Esimesed 200 rida.
-Enginn vissi... -Ég er Jacob Elordi.
-Angus Cloud. -Storm Reid.
...hvaða áhrif Euphoria myndi hafa.
Ég er 12 ára og leik Ashtray.
Ég hafði ekki hugmynd. Alls enga. Þetta er pínu klikkað.
Ég lít til baka og við vorum smábörn.
-Ertu hrædd í alvöru? -Já, tíkin þín!
Þegar þú býrð til list þá veistu ekki hvað mun gerast.
Sam er snillingur í ögrun sem kvikmyndagerðarmaður.
Þú vilt vekja áhuga áhorfenda. Allir hafa ólíkar skoðanir.
Fegurðin felst í því.
Manni finnst maður heppinn að fá að búa til eitthvað svona stórt.
Ég hef verið mikill aðdándi Euphoria frá upphafi.
-Hvernig hafið þið það? -Við vildum gera það rétt.
Við vildum vinna eins vel og þurfti.
Ég er ótrúlega stoltur af því sem við höfum áorkað.
Ég er þakklát fyrir ykkur öll og allar minningarnar.
Þakka ykkur fyrir.
AFTUR TIL UPPHAFSINS LITIÐ TIL BAKA
Hvað ef hann gæti farið aftur að upphafinu?
Allt í lagi, segðu okkur upprunasögu Euphoria.
Ég held það hafi verið í 2016
að ég frétti af ísraelsku þáttunum Euphoria.
Það voru krakkar að haga sér illa, af skorti á betri lýsingu.
Við ákváðum að kaupa réttindin
og leita að einhverjum með eigin hugmynd um þetta.
Það var yfirmaður í leiklistadeildinni sem hét Christine Kim.
Hún vissi af endurskrifum Sams fyrir HBO Films.
Ég hitti stjóra HBO Drama, Francescu Orsi.
Við ræddum allt það slæma sem við gerðum sem unglingar.
Í lok fundarins sagði hún: ''Farðu og skrifaðu það.''
Ég sagði: ''Pottþétt.''
Ég tók ákveðnar upplifanir,
fólk sem ég ólst upp með og aðstæður sem maður lendir í
þegar dóp er aðal hvöt þín í lífinu.
Og ég skrifaði það bara allt niður.
Hluti af tækifærinu var að sýna að unglingar í dag
takast við margt sem við þurftum ekki að takast á við.
Ef þú bætir við dópi, samfélagsmiðlum og snjallsímum.
Það kom okkur aðeins af stað.
Fíkn er alþekkt saga
en að menntaskólanemandi tókst á við hana
fannst okkur vera byltingarkennt.
Ég held ekki að við hefðum getað gert þetta annars staðar en á HBO.
Þau voru öll spennt og gáfu okkur grænt ljós.
Ég er Zendaya og leik Rue. Þetta er frumsýning Euphoria.
Við fengum góðar umsagnir þegar þættirnir komu út.
Við vorum með áhorfendur en ekkert rosalegt.
Einnig voru gríðarlegar deilur á þeim tíma.
Viltu fá þér í haus?
Ég man að ég hugsaði: ''Fjandinn, þetta getur farið í báðar áttir.''
GALLINN VIÐ SPÁDÓMA UM KYNSLÓÐ Z
Það var á sama tíma og Once Upon a Time in Hollywood.
DiCaprio var á rauða dreglinum. Þau sögðu: ''Hvað hefurðu horft á?''
Ég hef horft á Euphoria. Það eru frábærir þættir.
DICAPRIO HRÓSAR UMDEILDUM ÞÁTTUM ZENDAYU
Þegar hann sagði það breyttist braut þáttanna í fyrsta sinn.
Þættirnir voru athyglisverðir, fólk hafði séð og heyrt um þá,
en þeir voru ekki vinsælir ennþá.
Þegar hann sagði þetta voru þeir sendir til himins.
Eitthvað breyttist.
Að gefa út þætti er lítið kraftaverk. Ég var ánægður með viðbrögðin.
Leikararnir voru stór hluti af því.
Ég er Jacob Elordi og er 193 cm á hæð.
Hæ, ég heiti Nika King.
Ég er Storm Reid.
Ég er 12 ára og er Ashtray.
