The first 200 lines.
Blóð, blóð, blóð og dauði.
Það sem gerðist áður...
Ekki ofleika.
Við náðum þessu.
Við náðum öllu, blaðurskjóða.
Þú útskýrðir þetta mjög vel.
Ég kom sök á Lionheart og kem sök á ykkur líka.
Þetta er orð gegn orði.
Reyndar...
Ég skýt hvert einasta rándýr borgarinnar til að halda því þannig.
...eru þetta bara þín orð.
Það heitir að blöffa, mín kæra.
Búmm.
Ólíklega tvíeykið
Judy Hopps, fyrsta kanínulögga borgarinnar,
og Nicholas Wilde, fyrrum smáglæparefur,
komu upp um ráðabrugg Bellwether borgarstjóra
með dótagulrótar-upptökupenna.
...og kem sök á ykkur líka.
Wilde gekk síðar sjálfur í lögregluna
og nú eru þau fyrsta kanínu-refateymið...
LÖGREGLUSKÓLINN
...í sögu Zootropolis.
Nýr borgarstjóri og fyrrverandi leikari, Brian Winddancer, heiðraði þau
á hundrað ára afmælishátíð
uppfinningar veðurveggja Zootropolis
sem gera öllu umhverfi og öllum dýrum kleift
að vera saman í einni borg.
Þetta er Zooaldarafmæli okkar!
Ef einföld sveitakanína
og slægur glæparefur geta yfirstigið hvað þau eru ofboðslega ólík
og fundið varanlega lausn á hlutdrægni og staðalímyndum
getum við kannski öll fagnað því sem gerir okkur ólík
og verið betri súsaman.
Við leysum nýtt mál, gerum heiminn betri
og verðum besta teymi sögunnar.
Við erum ekki svo ólík.
Hjá lögreglunni í Zootropolis er samvinna hornsteinn velgengni.
Viljið þið fangelsa óþokka?
Verið þá á sömu blaðsíðu, alla daga.
Óþokki dagsins er þessi tollvörður
sem hefur smyglað inn ólöglegum útlenskum farmi
í gegnum höfnina.
Hoggbottom og Truffler verða fremstir í flokki.
Higgins og Bloats fara vinstra megin.
Chèvre og Bûcheron hægra megin.
Og í miðjunni, Zebrósar. -Zebrósar!
Hopps og Wilde, þið viljið sanna ykkur,
en þið eruð nýliðar og fylgist bara með
og leyfið reynsluboltunum að kenna ykkur hvernig...
Hæ, stjóri.
Ef þú leitar að Nick og Judy sögðust þau redda þessu.
Þau eru mætt á staðinn, með barnið sitt!
HAFNARVÖRUSVÆÐI
Virkar þetta?
Þú sagðir okkur þurfa aðra handtöku.
Fylgdu mér eftir og vertu eðlileg.
Heyrðu! -Byrjar það.
Halló?
Þetta er bannsvæði.
Þið megið ekki vera hérna.
Refur og kanína. Allt í lagi.
Umfram allt stoltir foreldrar.
Herra... -Tollvörður.
Snootley tollvörður.
Tollvörður? Hvað gerir þú?
Tryggirðu að engu ólöglegu sé smyglað inn í gámunum?
Undarlega orðuð spurning.
Farið nú. Þið megið ekki vera hérna.
Bíddu, bíddu.
Laukrétt, árinn hafi það.
Rétt, herra.
Við hefðum átt að hugsa þetta til enda, elskan.
Áður en við ákváðum að koma hingað
á þetta fallega vörugeymslusvæði
til að fagna stóra degi afmælisdrengsins okkar.
Á hann afmæli?
Já, það fyrsta síðan...
hann lenti í slysinu.
Það eina sem litla rúsínan óskaði sér
fyrir utan að fá rófuna aftur...
...var að sjá tsjú-tsjú.
Og kannski fá tút-tút-stjóra til að skrifa á gifsið.
En ég held að tollvörður sé enn betri kostur.
Í alvöru?
Þá það. Fyrir krakkann.
Þú ert dýrlingur.
Þúsund þakkir. Hvorn fótinn sem er.
Eða báða, mér er sama.
Kannski smá krot. Þarf ekki að vera fullkomið.
Hann er líka lögblindur.
Ég teiknaði lest því þú ert hrifinn af þeim.
Koma svo, koma svo.
Gjuggaðu. -Ég veit.
Flýttu þér! -Ég hef þetta.
Gjuggaðu, gjuggaðu.
Hopps og Wilde, þið fenguð ekki leyfi til að gera þetta.
Bíðið eftir liðsaukanum.
Tút-tút.
Löggan! -Stans!
Stoppaðu í nafni laganna! -Forðið ykkur!
Við vinnum ekki alltaf.
Farðu frá, heimska kanína.
Sammála um að vera ósammála.
