As primeiras 200 linhas.
TOMMI og JENNI
Við höfum verið að í allan dag.
Hinir staðirnir vöktu ekki lukku
en bíddu þar til þú sérð þennan.
Þetta er ósvikið músahús.
Var þetta nokkuð brot á höfundarrétti?
Svona nú.
Afsakaðu þetta. Lyftan er í viðgerð.
Búmm! Mér birtist sýn!
Þú slakar á hérna
en færð innilokunarkennd og þig svimar, svo til bjargar...
Ta-da!
Sjáðu þetta útsýni!
Er það ekki stórfenglegt?
Hér er allt til alls.
Flottar græjur.
En sætin eru mjög eldfim.
Bara grín. Samt ekki.
Jenni, þetta er enginn lúxus en í sannleika sagt
hefurðu ekki efni á neinu...
Enga Batman-stæla hérna.
Þú átt eftir að skoða í skottið.
SÉRSTAKUR GESTUR TOMMI KÖTTUR
Bílastæðahús - Hanskahólf
Pabbi, blindur köttur að spila á píanó.
Það er margt skrýtið í borginni.
Gakktu bara áfram.
Hann spilar ótrúlega vel
og er blindur.
Ansi svalur högni.
TOMMI MAGNAÐI
Þessi köttur er geggjaður!
Þetta er svo svalt.
JENNI DANSMÚS
Mikið er hann sætur.
Ég hélt að ekkert toppaði blindan píanókött.
Hann sér alveg!
Svindlari!
Bara venjulegur píanóköttur.
Ég vil endurgreiðslu!
SENDLAÞJÓNUSTAN
Heyrðu, ertu ómeiddur?
Passaðu þig. Ég hefði getað slasast.
Almáttugur.
Er ég rekin? Hvers vegna?
Þú misstir stóra sendingu af nærfötum yfir 5. breiðstræti.
Ekki kenna mér um það. Þetta voru köttur og mús
og enginn blandar sér í það.
Sæktu aftur um eftir mánuð.
Ekki gera þetta, herra.
Ekki gera mér þetta.
Um daginn hjálpaði ég manni með upphífingar í klukkutíma.
Klukkutíma. Hann stóðst ræktarplanið.
Allt í lagi.
Hvað ef ég verð bara
aðstoðarkonan þín?
Þú hófst störf fyrir tveim mánuðum.
Þetta virkar ekki þannig.
Starfið hentar mér ekki.
-Kannski ekki. -Veistu, ég segi upp.
ROYAL GATE HÓTELIÐ
-Halló. -Sæll.
Önnur ókeypis máltíð?
Ertu nýkomin í bæinn?
Þannig lagað.
Þú hefur ekki séð Stóra eplið
án góðrar túristagöngu.
Hefurðu prófað?
Göngurnar mínar fá góða dóma.
Þær eru á hagstæðu verði.
Ég er ekki gestur.
Hvers vegna ertu þá með þessa ferðatösku?
Ég á viðtal fyrir tímabundna ráðningu.
Vegna brúðkaupsins.
Hvaða brúðkaups?
Preeta og Ben.
Hin einu sönnu?
Uppáhaldspar þotuliðsins.
Það verður hörkuviðburður.
Er hótelið að ráða fólk?
Já, en kröfurnar eru miklar.
Þú yrðir aldrei ráðin.
Hvað sagðistu heita?
Linda Perrybottom.
Linda Perrybottom, þú féllst því miður á prófinu.
Hvað segirðu?
Viðtalið hófst um leið og þú gekkst inn.
Ég vissi ekki...
Starfsmenn Royal Gate verða að vera liðlegir,
í algjörum sérflokki, en umfram allt...
þagmælskir.
Að segja ókunnugri manneskju
náin smáatriði um skipulag einkaviðburða á hótelinu
gengur bara alls ekki.
Ég...
Má ég sjá ferilskrá?
Vinsamlegast?
Já, auðvitað.
Takk fyrir.
