Bombshell

Bombshell

Icelandic സബ്ടൈറ്റിൽ ഡൗൺലോഡ് ചെയ്യുക

റിലീസ് വിവരങ്ങൾ

Bombshell 2019 ISL 1080p BluRay x264 AC3-Skari11
കമന്ററി എഴുതിയത് Skari11
Should work for all BluRay releases // Ætti að virka fyrir allar BluRay útgáfur

ടാഗുകൾ

BluRay
x264
AC3
1080
പ്രസിദ്ധീകരിച്ചത്: 2020-04-25
ഡൗൺലോഡുകൾ: 39
ശ്രവണ വൈകല്യമുള്ളവർക്ക്: No

Icelandic സബ്ടൈറ്റിൽ പ്രിവ്യൂ

ആദ്യത്തെ 200 വരികൾ.

Sumum nöfnum hefur verið breytt

og tilteknar senur, samtöl og persónur

hafa verið búnar til í dramatískum tilgangi.

Allar persónurnar í kvikmyndinni eru leiknar af leikurum

nema þar sem fréttamyndir eru notaðar.

Velkomin í The Kelly File, öllsömul. Ég er Megyn Kelly.

Aðalfréttin í kvöld er að það eru sveiflur í skoðanakönnunum, kapphlaupið er að breytast

og meira en tylft frambjóðenda Repúblikana

reyna að láta í sér heyra með rétt rúma viku til stefnu

fram að kappræðunum sem gætu breytt öllu.

Við erum hliðið. Við, spyrlarnir, erum hliðið.

Við hjá Fox og CNN og allir aðrir sem fá tækifæri

til að stýra forsetakappræðunum með þessu fólki.

Þetta fólk verðskuldar að fá erfiðar spurningar.

Eins og Chris segir, og ég er sammála,

þau vilja starf George Washington svo þau verða að hafa fyrir því.

Þeim er hollast að sýna þjóðinni að þau séu þess verð.

Margir töldu að Donald Trump yrði fallinn úr leik núna.

Þeim skjátlaðist. Bíðið við.

Hérna. Við verðum að koma þessu að

því þetta var að koma fram á Daily Beast.

Fyrirsögnin er,

"Fyrrverandi eiginkona: Donald Trump braut á mér í kynmökum.

Ivana Trump ásakaði eitt sinn fasteignajöfurinn um "nauðgun".

Talsmaður Donalds Trump

hefur stigið fram og hafnað þessu

og bætti við að lagalega, að hans sögn,

"geturðu ekki nauðgað maka þínum".

Hér er eitt sem þið vitið líklega um mig.

Ég skef ekki utan af hlutunum.

Roger, Megyn er á Línu 1.

9 TÍMAR TIL FORKOSNINGA- KAPPRÆÐNA REPÚBLIKANA 2015

Megyn. - Daginn, Roger.

Hvað gerðirðu til að ergja Trump?

Við töluðum um nýlega umfjöllun á nauðgunarásökun fyrrum konu hans.

Blæstu lífi í það fyrir fyrstu kappræðurnar?

Roger, við vorum með heilskjá af afturköllun Ivönu. Sem er milt.

Hún ásakaði hann í skilnaðarferlinu.

Lögmaður hans, Michael Cohen,

segir ekki hægt að nauðga maka sínum. Mér mislíkaði það.

Frábært. Framtíð Fox News er núna fjandans femínisti.

Nei. Ég er ekki femínisti. Ég er lögmaður. - Við þurfum hann.

Lagaðu þetta. Strax.

Því miður, þegar kemur að stjórnmálamönnum og fjölmiðlum

veit Roger Ailes sínu viti.

Tilnefndur höfuð Fréttastöðvar Fox af fjölmiðlajöfrinum Rupert Murdoch

Tilnefndur höfuð Fréttastöðvar Fox af fjölmiðlajöfrinum Rupert Murdoch

umbylti Roger kapalfréttamiðlun og ýtti Fox í fremstu röð.

Mörgum árum áður, til að fá Nixon kjörinn,

bjó hann til nútíma- ráðhússkappræðurnar.

Til að fá Reagan kjörinn lét hann hann benda á hið augljósa.

