Underworld: Rise of the Lycans

Underworld: Rise of the Lycans

Icelandic സബ്ടൈറ്റിൽ ഡൗൺലോഡ് ചെയ്യുക

റിലീസ് വിവരങ്ങൾ

cb-u3rotl720 Icelandic
കമന്ററി എഴുതിയത് sbo-soft

ടാഗുകൾ

720
പ്രസിദ്ധീകരിച്ചത്: 2009-05-26
ഡൗൺലോഡുകൾ: 64
ശ്രവണ വൈകല്യമുള്ളവർക്ക്: Yes

Icelandic സബ്ടൈറ്റിൽ പ്രിവ്യൂ

ആദ്യത്തെ 200 വരികൾ.

Tveir áratugir voru liðnir frá sköpun beggja tegundanna.

Stríðið var byrjað.

Viktor jók við her sinn

svo blóðsuguhersveit hans gæti varist fyrsta ættbálki varúlfanna,

grimmri og smitberandi tegund sem gat aldrei orðið mannleg á ný.

Þar til hann fæddist.

Lucian.

Þrátt fyrir að hjarta hans byði honum að vega barnið

gerði Viktor það ekki.

Árin liðu og drengurinn stækkaði.

Styrkur hans og einbeitni var meiri en áður hafði þekkst.

Hvað segirðu, Sonja?

Eigum við að búa til fleiri? - Líka honum?

Já, einmitt.

Lucian verður ávallt sá fyrsti af tegundinni,

fyrsti Lycaninn.

Viktor notaði smitberandi blóð hans sér í hag.

Hann notfærði sér þorsta drengsins

þar sem hann neyddist til að nærast á mönnum...

þrælum Viktors.

Inn með ykkur!

Hann skapaði nýja og ódauðlega tegund...

Lycana. Þeir voru varúlfar og mennskir í senn.

Þessa nýju tegund mátti undiroka og þrælka

og láta þá gæta herra sinna í dagsljósinu.

Eða það hélt Viktor fyrir svo löngu.

Ókyrrð ríkir meðal aðalsmannanna, herra.

Smitsótt Williams hefur ekki verið haldið í skefjum.

Varúlfar hafa drepið þræla þeirra. - Menn óánægðir.

Tanis, taktu eftir hvað það tekur mig sárt.

En þegar þeir missa þræla missum við silfur. - Þetta nægir!

Hef ég ekki tífaldað eignir okkar síðan Marcus og Amelia sofnuðu?

Við sjáum um úlfana eins og við höfum alltaf gert.

Skjóta!

Látið hliðið síga!

Hefurðu ekkert betra að gera en að leika þér með stríðsvopn?

Reyndu að vera til gagns.

Auðsýndu þakklæti, Sonja, þeim sem bjargaði lífi þínu.

Það þurfti ekki að bjarga mér.

Segðu mér, Lucian, íþyngir þér að drepa þitt eigið kyn?

Alls ekki. Þetta eru skynlausar skepnur, herra.

Ekki meðbræður mínir. - Virkilega?

IFaðir.

Þú ert kynstofni þínum til sóma.

Kanntu að viðhalda því? Horfðu niður.

Fjarlægið þetta. - Já, herra.

Þín var sárt saknað í þinginu.

Ég þarf að verja tíma mínum til annars.

Ég skil. Þú hefur vonandi notið reiðtúrsins í tunglsljósinu.

Ég var á eftirlitsferð. - Þú óhlýðnaðist.

Ég sagði þér að halda þig inni.

Þú tekur meiri áhættu en faðir getur liðið.

Þú skalt láta dauðaliðana um úlfana.

Því er áhætta mín meiri en þeirra?

Þeir eru ekki dætur mínar.

Og þeir sitja ekki á þinginu. Það gerir þú.

Þú munt taka sæti meðal öldunganna, það er arfleifð þín.

Þú ert mikils metin á þinginu, Sonja,

en það er fallvalt og þeir þreytast á leikjum þínum og fjarveru.

Hætturnar í skóginum eru ekki meiri en í þingsalnum.

Þú munt læra að pólitískur dans er lævís og vægðarlaus.

Og umfram allt verðurðu trú fjölskyldunni þinni.

Trú mér.

Því ríki ekki trúnaður á milli okkar

erum við engu betri en skepnurnar við dyr okkar.

Notaðu bakið!

Taktu þetta upp!

Áfram, skíthælar!

Lycan!

Ekkert slór, rakki! Vinna!

Þetta er nóg.

Dirfistu að lyfta hendi gegn mér?

Ég sagði að nú væri nóg komið. - Segir rakki húsbóndans það?

Þú verður ekki alltaf eftirlætið hans.

Og þegar þú fellur verð ég viðstaddur.

Við skulum vona það.

Á hvað eruð þið að glápa? Farið aftur að vinna!

Aftur að vinna!

Málið sem liggur fyrir þinginu er einfalt. Það er ráðist á okkur.

Sex sinnum á þremur vikum hefur kyn Williams komist að múrunum.

Hvers konar voði myndi fylgja ef einn þeirra kæmist inn?

Ótti þinn er ástæðulaus, Coloman.

Erum við ekki vel varðir af ódauðlegum her?

Sérlega vel, herra. En það eru aðalsmennirnir ekki

og eins og ég hef bent á eru þeir okkar lifibrauð.

Getum við ekki verndað mennina okkar virðumst við máttvana.

Og hvernig viljið þið sýna styrk?

Verðir geta staðið vaktina á daginn eins og dauðaliðarnir um nætur.

