முதல் 200 வரிகள்.
Drífið ykkur, þessa leið. Tryggið ykkur miða.
Ekki missa af þessu. Komið hingað.
Sjáið helstu furðuverkin frá öllum heimshornum.
Atriði sem vekja gleði, spennu og dulúð.
Gangið inn í töfraheiminn.
Hún er hérna í eigin persónu, dömur mínar og herrar,
skotfima og sykursæta skyttan frá villta vestrinu.
Hann hefur ferðast um heiminn og heillað krónprinsa í Evrópu.
Þið verðið agndofa og furðu lostin.
Hinn mikli og máttugi Oz.
Ég vissi að skemmtibransinn væri ætlaður mér.
Sjáðu mig nú. Aðstoðarkona töframanns.
Fyrir aðeins klukkustund seldi ég olíukökur á miðsvæðinu.
Tækifærin birtast þegar maður á síst von á þeim.
Þvílíkur búningur.
Þú þarft ekki á þessu að halda. Þú leikur einfalda sveitastúlku.
Gjöf í tilefni frumraunarinnar.
Amma mín átti þetta.
Keisaraynja frá Mirkútsk og heiðruð stríðshetja.
Amma þín?
Já, hún féll í orrustu, aumingja garmurinn.
Hvaða orrustu?
Hvaða orrustu?
Þær eru svo margar.
Hefurðu heyrt um orrustuna við Kreplach?
Nei.
Ekki? Fínt er. Þar féll hún.
Spiladósin er það eina sem hún lét eftir sig.
Ég veit að amma hefði viljað að þú fengir hana.
Prófessor.
Sokkurinn er á hurðarhúninum. Við erum að æfa okkur.
Hversu oft þarf ég að segja þér að banka?
Bankaðu.
Ég bankaði.
Hvað nú? - Sýningin er hafin.
Því sagðirðu það ekki?
Aðeins hálfur salur. Þetta er ágóðinn.
Sorglegt.
Þetta er þinn skerfur.
Fagnaðarlætin ættu að nægja þér.
Hvernig heldurðu að mér líði?
Slíkur hæfileikamaður ætti að skemmta á Orpheum-túrnum.
Ekki í einhverju krummaskuði
í notuðum jakka sem rifnar í sundur.
Þú verður að lappa upp á hann.
Aftur? - Já.
Áfram nú. Hattinn.
Hatturinn.
Ert þú nýja stúlkan?
Já.
Gott, okkur vantaði nýja. Sú síðasta yfirgaf okkur.
Greyið var með kramið hjarta.
Hún fékk hjartaáfall.
Hún hvílir sig í Abilene.
Henni er spáð fullum bata.
Viltu fara til hennar?
Mundu að þegar ég óska eftir sjálfboðaliða...
Þá rétti ég upp hönd.
Þú ert of hæf í þetta starf.
Förum að töfra.
Dömur mínar og herrar, sýningin er hafin.
Það eru örfá sæti laus.
Ekki missa af tækifærinu til að sjá hinn mikla og máttuga Oz.
Ferðist með mér yfir eyðimerkursanda
til dularfullra landa á Arabíuskaganum.
Í fimm þúsund ár...
hefur einmana andi hennar setið fastur.
En í kvöld reynum við að frelsa hana.
Mig vantar sjálfboðaliða úr áhorfendahópnum.
Einhver?
Einhver?
Hvað með þig, fröken?
Já, ég vil bjóða mig fram.
Fallegt af þér. Komdu hingað.
Mundu hvað ég sagði þér.
Einföld sveitastúlka, dömur mínar og herrar.
Þú hefur ekkert að óttast ef þú aðeins trúir.
Þegar þú trúir...
er allt mögulegt.
Þú ert orðin syfjuð.
Augnlokin þyngjast.
Sofðu.
Komdu, Fernanda.
Leyfðu þér að sameinast konunni fyrir framan mig.
Heyrirðu til mín, Fernanda drottning?
Já.
Þá skaltu rísa.
Rístu.
Ég skipa þér að rísa.
Rístu upp úr sandgröfinni.
Lát andann rísa...
Ég sé vírinn.
Það er rangt, herra.
Alls ekki.
Ég sé vírinn sem heldur henni uppi.
Vír?
