Pierwsze 200 wierszy.
>>> RED SKY FILMES
RYÐ OG BEIN
Ég er svangur.
Ég er svangur.
Viltu þetta?
Hættu þessu.
Hættu, sagði ég!
Sam!
Heyrðu mig!
Haltu áfram með þetta.
Ertu þreyttur? -Nei.
Ert þú Ali?
Sestu inn.
Þú varst ekkert að flýta þér.
Ég er búinn að leita að þér í klukkutíma.
Færðu þig.
Ég hringdi í Önnu. Ég fann þig ekki.
Finnst þér bíllinn minn flottur?
Í alvöru?
Ég er ekki hrifinn af strákum sem eru ekki hrifnir af bílnum mínum.
Viltu eiga hann?
Þú ert ágætur.
Átta bílstjórum var sagt upp.
Ég ræddi málið við Önnu og ákvað að vinna sjálfstætt.
Svo ég keypti þennan vörubíl.
Til hvers er þetta? -Til að borða úti í sólskininu.
Það er gott veður hér.
Ég er ennþá í beltinu.
Sjáðu þetta.
Sérðu hundana? Anna á þá.
Hver á þessa varahluti? -Nágranninn, hann Che.
Hann gerir við bíla í aukavinnu.
Það kemur sér vel fyrir okkur.
Segðu til.
Nú verðurðu stór og sterkur.
Hvenær sástu systur þína síðast?
Ætli það séu ekki svona fimm ár síðan.
Er svona langt síðan?
Hvað gerir hún?
Hún vinnur í stórmarkaði.
Á kassanum? -Já, það er rétt.
Ekki taka þetta. Hún drepur þig.
Taktu efstu dósirnar með síðasta söludeginum.
Þeim er raðað eftir söludegi.
Þessar. -Byrjaðu efst.
Vilt þú? -Nei.
Anna kemur með þetta úr vinnunni.
Þeir henda því sem er útrunnið.
En það er óhætt að borða það viku lengur.
Þénarðu vel?
Okkur tekst að ná endum saman.
Hvað gerirðu?
Ég keyri út frystivörur.
Aðallega fisk en líka ýmislegt fleira.
Það fer eftir því hvað ég finn.
Viltu kaffi?
Já, takk.
Hann er líkur þér.
Eru það nú endurfundir. Kyssirðu ekki bróður þinn?
Er þetta allt og sumt sem þú hefur fyrir hann?
Hún lét þó vegabréfið hans fylgja.
Hún hefur bara gleymt að það var í töskunni.
Þau létu hann smygla dópi.
Ertu ekki að grínast? -Hún sagði mér það sjálf.
Hvernig ætlarðu að sjá um hann?
Ég hef ekki tíma, ég er í vinnu. Richard líka.
Gekk hann í skóla þar?
Veistu ekki hvort sonur þinn gekk í skóla?
Sam? Gekkstu í skóla hjá mömmu? -Já.
Ég reyni að koma honum að í skóla hér nálægt.
Hann vantar föt. Hann getur ekki verið svona til fara.
Ég tala við nágrannana.
Á ég að vekja þig eftir klukkutíma?
Viltu að ég loki? -Það er óþarfi.
Viltu köku?
Hérna, fáðu þér.
Gefðu þessum líka.
Viltu passa þá? Ég skrepp inn.
Ekki meiða þá.
Hann sleikti mig.
Ekki opna.
Viltu ekki fá að éta?
Þeir eru sætir.
Við þekkjum ræktanda.
Við gætum þeirra í mánuð fyrir hann og fáum svolítinn aukapening.
Er allt í lagi með þig?
Ég er dauðþreyttur.
Það fer ekki í gang. -Jú, bíddu bara.
Ekki dæma af útlitinu.
Það dugar til að fara í vinnunna.
Che!
Hvar er verkfærakassinn þinn?
Hann er þarna baka til.
Geturðu hjálpað okkur hérna?
Hvenær kemur mamma?
Bráðum.
Hvenær kemur mamma?
Bráðum, sagði ég.
En hvenær?
