The Samaritan (Fury)

The Samaritan (Fury) (The Samaritan)

Baixar Legenda em Icelandic

Informações da versão

The Samaritan 2012 DVDrip
Um comentário de rippmaster

Tags

DVD
DVDRip
dvdrip
dvdr
Publicado em: 2021-12-24
Downloads: 40
Para Deficientes Auditivos: No

Prévia da legenda em Icelandic

As primeiras 200 linhas.

Fyrirgefðu.

Ef maður heldur áfram að gera það

sem maður hefur alltaf gert heldur maður áfram að vera

það sem maður hefur alltaf verið.

Ég var klefafélagi manns

sem hafði látið húðflúra þetta á bringuna á japönsku.

Eftir tíu ár var honum sleppt.

Víku síðar var hann skotinn fyrir að vera

það sem hann hafði alltaf verið.

Orðin eru enn á húð hans Í kassa einhvers staðar.

Ekkert breytist nema maður láti það breytast.

Ef þú þarft á mér að halda, hringdu í þetta númer.

Þeir vita hvar ég er.

Farðu vel með þig.

SAMVERJINN

Farðu ekki úr borginni og eigðu ekki samskipti

við neinn á sakaskrá.

Ef þú gengur yfir götu á ská ferðu aftur inn.

Þessu er þá lokið.

Láttu mig vita þegar þú færð vinnu

og ég sé um skjölin. --Fint.

Skilorðsfulltrúinn getur verið félagi eða ógeð.

Það veltur á þér, skilurðu?

Já.

Er Rodney á staðnum?

Nei. Rodney er dauður.

Hvað um Selmu?

Nei, hún fór vestur. Ég keypti barinn

fyrir sex árum.

Ekki ertu með flösku af Bowman's

undir borðinu til að færa þér gæfu?

Þú þekktir þá Rodney.

Gamlir síðir gleymast ekki. Hvernig viltu það?

Eins og það kemur fyrir.

Já, þegar...

Þegar ég tók við komu menn öðru hverju

sem sögðu að Rodney skuldaði þeim peninga

fyrir eitt og annað og voru með stæla.

Það hefur ekki gerst lengi núna.

Hún á að ná þjófum, ekki draugum.

Ef þú ætlar að fá peningana eru þeir allir búnir.

Ég varð að borga mörgum löggum til að halda frelsi.

Já. -Það var fyrir þúsund árum.

Já, mig grunaði það.

Ertu enn Í tengslum við gamla hópinn?

Mike?

Hann er dauður. Dó í fangelsi.

Matt?

Líka dauður.

Hvað um Sal? Segðu mér ekki að hann sé dauður.

Hann er ekki dauður.

Gott.

Hann er Í dái á Grace.

Það er há dánartíðni í gamla bransanum.

Gretchen...

Hvað kom fyrir hendina á þér?

Fortíðin náði mér.

Enginn fær að byrja frá grunni. Það veistu.

Krakkarnir mínir koma fljótlega heim.

Þau vita ekkert um fortíðina.

Ég er fegin að sjá þig

en ég vil ekki að þú komir hingað, Foley.

Aldrei.

Hver í andskotanum ert þú?

Ég er vonsvikinn.

Sérðu það ekki?

Hökuna? Kjálkann?

Ég veit að ég er með augun hans.

Já, ég sé það. Þú ert sonur Eddies.

Það er rétt. Ethan.

Það er góð minning.

Það er langt um liðið. Meira en tuttugu ár.

Tuttugu og fimm.

Min mistök.

Ef maður situr svo lengi inni

vill maður hafa töluna á hreinu.

Ég áfellist þig ekki fyrir að vera á verði.

Hér sit ég í myrkrinu og bíð eftir þér.

Hvað viltu mér, Ethan?

Ég bara...

Mig langar bara að bjóða þér upp á drykk.

Ég á 35% hlut í staðnum. Þægilegur rekstur.

Þið pabbi eigið það inni hjá mér.

Mamma sagði að þið hefðuð ætlað að opna klúbb.

Okkur langaði að opna bar, ekki neitt svona.

Leyfðu mér sýna þér.

Fáðu þér drykk.

Tölum um gömlu dagana og kannski þá nýju.

Xavier er hér og langar að hitta okkur fyrir innan.

Allt í lagi.

Komdu. Farðu með hann í sætið mitt.

Allt er í boði hússins. Ég kem fljótt aftur.

Þú ert einn.

Það er ekki rétt.

Ég er að bíða eftir einhverjum.

Ég hef líka verið að því.

Ég er búin að finna hann.

Það er sama og þegið.

Ethan bað mig að koma við.

Sagði að hér væri maður sem langaði að hitta mig.