Við leituðum ítarlega að þessum leikurum.
Við leituðum bara að nýjum andlitum og fólki
án reynslu sem höfðu eins konar persónutöfra.
-Eru vörtubaugarnir mínir skrýtnir? -Nei.
Þú leist ekki á þá.
Og það voru margar áheyrsluprufur.
Mamma, ég eitra fyrir þér þegar þú sefur.
Sydney Sweeny las fyrst sem Maddy.
Heldurðu að flestir séu alveg gagnkynhneigðir?
Svo báðum við hana að taka sig upp sem Cassie.
Guð, mamma, hættu!
Þegar ég kom í prufur þá vissi ég ekki hvernig Cassie var.
Ég talaði við Sam og komst að því að mér þótti mjög vænt um hana,
og þannig byrjaði það.
Af hverju eru allir svona dramatískir?
Ég man að ég hitti Alexu og að hún las, og að hún átti flottan, gamlan pallbíl.
Fyrsta atriðið mitt var tívolíatriðið
fyrir framan stóran hóp.
Ég á ekki að vera hérna því ég er klædd eins og hóra
og þið þolið mig ekki.
Ég veit ekki af hverju en ég var æst
og leit á þau öll og sagði það sem ég þurfti að segja.
Ef þau hafa eitthvað að segja, ættu þau að segja það.
Ég féll fyrir persónunni og allt í einu voru möguleikarnir
óendanlegir fyrir hvaða átt hún gat farið í.
-Þú ert svo falleg. -Ég veit það nú ekki.
Maude Apatow sér alla gagnrýnina sem hún hreytir í sjálfa sig í atriði,
sem svo dýpkar persónuna.
Heldurðu að hún hafi slæm áhrif?
Ég man bara að ég var svo taugaveikluð og óörugg.
Vildi að ég hefði getað slakað meira á.
Þá hefði ég forðast að eyða svona mikilli orku að óþörfu.
Hvað ertu að góna á?
Jacob Elordi var nýr. Hann er frá Ástralíu.
Hver í andskotanum er þetta?
Ég var á leiðinni heim og Euphoria var síðasta áheyrsluprufan.
Einhver ætti að segja eitthvað, annars lem ég tíkina.
Hann hafði gefist upp á leiklist og bjó í bílnum sínum, held ég.
Hann kom inn og var svo góður og lagði sig hart fram.
Nauðgaðirðu henni?
Ég man að ég roðnaði af því að ég var svo taugaveiklaður.
Honum líkaði það víst.
Hættu nú.
Ég var á leið heim þegar umbinn hringdi.
Hann spurði hvort ég gæti komið aftur í prufur.
Ég snéri við á stundinni.
Ég geri það í alvöru.
Og þetta gekk allt einhvern veginn upp.
Það var frábært að leita að nýju leikurunum
og fá þau til að passa saman sem hópur.
Okkur fannst viturt að athuga hvað var til úti í heiminum.
Við unnum með Jennifer Vendetti, sem leitaði á götunum.
A24 hafði samband og sagði
að Sam vildi nota mína aðferð til að finna leikara.
Ég þróaði hugmyndina um að leita á götunum.
Ég er 17 ára. Sumir þurfa bara að fá einn á kjaftinn. Skilurðu?
-Ég var með fólk út um allt. -Tveir þumlar upp.
Dag einn sá ein sem vann fyrir mig tvo gaura, gaf þeim nafnspjaldið mitt
og sagði þeim að koma hingað ef þeir hefðu áhuga.
Næsta dag var ég á skrifstofunni og Angus kom inn.
Ég heiti Angus Cloud og er frá Oakland í Kaliforníu.
Oakland í Ameríku, skilurðu?
Ég man að á fyrsta myndbandinu sem ég sá þá bað útsendarinn um nafn og hæð.
Ég heiti Angus Cloud og ég er um 183 cm á hæð.
Fullkomið, hugsaði ég. Ráðið hann.
Hunter. Við vissum þegar við leituðum að þetta var erfitt hlutverk að ráða í.
Svo fór ég að tala við fólk sem ég þekkti úr tískubransanum
og hún var nefnd.
-Sko, ég er ósigrandi. -Þú ert siðblindingi!
