200 บรรทัดแรก
Blake.
Blake.
Afsakaðu, liðþjálfi.
Veldu einn mann. Takið búnaðinn með ykkur.
Já, liðþjálfi.
Ekki slóra.
Nei, liðþjálfi.
Fengum við mat?
Nei, bara póstinn.
Það er kominn kaffitími.
Myrtle er hvolpafull.
Fékkst þú eitthvað?
Nei.
Ég er glorhungraður. Hvað með þig?
Ég hélt að við fengjum almennilegan mat hérna.
Þess vegna kom ég hingað frekar en að læra til prests.
Hvað er þetta? -Skinka og brauð.
Hvar fékkstu þetta?
Ég hef mínar leiðir.
Hérna.
Bragðast eins og gamall skór.
Vertu kátur. Í næstu viku gæðum við okkur á kjúklingi.
Ekki ég.
Leyfið mitt var afturkallað.
Veistu hvers vegna?
Ekki hugmynd.
Það er auðveldara að fara ekki heim.
Gætið ykkar.
Farið frá.
Farið í höfuðstöðvarnar.
Það er eitthvað á seyði. Hefurðu heyrt eitthvað?
Nei.
Hlýtur að vera árásin.
Ég veðja hálfu pundi á að árásin sé að hefjast.
Ég tek ekki veðmálinu.
Því að þú veist að ég hef rétt fyrir mér?
Nei, því að þú átt ekki hálft pund.
Takið ykkar tíma í þetta.
Einhverjar fréttir, liðþjálfi? -Fréttir af hverju?
Stóru árásinni sem átti að vera fyrir mörgum vikum.
Þeir sögðu að við kæmumst heim fyrir jól.
Mér þykir leitt að raska áætlunum þínum
en yfirmennirnir vildu ekki gera þetta í snjónum.
Það er synd og skömm því mig langaði í kalkún.
Ég kem vonbrigðum þínum áleiðis til yfirstjórnar.
Hvað er á seyði, liðþjálfi?
Húnarnir eru eitthvað að bralla.
Veistu hvað?
Nei, en þetta á eftir að eyðileggja helgina.
Takið nú eftir.
Erinmore er inni. Verið snyrtilegir.
Aldrei að vita nema þið verðið nefndir í skeytunum
ef þið klúðrið þessu ekki.
Hlýtur að vera stórmál ef hershöfðinginn er kominn.
Undirforingjarnir Blake og Schofield, herra.
Hvor ykkar er Blake? -Herra.
Er bróðir þinn liðsforingi í Öðru Devon-herfylki?
Já, herra. Joseph Blake. Er hann...?
Ég veit ekki betur en að hann sé á lífi.
Ég vil halda því þannig með þinni aðstoð.
Sanders segir að þú sért læs á kort. Er það satt?
Nógu læs, herra.
Sko...
Við erum hérna.
Annað Devon-herfylki sækir fram hérna.
Hvað ertu lengi að komast þangað?
Ég skil ekki, herra.
Þetta svæði er á valdi Þjóðverja.
Þjóðverjarnir eru farnir.
Ekki vera of vongóðir.
Þetta virðist vera úthugsað undanhald.
Þeir virðast hafa myndað nýja Línu 14,5 km aftar.
Mackenzie ofursti fer fyrir Öðru herfylki.
Hann sendi boð um að hann ætlaði að fara á eftir Þjóðverjunum.
Hann telur sig hafa rakið þá á flótta
og að við vinnum orrustuna ef hann sundrar fylkingunni.
Honum skjátlast.
Mackenzie ofursti hefur ekki séð loftmyndir af nýju línunni þeirra.
Komið hingað, herrar mínir.
5 km löng Lína skotgrafa og varnarvirkja
og öflugra stórskotalið en við höfum nokkurn tíma séð.
Þeir ætla að ráðast þangað skömmu eftir dögun í fyrramálið.
Þeir hafa ekki hugmynd um hvað bíður þeirra.
Við getum ekki varað þá við.
Óvinurinn gaf okkur þá kveðjugjöf að klippa á símalínurnar.
Þið eigið að finna Annað herfylki við Croisilles-skóginn
hálfum öðrum kílómetra suðaustan við bæinn Écoust.
Færið Mackenzie ofursta þetta.
Þetta er bein skipun um að hætta við árásina á morgun.
Ef ykkur tekst það ekki verður þeim slátrað.
Þá missum við tvö herfylki
eða 1.600 manns, þeirra á meðal bróður þinn.
Komist þið þangað í tæka tíð? -Já, herra.
Einhverjar spurningar?
Nei, herra. -Gott.
Yfir til þín, liðsforingi.
Birgðir, herrar mínir.
Kort, vasaljós, handsprengjur og örlítill glaðningur.
Fylgið þessari skotgröf vestur við Sauchiehall-stræti
og norðvestur Paradísarsund við víglínuna.
