The first 200 lines.
Ertu þarna, elskan?
Já.
Mig grunaði það.
Ég verð að fara bráðum.
Ég er að koma.
Komdu og kveddu mig.
- Kaffi? - Góð hugmynd.
- Hellirðu uppá meðan ég pakka? - Auðvitað.
Bíllinn kemur innan skamms.
Þakka þér fyrir.
Guð minn góður.
Hvað geri ég án kaffisins þíns í fimm daga?
- Þú færð kaffi í London. - Er það?
Þú ert viss þótt þú hafir aldrei farið.
Fimm daga? Sagðirðu ekki fjóra?
Fjóra daga þar og svo næturflug heim.
Ég skil.
Þú getur enn komið með.
Ég get það ekki.
Ég er að reyna að leysa ákveðið mál í vinnunni.
Láttu ekki svona.
Taktu áhættu í þetta eina sinn.
Næst. Ég lofa því.
Þetta er það sem þarf að vökva.
Skildu eftir lykil á fimmtudaginn fyrir viðgerðarmennina.
Einmitt.
Þessi endast þar til ég kem heim.
Þau minna þig á mig.
- Ég þarf enga áminningu. - Er það ekki?
Verður allt í lagi?
Ég spjara mig.
Komdu nú.
Elska þig.
- Bless. - Bless.
Bless.
Bless!
George Bush-leyniþjónustustöðin í Langley í Virginíu
Gott að sjá þig, bróðir.
Hvað segirðu, Chuck?
Varstu einhvers staðar úti?
Handan við hafið. Alls staðar og hvergi. Þú veist.
Skýstu bara inn og aftur út?
Já, heill dagur af öryggisfundum
og svo kemst ég heim
og kyssi dóttur mína.
Það er mikilvægt.
Ég var að kveðja frúna.
Ertu upptekinn í hádeginu?
- Nei, engin plön. - Ekki?
- Ég er alveg laus, maður. - Frábært.
Ég lenti í tölvuveseni.
Bara nokkrum hnökrum.
Ég vil nýta heilann í þér til að greina þetta.
Síðast bjargaðirðu lífi mínu, brói.
- Já. - Er það?
- Auðvitað. - Frábært.
Borðaðu bara hádegismatinn þinn
og ég sæki þig.
- Já. - Minn maður.
Tikk takk, tikk búmm, brói.
Kjallarahæð tvö. Rekstrardeild.
Kjallarahæð fimm. Dulráðningar og greining.
DULRÁÐNINGAR OG GREINING
Dulnefni: Inquiline
ÖRUGG TENGING
Halló. Ertu þarna, Charlie?
Hvað segirðu í dag, senjor Inquiline?
2,1 terabætis skammtur.
Frá stöðinni í Kabúl.
Frá 2014 til 2022.
Opnaðu þetta einn.
Án greiðslu í þetta sinn.
Hvernig er veðrið í Istanbúl?
Góð tilraun.
Bara tímaspursmál.
Heldurðu það?
Eftir heil fimm ár ertu enn að giska, Charlie.
Ég næ þessu.
Ég nýt þess að leysa gátur.
Ég nýt nafnleyndarinnar enn meira.
Ég held að þú sért fimmtugur rússneskur karl í Istanbúl
með áhuga á Reddit-þráðum og tyrknesku kaffi.
Kannski, kannski ekki.
En í alvöru, farðu varlega með gögnin.
Þau koma sér illa fyrir stofnunina.
SPJALLI SLITIÐ
Hæ.
Hæ, teymi.
Hversu stór var þessi kassi?
20 sinnum 10 metrar.
Enn ein hugarleikfimi Slaters.
Gervihnattamynd sýnir kassa aftan á flutningabíl.
Hann er rétthyrndur og 20 sinnum 10 metrar.
Áfangastaður?
Stórborg hérlendis.
- L.A. - Röng strönd.
Frá Pennsylvaníu?
Á leið til Washington DC?
Rétt til þessa.
- Fánastöng. - Flugskeyti.
Jólatré.