Lycanar á vakt utan múranna? Ertu genginn af göflunum?

Skepnur ólu þá

og sá auvirðilegi uppruni gleymist þeim ekki.

Ég tel ótta þinn við þessa hugmynd ástæðulausan.

Við getum skapað stétt Lycana með sérréttindi,

stærri matarskammta, betri aðbúnað

og falið stjórnina einhverjum sem er treystandi.

Kannski eftirlætinu þínu, Lucian, sem bjargaði lífi dóttur þinnar.

Ég held reyndar að við ættum að heyra álit hennar.

Hún virðist hafa þurft að sinna öðru.

Finndu hana.

Ég skal taka tillögu þína

til alvarlegrar athugunar. - Takk, herra.

Þegar aðalsmennirnir koma á morgun væri gott

að geta fullvissað þá um að við berum hag þeirra fyrir brjósti.

Áfram!

Áfram með ykkur!

Lafði mín?

Er það satt sem þú sagðir föður mínum

að þú fyndir ekki fyrir neinu þegar þú dræpir þá?

Þeir eru bara skepnur.

Þeir hafa ekki hugsanir eða tilfinningar.

Því skyldi ég hafa samúð með þeim?

Sonja, ef ég færi héðan myndirðu koma með mér?

Fara héðan?

Segðu þetta ekki. Ekki hugsa það.

Þú yrðir hundeltur og merktur eins og hinir.

Ekki ef ég gæti fjarlægt þetta. Sjáðu.

Ég bjó þetta til. Það verður mitt frelsi.

Lofaðu mér að nota þetta ekki.

Er þetta svar þitt? Þú kemur ekki.

Viltu að ég verði kyrr fyrir þig? Lifi svona eins og skepna?

Blóðsugur og Lycanar eru börn Corvinusar.

Samt er mín fjölskylda þrælar.

Ég nota þennan lykil

og ég fer héðan.

En ég get aldrei framar verið án þín.

Hefurðu frétt af dóttur minni? - Hún er afar þrjósk.

Hún neitar að hitta mig, hún kemur ekki til dyra.

Af hverju er unga fólkið svona blint?

Hún hættir sæti sínu á þinginu og fyrir hvað?

Ég skil það ekki.

Við verðum að undirbúa okkur.

Mennskir aðalsmenn eru á leiðinni.

Það er beitt. Enginn úlfur stenst það.

Hafðu hestana tilbúna.

Láttu einhvern annan fara.

Af hverju? - Þegar ég fór frá þér í gær...

Láttu bara einhvern annan fara.

Ef þú hefur ekki tekið eftir því, járnsmiður,

er ég fullfær um að sjá um mig sjálf.

Og auk þess...

geturðu gætt mín af múrnum.

Sonja, faðir þinn fyrirskipar að þú verðir eftir.

Ég ætla mér að fylgja gestum mínum inn um hliðið.

Hliðvörður. - Þetta er ekki beiðni.

Hér ræður faðir þinn ríkjum.

Hann minnir mig stöðugt á það.

Gættu þín, járnsmiður, að augun komi ekki upp um þig.

Rólegur.

Lokaðu glugganum, barn.

Fylkið ykkur!

Nei.

Komdu mönnum þínum burt!

Niður með þig. Það er of stutt í ólinni þinni.

Farðu frá! - Þeir eru of margir.

Það verður blóðbað!

Stöðvið hann!

Dimitri!

Lucian!

Nei, Lucian!

Nei! Hættu!

Hann gerði það til að bjarga mér.

Er ég ekki húsbóndi hér?

Þú veist að þú mátt ekki fjarlægja hlekkina. - Já.

Samt brýturðu mín lög eftir að ég gaf þér líf.

Þægindalífi þínu er lokið, þræll.

Láttu hann vera. Ég sagði þér...

Þegi þú!

Nú ögraðirðu mér í síðasta sinn.

Komið henni burt!

Brennið líkin.

Brennið þau öll!

Fyrir að fjarlægja hálshringinn, 30 svipuhögg.

Þú hefur stungið mig með svikum þínum.

Þú varst mér sem sonur.

Ég gaf þér líf þitt. - Þú gafst mér hlekki.

Eftir öll þessi ár mætti ætla að þú vissir

að þú gætir ekki haft annað án hins.

Gerðu það.

Ég sagði að ég yrði viðstaddur þegar þú féllir.

Hvað? - Stöðvaðu þetta. Hann er sonur verndara...

Þeir eru ekki annað en skepnur sjálfir.

Þetta gæti æst hina upp. - Látum þá æsa sig. Óttastu þá?

Ástandið versnar ef við refsum þeim ekki.

Skilurðu það nú? Myndirðu treysta þeim utan múranna?

Við getum ekki einu sinni treyst þeim innan þeirra.

Ég hef talið 21 högg.

Haltu áfram.

Djöfulsins fýla.

Komdu ekki nálægt honum eða þér verður líka refsað.

Það er rétt. - Já.

Umhyggja þín fyrir Lucian snart mig.

Hann er þræll.

Hann bjargaði lífi mínu.

Sagðir þú ekki að ég ætti að auðsýna þakklæti?

Hvað með sjálfan þig?

Ertu ekki þakklátur þeim sem bjargar lífi dóttur þinnar?

Ég er fullur þakklætis.

Það sýnir göfuglyndi mitt að hann skuli lifa.

Við aðrar kringumstæður hefði ég höggvið hann niður

og fóðrað hans eigið kyn á honum.

More Icelandic subtitles for Underworld: Rise of the Lycans

അഭിപ്രായങ്ങൾ

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left