ആദ്യത്തെ 200 വരികൾ.
Þegar þjófur kyssir þig skaltu telja tennurnar
Jiddískur málsháttur
Frægi bankaræninginn og undankomu- meistarinn Willie Sutton
var eitt sinn spurður hvers vegna hann rændi banka.
Sutton svaraði: Vegna þess að þar eru peningarnir.
Heyrðu, asninn þinn.
Sutton hafði rétt fyrir sér. Peningarnir eru í bankanum.
En þeir eru líka í veskjum, skókössum og kexkrukkum
á heimilum þeirra auðugu.
Væri Sutton á lífi í dag myndi hann ekki ræna banka.
Hann myndi ræna þá ríku.
Þeir eru yfirlætisfullir, heimtufrekir og grunlausir.
Þeir hengja nokkrar milljónir dala upp á vegg
og bjóða öllum heim á fyllirí.
Hæ.
Komdu sæll.
Hvað á ég að gera við þetta?
Settu þetta í hrúguna. - Takk.
Heyrðu, hvar eru strákarnir?
Við píanóið. - Þarna eru þeir.
Má ég fá glas?
Taktu þetta. - Takk.
Afastrákurinn hefur gaman af þessu. Ég kenni honum töfrabrögð.
Konan mín kallar það ofbeldi.
Notaðu tvo fingur og færðu þetta niður.
Fínt hjá þér.
Þú losaðir hann fyrir mig.
Taktu nú þennan hnút.
Settu hann í lófann á unga herranum og kynntu þig.
Það ert þú, vinur.
Sæll, ég heiti Marguerite.
Russell heiti ég.
Hérna, taktu þetta.
Hnúturinn fer í vinstri höndina og hægri höndin fer yfir.
Yfir?
Þú kannt þetta.
Sjáðu.
Opnaðu lófann.
Þetta er það besta.
Ég skal taka við þessu.
Hérna, taktu þetta.
Er það rétta nafnið þitt? - Að sjálfsögðu.
Í alvöru? - Nei.
Hvers vegna komstu í kvöld?
Því að ég er ljóðaunnandi. Hvað með þig?
Já, ljóð eru uppáhaldið mitt.
Hvers konar ljóð?
Söguljóð, sjálfsmeðvituð, limrur, hækur og prósaljóð.
Slamm?
Það er hreinasta form ljóðsins.
Einmitt.
En í alvöru, hvað ertu að gera hérna?
Ég er listráðunautur.
Hvað í andskotanum er það?
Virkaði þetta í alvöru?
Ég er aðeins drukknari en ég ætlaði.
Kemur á óvart.
Fokkaðu þér kærlega, Michael.
Eins og við vitum öll var Michael að gefa út nýja ljóðabók.
Þokkalegur fögnuður vegna ljóðlistar.
Yndislegt.
Takið ykkur drykk í hönd og fylgið mér að sundlaugarhúsinu
þar sem við reynum að plata Michael til að lesa upp ljóð.
Augnablik, augnablik.
Bara eitt ljóð.
Tvö ljóð frá Michael. - Ég sagði eitt.
Sagði ég ekki eitt?
Ég ætla að sækja rauðvínsglas. Vantar þig eitthvað?
Hvers vegna ekki? Ég bíð úti.
Jæja.
Eins og um var samið ætla ég að lesa upp eitt ljóð.
Hann á við tvö.
Jæja þá, ég skal lesa tvö ef þið þaggið niður í fíflinu.
Upp með hendur!
Þú gómaðir mig.
Bang!
Þarna munaði mjóu.
Hvað ertu að gera?
Einhver hellti víni á mottuna og ég fer með hana í hreinsun.
Hvar eru pabbar mínir?
Pabbar þínir eru...
Þeir eru við sundlaugina.
Viltu fara til þeirra?
Já. - Allt í lagi.
Hvað ertu gömul? Ég giska á 6 ára.
Ég er 4 ára. - Ertu 4 ára?
Þú ert rosaleg.
Förum til þeirra.
Gætirðu gert mér greiða?
Allt í lagi. - Frábært.
Komdu.
Hvaða strit er þetta?
Maðurinn sagði mér að rétta þér þetta.
Hvaða maður?
Þessi þarna.
Þakka þér fyrir. - Ekkert að þakka.
Hvað er í pokanum? - Þú meinar hver er í pokanum?
Mig vantar lykil að þessum hægra megin. -Hérna.
Takk. - Ekkert mál.
JETS SIGRUÐU
Takk fyrir að koma strax.
Ég ætla að koma mér að efninu. - Endilega.