Ég veit það ekki.
Hvar vannstu síðast?
Ég vann í sláturhúsi um tíma en því var lokað.
Hefurðu þá ekki greitt opinber gjöld?
Jú, ég var næturvörður á íþróttavelli í hálft ár
og svo leysti ég af í bílageymslu.
Hefurðu æft bardagaíþróttir?
Ég æfði hnefaleika í sex ár.
Sparkbox í tvö ár.
Geturðu sannað það?
Áttu myndir? Keppnisleyfi?
Ég sigraði á héraðsmóti í Belgíu.
Ég á belti.
Hættirðu að þjálfa?
Þjálfarinn hætti.
Af hverju? -Hann dó.
Reykirðu ekki? -Nei.
Drekkur ekki?
Ég heyrði ekki hvað þú sagðir. -Nei, ég drekk ekki.
Ekkert dóp? -Nei.
Gefðu mér ástæðu fyrir að ráða þig.
Treystu mér.
Sæl. -Sæll. Jæja?
Ég hringi eftir viku.
Er þetta sonur hans?
Sjáðu, ég er með skegg. -Já. Nefndirðu hann ekki?
Ég spurði ekki.
Þér er kalt á höndunum.
Ég gefst upp. Farið inn. -Takk.
Fjórar á móti einum. Ég ræð ekki við það.
Skemmtið ykkur vel.
Þetta er ekkert mál. Þú segir bara það sem þér sýnist.
Sjáðu bara til þess að þær muni eftir þér þegar þær fara.
Ef heppnin er með og þær eru fullar og leiðar
þá leita þær til þín og þú huggar þær.
Virkar það? -Því máttu treysta.
Farið frá.
Er allt í lagi?
Hallaðu höfðinu aftur.
Svona já. Andaðu djúpt.
Helvítis asninn!
Andaðu djúpt.
Ég verð að fara heim.
Eru vinir þínir inni?
Ég kom ein. Ég er á bíl.
Þú getur ekki keyrt. -Jú, það er allt í lagi.
Ég hringi á leigubíl.
Ég þarf að taka bílinn minn.
Þú ert indæll.
Tík! Já, þú drusla!
Hvað er að þér? -Drusla!
Haltu þér saman!
Andskotans.
Blæðir þér enn?
Nei, þetta er allt í lagi.
Meiddirðu þig?
Höndin er að bólgna upp.
Ferðu oft á Annexe? -Nei.
Af hverju ferðu ein?
Til að dansa?
Til að hitta stráka?
Þú klæðir þig ekki svona bara til að dansa.
Svona hvernig?
Ég veit ekki... svona.
Hvað með það?
Þú ert klædd eins og hóra.
Hvað þá?
Hvernig ertu annars klædd? -Hættu nú!
Það er ekki skrýtið að strákar... -Þegiðu!
Hvernig kemstu til baka?
Ég veit það ekki.
Ekkert svona.
Fyrir leigubíl. -Nei, gleymdu því.
Góða nótt þá.
Áttu nokkuð klaka heima hjá þér?
Hvað? -Ísmola.
Bíddu. Ég skal gá að því.
Ég get komið með þér.
Nei! Ég er ekki ein.
Hvað með það?
Bíddu, ég verð fljót.
Steph?
Það eru ísmolar hérna.
Hvað gerðist?
Það voru slagsmál.
Er allt í lagi með þig? -Já.
Gott kvöld.
Hver er þetta?
Dyravörður á Annexe. Hann keyrði mig heim.
Á Annexe? Hvað varstu að gera þar?
Að hverju ertu að leita? -Klaka.
Hann meiddi sig í hendinni.
Geturðu aðeins talað við mig?
Láttu mig í friði!
Er þetta betra? -Já, mun betra.
Ert þetta þú þarna með hvölunum? -Já.
Vinnurðu við þetta? -Já.
Mér hefði ekki dottið það í hug.
Ertu hissa á að hóra geti þjálfað háhyrninga?
Geturðu ekki farið núna?
Ertu að tala við mig?
No comments yet. Be the first to leave one.