The Pitt

The Pitt

Icelandic সাবটাইটেল ডাউনলোড করুন

সিজন 2

রিলিজ তথ্য

The Pitt S02 1080p WEB h264-ETHEL
ভাষ্য লিখেছেন Hallow

ট্যাগ

webdl
প্রকাশিত: 2026-04-17
ডাউনলোড: 111
শ্রবণপ্রতিবন্ধীদের জন্য: No
FPS: 23.976

Icelandic সাবটাইটেল প্রিভিউ

প্রথম 200টি লাইন।

FJÓRÐI KLUKKUTÍMI 10:00-11:00

Karlinn á sínu svæði.

Hvað er hann að gera?

Gamall helgisiður, ætlað að nýta óþekktan uppruna

núverandi ástands á Westbridge.

Sá er giskar á ástæðu svarta kóðans vinnur pottinn.

Áhugavert.

- Gerðum þetta ekki á stofunni. - Já.

- Þinn leikur? - Auðvitað.

Hvernig lítur þetta út fyrir þér?

Ég veðja á flóð.

Það verður lokað í þrjá tíma og við fáum 20 sjúklinga þaðan.

Ég veðja á flóð, fjórir tímar og 30 sjúklingar.

Gott og vel.

Þú ert með samkeppni.

Já, svo virðist.

Nóg af gamninu. Við þurfum að sjá um fólk.

Viltu Langdon úr flokkun til að fjölga?

Nei. Ekki nauðsynlegt, held ég.

- Okkur gengur vel án hans. - Þú stýrir, stjóri.

Daniel Ortiz...

Næsti.

Hæ.

Læknagæinn sagði mér að setja þessa steinefnaolíu á augað í 20 mínútur.

Það eru liðnir tveir tímar.

Við erum önnum kafin, en það kemur að þér.

Guð minn góður. Hvenær?

Ég skal athuga. Hlustaðu eftir nafninu þínu.

- Takk. - Næsti.

Hæ. Ég frétti að bróðir minn væri hér.

Jackson Davis.

- Ertu með skilríki. - Já, já.

Ég er systir hans, Jada Davis.

Fyrirgefðu, ég bara...

Vinur minn sagði háskólalögguna hafa komið með hann.

Það brutust út slagsmál í skólanum.

- Er hann í lagi? Er hann hér? - Ég veit ekki.

En hann er sjúklingur hér?

Ég athuga það. Sestu og ég læt þig vita.

Gott og vel.

Næsti.

Svimar Harlow eða líður yfir hann núna?

Það er ekki eins slæmt og áður, en mér er enn illt í höfðinu.

Og núna líka í maganum.

Borðaði hún áður en hún tók ibuprofen?

Morgunverður er ekki...

Morgunverður er í minnstu uppáhaldi.

Það er í lagi að horfa á mig.

Ég bít ekki.

Fyrirgefðu.

Við ætlum að byrja á blóðprufum.

Verður í lagi með barnið af salerninu?

Hún mun spjara sig.

Góðar fréttir.

Sýni úr nefi neikvætt fyrir covid, inflúensu og RS-veiru.

En margar veirur geta orsakað hósta.

Ég heppin.

Þú mátt taka grímuna af.

Súrefnismettun 91.

Súrefnisstig hefur lækkað síðan við skoðuðum þig áðan

og hitinn er kominn yfir 39 gráður.

Við gefum þér tylenol.

Hefurðu farið út í dag? Kæfandi hiti.

Gæti tengst hitanum,

en við förum með þig aftur á bráðamóttökuna í fulla skoðun.

Getur þú ekki bara skrifað út fyrir einhverjum lyfjum?

Þetta er áreiðanlega bara kvef.

- Þarftu eitthvert? - Í vinnu.

Ég veit, það er laugardagur.

En ég held að ég hafi ekki átt frídag síðan...

Fríhelgin þín byrjar núna.

Heyrðu, Javadi.

Hvað gerir þú á afmælinu þínu?

- Hver kjaftaði? - Fiskisagan flýgur.

Ekkert. Ég þoli ekki að fagna afmælinu.

Verður 21 árs bara einu sinni.

Áttu afmæli?

Þá ertu í krabbamerkinu, ekki satt?

Átti ekki von á að þú værir stjörnumerkjastelpa.

Já, ég hef verið of mikið með Santos.

- Já. - Veit ekki hvernig þið farið að.

Að búa saman og vinna saman?

Það er minn kross að bera.

Getur ekki verið jafn slæmt og að búa hjá foreldrum.

Veit ekki. Hef ekki gert það í mörg ár.

Ég sakna þess.

Ég sé það. Þú hefur verið mikið á býlinu.

„Býlinu“?

Manstu eftir bóndanum sem brenndi sig í fyrra?

Gaskútur sprakk, hann dó á gjörgæslunni.

Já, sorglegt.

Þessi gæi hefur verið í heimilisleik með ekkjunni og barninu.

Það er sóðalegt.

Nei, það er ekki þannig.

Ég hef hjálpað Amy á býlinu eftir að hann dó

og hún er vinkona.

