Sisterhood

Sisterhood (Systrabönd)

د Icelandic ژباړه ډاونلوډ کړئ

1 فصل

د خپرونې معلومات

Systrabond S01 HYBRiD 1080p WEB H264 is
د لخوا تبصره CtrlAltDel

تګونه

web
1080
په خپور شو: 2022-04-03
ډاونلوډونه: 7
د اوریدلو معیوبیت: No

د Icelandic سرليکونو مخکتنه

لومړۍ 200 کرښې.

Í alvöru. Þetta er sko ekkert pirrandi.

-Fjarkinn bíður. -Þetta er næstum tilbúið.

-Ég býð honum hrognasmakk. -Gerðu það.

Eru kartöflurnar til?

Ja, kannski ekki orðnar nógu stökkar.

Mundu bara, fullt af smjöri og svo af stað.

-Meira smjör en þetta? -Algerlega.

Alltaf meira smjör, mundu. Smjör gerir allt betra.

Sko, ertu að hægelda kjötið fyrir númer fjögur?

Þetta er að koma. Hvað er málið?

Þessir eru ekkert að grínast. Átta bankamenn sem vilja detta í það.

-Vita þeir hvað klukkan er? -Drullusama um það.

Ég get selt þeim áfengi eftir mat. Þessir borga launin þín.

Ertu búin að grennast?

Hvað meinarðu?

-Nei, bara flott. -Í alvöru?

Er nú bannað að hrósa fólki í vinnunni?

Eða benda á það sem vel er gert?

-Hættu þessu. -Hverju?

-Við erum að reyna að vinna. -Frábært.

Haldið áfram!

Ég býð þér tvöfaldan gin ef þú klárar á tveimur mínútum.

Takk fyrir það.

Þér líka, Sandra elskan.

Æ, nei.

Nei, nei. Hættu þessu.

Jakobína? Jakobína? Já... hæ.

-Slepptu mér! -Allt í lagi. Þú ert örugg.

Þú ert að vakna eftir aðgerð.

-Þú ert örugg. Alveg örugg. -Hver ert þú?

Ég heiti Karlotta. Þú ert í vöknun.

Það er allt í lagi með þig.

Fyrirgefðu, elskan. Ég vona að ég hafi ekki verið slæm.

Alls ekki.

Það er eðlilegt að vera smáringluð er þú vaknar eftir uppskurð.

-Viltu vatnsglas? -Já, takk.

Takk fyrir.

Hvað er í matinn í kvöld?

Maríneraður lax...

kúskús og...

-alls konar góðmeti. -Það er megavika í Domino's.

Einmitt, þess vegna færðu mega-lax.

Það kemur fólk í mat í kvöld.

-Kannski færðu pizzu. -Sjáum til.

-Hvernig gengur að læra? -Ha?

Ertu ekki með íslenskupróf eftir tvo daga?

-Nei? -Nei, það er bara ritgerð.

-Ég þarf ekki að læra undir hana. -Þú þarft að undirbúa eitthvað.

Viktoria.

Geturðu lagt símann frá þér þegar ég tala við þig.

-Ha? -Ég segi að þú getur undirbúið þig

fyrir ritgerðina hér heima.

Farðu yfir efnið sem Laufey sagði að kæmi.

Þetta er ekki þannig ritgerð.

Viltu að ég skrifi 13 ritgerðir svo þú haldir að ég sé að læra?

Sitji bara hér í tvo daga og skrifi. Svona nú.

Hann er ekki að segja það. Hann er bara að segja að þú getir lesið þetta

og tekið nótur. Svo kemurðu til mín og við gerum þetta saman.

Já. Fín hugmynd.

-Hvernig líst þér á það, Viktoría? -Vel.

Þú ert svo pirraður er þú ert að kenna mér.

-Er það? -Já.

Hann vill bara að þú fáir áhuga á náminu

því þá er það skemmtilegra.

Það er ekki hægt að læra ef einhver pirraður reynir að kenna.

Þá finnst mér ég bara vera heimsk.

-Já, ég veit... -Ég bara...

Fyrirgefðu.

Ég skal æfa meiri þolinmæði.

Flott.

-Skjátími þinn er næstum búinn. -Allt í lagi.

Það er örugglega hér.

-Sæll. -Daginn.

-Hæ. -Halló.

Daginn.

Halló. Velkomin.

Vera Gústafsdóttir.

-Daginn. -Sæll. Einar.

Ægir Pétursson.

-Hvernig gengur? -Svona og svona.

Þeir grófu hér í gærkvöldi og fundu nokkur bein,

hugsanlega mannabein.

Hvernig í veröldinni enda mannabein hér?

Ég hef ekki hugmynd.

Þetta er ný náma. Þeir grófu undan hrauninu.

Jörðin hér er mjög óstöðug og hreyfist mikið.

Er beinagrindin heilleg?

Nei. Ég get ekki sagt það.

Heldurðu að þetta séu gamlar leifar eða...

eitthvað nýrra?

Ég held að þetta sé nýlegt.

Hvers vegna heldurðu það?

Fyllingarnar í jöxlunum.

Ertu búin á því?

Geturðu rétt mér stóra púðann?

