The Prestige

The Prestige

Baixar Legenda em Icelandic

Informações da versão

The Prestige 2006 BluRay-isl
Um comentário de rippmaster

Tags

BluRay
Publicado em: 2022-02-08
Downloads: 133
Para Deficientes Auditivos: No

Prévia da legenda em Icelandic

As primeiras 200 linhas.

Fylgist þið vel með?

Hvert töfrabragð samanstendur af þremur hlutum eða þáttum.

Fyrsti þátturinn kallast Heitið.

Töframaðurinn sýnir ykkur eitthvað venjulegt.

Spilastokk, fugl eða manneskju.

Hann sýnir ykkur þennan grip

og býður ykkur jafnvel að skoða hann

til að ganga úr skugga um að hann sé ekta.

Engar viðbætur og allt eins og vera ber.

En auðvitað er það oftast ekki raunin.

-Hvert ertu að fara? -Ég tek þátt í atriðinu, fíflið þitt.

Annar þátturinn kallast Umbreytingin.

Töframaðurinn tekur þennan venjulega grip

og lætur hann gera eitthvað stórfurðulegt.

Þið leitið að leyndarmálinu en finnið það ekki.

Vegna þess að þið fylgist ekki nógu vel með.

Þið viljið ekki vita það.

Þið viljið láta blekkja ykkur.

En þið klappið ekki strax

því það er ekki nóg að láta gripinn hverfa.

Maður verður að kalla hann fram aftur.

Þess vegna hafa flest töfrabrögð þriðja þáttinn.

Hann er sá erfiðasti.

Þennan þátt köllum við Upphefðina.

Upphefð? Náði Robert Angier, eða Danton mikli,

að sýna þriðja þáttinn þetta umrædda kvöld?

-Nei, eitthvað fór úrskeiðis. -Hvað gerðist?

Ég sá mann fara baksviðs

og elti hann þangað.

Þar stóð Borden og fylgdist með herra Angier drukkna.

Gætirðu sagt okkur við hvað þú starfar, herra Cutter?

Ég er brellusmiður.

Ég hanna sjónhverfingar og smíða tækin sem þær krefjast.

Herra Cutter,

var tankurinn sem var undir sviðinu

hluti af brellu Angiers?

Neil...

Tankurinn var notaður í fyrsta atriðinu og færður baksviðs.

Borden hefur fært hann undir hlerann í hléinu.

Hversu stór var tankurinn?

Þetta var dæmigerður tankur fyrir atriðið, um 2.000 lítrar.

Hvernig gæti Borden

fært hann án þess að nokkur tæki eftir því?

Hann er töframaður, spyrðu hann.

Ég bið þig aftur að útskýra eðli sjónhverfingar Angiers.

Sanni flutti maðurinn

er eftirsóttasta brellan Í bransanum.

Ég er rétthafi

og brellan verður einskis virði ef ég útskýri hana.

Þá gæti tankurinn tilheyrt brellu sem mistókst.

Ég skil að þú sért í klípu

en líf Alfreds Borden er í veði.

Ef þú segir mér frá smáatriðunum Í einrúmi

get ég metið betur hvort þau tengjast málinu.

Er það ásættanleg málamiðlun?

Þú verður að tæma vasana fyrir mig.

Ekki mín hugmynd.

Fangelsisstjórinn sá hann hverfa

í Manchester í fyrra.

Hann er viss um að hann reyni að strjúka.

Ég sagði honum að Borden gæti aðeins horfið

ef hann væri innan um hina fangana.

Athugaðu lásana.

Tvisvar.

Ég heiti Owens.

Ég er lögmaður.

Ég vinn fyrir Caldlow lávarð, töframann og sagnfræðing.

Hversu mikið?

-Caldlow lávarður er... -Hvað fæ ég fyrir töfrabrögðin?

5.000 pund.

Talaðu við Fallon brellusmið og borgaðu honum.

Hann bauðst til að selja allt

nema verðmætasta töfrabragðið. Flutta manninn.

Ég gæti ekki mögulega selt besta töfrabragðið mitt.

Ekki fyrir dóttur þína?

Ef það er satt að þú endir í gálganum

-þarf einhver að gæta dóttur þinnar. -Fallon sér um hana.

Bernard Fallon? Fortíð hans er óljósari en þín eigin.

Samkvæmt réttarúrskurði verður stúlkan tekin úr umsjá hans.

Hún verður munaðarlaus.

Þú kannast við ómagahælið. Er það betra en fangelsið?

Svona geturðu gengið frá þínum málum með reisn.

Ég býð dóttur þinni bjarta framtíð.

Hana mun ekkert skorta í umsjá Caldlows.

Hugsaðu málið.

Caldlow lávarður vill færa þér þetta sem tákn um góðvild sína.

Þetta vekur áhuga þinn. Dagbók Angiers.

Hann fór til Colorado til að læra brelluna.

Hann lærði hana aldrei.

Þegar hann kom frá Colorado sýndi hann Flutta manninn

og blöðin sögðu brelluna betri en þína.

Ef þú vilt komast að leyndarmálum Angiers

skaltu grafa hann upp og spyrja hann.

Ég vil komast að leyndarmálunum þínum.

Hugsaðu um dóttur þína.

Dulmál. Ráðgáta.

Leit. Leit að svörum.

Þótt ferð mín endi í Colorado

þarf lengri tíma til að komast að öllum leyndarmálum Bordens.

