200 บรรทัดแรก
2015 - FYRSTA VARANLEGA NÝLENDAN Á TUNGLINU.
2032 - NÁMUVINNSLA EINKAAÐILA HEFST Á MARS.
2040 - GEIMRANNSÓKNARSKIPINU „EVENT HORIZON“ SKOTIÐ Á LOFT
TIL AÐ KANNA ENDAMÖRK SÓLKERFISINS.
ÞAÐ HVARF SPORLAUST
HANDAN ÁTTUNDU PLÁNETUNNAR, NEPTÚNUSAR.
ÞETTA ER VERSTA SKRÁÐA SLYSIÐ Í GEIMNUM.
NÚNA...
Claire.
Ég sakna þín.
Dr. Weir, gefðu þig fram í Lewis & Clark á tengikví 4.
DAYLIGHT STÖÐIN: LÁGT Á BRAUT UM JÖRÐ
LEWIS & CLARK
LEIT OG BJÖRGUN
- Jónadrifið til reiðu. - Takk fyrir.
HÁLEYNILEGT
Stefna: Vektor einn, níu gráður.
Við erum tilbúin til að setja niður stefnu.
Ég trúi þessu ekki, þetta er fáránlegt.
Ég hef bara fengið Lóu Fimmboga í sex vikur, og núna þetta helvíti.
Því getum við ekki farið til Mars, stjóri?
- Það eru konur á Mars. - Það er rétt hjá Smith.
Það er ekkert á Neptúnus.
Og ef allt fer til fjandans erum við á eigin vegum.
Þið þekkið reglurnar.
Einhver gerir mistök og lögum það. Af stað.
- Hefur stefnan verið sett? - Já, herra.
- Sett inn og allt til reiðu. - Hr. Justin?
Allt grænt hjá mér stjóri.
Hefja niðurtalningu núna.
Jónadrifið fer af stað eftir T mínus 10 mínútur.
Þakka þér, undirforingi.
Af stað.
- Smith, fylgdu mér. - Já, frú.
- Justin, hafðu tankana tilbúna. - Já, herra.
- Hr. Cooper. - Stjóri.
- Jónadrif klárt eftir 10 mínútur. - Tími til að bregða sér í dósina.
- Stjóri. - Peters.
Miller stjóri, ég vildi bara segja að þetta er...
Tíminn líður, doktor.
Ertu að bíða eftir persónulegu boði, hr. Smith?
- Nei, herra. - Skipstjóri, ég vil ekki...
Læknir, þú eltir bara áhöfnina að þyngdaraflsgeymunum,
við erum að fara af stað.
Eins gott að kojan sé tilbúin, hr. Cooper,
eða þú gæti eins gengið til Neptúnusar.
Hvað tefur, Peters?
Er að hlaða síðasta koltvísýringshreinsarann, herra.
Stattu þarna.
Takk, D.J.
- Engin höfuðföt í geymum. - Herra.
- Fyrsta skipti í hvíldargeymi? - Já.
Ég held að skipstjóranum sé eitthvað illa við mig.
Hafðu ekki áhyggjur af honum.
Hann elskar að hafa ókunnuga á skipinu sínu.
- D.J. - Já.
Nei.
Er þetta nauðsynlegt?
Þegar jónadrifið fer af stað verður þrýstingurinn gífurlegur.
Án geymis myndi hann þrýsta öllum vökva úr beinagrindinni.
Ég hef séð áhrifin á mýs.
Með innilokunarkennd?
Mikla.
56 DAGAR Á FERÐ
Billy.
Ég er svo alein.
Halló?
Er einhver þarna?
Guð minn góður.
Billy?
Mér er svo kalt.
Claire.
Ég bíð.
Þú ert í lagi. Andaðu. D.J.!
- Dr. Weir, náum þér upp. - Ég er í lagi.
- Rólegur. - Allt í lagi.
Allt í lagi. Svona.
Hreyfðu þig varlega. Þú varst í geymslu í 56 daga.
Þú átt eftir að verða svolítið ruglaður, skilurðu?
- Ég er í lagi núna, takk. - Allt í lagi, taktu þetta. Rólega.
Taktu við.
Ertu í lagi, doksi?
- Viltu kaffi? - Hvað?
Viltu kaffi?
Nei, takk.
Eins og þú vilt.
Hvað með þig, Starck?
Viltu fá eitthvað heitt og svart inn í þig?
- Er þetta tilboð? - Nei.
- Hvað með smá kaffi þá? - Starck?
- Já, herra. - Því ertu ekki í brúnni?
Má ég klæða mig fyrst?
Mér er reyndar ekki sama, undirforingi.
Áfram með ykkur, við höfum verk að vinna.
Allt í lagi, Denny, af stað. Til hamingju með afmælið.
Leiktu hest, mamma. Leiktu hest.
Boltaleikur bannaður í húsinu.
Það ert þú sem getur ekki gripið.
- Biddu afsökunar. - Fyrirgefðu, mömmubangsi.
Allt í lagi þá.
- Peters. - Já, herra.
Ég reyndi að finna afleysingarmann fyrir þig,
en það var ekki hægt með svo stuttum fyrirvara.
