Mufasa: The Lion King

Mufasa: The Lion King

Download Icelandic Subtitle

Release info

Mufasa The Lion King 2024 NORDiC ENG 1080p WEB-DL DDP5 1 Atmos H 264-BANDOLEROS
A Commentary by Hallow

Tags

webdl
Published on: 2025-02-19
Downloads: 115
Hearing Impaired: No
FPS: 24

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Líttu á stjörnurnar.

Hvenær sem þú ert einmana

verða fræknir konungar fyrri tíðar

ávallt þarna uppi að vísa þér veginn.

Það sama á við um mig.

Í MINNINGU JAMES EARL JONES

Kæru vinir, nú er komið að stækkun fjölskyldu minnar.

Þetta heimili sem við deilum er uppfylling draumsýnar föður míns.

Það er yndislegt fyrir okkur Nölu að halda lífi í draumi hans

og styrkja hringrás lífsins enn frekar.

Elsku Nala mín. Ég er á leiðinni.

Simbi.

Ég er hér.

Ég er hér.

Lífverðirnir eru mættir á svæðið!

Ég vil minna á það að við erum ekki matur.

Nei, bara tveir gaurar

á leið til vinnu í gegnum hungraða ljónahjörð.

Fullkomlega eðlilegt. Ég er ekki dauðhræddur.

Lífverðirnir eru mættir til starfa, yðar náð og göfgi.

Leiðtogi allra fjórfætlinga.

Og eins þrífætts sebrahests.

Einmitt, Ron. Það var sorglegt.

- Þau átu hann á fæti. - Já.

Hann á samt einn fót umfram mig.

Eru þetta hendur eða fætur?

- Líklega loppur. - Strákar.

- Ég lít á þetta sem lappir. - Þetta er alvara.

Passið Kiöru þar til ég kem aftur.

Áttu við að lífverðirnir þínir hafi verið fengnir í barnapössun?

Púmba, ræðum þetta nánar. Ég kæri mig ekki um...

Ég lofaði henni að allt yrði í lagi.

Það er ein uppeldisleiðin.

Hún þarf að vaxa úr grasi.

Sagðirðu líka að hún gæti orðið hvað sem er?

Að lífið væri sanngjarnt?

Hagið ykkur eins og fullorðnir.

Ekki hræða Kiöru. Og umfram allt, engar sögur.

- Engar sögur? - Bíddu við.

Ég þekki ykkur og ólst upp með ykkur. Lofið þessu.

Veistu hvað? Veistu hvað? Þá það. Engar sögur.

Þú um það, Púmba.

Nei. Við segjum henni samt sögu.

Segjumst ekki segja sögu

- en segjum samt sögu. - Í alvöru?

Ég heyri þetta greinilega.

Pabbi.

Hæ, litla mín.

Það er stormur í aðsigi og ég er hrædd.

Ég vil fara með ykkur mömmu.

Vertu óhrædd, elskan.

Tímon og Púmba passa þig á meðan.

Vertu nú hugrökk, Kiara.

Vertu hugrökk.

Jæja, við erum tilbúnir með sögu.

Skari starði á okkur.

Hann vissi að lokin væru í nánd.

Ég fann fnykinn af óttanum.

Fnykurinn var reyndar af mér, en já.

Sigruðuð þið tveir Skara?

Og átuð hann svo?

Ein besta máltíð ævi minnar.

Pabbi sagðist hafa sigrað Skara.

Jæja, við vitum öll að pabbi þinn er lygasjúkur.

Alveg ljónlyginn. Fattarðu?

Ég er hrædd og vil mömmu og pabba.

Sjáðu nú til.

Vertu óhrædd, Kiara.

Hvað með að við syngjum lag? Einn og tveir...

Púmba, það er of snemmt fyrir lagið.

Virkaði á Simba, sem hélt hann hefði myrt föður sinn

en söng og dansaði fljótt.

Ég get ekki kveikt á því. Ég þarf að vera í stuði.

Hann söng lagið í sex ár.

Hver gerði það ekki?

- Sjáið! - Nei!

Ron, þrífætti sebrahesturinn.

- Forðum okkur! - Hann heyrði til okkar.

Þetta voru bara brandarar, Ron.

Þetta er Rafíkí.

Rafíkí! Rafíkí!

Litla mín, ástæðulaust að gráta.

Foreldrar mínir

eru farnir.

Líttu þangað, mdogo.

Sérðu apabrauðstrén sem bærast í vindinum?

