The first 200 lines.
Þetta er sönn saga.
Þetta gerðist hérna í bænum mínum fyrir tveim árum.
Margir deyja á mjög undarlegan hátt í þessari sögu
en þið finnið ekkert um það í fréttum eða þannig
því að löggan og ráðamenn í bænum skömmuðust sín svo mikið
fyrir að hafa ekki leyst málið að þeir leyndu sannleikanum.
En ef þið komið og spyrjið einhvern
segja allir eins frá þessu og ég geri núna.
Sagan hefst í skólanum mínum.
Maybrook-grunnskólinn er fyrir fimm til tíu ára börn.
Einn miðvikudaginn var allt bara venjulegt í öllum skólanum.
En þarna var einn nýr kennari.
Hún hét Justine Gandy.
Þennan dag fór hún í kennslustofuna sína
eins og alla aðra morgna.
En þessi dagur var öðruvísi.
Þennan dag mættu engir nemenda hennar.
Í öllum öðrum bekkjum var full mæting.
Í hinum þriðja bekknum, hjá fröken Belt, mættu allir.
En kennslustofan hjá fröken Gandy var alveg galtóm.
Reyndar ekki alveg.
Þarna var einn drengur.
Hann hét Alex Lilly.
Hann var sá eini af átján í bekknum sem mætti í skólann þennan dag.
Vitið þið hvers vegna?
Hann var sá eini þarna
því að nóttina áður, klukkan 2.17,
vöknuðu allir hinir krakkarnir,
fóru fram úr rúminu,
gengu niður,
opnuðu útidyrnar,
gengu yfir garðinn hjá sér og hurfu inn í myrkrið.
Og þau sneru aldrei aftur.
Allir foreldrar og starfsmenn skólans voru leiðir og í uppnámi.
Lögreglan vissi að börnin hefðu farið klukkan 2.17
því fjöldi heimila var með öryggiskerfi sem fór í gang þegar þau gengu út.
Sum börnin náðust á upptöku, í húsum þar sem voru myndavélar.
En myndefnið sýndi börnin aðeins ganga út í myrkrið.
Það sást hvergi hvert þau fóru.
Lögreglan talaði mikið við Alex.
Hann var spurður af hverju krakkarnir gerðu þetta
en hann sagðist ekki vita það.
Hann var spurður um eitthvert plan
en hann hafði aldrei heyrt af slíku.
Hann var spurður hvort krakkar gerðu þetta í sjónvarpsþætti
en hann sagðist ekki hafa séð það.
Fröken Gandy var líka yfirheyrð ítarlega
en hún vissi ekkert heldur og gat enga hjálp veitt.
Í næstum heilan mánuð
var skólinn lokaður vegna rannsóknarinnar.
MAYBROOK-STYRKUR
En svo kom að því að þau urðu að opna aftur
til að börnin sem hurfu ekki gætu haldið áfram að læra.
Eitt kvöldið fyrir opnun var haldinn stór fundur í skólanum.
Þangað mættu ráðgjafar og svoleiðis fólk
til að kenna öllum hvernig þeim ætti að líða og takast á við sorgina saman.
Þar byrjar sagan almennilega.
Það er mikilvægt að dæma ekki sorg okkar.
Við gætum fundið óvelkomnar tilfinningar.
Aðrar tilfinningar en sorg.
Við verðum að leyfa okkur að upplifa tilfinningar eins og reiði.
Reiði er afar heilbrigður hluti af sorgarferlinu.
Hún getur sérstaklega hjálpað fólki sem er yfirgefið.
Oft á tíðum...
Hvað þýðir það?
Að reiðin hjálpi sérstaklega fólki sem er yfirgefið?
Eigum við að reiðast Matthew?
Það væri ekki óeðlilegt...
Þú segir að við höfum verið yfirgefin en ég sé það ekki þannig.
Ég sé ekki nokkra glóru í þessu.
Þetta voru 17 börn í sama bekknum.
Hvað gerðist í kennslustofunni?
Hvers vegna eingöngu börn úr hennar bekk?
Já!
Ykkur er heitt í hamsi og það er í lagi.
Fyrirgefðu ef ég hef ekki áhuga á því að heyra meira frá þér.
Ég vil að Justine Gandy tjái sig.
Já.
Hún er hérna. Ég vil vita nákvæmlega hvað hún gerði með þeim.
Ég...
Í fyrsta lagi...
vil ég bara taka það fram hvað mér þykir ótrúlega leitt
að þetta hafi gerst.
Ég veit að ég get ekkert sagt til að bæta ástandið.
Sannleikurinn er sá að ég þrái svör rétt eins og þið.
- Þú ert lygari! - Þessi tík.
Mér þykir vænt um börnin.
Og...
- Ég veit... - Við vitum að þú veist hvað gerðist.
Ég veit... að það er ekki...