Ég sé hann líka. Hann er þarna.
Það er greinilegt. - Sjáið þið það ekki?
Hann platar okkur
Vír.
Hvaða þörf hef ég fyrir víra? Frank.
Hjálpaðu mér að ganga.
Hvað segirðu?
Hjálpaðu mér að ganga.
Ekki núna. Yfirgefum undraheim...
En ég trúi á þig.
Þetta er ekki mikið en þetta er aleiga okkar.
Hvað sem þú getur gert.
Ég myndi gera þér kleift að ganga en...
Það er bara...
Læknaðu stelpuna.
Gerðu það.
Áfram, loddarinn þinn.
Gerðu það.
Ég myndi auðvitað hjálpa henni að ganga
en það eru því miður truflanir í ljósvakanum í kvöld.
Hjálpaðu henni að ganga, loddarinn þinn.
Sko.
Því miður...
Takk fyrir.
Hinn mikli og máttugi Oz.
Því dróstu ekki fyrr fyrir tjaldið?
Þau slátruðu mér.
Þú gast ekkert gert. Mér fannst þetta ekki svo slæmt.
Auðvitað ekki. Þú ert bara þjálfaður api.
Þú ættir ekki að vera svona vondur við mig, prófessor.
Ég er eini vinur þinn.
Vinur?
Þú ert ekki vinur minn, Frank. Ég þarf enga vini.
Ég þarf mann sem veit hvenær hann á að draga fyrir tjaldið.
Þetta er kona.
Loksins góðar fréttir.
Á ég að trekkja spiladós?
Nei.
Ekki handa þessari, Frank.
Sæl, Annie.
Sæll, Oscar.
Mikið líturðu vel út.
Takk.
Er þetta köflótt bómull?
Þú veist það.
Sýningin var yndisleg.
Ekki segja mér að þú hafir séð þetta klúður.
Því sagðirðu aumingja stúlkunni ekki sannleikann?
Að ég sé loddari? Þau hefðu tekið mig af lífi.
Það sem verra er, þau hefðu heimtað endurgreiðslu.
Fáðu þér sæti.
Ég skal gefa þér te.
Langt síðan síðast. Ég hef ekki séð þig síðan...
Síðan þú komst síðast í bæinn?
Það nægir mér ekki að hitta þig á nokkurra mánaða fresti.
Þetta er farandsirkus.
Hvernig gengur í sveitinni? Hvað segir mamma þín?
Hún sendi enga böku. Vonandi er hún ekki reið.
Ég ætlaði að skrifa þér.
Ég þarf að segja þér svolítið, Oscar.
Þetta er aldrei góð byrjun á samtali.
John Gale bað mig að giftast sér.
Þess vegna kom ég.
Ég vildi að þú vissir það.
Það er alveg yndislegt að heyra, Annie.
Ég sagðist þurfa að íhuga það.
Svarið sem allir karlmenn vilja heyra.
Ég velti fyrir mér hvað þér fyndist um þetta.
Það eru margir verri en John Gale.
Hann er góður maður.
Það ert þú líka.
Nei.
Ég er það ekki.
Ég er ýmislegt en ekki góður maður.
Þú gætir verið það.
Ef þú vildir það.
Það er heila málið.
Ég vil það ekki.
Það er feikinóg af góðum mönnum í Kansas.
Kirkjuræknum mönnum sem kvænast og eignast börn.
Það eru menn eins og John Gale.
Menn eins og faðir minn.
Hann yrkti jörðina alla ævi sína
til þess eins að deyja með andlitið í svaðinu.
Ég vil það ekki, Annie.
Ég vil ekki vera góður maður heldur stórkostlegur maður.
Ég vil vera Harry Houdini og Thomas Edison,
allt í einum manni.
Það er það eina sem ég óskaði þér.
Mikilfengleiki.
Þá skilurðu þetta.
Ég geri það.
Skilur þú það?
Líttu út um gluggann, prófessor.
Ekki, Vlad. Amma hans átti þetta.
Ég slít hann í sundur.
Nei, ekki. - Farðu.
Hans. Það er ekkert á milli okkar.
Oz!
Ég verð að fara.
Til hamingju með trúlofunina.
Oscar.
Ég sé þig í draumum mínum.
Oz.
No comments yet. Be the first to leave one.