200 บรรทัดแรก
BYGGT Á SANNRI SÖGU
Fjárinn...
Ég veðja hundrað að ég sting þá af.
Þú skuldar mér hundrað dali. - Hvað þá?
Þögn þín samþykkti veðmálið. Þú veist það.
Fjárinn!
Stígðu út úr bílnum.
Stígðu út úr bílnum.
Sýndu mér hendurnar! - Hendurnar á mér eru hérna.
Við erum á leiðinni á spítalann. - Hendur!
Stígðu frá!
Heyrðu... Hlustaðu á mig!
Hættu að streitast á móti! - Ég er ekki að því!
Komdu út úr bílnum! Upp með hendurnar og komdu út úr bílnum!
Hann getur það ekki! Því opnarðu ekki augun?
Skoðaðu merkið!
Af hverju heldurðu að hann sitji þarna svona rólegur?
Það er stóll, aðstoðarvarðstjóri.
Vel gert, Columbo. Díng, díng, díng, díng, díng.
Hann er lamaður á höndum og fótum.
Við erum á leiðinni á spítalann.
Maðurinn er í flogakasti.
Drottinn minn.
En verið ekkert að flýta ykkur.
Hann hefur örugglega nokkrar mínútur áður en rauðastjarfinn kemur.
Dauðastjarfinn.
Það er rauðastjarfi!
Fjarkar eru þegar lamaðir svo þetta er sérstakt hugtak.
Standið þið virkilega enn allir hér?
Kannaðu hann.
Við erum í vanda.
Þið lendið í meiri vanda ef ég kem honum ekki á spítalann.
Kallaðu á sjúkrabíl. - Heldurðu að sjúkrabíll sé fljótari
en þessi bíll?
Búmm!
Jesús. Þú seldir þetta aldeilis vel.
Rauðastjarfi?
Við létum vita af komu ykkar. Þau koma út með sjúkravagn.
Allt í lagi? - Allt í lagi.
Hann nær sér. - Þakka þér fyrir.
Hvað nú?
SEX MÁNUÐUM ÁÐUR
Þarna.
Allt þetta er algjör tímasóun.
Hvað átti ég að gera? Þú gast ekki andað.
Nákvæmlega.
Yvonne. Ég sagði engin róttæk úrræði.
Ítrekað.
PAMELA DAVIS SKILORÐSFULLTRÚI
Hvar eru undirskriftirnar?
Ég hef verið að leita. Treystu mér.
Ég fæ ekki borgað fyrir að treysta þér. Viltu fara aftur í fangelsi?
Ég átti ekki heima í fangelsi. - Þú þarft að sanna að þú leitir að vinnu.
Ég er að því.
En tillögurnar sem tölvan velur fyrir mig
henta mér ekki.
Tölvan þekkir mig ekki.
Þú þekkir mig ekki.
Ég þekki þig, Scott.
Og þú þarft þrjár undirskriftir fyrir morgundaginn
eða þú getur sagt dómaranum það.
Hvað merkingu hefur þjónusta við viðskiptavini í þínum huga?
Að gera það rétta. Ég veit ekki.
Segðu mér frá því þegar þú lagðir hart að því að leysa vandamál.
Í morgun. Að fara á fætur.
Viltu yfir höfuð vinna hér?
Ég þarf bara undirskrift.
Ekki gefast upp!
Svona? - Já, þetta ætti að duga.
Af hverju eru kokkurinn minn og maðurinn hennar að þessu?
Af því að þú rakst David?
En við erum með frábærar ferilskrár fyrir Lífshjálparfólk
og við finnum einhvern fyrir þig.
Einhvern sem þér líkar við.
HÚSVÖRÐUR
Ég á viðtal við herra LaCasse.
Sama.
Fyrsta lyftan. Ég sendi hana upp fyrir ykkur.
Bíddu við. Fer hún upp?
Ertu hér fyrir þrifastarfið?
Lífshjálp.
Lífs hvað? - Hjálp.
Kallast þetta núna það?
Hvítt fólk er með nöfn fyrir allt.
Þakíbúðin?
Að sjá þessa íbúð.
Hey.
Ertu að biðja mig að færa mig?
Nema hvað ég er ekki að biðja. Færðu þig, maður.
Á þetta gigg ekki að vera fyrir alla bygginguna?
Nei, bara fyrir hann. Herra LaCasse.
Og þú klæddir þig í sparifötin til að sveifla kústinum hans?
Svo...
hvað viltu segja okkur?
Ég tek samband mitt við skjólstæðinga mína mjög persónulega.
Í alvöru, ég meina...
Og faglega líka, vitaskuld.
Ég heyri ekki " örorka".
Ég heyri "fjörorka"
Leyfðu mér að vera hendur þínar, handleggir og fætur.
Leyfðu rýminu þar sem þú byrjar og ég enda
að vera bæði óendanlegt og örsmátt.
Frábært!
Gott og vel...
Bókin þín breytti mér.
