No Country for Old Men

No Country for Old Men

Baixar Legenda em Icelandic

Informações da versão

No Country for Old Men 2007 BluRay
Um comentário de rippmaster

Tags

BluRay
Publicado em: 2021-09-13
Downloads: 152
Para Deficientes Auditivos: No

Prévia da legenda em Icelandic

As primeiras 200 linhas.

Ég varð fógeti sýslunnar þegar ég var aðeins 25 ára.

Það er ótrúlegt.

Afi minn var laganna vörður og faðir minn líka.

Við vorum fógetar á sama tíma,

hann í Plano og ég hérna.

Ég held að hann hafi verið stoltur af því.

Ég var það.

Sumir gömlu fógetarnir báru aldrei skotvopn.

Fólk trúir því varla.

Jim Scarborough var ávallt óvopnaður. Jim yngri.

Gaston Boykins gekk aldrei með byssu í Comanche-sýslu.

Ég hafði gaman af sögum um gömlu jálkana.

Missti aldrei af tækifæri til að heyra þær.

Maður verður að bera sig saman við gömlu jálkana.

Hvernig ætli þeir hefðu sinnt sínum störfum í dag?

Ég sendi strák í rafmagnsstólinn í Huntsville.

Ég handtók hann og bar vitni gegn honum.

Hann hafði myrt 14 ára stúlku.

Í blaðinu stóð að það hefði verið ástríðuglæpur

en hann sagði að öll ástríða hefði verið víðs fjarri.

Hann sagðist alla ævi hafa langað að drepa einhvern.

Ef honum yrði sleppt myndi hann endurtaka leikinn.

Hann vissi að hann færi til helvítis.

"Ég fer þangað eftir korter." Ég skil þetta engan veginn.

Síður en svo.

Þessa dagana er erfitt að skilja glæpina.

Ég óttast þá ekki.

Maður verður að vera tilbúinn að deyja í þessu starfi.

En ég vil ekki taka óþarfa áhættu

og mæta einhverju sem er ofar mínum skilningi.

Ef maður gerir það leggur maður sálina að veði.

Maður segir: "Allt í lagi."

"Ég skal tilheyra þessum heimi."

Já, ég var að koma í hús.

Hann var með eitthvað furðulegt í fórum sínum.

Eins og súrefnistank fyrir lungnaþembu

og slöngu sem lá niður ermina á honum.

Ég veit það ekki. Þú lítur á þetta þegar þú kemur.

Já, ég ræð við þetta.

Sæll, hvað er á seyði? -Stígðu út úr bílnum, herra.

Hvað er þetta? -Þú verður að stíga út úr bílnum.

Til hvers er þetta?

Vertu kyrr, herra.

Vertu kyrr.

Fjandinn.

Ég á ekkert vatn.

Ég sagðist ekki eiga vatn.

Talarðu ensku?

Hvar er sá síðasti?

Einhver stóð síðastur eftir. Það hlýtur að vera.

Hvert fór hann?

Ég myndi fara sömu leið til baka.

Hér eru engir úlfar.

Þú fylgist með því hvort einhver elti þig.

Skjóttu mig nú.

En ef þú stoppar,

stopparðu í skugganum.

Já.

Hvað er í töskunni? -Hún er full af peningum.

Það er trúlegt.

Hvar fékkstu skammbyssuna? -Þar sem ég fékk hana.

Keyptirðu byssuna? -Nei, ég fann hana.

Llewelyn. -Hvað? Hættu þessum látum.

Hvað léstu í staðinn?

Þú þarft ekki að vita allt, Carla Jean.

Ég þarf að vita þetta.

Ef þú heldur þér ekki saman

neyðist ég til að ríða þér.

Kjaftaskur.

Láttu á það reyna.

Jæja, mig langar ekki að vita það.

Ég vil ekki vita hvar þú hefur verið í allan dag.

Það hentar mér.

Jæja þá.

Llewelyn? -Já?

Hvað ertu að gera, elskan? -Ég þarf að fara út.

Hvert?

Ég gleymdi dálitlu en kem aftur.

Hvað ætlarðu að gera?

Þetta er mjög heimskulegt en ég geri það samt.

Ef ég kem ekki aftur skaltu segja mömmu að ég elski hana.

Mamma þín er dáin.

Þá segi ég henni það sjálfur.

Hvað kostar þetta? -69 sent.

Hvað með bensínið?

Rignir eitthvað hjá ykkur?

Hvar skyldi það vera? -Ég sé að þú ert frá Dallas.

Hvað kemur það þér við hvaðan ég kem,

kumpáni?

Ég meinti ekkert með því. -Meintirðu ekkert?

Þetta var saklaust spjall.

Ef þú tekur því ekki get ég ekkert gert fyrir þig.