Við höldum ekki í við hann. - Ég skil.
Við verðum að hugsa um hagsmuni heildarinnar.
Þetta er lítill hópur
og þótt við njótum þess að hafa Raymond hérna
getur hann verið ansi erfiður eins og þú hlýtur að vita.
Já, auðvitað.
Gætirðu gefið mér vísbendingu um hvað hann hefur gert?
Já, en hér eru pappírarnir og teikningarnar hans.
Hann er með allt hitt.
Glæsilegt.
Það eru vændiskonurnar. - Hvað segirðu?
Hann mútar öryggisvörðum,
safnar litíumi, adderalli og xylopani
og gefur vændiskonum í skiptum fyrir barbítúröt.
Já. Vændiskonur?
Þetta er sjálfboðaheimili á vegum borgarinnar.
Við gerum okkar besta en erum staðsett í miðbænum.
Auðvitað.
Mér þykir þetta leitt. Hann er indæll náungi
en fólkið hérna er viðkvæmt og þetta er of hættulegt.
Bróðir þinn á eftir að spjara sig.
Viltu heyra brandara? - Hvers vegna ekki?
Allt í lagi.
Íri gengur út af bar.
Þegiðu.
Ég fer út hérna.
Jæja, farðu vel með þig. - Já, sömuleiðis.
Viltu eitthvað að borða? - Já.
Heyrðirðu þetta um pabba?
Já.
Við ættum að skipuleggja útför.
Þetta er glatað.
Hvað með mínútuþögn?
Jæja þá. - Hljómar það vel?
Hversu margar mínútur í viðbót?
Hvað er að þér?
Ekki neitt. Þú fékkst mínútu. Þetta var mínútuþögn.
Ég reyni að kveðja föður minn. - Allt í lagi.
Er eitthvað að? - Nei.
Ertu mér reiður?
Hefurðu áhyggjur af mér? - Ég hef engar áhyggjur.
Ég get séð um mig sjálfur. - Ég hef engar áhyggjur.
Ég skal gera svolítið fyrir þig. - Hvað er það?
Ég vil að þú hlustir á mig. - Guð minn góður.
Hlustaðu bara.
Allt í lagi.
Díasepam eða önnur bensólyf.
Þau koma sér vel ef þú þarft að slaka á.
Sko...
Svo er til dextróamfetamín.
Þetta er það sem þeir gáfu ofurhermönnum í Víetnam.
Þetta er mjög hagkvæm tveggja sólarhringa lausn
fyrir þau tilfelli sem krefjast meiri athygli.
Hljómar tilvalið.
Hugsaðu málið. - Ég geri það.
Þér nægir hálf pilla. - Ég skal hugsa málið.
Stalstu söfnunarbauknum fyrir munaðarlausa af borðinu?
Já, kannski.
Þú ert athugull. - Já.
Á ég að... - Það er líklega best.
Fyrirgefðu, herra.
Ég náði söfnunarbauknum
af pönkurunum sem sitja þarna í horninu.
Kíktu aðeins í hann. Hann er grunsamlega léttur.
Þakka þér fyrir, herra.
Takk, vinur.
Ég meina... vá...
Húnninn getur verið erfiður.
Afsakaðu, ég meina...
Þú verður hérna.
Þetta er enginn lúxus en verður að duga í bili.
Ertu með lista yfir þjónustuna í hverfinu? Jafnvel kort?
Við hjónin ætlum aðeins að skoða okkur um.
Þetta er bara tímabundið.
Við finnum betra húsnæði handa þér. -Auðvitað.
Þú getur ekki flutt hingað. Ég á kærustu sem gistir stundum.
Gistir hún stundum? Þú átt enga kærustu.
Hvað segirðu? - Þú átt enga kærustu.
Jú, víst.
Nei.
Jú, það vill svo til.
Þú lokaðir augunum á meðan þú sagðir þetta.
Svo eru hvorki túrtappar né annar tannbursti á baðinu.
Ég ætla að fara og gefa þér næði.
Ekki láta svona, Ray. - Ég var að grínast.
Hvert annað gæti ég farið?
Ég yrði þakklátur fyrir aðeins eina nótt hérna.
Takk.
Taktu í spaðann á mér.
Taktu í spaðann á mér. - Jæja, fínt.
Komdu hingað.
Svona, við erum góðir.
Allt í lagi. Allt í lagi.
Þetta er nóg. Svona.
Engar vændiskonur.
Þessi var góður.
FUNDUR MEÐ IVAN
Allt í lagi.
No comments yet. Be the first to leave one.