Þú eyðileggur í þér bakið ef þú sefur á sófanum.

Takk.

Þú verður að segja honum að þetta sé of mikið fyrir þig.

-Annars breytist þetta aldrei. -Eins og hann hlusti á það.

Hann bókar þrisvar á kvöldi og ræður ekki nóg fólk.

Hann virðist halda að það sé nóg að yfirbóka og...

Geturðu rétt mér smá ibuprofen, elskan?

Meistari.

Gott.

Það væri frábært ef vöknun gengi hratt.

Það eru þrír uppskurðir í gangi.

Við verðum bara að hliðra til.

-Þetta virðist einföld aðgerð. -Já.

Jæja.

Ég sé að þú ert á dagvakt þessa helgi.

-Já. -Væri möguleiki að skipta?

-Og taka næturvaktina? -Já.

-Já, ekkert mál. -Í alvöru?

-Já, ekkert mál. -Takk fyrir.

Þetta er erfitt því að það gista gestir um helgina.

Það er svo erfitt að snúa sólahringnum við.

-Ekkert mál. -Í alvöru?

Ég kann vel við að hafa frí á daginn.

-Sé þig. -Bless.

Gró, þyrla landhelgisgæslunnar,

verður ekki tiltæk...

Samkvæmt landhelgisgæslunni

þarf þyrlan meira viðhald en talið var.

Það er engin þyrla tiltæk fyrir landhelgisgæsluna.

Það var ferðamaður sem...

villtist eða týndist um aldamótin.

í óveðri og stelpa árið 1995 sem fannst aldrei,

og svo hjón árið 1982

sem villtist frá gönguhópi og fundust aldrei.

Allt í lagi.

Aðra fyrir ferðina?

Ertu að fá þér þriðju pylsuna?

Já, það er það minnsta.

Nei, ég er góð.

Á þessari stundu er ég tilbúin

til að skilja við kvíðann.

Kvíði er tilfinning

sem getur birst hvar sem er og hvenær sem er.

Kvíði er ekki áþreifanlegt afl,

heldur ósýnileg tilfinning,

sem ég hef innan í mér.

-Hvernig hefurðu það? -Bara fínt.

Mikið að gera í fyrirtækinu og...

Mikið af byggingarframkvæmdum þessa dagana.

Við önnum því naumast.

-Hvað með þig? -Ó, það sama.

Mikið að gera í vinnunni. Allir veikir þessa dagana.

-Hleypurðu maraþonið með okkur? -Nei.

Ég veit ekki.

Ég var búin eftir hálfmaraþonið í vor, manstu.

Ég hélt að þú værir farin.

Ég held ég hafi aldrei séð jafn stjarfa konu eftir hlaup.

Ég sakna þín.

Hvað segirðu?

Þú heyrðir það.

-Hæ. -Hæ. Leyf mér að sjá.

Vá. Vinkona...

-Eru þær ekki bilaðar? -Frábærar.

Ertu ánægð? Þær eru frábærar.

-Er þetta ekki óþægilegt? -Nei.

-Nei, bara mjög flottar. -Vel gert.

-Belti. -Já.

Hrönn og Hildur hafa báðar bókað ljósmyndara

fyrir fermingarmyndirnar.

-Nú strax? -Mhmm.

Eru ekki fleiri mánuðir í þetta?

Jú, en það þarf að gera þetta snemma.

annars verða allir þeir góðu bókaðir.

Allt í lagi.

Við getum tekið myndir í garðinum heima,

eða í Öskjuhlíð. Eitthvað flott. Ha? Með fjölskyldunni?

Þær verða flottari ef alvöru ljósmyndari tekur þær.

Líka, þú veist...

á deginum sjálfum, með farðann og hárið og allt.

-Já, allt í lagi. -Annars er þetta tómt klúður.

Já, ég skil. Heyrðu...

Við sjáum til. Ég tala við pabba.

Við þurfum líka að vera öll á myndunum.

Ekki ein mynd með mömmu og önnur með ykkur öllum.

Bara fullt.

Það er ömurlegt. Getum við ekki bara...

þú veist, verið öll saman?

Og sama daginn, með hárið og allt, förðunina.

-Bara við og mamma og pabbi saman. -Og Jóhanna. Gleymdu henni ekki.

Hún verður í dásamlegum kjól eins og þínum. Sætt.

Mhmm.

Ég tala við pabba. Sjáum til. Þú talar við mömmu þína.

Biblían kennir okkur

að það sé tiltekinn sannleikur í þessum heimi.

Eitthvað stöðugt sem við getum reitt okkur á.

Og það er Guð.

Og að hann, eða hún, viti hvað er okkur fyrir bestu.

Því að heimurinn er oft nógu ruglingslegur, ha?

Það er gott að geta spurt... Já, Hrönn?

En ef sannleikurinn breytist...

Eitthvað sem þú hélst vera satt er það ekki lengur.

Allt í lagi. Geturðu gefið okkur dæmi?

Ef þú heldur eitthvað en breytir svo um skoðun.

Eins og þú varst hrifin af Björteyju fyrir jól

en nú er það bara einhver gaur úr Borgarholtsskóla.

تبصرې

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left