-Nóg af flottum störfum. -Það er satt.
-Dorsí? -Dorsey.
Og Armada.
Eru þetta allt hótel?
Ekki í New York.
-Ég bjó í London. -Linda.
Þú hentar okkur ekki.
Við leitum frekar að einhverjum...
innfæddum.
Jæja, ég skil það.
Takk fyrir tækifærið.
LINDA PERRYBOTTOM VIÐBURÐASTJÓRI
Ef mig langaði að sækja um tímabundna stöðu...
Ferilskráin þín?
-Nei... -Hún er svakalega góð.
...ekki eina eintakið mitt.
Þú verður örugglega ráðin.
Ég hringi strax upp.
Núna?
Já.
Lola...
ef ég vildi kaupa jakka...
Þarna til vinstri.
Þakka þér fyrir.
Sæll, það er indæl ung dama komin hingað í móttökuna.
Nei, sko.
Hvað höfum við hér?
Væri ég ekki veðmálakisi
segði ég að Tommi hafi reynt að brjótast inn.
Svo virðist vera.
Þetta er húsasundið okkar og hótelið okkar.
Reynirðu að brjótast inn í hótelið okkar?
Engar áhyggjur, piltar. Þetta var bara misskilningur.
Ekki satt, Tommi?
Hlærðu að mér?
Veistu hvað ég geri við ketti sem hlæja að mér?
Láttu hann heyra það, stjóri!
-Ég geri það ef þú heldur þér saman. -Fyrirgefðu.
DÝRAEFTIRLIT
Ætlarðu að svara?
Löggan! Forðum okkur!
Nei, ekki aftur!
-Lyftið mér. -Sjáumst, Tommi.
-Snáfum héðan! -Komið aftur!
VELKOMINN J. MÚS
HEIMA ER BEST
Velkomin.
Þakka þér fyrir.
-Sæll. Buongiorno. -Þú ert...
Kayla Forester.
Afsakið útlitið á ferilskránni
en það var barn niðri
sem reyndi að troða tyggjói undir borð.
Ég reif hluta af blaðinu.
Gott hjá þér. Terence Mendoza, viðburðastjóri.
Þetta er herra Henry Dubros.
Ánægjulegt.
Hann er hótelstjórinn.
Er þetta kannski vatnsstjórinn?
Þetta er Goldie.
Hún gegnir ekki stöðu hérna. Hún er fiskur.
Þetta er...
Þessi ferilskrá er ekkert smáræði.
Dorsey?
Dorsey.
Ég vil ekki monta mig en geri það samt.
Þú hlýtur að þekkja frú Josephine Pennybaker.
Hún kenndi mér í Cornell.
Einkaskóla sem var stofnaður 1865 af Ezra Cornell.
Þar lauk ég meistaranámi.
Ég vildi deila því.
Auðvitað þekki ég Jojo Pennyfoot.
Skemmtileg kerling.
Pennyfoot?
Komum okkur að efninu.
Eins og þú veist
fer fram stórviðburður hérna um helgina.
Auðvitað veit ég allt um brúðkaup Bens og Preetu.
Okkur vantar aukamannskap.
En við krefjumst þess þjónustustigs sem gestir okkar eru vanir.
-Auðvitað. -Ég verð að segja
að við rekumst sjaldan á svona góða ferilskrá.
Fyrirgefðu.
Þetta er bara ómerkilegur pappír.
Ef ég á að eiga þetta skilið
þurfið þið að sjá mig...
að störfum.
Viltu tína þetta upp?
Já, herra.
Beint í tunnuna.
Terence.
Hún hélt að fiskur væri yfirmaður.
Í alvöru?
Fiskar geta ekki gengið.
Terence.
Þú ert ráðin.
-Í alvöru? -Já.
Ég meina, þakka ykkur fyrir.
Geturðu byrjað í dag?
Það gæti reynst ansi snúið.
Ég á mjög annríkt.
No comments yet. Be the first to leave one.