Ég sé að þið hafið hist.

Viltu losa mig við hana?

Rólegur.

Þú færð slag ef þú ert svona stífur.

Ég hef ekki áhuga á því sem þú ert að selja.

Ekki?

Farðu Í rassgat því ekki ætla ég að gera það.

Þú skuldar mér enn grammið.

Þetta var merkilegt.

Ég er að fara.

Foley, ég skal aka þér heim en gefðu mér smástund.

Bíddu bara aðeins.

Þetta vil ég sjá. Tómar flöskur þýða mikil viðskipti.

Veuve. Dom. Cristal. Mjög gott, en...

Hvað er hér? Billecart-Salmon 1996.

Það er leitt að hafa opnað hana.

Það þarf tíu eða fimmtán ár í viðbót.

En ef maður er einhver áhættusjóðs skithæll

að reyna að komast í brækur einhverrar

aumingjans, ógæfusamrar stúlku

þarf maður að leggja ýmislegt á sig.

Ég drakk eina '59 fyrir nokkrum vikum.

Hún var alveg stórkostleg.

Steinefnin ófu frumefnin saman eins og silki.

Ég elska kampavín.

„Ég drekk mikið af því. Ég hef mörgu að fagna.

Lífið er gott. Þegar mitt fólk vinnur vinnuna sína.

Þetta gerðist á þinni vakt, Ethan.

Það gerist ekki aftur.

Xavier, ég gómaði fíflið.

Þess vegna, ef þú verður góður drengur,

leyfi ég þér að bragða á

“59 árgangnum.

Félagi okkar hér fær ekki tækifæri til þess.

Hélstu að ég tæki ekki eftir þessu?

Tvö hundruð og fimmtíu þúsund dalir?

Það verður erfitt að ná fénu aftur núna.

Þú finnur leið til þess.

Góða ferð.

Hreinsið upp hérna.

Foley. Foley, bara...

Gefðu mér smástund.

Ég losnaði úr fangelsi í gær. Í gær.

Ég veit það. Afsakaðu þetta en hlustaðu á mig.

Mér datt í hug að við færum út.

Fengjum okkur drykk.

Ég ætlaði að reyna að sýna að ég væri eins og pabbi.

En sannleikurinn er sá

að ég þekkti hann eiginlega aldrei.

Mamma...

Hvað viltu mér, Ethan?

Mig langar að vita hvers vegna þú drapst föður minn.

Það má hagnast vel hérna.

Hve mikið veistu um mig og pabba þinn?

Aðeins það sem mamma sagði mér.

Þið voruð bestu vinir.

Viðskiptafélagar.

Sagði hún þér hvað við gerðum?

Nei, en ég áttaði mig á því.

Þetta er allt sem ég fann. Hver grein og mynd.

Hvers vegna geymirðu þetta?

Hvernig annars gat ég kynnst honum?

Þið voruð svikahrappar.

Þeir bestu Í borginni að sögn annarra hrappa.

Ethan, þú verður að hætta þessu.

Pabbi þinn hefur verið dáinn lengi.

Nei, ég verð að vita það.

Foley, settu þig Í mín spor.

Við vorum að svindla á manni. Það var langvarandi verkefni.

Afraksturinn yrði mikill ef það gengi upp.

Það gekk upp.

Þar til pabbi þinn varð gráðugur

og reyndi að mjólka manninn of mikið.

Ég vissi aldrei hvers vegna.

Hann var skuldugur upp fyrir haus. Spil og hestar.

Mamma var í mörg ár að greiða það upp.

Það var leitt að heyra.

Fórnarlambið var stórlax sem þoldi ekki að vera svikinn.

Gaf mér tvo möguleika: Að skjóta pabba þinn

eða deyja með honum.

Fyrirgefðu.

Ég var lengi í litlu herbergi

og hugsaði um val mitt.

Ég var ungur. Yngri en þú ert núna.

En ég valdi.

Ég vék aldrei frá áætluninni og var refsað fyrir það.

Hvað hét fórnarlambið?

Hvaða máli skiptir það? Hann var fórnarlambið.

Pabbi þinn kom okkur út í horn og þaðan var bara ein leið.

Ef einhver gerði mér þetta dræpi ég hann líka.

Ég er bara að segja...

að ég skil þetta. --Skilurðu það?

Já. Ég held að við getum hjálpað hvor öðrum.

Horfðu á mig, Ethan.

Tuttugu og fimm ár eru horfin af lífi mínu.

Ef þú ert eins snjall og þú telur þig vera

ættir þú að rífa þetta allt af veggnum

og henda því í ruslið.

Við ætlum ekkert að fara að rabba, er það?

Má ég horfa á leikinn?

Comentários

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left