Midway

Midway

Pobierz napisy Icelandic

Informacje o wydaniu

Midway 2019 ISL1080p BluRay x264 AC3-Skari11
Komentarz od Skari11
Should work for all BluRay releases // Ætti að virka fyrir allar BluRay útgáfur

Tagi

BluRay
x264
AC3
1080
Opublikowano: 2020-02-25
Pobrania: 48
Dla niesłyszących: No

Podgląd napisów Icelandic

Pierwsze 200 wierszy.

Að sjálfum stoðum siðmenningar stendur mikil ógn af.

Stríð er smitsjúkdómur .

Heimsfriðinum, velferð og öryggi hverrar þjóðar,

þar á meðal okkar, stendur ógn af því fyrirbæri.

Enginn skal ímynda sér að Bandaríkin muni sleppa.

Já, við erum ákveðin í að halda okkur frá stríði.

Samt getum við ekki tryggt okkur fyrir hörmulegum afleiðingum stríðs

og hættunni á að dragast inn í það .

Þetta er sönn frásögn af atburðunum

sem leiddu til mikilvægustu sjóorrustu í sögu Bandaríkjanna.

Einum degi sem sneri gangi stríðsins í Kyrrahafi.

Þetta er alveg fáránlegt.

Var ekki heimsveldi ykkar byggt á fáránlegum hefðum?

Ekki verja þá, Layton.

Þótt þú talir tungu þeirra

álíta þeir þig samt villimann.

Vertu hreinskilinn.

Muntu ekki sakna þessa staðar þegar þú ert farinn?

4. DESEMBER 1937 KIYOSUMI-GARÐUR, TÓKÝÓ

Góði besti.

Næst þegar ég sé litlu gerpin

vona ég að það sé í gegnum miðið á 14 tommu byssu.

Heiðursmenn .

Fyrir hönd breska heimsveldisins

vil ég þakka Yamamoto aðmírál

fyrir þetta boð.

Megi þjóðir okkar vinna saman að því að viðhalda friði á höfunum.

Líkar þér ekki viskí?

Ég gæti spurt þig þess sama, aðmíráll.

Ég hef það eftir góðum heimildum að það sé te í glasinu þínu.

Gamalt kínverskt bragð.

Hvað annað hefurðu lært í dvöl þinni í Japan?

Ég er aðeins aðstoðarflotaritari.

Þess vegna veit ég að þú hlýtur að hafa skoðun.

Ég var eitt sinn aðstoðarflotaritari okkar í Washington.

Eftir að þú gekkst í Harvard.

Líkt og þú taldi ég það dýrmætt að kynna mér mögulegan mótherja.

Það gengur sá orðrómur að þú hafir sagt forsætisráðherranum

að Japan geti ekki unnið stríð við Bandaríkin.

Ég sagði að við gætum ekki unnið langt stríð.

Það gengur einnig sá orðrómur að líf þitt sé í hættu.

Að þjóðernissinnum þyki þú of hófsamur

og hyggist vega þig úr launsátri.

Japan er á krossgötum.

Dirfska okkar hefur aukist eftir innrás okkar í Kína

og við erum áköf í að verða stórveldi.

Samt fáum við 80% olíu okkar frá landi þínu.

Sé þeim aðföngum ógnað

neyðir það okkur til harkalegra aðgerða.

Viltu að ég komi þeim upplýsingum áleiðis til Washington?

Ekki þrengja að okkur.

Þið verðið að gefa þeim okkar sem eru skynsamari

tækifæri til að hafa betur.

Enginn vill stríð.

FJÓRUM ÁRUM SÍÐAR GEISAR STRÍÐ Í HEIMINUM.

JAPAN HEFUR GERT INNRÁS Í KÍNA OG LEIFTURSTRÍÐ HITLERS HEFUR BREIÐST ÚT UM ALLA EVRÓPU.

BANDARÍKIN HAFA OPINBERLEGA VIÐHALDIÐ HLUTLEYSI SÍNU.

7. DESEMBER 1941

USS ENTERPRISE 275 KÍLÓMETRUM VESTUR AF PEARL HARBOR

Þrír. Fjórir. Fimm. Sex.

Rýmið flugþilfarið.

Fljótir nú.

Vertu viðbúinn að skorða þig!

Því notarðu ekki vængspeldin, herra?

Því einhvern tíma gætum við þurft að lenda með sundurskotin vængspeldi.

Svo það er eins gott að æfa sig núna.

Hunt undirliðsforingi flaug ekki svona.

Þess vegna er Hunt undirliðsforingi núna að telja máva San Diego

og þú ert hér með mér.

Við virðumst líka hafa fengið skot í eldsneytistankinn.

Ekki gera þetta, herra.

Þetta gæti bjargað lífi þínu einhvern daginn, Murray.

Vélin fer að drepa á sér.

Viðbúnir að taka á móti flugvél .

Hvern fjandann er Best að gera? Staðsetning hans er ekki rétt.

Vélin hans virðist hafa drepið á sér.

Er þetta glæfrabragð eða er hann í vandræðum?

Ég veit það ekki. En hann mun hitta á fyrsta vírinn eins og alltaf.

Ekki með þessu aðflugshorni.

Því erum við á hlið?

Til að draga úr hraða

svo við setjum ekki gat á þilfarið.