Ég mun ekki gera aldur að kosningarmáli.

Ég ætla ekki að notfæra mér æsku og reynsluleysi andstæðings míns.

Til að fá George H.W. Bush kjörinn bjó einhver til Willie Horton auglýsingarnar.

Roger neitar því að það var hann... mjög oft.

Ég hef verið gáttuð á þeim fjölda Bandaríkjamanna

sem eru sáttir við að landið okkar færist í átt til sósíalisma.

Þá byrjar það.

Skoðanir þeirra á auðvaldshyggju eru ógnvænlegar.

Fréttir eru eins og skip.

Taki maður hendurnar af stýrinu leita þær harkalega til vinstri.

Sjáið þetta. James Murdoch.

Segið mér að þessar varir hafi ekki tottað böll.

Þetta færir frændhyglin manni.

Roger stjórnaði Fox handan við þessar dyr á annarri hæð.

Þegar starfsmaður sagði "önnur hæð" var átt við Roger

eða fjölda forstöðumanna sem fengu greitt fyrir

að koma vilja hans í verk án þess að hika.

Ég veit hvað sum ykkar eru að hugsa, og nei,

Roger segir okkur ekki hvað á að segja í útsendingu.

Hann þarf þess ekki.

Æðislegur kjóll, Megyn. - Takk.

Nei, í alvöru. Hann er æði.

Hann er ekki graður. Hann er bara metnaðargjarn.

Roger fylgist alltaf með.

Eagles frestuðu því að koma fram því einn stofnmeðlimanna, Glenn Frey,

er of veikur til að ferðast. Í yfirlýsingu tilkynnti hljómsveitin...

Hálfvitar.

Síminn á skrifstofunni hans er beintengdur útsendingarstjórnherberginu

sem er niðri á fyrstu hæð.

Já, herra? - Fávitarnir ykkar!

Þetta er ekki Glenn Frey, þetta er Don Henley!

Hendið B-efninu út. - Hentu því.

Aftur á þulinn. Þetta er ekki Glenn Frey, þetta er Don fjandans Henley!

Skrambinn. - Hver fjandinn, Kayla?

Afsakaðu. Ég þekki ekki ókristilega tónlist.

Eagles?

Aðeins eitt stærsta band 8. áratugsins. - Þegar mamma mín var kornabarn.

Þeir líta allir eins út. Þeir eru gamlir. - Drottinn minn.

Niðri í kjallaranum er fréttaherbergi Fox.

Allir þættirnir okkar hafa hópa sem vinna í þessum básum.

Þetta er starfsliðið mitt.

Sæl, öll.

Við erum undir borginni svo það er fúkkalykt.

En það hefur ekki sést rotta í fjóra mánuði.

Fjóra mánuði.

Fréttaþulirnir og lykilstjórnendur þeirra hafa grunnbúðir.

Hér, 17. og 18. Oft skreytt með listefni aðdáenda.

Og allir í byggingunni,

jafnvel Roger, heyra undir 8.

Áttunda hæð er aðsetur framkvæmda- stjórans Ruperts Murdoch og sona hans.

Þetta er valdið á bak við valdið.

Sjálf myndverin eru á víð og dreif um bygginguna.

Flestar skrifstofur fréttaþula og þátta eru hér.

Fyrir ofan er Viðskiptadeild Fox, útvarpið,

New York Post og Wall Street Journal.

Megnið af bákni bandarískra íhaldsmanna.

Í einni byggingu.

Loksins er allt klárt fyrir kappræður Repúblikana í Cleveland í kvöld.

Allir frambjóðendurnir vonast eftir fylgisaukningu í kvöld

en aðeins tíu þeirra eiga möguleika á að höfða til kjósenda á kjörtíma.

Hvaða Donald Trump kemur fram?

Trump á í miklum vanda með konur. Ég vil spyrja um það.

Geturðu sannað það?

Trump og Konur

Já.

Góðan daginn.

Daginn, Chris.

Afsakaðu.

Heldurðu að þetta sé búið?

Afsakaðu.

Þetta eru líklega taugarnar.

Nei. Þegar ég er stressuð heyri ég hjartslátt minn.

Ég heyri hann ekki.