Tréð í Hvíta húsinu er alltaf pantað frá Lehighton í Pennsylvaníu.
Stærðin á bílnum staðfestir það.
- Hann getur verið pirrandi. - Ja hérna.
Hver er þetta?
Hættulegasti maðurinn í húsinu.
Njósnari. Bang bang.
Besti vinur Hellers.
Það er ég.
Við erum bara kunningjar.
Hvernig þekkist þið?
Ég bjargaði lífi hans.
Staða: get ekki sótt gögn
Heller.
Í hverju ertu?
Sarah?
Nei, Saddam Hussein.
Hann er dauður.
Húmor, Heller.
Einmitt.
Ég er komin á leiðarenda.
- Ég veit. Ég rakti símann. - Annað hefði sært mig.
Ég er að fá mér kaffi.
Reyni að halda mér vakandi á meðan ég bíð eftir hinum.
Farðu í göngutúr. Fáðu ferskt loft.
En ég vil leggjast niður.
Nei, þú sofnar ef þú leggst.
Hollráð frá heimshornaflakkaranum?
Harkalegt.
Ég komst á snoðir um svolítið.
Má ég hringja seinna?
Já. Ég elska þig.
Elska þig, bless.
- Bless, bless. - Bless.
- Bless. - Bæ bæ.
TAKMARKAÐUR AÐGANGUR
AFKÓÐA
engin svörun
SVÖRUN FUNDIN AFKÓÐUN LOKIÐ
TRÚNAÐARGÖGN
DRÓNAÁRÁSIR
SKÝRSLA: SJÁLFSMORÐSSPRENGJA
Leita að breytingum
BER SAMAN SKJÖL
EYÐINGAR / BREYTINGAR
SKÝRSLA: DRÓNAÁRÁS
SKÝRSLA: SJÁLFSMORÐSSPRENGJA
Hver fjandinn!
Vitni hafa lýst drónaárás
en bandarísk yfirvöld hafa staðfest sjálfsmorðsárás.
- Sprengingin lagði í rúst... - 150 manns létust...
þar á meðal franskir sérsveitarmenn.
Sjö danskir sjóliðar létust í sprengingu
sem upphaflega var talin loftárás á röngum stað.
Varnarmálaráðuneytið
hafnar aðild bandaríska flughersins að atvikinu
og bendir á uppreisnarmenn á svæðinu.
Moore framkvæmdastjóri.
Hæ, vinur.
Carlos.
Þú ert eins og draugur.
Ég var að lagfæra smá...
Charlie?
Lagfæra gögn.
Allt í lagi.
Átti líklega ekki að sjá þetta.
Innan okkar deildar?
Á gráu svæði.
Við höfum engin grá svæði.
Það er annaðhvort eða.
Þá er svarið nei.
Þá þarftu að hafa hljótt um þetta.
Já.
Ég er upptekin eða hef týnt símanum í töskunni.
Segðu hver þú ert og ég hringi aftur.
Hæ, þetta er ég.
Ég sakna þín.
Ég vökva blómin strax í fyrramálið.
Hringdu í mig.
- Moore framkvæmdastjóri. - Charlie.
Afsakaðu, ég er ekki vanur því að sjá þig hérna niðri, herra.
Skiljanlega ekki.
Flott skrifstofa hjá þér.
Já, ef þér er illa við sólarljós og ferskt loft.
Fyrir mosa, skófir eða sveppi...
Hefurðu fylgst með fréttunum?
Ég finn enga fréttaveitu sem ég treysti.
Okkur grunaði það, þar sem þú mættir í morgun.
Ykkur?
Komdu með mér á skrifstofu forstjórans.
Vinsamlegast.
Sjöunda hæð. Skrifstofur yfirmanna.
Forstjóri.
O'Brien forstjóri, þetta er Charlie Heller.
- Sæl. - Sæll, Charlie. Fáðu þér sæti.
Helst ekki.
Herra Heller, því miður hefur komið upp atvik í London.
Heyrðirðu það?
London?
Árás á hótelinu við Christopher-stræti.
No comments yet. Be the first to leave one.