Við vissum öll strax að þetta væri Jules.
Rue, ég er með bestu fréttir allra tíma.
Ég hafði aldrei leikið áður og lék eiginlega bara sem ég sjálf.
Mér fannst þau vilja það.
Ég man að ég fékk hlutverkið og bara: ''Já, andskotinn!''
Og svo beint á eftir var ég rosalega kvíðin,
því nú þurfti ég að gera það.
Sam hafði séð fyrir sér Zendayu sem Rue.
Umbarnir hennar voru í vafa um efnið og að það væri svona ögrandi.
Ég hafði rétt í þessu lokið ákveðnu tímabili í ferlinum mínum.
Ég hugsaði: ''Djöfull, nú þarf ég að vera leikkona.''
Ég veit ekki hvað ég geri næst og enginn trúir ennþá
að ég geti það sem ég held, og ég veit það heldur ekki.
Svo las ég eitthvað sem hét Euphoria og vildi strax vera hluti af þessu.
MAÍ 2019 - EINUM MÁNUÐI FYRIR FRUMSÝNINGU EUPHORIA
Zendaya var á Disney rásinni áður en hún lék í Euphoria.
Á Met Gala í 2019 mætti hún sem Öskubuska
og það var eins og hún væri að útskrifast úr Disney.
Margir barnaleikarar þurfa að losa sig við ákveðna ímynd.
Og það sem gaf þeim árangur sem góður barnaleikari
hjálpar þeim ekki alltaf sem fullorðnum.
Þú felur tilfinningarnar. Þú leikur með meiri blæbrigði.
Rick, ég biðst innilega afsökunar á að hafa sagt þér að fara til fjandans.
Mér finnst mamma eiga skilið betra
og ég hata að sjá þig í stólnum sem pabbi sat í.
Ég sendi henni fyrsta þáttinn. Hún hringdi tilfinningaþrunginn
og sagði: ''Ég horfði á þáttinn,
og mér fannst ég alltaf hafa það í mér að geta leikið svona.
Ég hafði bara enga sönnun og nú hef ég sönnun.''
Rue!
Það var stórt augnablik
og þannig nálguðumst við þetta í öllum deildum,
frá leikurum til mín. Við vildum öll sanna eitthvað.
Þetta verður gott kvöld, maður. Förum að þéna.
Ég var dauðhræddur í gegnum stóran hluta af fyrstu þáttaröð.
-Eins og þú tekur féð með báðum höndum. -Ég hafði trú á hugmyndina.
Ég trúði að þetta myndi ganga.
En það var gríðarlega erfitt.
Og bakgrunnur hreyfir sig og byrjum!
Ég vildi ekki nauðsynlega nota okkar eigin minningar um menntaskólann,
en frekar sameiginlegar minningar okkar sem menning.
Kjörorðin fyrir fyrstu þáttaröð voru ''gefum skít í raunveruleikann''.
Þetta snýst um tilfinninguna. Ekki um hvernig eða hvað hann er.
Í fyrstu þáttaröð vorum við að finna út hver við vorum.
Við gerðum margar tilraunir.
Stopp!
Margir unglingaþættir finnst mér eftirlíkingar
eða ekki nógu hugrakkir.
Við vildum bara veita þessari kynslóð smá réttlæti,
eins og við héldum að hún myndi hugsa um sjálfa sig.
-Fjandinn hirði alla þessa fjölskyldu. -Í alvöru.
Því nú lít ég á þúsund útgáfur af mér,
og ekki bara lít ég vel út en mér líður djöfulli vel.
Mér líka.
Hún fer út úr bílnum hérna og þessi bíll keyrir.
Hún sér ekki stóra bílinn sem er að koma á móti henni.
Við reyndum að hafa svona kókaíns- og maníuorku í fyrstu þáttaröð.
Önnur þáttaröð er svolítið myrkari.
-Rue! -Ég get þetta ekki. Fyrirgefðu, mamma.
Rue, komdu aftur inn í bíl!
Við vildum skapa ákveðinn grófleika og myrkur,
því í annarri þáttaröð skiljum við eftir alla töfrana
og förum á kaf í fíknina.
Ég sá það eins og minningu sem var að hverfa.
No comments yet. Be the first to leave one.