem ég hef gert verður ekki aftur tekið.

Það skiptir engu máli þótt ég deyi.

En um alla eilífð...

á meðan saga mannkyns er skráð...

mun fólk minnast þessa málverks og syrgja það.

Við vitum ekki betur...

en að hann hafi gengið heim

til móður sinnar frá safninu.

Hann beið hennar alla nóttina en þegar hún sneri ekki heim

hringdi hann í neyðarnúmerið sem birtist í sjónvarpinu.

Þegar aldur hans kom í ljós var haft samband við okkur.

Ég veit ekki hvort þú veist það

en faðir Theos fór frá þeim fyrir hálfu ári.

Ég vissi það ekki.

Sonur minn var vinur Theos í barnaskóla.

Ég held að þeir hafi ekki verið í miklu sambandi nýlega.

Ég átta mig ekki alveg á þessu.

Í augnablikinu...

er hann ólögráða drengur sem þarfnast tímabundinnar umsjár.

Við spurðum Theo hvort hann vissi um einhvern

sem gæti hjálpað til um stundarsakir

og hann stakk upp á þér.

Komdu inn.

Andy er ekki vaknaður.

Þú mátt hvíla þig hérna ef þú vilt.

Við skulum koma þér fyrir.

Hér er þetta.

Þér líður eflaust agalega illa.

Þetta er hrikalegur harmleikur.

Drottinn minn dýri.

Sökum aðstæðna gæti verið fyrir bestu að ég skenki þér

það sem faðir minn kallaði örlítið tár.

- Ef þú vilt smá. - Chance.

Það er auðvitað ekki rétt.

Það er óviðeigandi.

Við erum ánægð að fá þig, Theo.

Vonandi fer eins vel um þig og mögulegt er hérna.

Hvað er á seyði?

Theo missti mömmu sína.

Það er kominn gestur, Theo.

Ja, hérna.

Óhugnanlegt.

Já.

Nei, það virðist enginn vita hvar hann er staddur.

Hann borgaði ekki meðlag.

Hann skildi eftir sig skuldahala og lét sig hverfa.

Við neyðumst til þess. Ekki vísum við drengnum á dyr.

Nei, aðeins fáeinar vikur.

Hefurðu áhuga á siglingum, Theo?

Nei, herra.

Þar fór í verra.

Andy skemmti sér konunglega í siglingabúðum í Maine í fyrra.

Verstu tvær vikur ævi minnar.

Hvaða vitleysa.

Þig skortir sjálfstraust. Það er gallinn.

Á ég að segja Ettu að elda eitthvað annað handa þér?

Ég er ekki svangur.

Þakka þér fyrir.

Hvar er pabbi hans?

Góð spurning.

Guð minn góður.

Mátaðu þessa, Theo. Þetta er gömul úlpa af Platt.

Það er svo kalt úti.

Úti?

Þú ættir að fara aftur í skólann í næstu viku.

Það er fyrir bestu að komast aftur í fastar skorður.

Eina leiðin til þess er að halda þér við efnið.

Viltu kannski fara síðdegis?

Í íbúðina ykkar.

Ég gæti fylgt þér þangað.

Ég ætlaði að taka til á meðan ég beið eftir henni.

Taktu það sem þú þarft. Ég skal taka til hérna.

Aðeins skóladótið. Hitt má bíða.

Körfuboltaæfingin var færð til klukkan fjögur á fimmtudaginn.

Miðar á háfleiksúrslitin eru fáanlegir á skrifstofunni.

Áfram Víkingar!

Hæ, Tom.

Hæ.

Ég heyrði þetta.

Já.

Ljóta vesenið.

Alveg ömurlegt.

Við vorum á safninu

vegna þess að mamma átti að fylgja mér til skólastjórans.

Vegna sígarettanna.

Já, mamma varð líka alveg brjáluð vegna þeirra.

Ég verð að fara.

Sjáumst.

Hvert ertu að fara?

- Gerpi. - Auli.

Ég ætla í sund á hverjum degi.

Þú mátt ekki synda ein. Það er bannað.

Við förum öll í sund.

Saltvatnið er allra meina bót.

Það dýrmætasta sem faðir minn gaf mér var hafið.

Ástin á hafinu.

Upplifunin.

Hvað gerir hann á meðan við erum í burtu?

Hvað heitir hann, Samantha? Þessi sem málar himnafegurðina?

Maxfield Parrish.

Maxfield Parrish, alveg rétt. Mikilfenglegir skýjabólstrar.

Þegar ég var ungur, á sjónum,

var himinninn þannig. Töfrandi.

Rautt og appelsínugult sólarlag.

Arkadískt.

Láttu Esperönzu um þetta, Theo. Hún er vön þessu.

Það sama á við um leirtauið.

Þetta er fallegur Hringur.

Er þetta erfðagripur?

Úr móðurættinni?

Já.

Dásamlegur. Karneól.

Skrautsteinninn.

Það er grafið í hann að innanverðu...

"Blackwell."

Geymdu hann á öruggum stað.

Þetta gæti hjálpað þér.

Ef þú tekur eina á nóttu verður þú síður hræddur.

Þetta er fullkomlega skiljanlegt.

Við verðum öll hrædd annað slagið

Við reynum að átta okkur á atburðarásinni.

Raða saman heildarmyndinni.

Hversu lengi varstu á safninu áður en fyrsta sprengingin varð?

Í klukkustund eða svo.

Líttu á kortið. Hvar varstu þegar þetta gerðist?

Í hvaða sal varstu?

Þeim síðasta áður en maður kemur að safnbúðinni.

Númer 32.

Var móðir þín ekki hjá þér?

Nei.

Hún fór til baka til að skoða eitt verk nánar.

Hvaða málverk?

Líffærafræðikennsluna.

Eftir Rembrandt.

Því fórstu ekki með henni?

Theo?

Við ætluðum að hittast í safnbúðinni.

Hvað manstu eftir atvikinu?

Forðið ykkur!

Fannstu einhverja lykt áður en þetta gerðist?

Ég man það ekki.

Sástu eitthvað óvenjulegt?

Ég man það ekki.

Hvað sem er?

Hvar varstu þegar sprengjan sprakk? Hérna?

Eða hérna?

Ég veit það ekki.

Salirnir eru ansi líkir

en ef þú manst hvar þú varst

getum við áttað okkur á þessu.

Ég sé ekki tilganginn í að láta þetta yfir hann ganga.

Theo varð fyrir höfuðhöggi.

Hann er með minnistruflanir.

Enginn hefur spurt hvort hann hafi slasast eða ekki.

Er það satt?

Allt í lagi.

Þegar þú rankaðir við þér...

sástu einhvern?

Já.

Hvað voru þau að gera?

Þau voru dáin.

Þú sagðir Beeman að ég hefði átt sígaretturnar.

Ég stóð bara við hliðina á þér.

Jesús minn.

Stattu á fætur.

Jæja. Sko.

Ertu alveg viss um að þú viljir gera þetta?

Gera hvað?

Hrókurinn er í hættu

en ég legg til að þú lítir á drottninguna.

Verst hvað allt er í miklu rugli.

Hún var virkilega indæl.

HOBART & BLACKWELL FORNMUNIR OG VIÐGERÐIR

Fyrirgefðu, ég...

Hann sagði mér að koma hingað.

Ég heiti Hobie.

Gakktu í bæinn.

Er þetta hann?

Maðurinn sem færði þér hringinn?

Já.

Komentarze

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left