The first 200 lines.
-Þú getur engum selt nema okkur. -Ég seldi Henriettu Winter.
Þú verður að sætta þig við það að við viljum þig ekki sem félaga.
-Ég er Angelo. -Velkominn í paradís.
-Þú misstir af börnunum í gærkvöldi. -Bojan fór að tala um Oscarshof.
Við getum gert margt frábært. Ég sýni þér barinn.
Hefurðu hitt Winter á bak við mig? Ef þú bregst mér hendi ég þér út.
Þú verður að sækja Calle. Mér blæðir.
Ninu blæddi smá. Það er eðlilegt. Þið eignist barn.
-Guð minn góður! -Sinntu bara þínu starfi
og ekki kjafta í starfsfólkið og þá færðu kannski útborgað í vikunni.
Capisce?
Hversu lengi telurðu Backe verða? Það vilja allir að þú takir við.
Í málsgrein átta er klása sem í stendur að enga samninga megi klára
fyrr en hinir eigendurnir hafi getað komið með mótboð.
Gekk sala Royal Djurgården í gegn?
Já, svo sannarlega. Ég er til.
-Þetta er mun lægra en boð Henriettu. -Þetta er það sem við getum boðið.
Fjandinn hafi þig, mamma!
Fröken Winter? Afsakaðu mig.
-Hefurðu augnablik? -Já.
-Ég er tilbúinn að ljúka samningnum. -Eigum við að hringja í hr. Lager?
Ekki fyrir mig en ég myndi vilja ljúka þessu sem fyrst.
Endilega. Samningurinn er á skrif- stofunni minni. Mér líka menn aðgerða.
NÚ ER VOR TÍÐ
13. ÞÁTTUR GAMLAR FJÖLSKYLDUR OG NÝJAR
Guido?
Hvernig hefurðu það? Viltu eitthvað að drekka?
Mér líður ekki vel.
Þetta lætur þér líða betur.
Hefur honum versnað?
Hann hóstar upp blóði. Við þurfum að koma honum til læknis.
Gott.
Þetta er hann. Vektu hina.
Vaknaðu, Cesare!
Góður strákur.
Svona nú!
Ein vika í viðbót er liðin. Er allt í lagi hérna?
Rafmagn og hiti. Þetta er betra en á síðasta stað.
Mér líkar þetta ekki. Þetta er ekki nóg.
Hvað er að? Þarftu alltaf að vera með vandræði?
Þetta eru laun fjögurra. Það vantar ein.
Laun fyrir fimm.
Bara laun fyrir fjóra.
Einn, tveir, þrír, fjórir. Ég sé bara fjóra. Hvar er Guido gamli?
Guido er veikur. Hann svitnar mikið.
Aumingjans maðurinn en þið hafið verið fjórir að vinna í vikunni
en ekki fimm eins og ég hélt. Er það ekki rétt?
Fyrir leigunni. Þið hélduð ekki að þið gætuð verið hér ókeypis, er það?
Svona nú, flýtið ykkur svo þið verðið ekki seinir í vinnuna. Hérna.
-Læknir. Guido. Hjálp. -Skilurðu?
Hjálp.
Svínið þitt! Ég drep þig! Þetta eru peningarnir okkar!
Leyfðu honum að fara. Þú gerir þetta bara verra.
Þessi andskoti.
Hvað með að við segjum þeim þetta í dag?
-Allt í lagi, ef þú vilt það. -Mamma þarf að hressast.
-Klukkan hvað myndi henta þér? -Þú getur komið upp klukkan tíu.
Í dag berum við fram kálfahakksrúllur. Andersson sér um kjötið.
Fjandinn hafi ykkur ef ég sé gesti tína brjósk úr tönnunum.
Hans-Erik, þú sérð um fyllinguna. Brauðrasp, steinselju, ansjósur og lauk.
-Það þarf að sigta soðið. -Það hefur þegar verið gert.
Hver sigtaði soðið?
Hver sigtaði soðið?
Eftir hverju bíðið þið? Farið að vinna!
-Er þetta úr áfengisbirgðunum? -Já.
Ég undirbjó dálítið óvænt fyrir fjölskylduna.
Yfirmaðurinn vill að kvittað sé fyrir öllu áfengi, líka mágurinn.
-Smárétt? -Nei, takk fyrir. Sigtaðirðu soðið?
Já, ef það sýður of lengi bragðast það eins og lím. Þú kenndir mér það.
-Ég veit það. -Viltu bragðbæta kálfakjötið með því?