Grísakagginn minn. Þið eruð ótrýni.
Hopps og Wilde elta hinn grunaða
á stolnum veisluþjónustubíl.
Hættu.
Austur í gegnum Kindasýslu.
FAGNIÐ ZOOALDARAFMÆLINU
Æði.
Ég tek það sama og hann.
Ljúfan, ég held að ökulagið þitt geri mig hvíthærðan.
Verð ég alltaf í farþegasætinu?
Ef við skilgreinum hlutverk...
Farið frá, nýliðar.
Látið alvöruteymi um þetta.
Við erum alvöruteymi. -Styttri leið. Farðu inn í göngin.
Hættið, núbbar.
Við náum honum.
Broddabelti. -Broddabelti.
Hata þessa heimsku kanínu.
ZOOALDARAFMÆLISGANGA
AMOOSE BOUCHE VEISLUÞJÓNUSTA
GNÝ JERSEY SKRÚÐGANGA
NITURGRÍSÍÐ
Ég stekk. -Ha?
Nei, hvað...
Gulrót, ég vil fá fund um þetta. Nei, Gulrót.
Judy!
Takið þátt í mínútuþögn með mér
í minningu uppfinningamanns veðurveggjanna, Ebenezers Lynxley.
Zebrósar!
Skriðdýr?
Stjóri, þessi tvö eru stjórnlaus!
Zootropolis er ekki aðeins spendýraborg.
Hér býr líka falinn en örsmár hópur skriðdýra
þótt flest þeirra búi erlendis.
Snákar eru auðvitað bannaðir í Zootropolis.
Þeir hafa ekki sést hérna í að minnsta kosti hundrað ár.
Hreisturflögur og furðusögur.
Eintómur sannleikur.
Ég held að Nibbles Maplestick sé ekki traustasta heimildin okkar.
Kanína og appelsínuguli hundur, komið inn undir eins.
Þetta fór ekki eftir plani en við gómuðum maurætuna.
Zebrósarnir gerðu það.
Zebrósar! -Þögn!
Zebrósar.
Við gerðum það.
En það sem meira máli skiptir er þessi þýðingarmikla uppgötvun.
Í stolna bílnum var kassi sem var smyglað hingað,
bæklingar um Zooaldarafmælið
og einhvers konar skriðdýrahreistur.
Ég sendi sýni í greiningu.
Ef þú... -Þú þyrftir að fá greiningu.
Þið tvö rústuðuð hálfri borginni.
Ykkar vegna þurfti að kalla til júmbósveit
til að fjarlægja hnyðru úr túbu!
Þú ert alveg að losna. -Nei, ekki!
Hver grípur hann?
Má ég sjá þetta aftur? Ég var ekki með gleraugun.
Óhlýðnuðust þið beinni skipun um að hætta, eða ekki?
Við vorum í eftirför.
Regla 6, málsgrein B leyfir yfirlögregluþjónum...
Þið eruð ekki yfirlögregluþjónar!
Þið eruð einsmellungar
sem ættuð að snúa aftur í stöðuvörslu og íspinnasölu.
Ef ég má. Einhver er afbrýðisöm af því við fengum að keyra grísabílinn.
Kannski hélstu að þetta væri mamma þín.
Nú er nóg komið! Allir út.
Hopps lögregluþjónn,
þótt ég reyni að komast hjá því líkar mér vel við þig.
En þessi þörf þín fyrir að ofgera öllu
kom ykkur báðum á forsíðurnar.
Það lítur illa út fyrir mig og deildina okkar
og satt best að segja allar kanínur sem vilja feta í fótspor þín.
Þú bjargar ekki heiminum með hverri rannsókn.
Bank bank.
Hæ.
Þetta hljómar eins og samtal á milli ykkar tveggja.
Ég ætla að koma mér...
Hvers vegna tekur þú ekkert alvarlega?
Grín er varnarháttur í kjölfar áfalla í æsku.
Viltu áfall á fullorðinsárum?
Helst ekki.
Ég leyfði ykkur að vinna saman því þið gerðuð góða hluti fyrir borgina.
En í dag tókst ykkur að klúðra öllu.
Og nú spyrja sumir sig hvort þið ættuð að vinna saman.
Herra... -Þannig að,
í stað þess að elta ímynduð skriðdýr
tek ég ykkur af vettvangi.
Ha? -Þið fáið nýtt verkefni
sem er eingöngu fyrir sérstök teymi.
Ef ykkur mistekst þetta verð ég að stía ykkur í sundur.
Þá verður ekkert Hopps og Wilde.
En ef þið eruð eins góð og þið teljið ykkur vera
getið þið sýnt hvað í ykkur býr.
Velkomin í Félagar í krísu,
námskeið fyrir tvíeyki á rangri leið.
Ég er meðferðardýrið ykkar, dr. Fuzzby.
No comments yet. Be the first to leave one.