House of the Dragon

House of the Dragon

Pakua Manukuu ya Icelandic

Msimu wa 1

Maelezo ya toleo

House of the Dragon S01E01 Episode 1 720p/1080p HMAX WEB-DL DDP5 1 Atmos H 264-SMURF
House of the Dragon S01E01 The Heirs of the Dragon 720p/1080p HMAX WEBRip DD5 1 X 264-EVO
House Of The Dragon S01E01 720p/1080p HMAX WEB-DL DDP5 1 H 264-NTb
House of the Dragon S01E01 720p/1080p WEB H264-CAKES/KOGi
House of the Dragon S01E01 Episode 1 2160p HMAX WEB-DL DDP5 1 Atmos HDR H 265-SMURF/CMRG
House of the Dragon S01E01 Episode 1 2160p HMAX WEB-DL DDP5 1 Atmos DV H 265-SMURF/DVSUX
House Of The Dragon S01E01 1080p HMAX WEB-DL DDP5 1 Atmos x264-CMRG
House of the Dragon S01E01 HDR 2160p WEB H265-GLHF
House of the Dragon S01E01 WEBRip x264-ION10
House of the Dragon S01E01 HMAX 2160p-1080p-720p-480p-CMRG-DVSUX-SMURF-MeGusta-ELiTE-T0PAZ-MiNX
Maoni na SilverStark
[HBO MAX opinberir textar, virka með öllum WEBRip/WEB-DL útgáfum --- Lengd: 01:05:36]

Lebo

720p
720
1080
480p
480
Yamechapishwa tarehe: 2022-08-22
Upakuaji: 90
Wenye Ulemavu wa Kusikia: No

Hakikisho la manukuu ya Icelandic

Mistari 200 ya kwanza.

Þegar líða fór að lokum fyrstu aldar Targaryen-veldisins

fór heilsu Gamla konungs, Jaehaerys sífellt hrakandi.

Í þá daga stóð veldi Targaryen-ættarinnar sem hæst.

Með tíu fullvaxna dreka í sínum ranni

fékk enginn máttur í veröldinni staðið gegn henni.

Í 60 ár hafði Jaehaerys konungur ríkt af friðsemd og hagsæld

en hafði misst báða syni sína

svo óvissa ríkti um ríkisarfann.

Árið 101 setti konungur Æðsta ráðið saman til að velja erfingja.

Á annað þúsund lávarða reið til Harrenhallar.

Fjórtán tilköll voru rædd en aðeins tvö komu sannarlega til greina.

Rhaenys Targaryen prinsessa, elsti afkomandi konungs

og yngri frændi hennar, Viserys Targaryen prins,

elsti karlkynsættingi konungs.

Hér með tilkynna allir yfirdrottnarar

og allir lénsherrar Konungsríkjanna Sjö

að Viserys Targaryen prins verði prinsinn af Drekasteini

Rhaenys, kvenmaður, myndi ekki erfa Járnveldisstólinn.

Þess í stað völdu lávarðarnir Viserys.

Föður minn.

Jaehaerys skóp Æðstaráðið

til að koma í veg fyrir að stríð yrði háð um erfðaröðina.

Því hann þekki kaldan sannleikann.

Það eina sem gæti fellt Ætt Drekans væri hún sjálf.

ÞAÐ ER NÍUNDA RÍKISÁR VISERYS TARGARIENS KONUNGS.

172 ÁRUM FYRIR DAUÐA ÓÐA KONUNGSIN AERYS

OG FÆÐINGU DÓTTUR HANS, DAENERYS TARGARIEN PRINSESSU.

Velkomin aftur, prinsessa. Vonandi var reiðtúrinn góður.

Reyndu að sýna minni létti, Ser.

Mér er létt.

Í hvert sinn sem þessi gullna skepna skilar þér aftur óskaddaðri

held ég enn höfðinu.

Syrax vex hratt. Hún verður brátt jafnstór og Caraxes.

Næstum nógu stór til að bera tvo.

Ég er alveg sátt sem áhorfandi, takk fyrir.

Rhaenyra.

Þú veist að ég vil ekki að þú fljúgir þegar svona er ástatt um mig.

Þú vilt ekki að ég fljúgi sama hvert ástandið er.

Yðar tign. -Góðan dag, Alicent.

Svafstu? -Ég svaf.

Hve lengi?

Ég þarf ekki umönnun, Rhaenyra.