Það hefur verið fleytt af því, sigtað og kælt. Það er tilbúið.
Það er góð lykt hérna. Halló, ég er Henriette Winter.
-Hans-Erik. -Mín er ánægjan. Henriette Winter.
-Halló. -Hver ert þú?
Þú hlýtur að vera Backe yfirkokkur. Henriette Winter.
-Hvað gerir þú hérna? -Sagði Calle ykkur það ekki?
Ég er nýi meðeigandinn. Við munum hittast oft.
Ég skil. Það stígur samt enginn inn í eldhúsið mitt án míns leyfis!
Nei, nei, ég biðst afsökunar. Ég leyfi ykkur að vinna í friði.
-Takk fyrir. -Ég er samt með matseðilsbeiðni.
-Hefurðu álit á matseðlinum? -Ég vil hafa purusteik og smurbrauð.
Mér datt í hug "miðnætursnarl dýralæknisins", kjúklingasalat ...
Ég vil hafa eitt alveg á hreinu ...
Ég grínast! Ég er viss um að þú getur séð um matseðilinn með hans hjálp.
Þangað til næst...
Þetta lítur vel út.
Á hvað starið þið? Aftur að vinna!
-Af hverju sagðirðu mér þetta ekki? -Nina vildi að Peter segði ykkur það.
-Halló, Nina. -Halló, Henriette.
-Velkomin um borð ætti ég að segja. -Takk fyrir!
-Trufla ég þig? Má ég kalla þig Ninu? -Algerlega.
-Ég er með dálítið óvænt fyrir þig. -Hvað er það?
-Á veitingastaðnum. Hefurðu smástund? -Allt í lagi.
Ég er með arkitekt að vinna við leikhúsið núna.
Ég bað hann að gera teikningu af því hvernig þessi salur gæti litið út.
-Þú ert frekar skilvirk. -Já.
-Hafðirðu eitthvað svona í huga? -Ég hafði ekkert í huga.
-Þetta lítur samt vel út. -Er það?
Það væri allt annað andrúmsloft hérna með barinn.
Heimsborgaralegra og alþjóðlegra.
Kannski barinn gæti jafnvel verið aðeins lengri.
Engin sæti þar uppi heldur bara...
-Halló. -Halló, Peter.
-Backe sagði þig vera í eldhúsinu. -Ég kynnti mig bara.
-Þú áttir ekki að vera þar. -Ég er meðeigandi.
Þú ættir samt ekki að vera þar. Ég vildi segja starfsfólkinu frá þér.
Ég bjóst við að þú hefðir þegar gert það.
-Hvað er þetta? -Teikning af matsalnum.
Hvernig hann myndi líta út með bar.
Haltu þessu bara og hugsaðu málið.
Þetta var hennar hugmynd. Ég sá þetta rétt áður en þú komst.
Sama hvað er það tímasóun. Það verður ekki bar í matsalnum.
-Þú gætir a.m.k. skoðað teikninguna. -Hún má mín vegna vera frábær.
-Það verður samt enginn fjandans bar! -Hafið lægra.
Halló!
Ekki núna.
-Þetta er ekki réttur tími. Sjáumst. -Allt í lagi.
-Hvað er þetta? -Ekki neitt.
Hún telur sig reka staðinn eftir tæpa viku.
Hún var líka í eldhúsinu að pirra Backe.
-Það eru sjö ára þrengingar framundan. -Nei, það eru það ekki.
Ég hitti lögfræðing til að fella samninginn úr gildi.
-Mætti ég bara segja eitt? -Gleymdu barnum.
Henriette er hispurslaus. Hún er Dani og þeir hafa aðra mannasiði.
-Hún er líka brjáluð. -Hún er samt frábærlega drífandi.
Sjáðu hvað hún byggði úr engu. Þú varst sá sem bauðst.
Getum við vinsamlegast litið á möguleikana með Henriette sem eiganda?
-Getum við ekki a.m.k. hlustað á hana? -Kannski Nina hafi rétt fyrir sér.
Það verður erfitt að ógilda sölu Gustafs.
-Allt virðist gert eftir bókinni. -VIð þurfum að losna við hana.
-Já. -Ég tala við þig seinna. Bless.
Góðan dag.
-Góðan dag, herra. -Ég sá matseðilskassann, Hammargren.
Það er brot í glerinu og hann er ryðgaður.
Ertu með hugmyndir að hönnun á nýjum sýningarkassa?
Það er mikilvægt að laða vegfarendur að.