Þér er hollast að brotlenda ekki.

Þraukaðu, strákur.

Við erum næstum komnir heim.

Skorðaðu þig!

Hefjist handa. Færið flugvélina framar.

Færið flugvélina framar .

Tryggið fleyga og festingar. Laus búnaður á þilfarinu.

Athugið skrúfuna .

Ertu að reyna að fara fyrir herrétt?

Það voru rafmagnsvandræði.

Hefði getað hent hvern sem er.

Heyrðu!

Vel gert.

Það er ekki ég sem þú þarft að sannfæra.

McClusky er tilbúinn að taka þig til bæna.

Ég vísa því þá upp til gamla mannsins. Hann veit hvað er í vændum.

Þess vegna höfum við flogið tvöfalt fleiri njósnaleiðangra í ferðinni.

Ertu að fara eitthvað?

Já, þeir senda alla sveitina til Pearl núna árdegis.

Og ég mun drekka bjór á ströndinni með Roy fyrir hádegi.

Fer ég ekki?

Nei, McClusky heldur eftir njósnaflugsveit sex.

Líklega af því þú ert svo mikið fífl.

Já, þú hefur gaman af þessu.

Góðan daginn, herra. Það sést til flugvéla.

Heyrðu, taktu mjúklega á Miller.

Þetta er erfiður morgunn hjá honum.

Þetta er síðasti dagur minn á sjó, herra.

Og ég er sá eini úr fjarskiptabekk mínum sem hef ekki brotlent.

Engar áhyggjur, Miller.

Ég held að jafnvel Dickinson geti flogið þér héðan til Pearl án þess að þú blotnir.

Heyrðu. Við Roy

hellum dálitlum bjór á ströndina fyrir þig.

ROY PEARCE LIÐSFORINGI SJÓHER BANDARÍKJANNA

USS ARIZONA Í PEARL HARBOR

Þið takið ykkur aldeilis tíma.

Herpresturinn kemur á hverri stundu.

Það er annar heitur dagur, herra.

Ertu að kvarta, Sully?

Nei, herra.

Ég hlýt samt að velta fyrir mér af hverju ég þarf að raða upp stólum fyrir messu

jafnvel þó ég trúi ekki á Guð.

Það er af því að eina trú þín er að eltast við stelpur.

Og sjóherinn borgar þér ekki fyrir það.

Óvinaárás!

Barbara!

Barbara!

Barbara, komdu hingað!

Komdu, elskan.

Komið særðum undir þiljur!

Allir aðrir í bardagastöður!

Beygðu þig!

Kemurðu til kirkju?

Ég verð að fara á skrifstofuna.

Það er sunnudagur.

Þú vinnur of mikið.

Layton-heimilið.

Ég hitti þig fyrir utan.

Edwin, hvað er að gerast?

Japanar ráðast á okkur.

Náðirðu sambandi við skrifstofuna?

Nei. Skiptiborðið var teppt.

Af stað.

Sully, stattu upp! Fljótur!

Við þurfum að komast í byssustýringuna.

Þeir skjóta allt of neðarlega.

Í skjól! Beygið ykkur!

Aktu!

Heyrðu.

Er í lagi með þig?

Við verðum að komast frá borði. Komdu.

Flýttu þér, strákur.

Við verðum að stökkva.

Farirðu í sjóinn ertu dauðans matur.

Sully! Þú fyrst, Sully!

Ég get það ekki! Hendurnar á mér...

Viltu lifa?

Farðu yfir í fjandans skipið, heyrirðu það?

Hvað er að, herra?

Stórskotaliðið á ströndinni virðist vera að ganga af göflunum.

Það fær örugglega einhver orð í eyra fyrir það.

Óvinaárás!

Miller, rjúfðu talstöðvarþögn. Notaðu byssuna!

Það er ráðist á Pearl. Þetta er ekki bull.

Miller, er í lagi með þig?

Miller, stökktu út!

Miller!

Hvað í fjandanum er á seyði?

Pearl skýtur á okkar menn, herra.

Kannski er þetta þá ekki Pearl.

Hringdu í Dickinson.

Við fengum sendingu um að ráðist væri á hann

og svo ekkert.

LOFTÁRÁS Á PEARL HARBOR. ÞETTA ER EKKI ÆFING.

Herra.

Komdu þessu til aðmírálsins.

Áfram, Sully!

Haltu áfram, Sully!

Leggist niður!

Þarna er maðurinn sem reyndi að vara okkur við.

Veiti það þér einhvera ánægju, Layton, þú hafðir rétt fyrir þér.

Það veitir mér ekki nokkra ánægju.

Skíthællinn þinn.

Komdu hérna.

Herra, hvert eru þeir að fara?

Aftur til flugmóðurskipa sinna.

Aktu út að miðunarstöðinni og gefðu mér svo skýrslu.

Já, herra.

Halsey aðmíráll er á dekki .

Fann Pearl eitthvað?

Njósnadeild tókst að finna stefnu árásarflotans.

En það er tvíhliða mæling.

Japanar eru annaðhvort á 343. gráðu

eða 163. gráðu.

Drottinn minn.

Það er ráðist á Pearl

og við vitum ekki hvort þrjótarnir eru í norðri eða suðri?

Sprengjuflugvélar greindu líka frá mögulegum skipaferðum hér.

Komentarze

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left