Hér ertu umkringd þjónustuliði sem hugsar um barnið.

Einhver þarf að annast þig.

Þú munt liggja hér fyrr en síðar, Rhaenyra.

Með þessum þrautum þjónum við ríkinu.

Ég vildi heldur þjóna sem riddari og ríða til orrustu með sóma.

Við höfum konunglega móðurkviði, þú og ég.

Barnssængin er okkar vígvöllur.

Við verðum að læra að mæta henni af festu.

Baðaðu þig nú, þú angar af drekum.

Svo ég sagði: „Ég held að þú sért að góna upp rangan enda.“

Herrar mínir.

Vaxandi samstaða hinna Frjálsu borga er farin að kalla sig Þríveldið.

Þau hafa safnast saman að Blóðsteini

og uppræta nú sjóræningjapest Þrepanna.

Það eru grunsamlega góðar fréttir, Corlys lávarður.

Maður að nafni Craghas Drahar

titlar sig nú sem krónaðmírál þessa Þríveldis.

Hann er kallaður Krabbafóðrarinn

vegna hugvitsamlegra aðferða við refsingar á óvinum sínum.

Og eigum við að syrgja dauða sjóræningja?

Nei, yðar tign... -Þú ert sein, Rhaenyra.

Skenkjari konungs má ekki vera seinn. Það leiðir til þorsta fólks.

Ég heimsótti mömmu.

Á drekabaki?

Yðar tign, að áeggjan Daemons prins höfum við lagt töluverðar fjárhæðir

í endurþjálfun og búnað fyrir Borgarvaktina hans.

Þér mættuð kannski hvetja bróður yðar til að mæta á ráðsfundi

og gefa skýrslu um árangur hans sem foringja Vaktarinnar.

Heldurðu Daemon sé annars hugar við verk sín

og að orku hans og huga sé betur varið við annað?

Vonandi ekki miðað við samanlagðan kostnað.

Þá skulum við ákvarða gulli þínu vel varið, Beesbury lávarður.

Ég myndi ráðleggja þér að leyfa þessu Þríveldi

ekki mikinn uppgang þarna í Þrepunum, yðar tign.

Lokist þessar siglingaleiðir gerir það hafnir okkar gagnslausar.

Krúnan hefur veitt þér áheyrn, Corlys lávarður,

og mun taka hana til umhugsunar.

Eigum við að ræða Erfingjaleikana, yðar tign?

Með ánægju.

Mun nafnadagsspádómur meistarans rætast, Mellos?

Gætið þess að þetta eru aðeins vangaveltur, yðar tign,

en við höfum legið yfir mánakortunum

og teljum spá okkar eins áreiðanlega og hugsast getur.

Kostnaðurinn við leikana er ekki smávægilegur.

Kannski við ættum að fresta þeim þar til barnið er fætt.

Flestir lávarðanna og riddaranna eru þegar á leið til Kóngsvalla.

Að snúa þeim við nú... -Leikarnir taka um viku tíma.

Áður en þeim verður lokið mun sonur minn hafa fæðst.

Og allt konungsríkið mun fagna.

Það er engin leið að spá fyrir um kyn barnsins.

Vissulega.

Það er enginn meistari fær um að gefa álit án forsenda, er það?

Drottningin gengur með dreng, það eitt veit ég.

Og erfingi minn mun brátt binda enda á þessa bölvuðu handanúninga sjálfur.

Hann gekk inn um hlið Rauðaturns í dagrenningu.

Veit faðir minn að hann er hér?

Nei. -Gott.

Guðunum sé náð.

Það er allt í lagi, Ser.

Hvað þykistu vera að gera, frændi?

Sitja, þetta gæti vel orðið mitt sæti einn daginn.

Ekki ef þú verður líflátinn fyrir landráð.

Þú hefur ekki sést við hirðina í heila eilífð.

Rétt.

Hirðin er svo skelfilega leiðinleg.

Hvers vegna þá að snúa aftur yfir höfuð?

Ég frétti að faðir þinn ætli að halda leika mér til heiðurs.

Leikarnir eru til heiður erfingja hans.

Eins og ég sagði.

Nýjum erfingja hans.

Uns móðir þín ber honum son

sitjið þið öll uppi með mig.

Þá vonast ég eftir bróður.

Ég færi þér svolítið.

Veistu hvað þetta er?

Þetta er Valyríustál.