-Ég hugsa málið. -Gott, ræðum það betur seinna.
-Er Bojan... -Á skrifstofunni.
Ingeborg sagði að þú værir nýi eigandinn núna, herra.
-Ég þarf þá að gera það sem þú segir. -Hlustum hvor á annan, Hammargren.
-Góðan dag. -Góðan dag.
Við höfum ekki grætt svona mikið mjög lengi, Gustaf.
Það er gott. Ég er með nokkrar hugmyndir til að ræða við þig.
-Endilega. Núna? -Kannski í kvöld.
Ég hef ýmislegt að sýna þér. VIð ræddum um nýtt útlit.
Ég þarf því miður að fara til Sunne. Móðir mín datt og er á spítala.
Jeminn, það verður þá að bíða.
-Ræðum það þegar ég kem aftur. -Algerlega.
Ég pantaði nýtt skrifborð fyrir þig. Stórt frá Tegnells.
-Þú þurftir þess ekki. -Bara það besta er nógu gott fyrir þig.
Takk fyrir, Bojan. Ég vona að móður þinni batni.
Bárum við ekki fram kálfahakksrúllur fyrir stuttu síðan?
Samkvæmt kokkinum eru þær rómaðar.
Þau byrjuðu að bera fram asískan mat á Berns. Hvað ef við gerðum það?
Ég held að þau lendi á tunglinu áður en Stickan samþykkir það.
-Hvenær flyturðu? -Fljótlega. Þarf bara að sinna ýmsu.
-Við Uno getum gert það hægt og rólega. -Við hjálpum þér að flytja, Maggan.
Er það ekki, Roos? Hjálpum við Maggan ekki að flytja?
-Núna? -Núna? Kjáni!
-Hvenær? -Á morgun.
-Á morgun! -Ég er ekki viss...
-Gott! Þá er það ákveðið. -Ég lít í dagbókina mína.
-Ég tala við hann. -Þú talar ekki sænsku.
-Ég segi honum það. -Segirðu honum að það sé ósanngjarnt?
Það leið yfir einn þeirra um daginn.
Ragnarsson hafði ekki sagt þeim að þeir mættu borða af matnum.
-Verðum við reknir? -Ha? Reknir?
-Þú gerir þetta bara verra. -Hvernig gæti það orðið verra?
Halló! Ég heiti Margareta. Ég er fulltrúi verkalýðsfélagsins.
Get ég eitthvað hjálpað ykkur?
-Hvað segir hún? -Förum aftur að vinna!
-Snýst þetta um Ragnarsson? -Ragnarsson?
-Svona nú! -Ég þarf að tala við þig.
Þú getur talað við mig seinna inni.
-Þarna er pabbi. Nei, þetta er í lagi. -Hvað sögðu þeir?
Fyrirtækið er ekki rétt skráð. Hún borgaði líka skattana sína.
-Má Dani hafa fyrirtæki hérna? -Já, þetta er það eina sem þeir höfðu.
Tvö fyrirtæki og eitt óvirkt. Ekki frekari upplýsingar um það?
-Ekki hér, það er í Kaupmannahöfn. -Þá þurfum við að fara þangað.
Ég get ekki skilið Henriette og Ninu einar eftir í Royal Djurgården.
Fyrstu gestirnir koma um sjö og hljóm- sveitin líka og þú þarft að hafa borðað.
Halló. Hvað gerðist?
Við rifumst um Henriette. Þetta var slæm tímasetning.
Hún heimsótti eldhúsið og tókst að troða Stickan um tær.
-Hann er með viðkvæmar tær. -Satt.
-Ég held að þú ættir að segja Helgu það. -Ég geri það.
-Ég þarf að fara til baka. -Sjáumst seinna.
"Hann gat bara gert kjúklingaklór."
-Halló! -Er Ester hér líka?
Nei, hún þurfti að fara svo þessar elskur eru hjá ömmu.
-Ég trufla þig þá ekki. -Stoppaðu í smástund.
-Stoppaðu. Ég vil tala við þig. -Lestu, amma.
Haltu áfram að lesa, ég hef ýmislegt að gera í salnum.
-Þú þarna! Halló. -Halló.
-Angelo. -Margareta. Maggan.
-Hjálparðu okkur með Ragnarsson? -Já, ef ég get það.
Ragnarsson ekki góður. Þú sindicato, Ragnarsson basta .
Komdu með mér.
Vinur.
-Veikur. -Veikur? Er vinur þinn veikur?
No comments yet. Be the first to leave one.