Er þetta fyrsta spurningin þín? Er þetta eitthvað femínistamál?

Hún er ekki femínisti.

Þetta snýst um kjörhæfi hans.

Barstu þetta undir Tom Lowell?

Við megum bjóða Trump birginn.

Sagði önnur hæð það?

Nei.

Sú áttunda. Murdocharnir.

Rupert hringdi í Roger og sagði að nóg væri komið með Trump.

Trump horfir ekki á annað en Fox.

Roger gaf honum vettvang fyrir kolóðar kenningar sínar og aulaleg umkvörtunarefni.

Hvers vegna? Af því að Roger deilir mörgum þeirra.

Ertu viss um að þú viljir takast á við það?

Já.

Þetta er hið nýja útlit stjórnmála...

Ég veit ekki hvort þessar eru nógu sterkar en þær hjálpa mér.

Ógleði? - Já. Þú ert í beinni eftir fimm tíma.

Það verður í lagi með mig. - Allt í lagi.

Allt í lagi.

Donald Trump stýrir eigin frásögn.

Fjandinn. Svo óglatt.

Ef þú reynir að halda þeim niðri.

Já.

Fjandinn. Hættu með þennan svip, Julia.

Ég er ekki með neinn svip.

Fimm tímar?

Já. - Allt í lagi.

Engar áhyggjur. Við erum á bak við þig.

Langt á bak við þig.

Það er teppi á stólnum og, ef þörf krefur, ruslatunna við hlið hans.

Velkomin á fyrstu forkappræður Repúblikana.

Stjórnendur kvöldsins verða Bret Baier, Chris Wallace og Megyn Kelly.

Herra Trump, eitt af því sem fólk dáir við þig

er að þú segir hug þinn og notar ekki síu stjórnmálamannsins.

Hins vegar hefur það einnig ókosti.

Einkum þegar kemur að konum.

Þú hefur kallað konur sem þér líkar ekki við "feit svín", "hunda",

"sóða" og " viðbjóðslegar skepnur".

Hvað er hún að gera?

Twitter-reikningur þinn... - Aðeins Rosie O'Donnell.

Frábært sjónvarp. Hún veit hvað hún er að gera.

Twitter-reikningur þinn...

Reyndar náði það langt út fyrir Rosie O'Donnell.

Já, áreiðanlega.

Twitter-reikningur þinn er með allnokkur niðrandi ummæli um útlit kvenna.

Þú sagðir eitt sinn við keppanda í Celebrity Apprentice

að það yrði fögur sjón að sjá hana á hnjánum.

Finnst þér það hljóma eins og lundarfar

manns sem við ættum að kjósa sem forseta?

Og hvernig svararðu ásökun... - Hún er að ögra honum.

...Hillary Clinton, sem er líkleg til að verða fulltrúi Demókrata,

um að þú sért hluti af stríðinu gegn konum?

Kannski er ég heimsk, en ég hélt að hann myndi mæta áskoruninni.

Trump er fokreiður. Hann vakti í alla nótt og tísti.

Skrambinn. Í alvöru?

Hvað tísti hann?

"Áhorfendur Fox gefa gálunni @MegynKelly lága einkunn."

Ég hata þetta orð.

Já. Það segir að þú sért of sexí til að vera gáfuð en ekki nógu gáfuð til að vera sexí.

Klukkan 2.40. "Vá, @MegynKelly fékk skell í kvöld.

Fólk er að missa sig á Twitter! Gaman að fylgjast með."

Klukkan 3.07. "Kæra @ Megyn..." - Áfram, Trump. Donald Trump.

Allt í lagi.

Hvað voru tístin hans mörg?

Um 15.

Já.

Hann verður aldrei forseti.

Bíðið við. Verð ég fréttin?

Nei. - Nei.

Ég verð fréttin. - Nei.

Nei. Nei.

Ég get ekki sleppt ykkur án þess að ræða um Donald Trump.

Gefur Gretchen þessu tvö innslög?

Er það svo neðarlega í fæðukeðjunni?

Við ættum að fá öryggisverði fyrir þig. Hugsaðu málið.

Trump hringdi í mig fyrir kappræðurnar.

അഭിപ്രായങ്ങൾ

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left