Er það eitthvað fleira? -Ég veit það ekki. Er það?

Er eitthvað að?

Að hverju? -Einhverju?

Ertu að spyrja

hvort það sé eitthvað að einhverju?

Var það eitthvað fleira? -Þú spurðir að því áðan.

Jæja, nú þarf ég að loka.

Þarftu að loka? -Já.

Klukkan hvað lokarðu? -Núna.

Núna er ekki tímasetning. Klukkan hvað?

Ég loka oftast þegar rökkva tekur.

Þú veist ekki um hvað þú ert að tala.

Herra?

Ég sagði að þú vissir ekki um hvað þú værir að tala.

Hvenær ferðu að sofa? -Herra?

Ertu heyrnardaufur? Hvenær ferðu að sofa?

Það er líklega í kringum hálftíu.

Ég gæti komið aftur þá.

Til hvers? Þá verður lokað.

Já, þú sagðir það.

Nú verð ég að loka.

Býrðu í húsinu á bak við?

Já, ég bý þar.

Hefurðu búið hérna alla ævi?

Þetta var upphaflega eign tengdaföður míns.

Kvæntistu inn í þetta?

Við bjuggum í Temple í Texas Í mörg ár.

Við komum upp fjölskyldu í Temple.

Við komum hingað fyrir fjórum árum.

Kvæntistu inn í þetta?

Ef þú vilt orða það þannig.

Ég er ekki að orða neitt, þannig er þetta.

Hvað er það mesta sem þú hefur tapað í hlutkesti?

Herra? -Hvað er það mesta sem þú hefur tapað í hlutkesti?

Ég veit það ekki. Það er erfitt að segja.

Veldu hlið.

Á ég að velja hlið?

Hvað er í húfi? -Veldu.

Ég verð að fá að vita hvað er í húfi hérna.

Þú verður að velja hlið.

Ég má ekki gera það fyrir þig.

Ég lagði ekkert að veði. -Jú, víst.

Þú hefur lagt það að veði alla ævi án þess að vita það.

Veistu hver dagsetningin á peningnum er? -Nei.

1958.

Það hefur tekið hann 22 ár að komast hingað. En nú er hann hérna

og önnur hvor hliðin kemur upp.

Þú verður að velja.

Ég verð að fá að vita hvað ég get unnið.

Allt.

Hvernig þá? -Þú getur unnið allt. Veldu hlið.

Gott og vel.

Ég vel framhliðina.

Vel gert.

Ekki setja hann í vasann.

Ekki gera það, þetta er lukkupeningur.

Hvar á ég að geyma hann? -Hvar sem er nema í vasanum.

Þá ruglast hann með hinum og verður bara peningur.

Eins og hann er.

Llewelyn?

Hver fjandinn?

Til Odessa. -Því förum við þangað?

Ekki við, bara þú. Gistu hjá mömmu þinni.

Hvers vegna?

Nú er miðnætti á sunnudegi.

Dómhúsið opnar eftir níu tíma.

Þá verður hringt og spurt

um skráningarnúmerið á bílnum.

Klukkan hálftíu koma þeir hingað.

Hversu lengi...

Hvenær myndirðu hætta að leita

að tveim milljónum dala?

Hvað á ég að segja mömmu?

Stattu í dyragættinni og segðu: "Mamma, ég er komin heim."

Llewelyn. -Pakkaðu niður.

Það sem þú skilur eftir sérðu aldrei aftur.

Ekki vera svona æstur í að biðjast afsökunar.

Þetta gerðist bara.

Ég get ekki tekið það aftur.

Viltu vera í tíkarsætinu?

Er þetta bíllinn hans?

Áttu skrúfjárn?

Hver skar á dekkin?

Líklega Mexíkóarnir. Við gerðum það ekki.

Þetta er dauður hundur. -Það er rétt.

Hvar er móttakarinn? -Ég er með hann.

Þessir eru komnir yfir síðasta söludag.

Haltu á þessu.

Viltu þetta?

Náið þið einhverju merki?

Ekki stakasta hljóði.

Allt í lagi.

Komdu með þetta.

Er þetta ekki logandi bíll? -Jú,

en Wendell sagði að það væri eitthvað meira innar.

Inn með þig.

Hvenær fæ ég greidda leigu fyrir hestinn?

Ég elska þig stöðugt meira.

Það er fallegt.

Farðu varlega. -Ávallt.

Ekki fara þér að voða. -Aldrei.

Ekki meiða neinn.

Hvað sem þú segir.

Ég hélt að bílar gætu ekki logað svona.

Við hefðum átt að koma með pylsur.

Sýnist þér þetta vera Ford, árgerð 1977, Wendell?

Það gæti hugsast. -Ég efast ekki um það.

Frá þeim gamla á þjóðveginum?

Comentários

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left