Farið eftir fremstu víglínu til Yorkshire-hersveitarinnar.
Færið Stevenson majór þetta.
Hann heldur línunni þar sem einskismannslandið er styst.
Þar farið þið yfir.
Þá er hábjartur dagur. Þeir sjá okkur.
Hafið engar áhyggjur. Þið mætið engri mótspyrnu.
Herra, förum við bara tveir?
Guðdómsvegurinn breiður og beinn
er greiðastur þeim sem ferðast einn.
Ekki satt, liðsforingi? -Jú, herra.
Gangi ykkur vel.
Blake, getum við aðeins rætt þetta?
Hvers vegna?
Blake!
Hugsum þetta til enda.
Það er ekkert að hugsa. Þetta er eldri bróðir minn.
Bíðum þar til það dimmir. -Erinmore sagði strax.
Erinmore hefur aldrei séð einskismannslandið.
Við komumst varla nokkur skref.
Ef við bíðum... -Þú heyrðir hvað hann sagði.
Þjóðverjarnir eru farnir.
Fengum við þess vegna handsprengjurnar?
Passaðu þig. -Afsakaðu.
Ég vil bara bíða aðeins.
Þú segir það vegna þess að þetta er ekki bróðir þinn.
Síðast þegar sagt var að Þjóðverjar væru farnir endaði það ekki vel.
Þú skilur það ekki, Blake. Þú varst ekki þarna.
Afsakið. Afsakið.
Afsakið.
Þú ferð upp niðurleiðina, hálfvitinn þinn.
Skipun frá hershöfðingjanum.
Segjum sem svo að þeir séu farnir.
Erum við ekki sex tíma að ganga 14,5 km?
Átta í mesta lagi.
Við getum beðið þar til sólin sest.
Þetta er óvinasvæði. Við vitum ekki hvað bíður okkar.
Ef við erum ekki skynsamir nær enginn til bróður þíns.
Ég næ til hans.
Við erum komnir. Þetta er víglínan.
Finnum Yorkshire-hersveitina.
ÓVINALEYNISKYTTUR
BEYGIÐ YKKUR Í DAGSBIRTU
Fyrirgefðu, vinur. -Jesús minn.
Ekki ýta mér. -Farðu frá.
Hvað ertu að hugsa að ýta særðum hermönnum?
Ég vissi það ekki. Slepptu mér.
Fíflið hrinti liðþjálfanum. Maðurinn er særður.
Allt í lagi. Mér þykir þetta leitt.
Við erum í sendiför. -Hleyptu mér áfram.
Að skipun hershöfðingjans. -Hleyptu mér áfram.
Farðu frá.
Allt í lagi. Farðu bara varlega.
Hér er ærandi þögn.
Var þetta svona fyrir Thiepval?
Ég man það ekki.
Manstu ekki eftir Somme?
Ekki beint. -Gætið ykkar.
Þú stóðst þig vel þar.
Þú ættir að bera orðuna þína.
Ég er ekki með hana.
Týndirðu orðunni þinni?
Gætið ykkar.
Haldið áfram að grafa.
Beygðu þig.
Í guðs bænum, gættu þín.
Þú traðkar á þeim látnu.
Þetta er liðþjálfinn okkar.
Það væri betra að skola þeim út með brunaslöngu.
Hvar er Yorkshire-hersveitin?
Eftir næstu beygju standið þið á hálfri hersveitinni.
Tættir í sundur í fyrradag.
Yorkshire?
Já, undirforingi.
Hvar er Stevenson majór?
Hann féll um daginn.
Leslie liðsforingi fer með stjórnina.
Hvar er hann?
Í næstu skotgröf.
Hérna.
Herra?
Leslie liðsforingi? -Hvað viltu?
Við færum skilaboð frá Erinmore hershöfðingja.
Eruð þið liðsaukinn? -Nei, herra.
Hvenær er von á þeim?
Við vitum það ekki en við eigum að fara yfir hérna.
Þetta er þýska víglínan. -Við vitum það.
Taktu við bréfinu.
Leysið úr veðmálinu. Hvaða dagur er í dag?
Föstudagur. -Enginn var með það rétt.
Fíflið giskaði á þriðjudag.
Afsakaðu, herra.
Eru þeir gengnir af göflunum?
Eitt róleg kvöld og þeir halda að Húnarnir séu farnir heim?
Skjátlast þeim, herra?
Við misstum yfirmann og þrjá aðra í fyrrinótt.
Skotnir í sundur við viðgerð á gaddavírnum.
Við drógum tvo til baka en það var óþarfi.
Hershöfðinginn er viss um að óvinurinn hafi hörfað.
Nýjar loftmyndir af línunni... -Þegiðu.
Við börðumst til þrautar um hvern þumlung hérna.
No comments yet. Be the first to leave one.