Læsið hana inni þar til hún játar.
Svona lagað er algjör óþarfi.
Mér er alvara.
Fröken Gandy er bara bæjarbúi sem lenti í þessu.
- Hún er í sárum eins og við. - Vanrækin eða samsek.
Hvar eru börnin okkar, fröken Gandy?
Þetta er nóg. Gefið okkur olnbogarými.
Gerið það. Þetta var langt kvöld.
Reynum nú að sofna og vakna skýr í kollinum.
Geturðu gist hjá einhverjum?
Farðu þá heim og hafðu hægt um þig.
Þetta gæti orðið...
ÁFENGISVERSLUN
Ég er að safna fyrir rútumiða til bróður míns.
- Ertu með klink á þér? - Nei, því miður.
Óskráð númer
Halló?
Halló?
- Hver er þetta? - Passaðu þig.
Í kvöld ætla ég að...
Ég er að safna fyrir rútumiða til bróður míns.
- Áttu klink? - Nei, því miður.
Takk fyrir.
Sama hvað þú gerir fylgir ZipString þér eftir.
Bandið þýtur áfram á 56 km hraða
en þú mátt snerta það.
Sjáið þessa brellu, Hákarlar. Þetta er hringiðan.
Þetta er tappatogarinn.
Þetta er gegnumstigið.
Og poppið!
Ég kynni, gáttina!
ZipString svífur...
Halló?
Halló?
Já?
Jesús! Hvern andskotann viltu?
Hver er þarna?
Halló?
Andskotinn!
NORN
Þú heldur sjúkratryggingunni og ef ég má segja það
eru margir góðir geðheilbrigðis- sérfræðingar á skrá og sumir...
Ég þarf bara að vinna, þú veist.
Ég þarf að hafa eitthvað að gera.
Já, ég verð að vinna, þannig að...
Justine, gærkvöldið var sönnun þess
að hér eru margir tilfinningaríkir foreldrar.
Það er best í bili að þú haldir fjarlægð við skólann
þangað til fólk hefur náð að jafna sig betur.
Hvernig líður Alex?
Alex líður vel.
Hann er í bekknum hjá fröken Belt
og okkur var ráðlagt að hjálpa honum að halda rútínu.
Halda lífi hans sem eðlilegustu.
Ég vil tala við hann.
Við höfum rætt þetta áður. Það kemur ekki til greina.
Mér liði miklu betur ef ég mætti ræða við hann.
- Þarna kom það. - Hvað?
Þetta er vandamálið. Þér liði betur.
Blaðamenn grandskoða hann.
Rannsóknaraðilar umturna heimili hans.
Hann lenti í tráma.
Setjum þarfir Alex í forgang.
Ef þú gefur í skyn að mér sé ekki annt um Alex og börnin...
Þetta snýst ekki um tilfinningar þínar.
Málið er að þú hefur áður farið yfir fagleg mörk með nemendum.
Byrjar þetta. Ég fer ekki yfir mörk.
Það er óviðeigandi að faðma nemendur.
Ég faðmaði grátandi dreng. Lokaðu mig inni.
Það er ófagmannlegt að skutla nemendum heim.
- Hún missti af rútunni og býr nærri. - Það er óviðeigandi.
Ég veit að þetta er vegna væntumþykju.
Ég veit að þú ógnar börnunum ekki
en þú verður að skilja
að þú ert ekki foreldri heldur kennari.
Það er munur á því
og þess vegna máttu ekki tala við Alex Lilly.
Það er bara...
Við erum ein eftir.
- Glætan. - Sjáið, sjáið.
Þetta næst ekki af.
Mér hafa líka borist símtöl.
- Hótanir. - Nú?
Gæti sá sem hringdi hafa gert þetta?
Ég veit það ekki. Kannski, kannski ekki.
Nú, jæja...
Hver sem það var getum við bara tekið skýrslu.
Þetta voru líklega krakkar.
Fjandinn, ég gerði svona lagað þegar ég var í skóla.
Klósettpappírskast og dyraat.
Ég skrifaði ekki „norn“ á bíl
en vinur minn makaði eigin...
Hæ!
Megum við faðmast?
Auðvitað megum við faðmast. Jesús.
Hvað kom fyrir höndina?
Þetta var bara heimskulegt vinnuslys.
- Ekki neitt. - Drykk?
Já, takk.
Tony?
Tony?
Hann kemur eftir augnablik.
- Mér liggur ekkert á. - Jæja.
Vá, ég bjóst ekki við því að þú kæmir.
Gott að þú sendir skilaboðin.
Ég hef hugsað mikið til þín.
Ég vildi hringja
en vissi ekki hvort það myndi gera illt verra eða eitthvað.
Ég er ekki viðkvæmt lítið blóm
sem visnar ef þú hringir í mig.
No comments yet. Be the first to leave one.