Rætur trjánna eru afar sterkar, rétt eins og fjölskyldan þín.

Og alveg eins og fyrir þig

eru foreldrar þínir farnir á viðhafnarfæðingarstaðinn.

Þegar þau snúa aftur hefur hringrás lífsins fært þér blessun, Kiara,

sem þú gleymir aldrei.

Hann er góður.

Svo sjónrænn sagnamaður.

Samt skiljanlegt að hann búi einn.

Ég vil bara að storminn lægi og svo lofa ég að vera hugrökk.

Ég skal segja þér leyndarmál.

Þegar Simbi, faðir þinn, var á þínum aldri

óttaðist hann þrumuveðrið og faldi sig á bak við konunginn.

Hvenær hætti hann því?

Dag einn, í miðjum ofsastormi,

fór Múfasa, afi þinn, með föður þinn efst upp á Ljósukletta,

sagði honum að standa þar

og góla inn í vindinn.

Simbi steig rólega út ásamt konunginum.

Þeir öskruðu saman út í nóttina.

Ég er ekki hugrökk eins og pabbi.

Ég verð aldrei eins og Múfasa.

Er það ekki?

Þá er tímabært að ég segi þér sögu.

Sögu um ljónsunga, sem var litlu stærri en þú.

Ljón sem fæddist án dropa af konunglegu blóði.

Ljón sem breytti lífi okkar allra að eilífu.

Saga! Gott að ég tók krybbur með.

Ekki of margar. Við erum í helli.

Saga þessi hefst lengst handan

fjallanna og skugganna.

Handan við ljósið.

Á þessum stað var allt að drepast úr þorsta

þar sem 20 full tungl höfðu liðið án staks regndropa.

En þegar himnarnir opnuðust loks

tóku örlögin völdin.

Múfasa.

Múfasa! Komdu og sjáðu.

Mamma, hvaða ljós er þetta þarna?

Þetta er alveg einstakt.

Handan sjóndeildarhringsins

og handan síðasta skýs á himni

er staður sem við köllum Milele.

Milele?

Það þýðir „eilífð“.

Hugsaðu þér, konungsríki iðandi af lífi,

vatni og fæðu,

grasi og himni eins langt og augað eygir.

Förum við þangað?

Já, Múfasa.

Við erum á leið þangað.

En við getum komist þangað núna.

Við getum lokað augunum.

Látum draumana flytja okkur.

Í bjarma, í fjarska

Á bak við heimsins fjærstu ský

Þar ég veit um stað

Þar bíður ný veröld

Svo gróðursæl, svo björt og hlý

Já, hún er til

Ég er viss um það

Hún heitir Milele

Hún bíður þar

Milele

Um alla tíð hún bíður mín

Og þín

- Líf, stórt og smátt - Lífsferill, stórt bæði og smátt

- Þér færir allt það sem þú átt - Allt það sem þú átt

Og þinn innri mátt

- Finndu kraftinn - Finndu kraftinn

- Við styðjum þig - Við förum ei lengra

- Við geymum forfeðranna glóð - Eins og alda hljóð

- Því hún er til, sérðu ekki? - Yfir eilíft haf

- Þinn þróttur vex og þú finnur leið - Sérðu ekki?

Hún heitir

Milele

Hún bíður þar

Milele

Hún heitir

Milele

Hún bíður þar

Milele

Um alla tíð hún bíður mín

Og þín

Milele

Vá.

Hvað er þetta?

Rigning. Rigning!

Loksins fáum við rigningu!

Pabbi, komdu í kapp að ljósinu.

Þú ert of snöggur.

Ég hef aldrei sigrað þig.

Enginn hefur sigrað þig.

Ég veit!

Múfasa! Hraðskreiðasti ljónsungi í heiminum.

Takk fyrir.

Múfasa.

Þetta er nóg.

Múfasa, komdu aftur hingað.

Kyrr, Múfasa! Ég kem, sonur.

- Pabbi! - Múfasa!

Múfasa?

Ég næ þér í bugðunni.

Finndu rödd mína.

Finndu rödd mína!

Mamma!

Múfasa, kletturinn er of hár. Þú kemst yfir við stífluna.

Þú getur þetta, Múfasa.

Finndu rödd móður þinnar.

Hlustaðu á föður þinn, Múfasa.

Hlustaðu á okkur!

Afía, hann er þarna.

- Mamma! - Hann er þarna!

- Mamma! - Múfasa!

Finndu fótfestu, eitt skref í einu.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left