Mér þykir það leitt.
Ég talaði við minn fyrrverandi. Hann ætlar að hafa Dennis um jólin.
Ég fæ hann í sumar svo...
allt er í lagi.
Smitty.
Afsakið mig, dömur mínar og herrar,
eftir um 2 stundir og 23 mínútur,
verðum við á sporbraut um Neptúnus. Takk fyrir.
- Þakka þér. - Það er gott.
Öll ljós eru græn. Allt er í lagi.
- Hefur U.S.A.C. verið látið vita? - Já, herra.
- Allt í lagi, hlustið, fólk. - D.J.
Eins og þið vitið höfum við viðbót við áhöfnina.
Dr. Weir, viltu slást í hópinn?
Kynnum alla. Þetta er næstráðandi, Starck undirforingi.
Hr. Justin, vélstjóri.
Þessi geimvera þarna er hr. Cooper.
Hvert er nákvæmlega hlutverk þitt um borð, Coop?
Hlustaðu, doksi, ég er besti vinur þinn.
Ég er bjargvættur og hjartagull.
Hann er björgunartæknir.
Þetta er Peters, hjúkrunartæknir. Og flugstjórinn, hr. Smith.
Og fýlupúkinn þarna í horninu er...
D.J. Áfallahjálp.
Allt í lagi, allt í lagi.
Nú þekkjumst við öll. Stjóri, ég er með spurningu.
Hvað í andskotanum erum við að gera hérna?
Kannski doktorinn góði geti svarað því.
Takk fyrir.
Fyrst vil ég segja hve vel ég kann að meta
- tækifærið til að vera með ykkur... - Vissulega
metur þú að vera hérna, doktor, en við gerum það ekki, þú skilur það.
Við misstum af verðskulduðu fríi
og vorum send til Neptúnusar.
Það eru þrír milljarðar kílómetra í næstu útstöð.
Síðast þegar U.S.A.C. reyndi björgun svo fjarri,
glötuðust bæði skipin. Þannig að ef þér væri sama...
Allt í lagi. Nú...
Allt sem ég mun segja ykkur er há-leyndarmál hjá NSA.
U.S.A.C. náði sendingu
frá hnignandi sporbraut um Neptúnus.
Uppruni þessarar sendingar hefur verið uppgötvaður
og er Event Horizon.
Nú, það er nú kjaftæði.
- Stjóri, þú tókst mig úr fríi... - Nú er mér nóg boðið.
Smitty, sestu niður.
Cooper, til baka.
Leyfið manninum að tjá sig.
Það sem var gert opinbert um Event Horizon,
var að það væri djúp-geims rannsóknarskip
og kjarnofn þess hafi bilað og skipið sprungið í loft upp,
ekkert af því er satt.
Event Horizon var hápunkturinn á leynilegu verkefni ríkisstjórnarinnar
sem miðaði að sköpun geimfars sem flygi hraðar en ljósið.
Ég skil... Afsakið mig. Það er reyndar ekki hægt.
Afstæðislögmálið útilokar hraða umfram hraða ljóss.
Afstæðislögmálið, já. Við getum ekki brotið það.
Við getum farið í kringum það.
Skipið fer í raun ekki hraðar en ljósið.
Það skapar víddarhlið
sem gerir því kleift að stökkva fljótt
frá einum stað í heiminum til annars í ljósára fjarlægð.
Hvernig?
- Nú, það er erfitt... Allt stærðfræði. - Gefðu okkur séns, doktor.
Nú, á leikmannamáli,
þá notum við færanlegt segulsvið
til að beina þyngdaröreindageisla. Það beygir geimtíma,
í samræmi við Weyl þinil-aflvirkni,
þar til geimtíma sveigjan verður óendanlega stór
og til verður sérstaða. Sérstaðan...
Leikmannamál.
Til andskotans með leikmannamál. Talarðu ensku?
Ímyndið ykkur í eina mínútu að þetta blað...
Afsakaðu mig. Þetta er Vanessa og ég á þetta.
Þetta aðlaðandi blað sé geimtími
og þið viljið komast frá stað „A“, hér
að stað „B“ hér.
Hver er stysta leiðin milli þessara tveggja punkta?
Bein lína.
Rangt.
Stysta leiðin á milli tveggja punkta er núll.
Það er það sem víddarhliðið gerir.
Það beygir rúmið.
Þannig að punktur „A“ og punktur „B“ verði á sama stað og tíma.
Þegar geimskipið fer í gegnum víddarhliðið
verður geimurinn aftur eðlilegur.
Þetta er kallað þyngdaraflsdrif.
- Hvernig veistu allt þetta? - Ég byggði það.
Ég skil af hverju þeir sendu þig.
Ef skipið sprakk ekki, hvað gerðist þá?
Ferðin gekk vel, alveg snurðulaust.
Þeir komust í örugga fjarlægð með hefðbundnum hætti.
Öll kerfi virtust virka.
Þeir höfðu grænt ljós á að nota þyngdaraflsdrifið
og opna víddarhlið til Proxima Centauri
og þá hurfu þeir einfaldlega.
Hurfu, sporlaust, þar til núna.
No comments yet. Be the first to leave one.