Eitt orð er lykillinn að dulmálinu í minnisbók hans.

Það tekur marga mánuði að snúa textanum og skilja hugsun hans.

En ástríða mín er vandanum vaxin.

Herra Angier? Velkominn til Colorado Springs.

-Það er rafmagn í öllum bænum. -Já, herra.

Þvílíkar móttökur.

Þú ert fyrsti gesturinn í vetur, herra Angier.

Þú tókst ekki fram hversu lengi þú ætlaðir að gista hérna.

Eins lengi og til þarf.

Mig vantar vagn á morgun til að komast upp á fjallið.

Fjallið er lokað vegna vísindalegra tilrauna.

Ég veit það. Þess vegna kom ég.

Þú verður því miður að ganga á leiðarenda.

HÆTTA RAFMAGN

Það er ótrúlegt hversu margir blaðamenn lesa ekki skiltið.

Ekki móttökurnar sem ég átti von á.

Ég þekki þig.

Þú ert Danton mikli. Ég sá sýninguna þína í Lundúnum sjö sinnum.

Þú vissir hvað áhorfendur væru með í vasanum.

Ég er Alley.

Afsakaðu girðinguna. Við verðum oft fyrir truflunum.

-Ég kom til að hitta Tesla. -Hvers vegna?

Hann hannaði eitt sinn vél handa starfsfélaga mínum.

-Gæti ég hitt hann? -Það kemur ekki til mála.

Ég á nóg af peningum.

Því miður, Angier.

Ég get ekki hjálpað þér.

Ég verð á hótelinu um óákveðinn tíma.

Á hverju held ég?

Úrinu þínu.

Í dagbók Bordens þann 3. apríl 1897

lýsir hann sýningu í Orfeusarleikhúsinu

nokkrum dögum eftir að við kynntumst.

Við vorum tveir ungir menn að hefja feril okkar.

Ungir menn með brennandi áhuga á sjónhverfingum.

Tveir ungir menn sem vildu engum gera mein.

Hver er nógu hugrakkur til að binda þessa stúlku?

Bittu úlnliðina.

Bittu fæturna. Í kringum ökklana.

Er annar hvor ykkar sjómaður?

-Nei. -Nei.

Þið hljótið að geta bundið þétta hnúta.

Hann er sjálfsöruggur, fyrirsjáanlegur og leiðinlegur.

Milton náði frama

og er orðinn hræddur. Hann tekur enga áhættu.

Hann sóar áhuga fólksins

-með gömlum brellum. -Þær eru vinsælar.

Prófum eitthvað nýtt. Hann neitar að grípa byssukúlur.

Það er sjálfsmorð.

Það þarf bara sjálfboðaliða sem setur hnapp í hlaupið.

-Notum einn úr hópnum. -Ekki í hverju atriði.

-Þá er ekkert pláss fyrir kúnnana. -Ekkert byssukúlugrip.

Ekta töframaður reynir að finna ný töfrabrögð

sem gera aðra töframenn forviða.

Svo selur maður þeim það fyrir dágóða þóknun.

Áttu slíkt töfrabragð?

-Já. -Viltu selja mér það?

Enginn annar gæti notað það.

Það má líkja eftir öllum töfrabrögðum.

Ef Borden hannaði meistaraverk

gæti hann einn notað það.

Milton er ágætur töframaður

en tekur enga áhættu.

Ef þið viljjöð sjá raunverulega töfra skuluð þið fara í Tenley.

Þar er Kínverji sem hefur það sem til þarf.

-Chung Ling Soo. -Ég hef ekki efni á miðanum.

Ég þekki dyravörðinn.

Farið á þessa sýningu.

Sá sem sér í gegnum gullfiskabrelluna

fær verðlaun.

-Hver eru þau? -Tíu mínútur á sviði

fyrir framan Ackerman.

Hver er það?

Besti umboðsmaður listamanna í Lundúnum.

Þú bast lausan hnút aftur.

Ég sneri úlnliðnum.

Stundum skilurðu ekki hvernig þetta virkar.

Ef hnúturinn slitnar meðan Julia er í loftinu fótbrotnar hún.

Þetta er vitlaus hnútur. Tvöfaldur Langford er þéttari.

Það er erfitt og hættulegt að leysa hann úr blautu reipi.

Hún getur ekki leyst sig ef reipið þrútnar.

-Ég get losað Langford á kafi. -Við getum æft það.

Hann sagði nei, Borden.

Þekkirðu hnúta betur en ég?

Ekki fleiri mistök.

Er það? Viltu taka við af mér?

-Gleymdu þessu. -Ég hélt ekki.

-Hvaðan er þessi Cutter? -Hvaðan ert þú?

-Hann sér um leikmuni fyrir Virgil. -Hann gæti stolið brellunum.

-Hann gerir það ekki. -Hvernig veistu?

Ég réð hann til að komast að appelsínubrellu Virgils.

-Ég treysti honum ekki. -Hann er fæddur töframaður,

við getum ekki treyst honum.

Hann er ágætur.

-Þér finnst allir ágætir. -Jafnvel þú.

Passaðu sjónlínuna. Ef ég sé þig kyssa fótinn á konunni þinni

sér fólkið í þriðju og fjórðu röð það líka.

-Það getur ekki verið. -Það er málið.

-Sjáðu hann. -Þetta er brellan.

Þetta er atriðið.

Þess vegna sér enginn hvernig hann gerir þetta.

Comentários

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left