- Bara vinkona. - Já.

Bara vinkona, með býlisfríðindum.

Hvað eru býlisfríðindi?

Notaðu ímyndunaraflið.

Hefurðu séð mjaltavél?

Getum við sleppt þessu?

Við erum að fá tvær sendingar frá Westbridge,

brjóstverkur og magaverkur.

Robby vill fá ykkur þrjú.

- Takk fyrir. - Komið.

Santos læknir. Miðar þér ekki áfram með skráninguna?

Nálgast.

Slæm skráning er gat

fyrir þá sem taka við umönnuninni.

Seinkar útskrift reikninga.

Myndi ekki vilja seinka reikningum.

Skráning í tíma er mikilvæg.

Lögum þetta fyrir lok vaktar.

- Fer í það, stjóri. - Gott.

Þú vilt ekki endurtaka annað árið þitt út af þessu.

Fjandinn.

Guð, ógeðslega rakt úti.

Það er það.

- Hvað er í gangi á Westbridge? - Lokað þar

svo við tökum við sjúkraflutningum þar til þau opna aftur.

Eins og fríhelgi sé ekki nóg.

Al-Hashimi læknir...

Já?

Líkar okkur við hana?

Hún virðist fín ennþá.

Ertu að reyna að slúðra um lækni við lækni?

Robby er sama. Er það ekki?

Þetta er flott hjól.

- Takk fyrir. - Já.

Pamela Perry, 48 ára,

magaverkur með uppköstum eftir morgunverð og spælegg.

Blóðþrýstingur 108/64. Púls 98.

- Góð mettun. - Fínt.

Sjáum hvernig henni líður eftir zofram og lítra strax í æð.

- Náði því. - Whitaker.

Hvernig líður, frú Perry?

Ekki vel.

Hvern höfum við hér?

Jean Samba, 54, brjóstverkur vinstra megin í hálftíma.

Saga um háan blóðþrýsting, notar lisinopril og crestor.

Léttir með nítróglyseríni.

Þokkaleg lífsmörk, ekkert úr hjartaskoðun.

Gaf honum 324 af tyggjanlegu aspiríni.

Við ætlum að grandskoða þig.

Ef ég mun deyja, ef Guð leyfir, mun ég fara til himnaríkis.

- Hvað á að gera? - Aftur hjartaskoðun,

leita að skemmd, innlögn vegna hjartaverks.

- Meta lungnarek, ósæðarflysjun. - Þarf ekki að taka fram.

Hljómar vel. Ég er mínútu á eftir ykkur.

PITTSBURGH BRÁÐADEILDARSJÚKRABÍLL

- Hvern höfum við hér? - Vince Cole, 23,

féll um þakglugga í blómabúð,

þrír metrar ofan á burknabreiðu.

Höfuðverkur, endurtekur spurningar,

- bregst við sársauka. - Margir skurðir eftir glerið.

Blóðþrýstingur 118/72. Púls 98.

Mettun 99 á fimm lítrum.

Engin ofnæmi.

Vince, hvernig dastu í gegnum þakglugga?

Vince?

Varst þú með honum?

Já, við vorum í parkour og hann stökk of langt.

Stökkva af byggingum? Gerir fólk það enn?

Þetta varð næstum ólympíuíþrótt.

Nú vitum við af hverju ekki.

- Sjáöldur jöfn, viðbragð. - Hvað er þetta?

- Þriggja metra fall, skert meðvitund. - Hátt fall.

Þrír eru þröskuldur fyrir áverkamiðstöðina.

10% dánartíðni.

Núll, allt yfir núlli er áhyggjuefni.

Einhver er pirrandi, og það er ekki ég.

Þú sagðir tvo. Gleymdir einum.

Ég sendi aðstoð, ekki satt?

Einn, tveir, þrír.

Takk. Gott að sjá þig.

Ítarleg skoðun.

Ogilvie, Joy, GCS-skalann, takk.

Opnaðu augun.

Tveir fyrir augu og tal.

- Lungu hreyfast eðlilega. - Joy, kláraðu GCS-matið.

Kreistu hönd mína.

Fjórir fyrir hreyfigetu.

Súrefnismettun 99. Hjartsláttur 102. Blóðþrýstingur 114/78.

- Ítarleg skoðun neikvæð. - Hljómar vel í mín eyru.

Er verið að taka upp heimildamynd?

Mátt ekki mynda hér.

Lög um friðhelgi sjúklinga. Hvað kom fyrir höndina?

Skar hana.

Getur einhver vísað Spielberg á biðstofuna

og skráð hana í flokkun, takk?

Hann er félagi minn.

Ég hef samþykki hans, mynda fyrir TikTok-síðuna okkar.

Niður með myndavélina.

Verðum að birta þetta fyrir þann fjórða.

Merkingarlaust fyrir mig.

Í alvöru, Sean, viltu fylgja henni út?

Einhver sækir þig þegar hann er stöðugur.

Bara ef hún hefði beðið fallega.

Hvað er málið með skurðaðgerð?

মন্তব্যসমূহ

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left