Eins og Dökka Systir.

Snúðu þér við.

Núna...

eigum við bæði ögn af ætterni okkar.

Gullfallegt.

Lastu það? -Auðvitað las ég það.

Hverjum giftist Nymeria prinsessa þegar hún kom til Dorn?

Manni. -Hvað hét hann?

Eitthvað lávarður.

Ef svarið verður „Eitthvað lávarður“ verður Systir Marlow öskuill.

Hún er fyndin þegar hún er öskuill.

Þú ert alltaf svona þegar þú ert áhyggjufull.

Hvernig?

Fráhrindandi.

Þú óttast að falla í skugga sonar föður þíns.

Ég óttast bara um mömmu.

Ég vona að faðir minn eignist son.

Hann hefur þráð það svo lengi sem ég man.

Viltu að hann eignist son?

Mig langar að fljúga með þér á baki dreka,

sjá hin miklu undur handan Mjóahafs og borða einungis kökur.

Mér er alvara. -Ég gantast aldrei með kökur.

Óttastu ekki um stöðu þína?

Ég kann að meta þessa stöðu. Hún er nokkuð þægileg.

Hvert ertu að fara? -Heim. Það er orðið framorðið.

Nymeria prinsessa leiddi Rhoynar-flokk yfir Mjóahaf á tíu þúsund skipum

á flótta undan eftirför Valyríumanna.

Hún tók sér Mors Martell, lávarð af Dorn, sem eiginmann

og brenndi eigin flotta úti við Sunnuvigur

til að sýna fólki sínu að flóttanum væri lokið.

Hvað ertu að gera? -Svo þú manst.

Ef Systirin sér bókina. -Fari hún til fjandans.

Rhaenyra!

Grær það?

Það hefur vaxið ögn, yðar tign.

Geturðu sagt til um hvað þetta er?

Við sendum fyrirspurn til Borgríkisins.

Þeir leita í ritunum að svipuðu tilfellum.

Þetta er smá fleiða eftir hásætið. Þetta er ekki neitt.

Konungurinn hefur verið undir miklu álagi við undirbúning fæðingarinnar.

Þungt hugarástand getur haft slæm áhrif á líkamann.

Hvað sem það er má það ekki fréttast.

Við ættum að reyna fleiri iglur.

Þetta er sár sem neitar að gróa, Stórmeistari.

Mætti ég leggja til að brenna fyrir það?

Það gæti reynst árangursríkt, yðar tign.

Það verður sárt. -Gott og vel.

Gott og vel.

Þú verð meiri tíma í baðkarinu en á hásætinu.

Þetta er eini staðurinn sem veitir mér hvíld þessa dagana.

Þetta er hlandvolgt.

Eins heitt og meistararnir leyfa.

Vita þeir ekki að drekar kjósa hita?

Eftir þessa voluðu meðgöngu

kæmi mér ekki á óvart þótt ég ungaði út dreka.

Og hann yrði elskaður og dáður.

Rhaenyra hefur þegar sagt að hún muni eignast systur.

Er það?

Hún hefur þegar nefnt hana.

Þori ég að spyrja?

Visenya.

Hún valdi drekaegg sem vöggu sem hún sagði minna sig á Vhagar.

Guðirnir séu oss náðugir.

Fjölskyldan á þegar sína Visenyu.

Hefur eitthvað heyrst frá bróður þínum?

Ekki síðan ég tilnefndi hann foringja Borgarvaktarinnar.

Hann lætur vafalaust sjá sig á leikunum.

Hann getur aldrei staðist burtreiðarvellina.

Leikar?

Til heiðurs fyrsta syni þínum sem þú hefur enn ekki eignast?

Þú skilur vonandi

að barninu mun ekki vaxa skaufi ef það fæðist ekki með slíkan.

Þetta er drengur, Aemma.

Jæja? -Ég er handviss um það.

Ég hef sjaldan verið jafn viss um nokkuð.

Draumurinn... Skýrari en nokkur minning.

Sonur okkar fæddur berandi járnkrúnu Aegons.

Ég heyrði dynjandi hófatök,

skildi klofna og sverð klingja.

Og ég lagði son okkar á Járnveldisstólinn

og allar bjöllur Stórahofs glumdu og allir drekarnir öskruðu sem einn.

Fæddur með kórónu á höfði.

More Icelandic subtitles for House of the Dragon

Maoni

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left