Svo ég hugsaði með mér, jafnvel þó ég fái ekki starfið
get ég fengi eiginhandaráritun.
Hvernig myndirðu fá eiginhandaráritun?
Það er áhugaverð hugmynd
að stóllinn er myndlíking fyrir orku.
Spurningin er ekki hvað var tekið frá þér.
Heldur hvað þér var gefið.
Ég var hjá fyrri skjólstæðingi mínum í 18 ár.
Það er ekki hægt að losna við mig.
Ég á krakka, svo þvottur? Já.
Að mata? Já. Sull og slys? Já. Já.
Ég nam félagsfræði. - Ég þarf að sækja krakkann minn.
Maður greinir ekki alltaf hvað er að einhverjum með því að horfa á hann.
Segðu mér meira frá...
fyrri... Afsakaðu!
Hvað ertu að gera? - Slakaðu á.
Þetta er ekki rán.
Þó þið hafið verið að ræna mig tíma
í nærri klukkustund þarna frammi.
Ég þarf að sækja barnið mitt.
Þú þarft að bíða þar til kemur að þér.
Ég þarf bara uppáskrift. Það tekur þig enga stund, kona.
Ertu með sendingu?
Já. Starfsumsóknarskjal.
Það þarf bara einhver að kvitta á það. Framkvæmdastjórinn eða eigandinn.
Ert það þú?
Nei, það ert ekki þú. Ert það þú, stjóri?
Já.
Frábært, maður. Kvittaðu hérna, takk.
Hvernig á ég að skrifa undir?
Það veit ég ekki. Hægt?
Virka handleggirnir á þér ekki? - Nei.
Hvað um þig, ljúfa?
Af hverju þarftu undirskrift?
Ég þarf ekki undirskrift. S.F.-inn minn þarf undirskrift.
Þú ættir líklega að skrifa símanúmerið hérna.
Ef hún vill hringja eða spyrjast fyrir.
Þá virðist ég hafa gert það sem ég sagðist ætla að gera.
Og ef hún spyr, segðu bara að fjallmyndarlégur umsækjandi
hafi komið hingað en þið voruð ekki að leita að ofurfyrirsætu.
Afsakaðu, hver gæti hringt?
S.F.-inn minn. - S.F.?
Skilorðsfulltrúinn hans.
Hvaða svipur er þetta?
Ekki dæma mig. Ég hef ekki dæmt þig.
Viltu hafa okkur aðeins afsökuð?
Þakka þér fyrir.
Ég þarf að sækja krakkann minn.
Því færðu þér ekki sæti?
Nei, ég hef það fínt.
Svo þú þarft undirskrift. Þarftu ekki starf?
Ég þarf hvort tveggja.
Fáðu þér þá sæti.
Vinsamlegast.
Hefurðu unnið við svona lagað áður?
Ég hef unnið öll störf sem hægt er að fá með sakaskrá.
Fyrir hvað sastu inni?
Þú mátt ekki spyrja mig að því í viðtali.
Segir? - Segir stjórnarskráin.
Satt að segja, fyrst þú spurðir mig að því
verðurðu að bjóða mér starfið.
Allt í lagi.
Allt í lagi?
Allt í lagi. Ég býð þér stöðuna.
Hvað þá? Philip. Hvað ertu að gera?
Ég er að bjóða honum stöðuna.
Jæja?
Ég vil ekki verða húsvörðurinn þinn.
Húsvörður? Nei, nei. Við erum að ráða Lífshjálp.
Ha? Hvað er það?
Hann veit ekki um hvaða starf hann er að sækja.
Ég þarf aðstoð. Handleggir mínir virka ekki, eins og þú tókst eftir.
Ekki heldur fætur mínir.
Ég get aðeins hreyft hálsinn.
Þú getur hreyft munninn.
Líkt og þú.
Hvað þýðir það? Þarf ég að bera þig út um allt?
Þú þarft að flytja mig í stólinn minn, í rúmið mitt og í bílinn.
Það væri eitthvað um ferðalög, hafirðu áhuga á slíku.
Nei.
Ég ferðast nógu mikið nú þegar. Tók mig klukkutíma að komast hingað.
Einmitt.
Heyrðu, mér finnst plantekran þín rosalega flott
en því miður vil ég ekki vera þjónn neins
svo hvað um að þið kvittið bara á skjalið mitt
og ég hugsa svo um tilboðið?
Við getum ekki undirritað skjal og sagt að þú sért að leita að starfi
ef þú hafnar starfinu sem ég bauð þér.
Ég veit að þú getur það ekki en hvað um spúsuna þína?
Spúsuna mína?
Yvonne er ekki spúsan mín.
Ertu það, Yvonne? Ertu spúsan mín? - Nei, ég er ekki spúsan þín.
Heyrðu, því tekurðu ekki kvöldið í að hugsa málið?
Komdu aftur á morgun tilbúinn að vinna
eða við undirritum skjalið.
No comments yet. Be the first to leave one.