ആദ്യത്തെ 200 വരികൾ.
Þú veist að þú átt ekki að kaupa þinn eigin afmælismorgunverð.
Það er brot á reglunum.
Ég hata afmæli. En ég elska þig.
Já. Viltu smá?
Já, þegar ég kem úr sturtunni. - Ég var ekki að tala um það.
Ekki það?
Nei.
Afmælisóskir til mín. - Já. Já.
Þetta er eggjandi klæðnaður.
Ég þarf að líta fagmannlega út.
Slakaðu á. Allir þarna dá þig.
Ég bara veit ekki hvort ég get þetta.
Allir verslunarstjórar hjá fyrirtækinu eru með háskólagráðu.
Ég myndi segja að 15 ára starfsreynsla jafngilti hvað, tíu gráðum?
Ekki í augum þessa fólks. - Einmitt.
En þakka þér fyrir.
Ég þarfnast þín í dag, amma.
Mundu bara að þau þarfnast þín meira en þú þarfnast þeirra.
Ég er að reyna að vera einbeitt. - Já.
Hafa augað á boltanum.
Notaðirðu íþróttalíkingu á mig? - Almáttugur.
Heyrðu. Taktu bara einn leik í einu.
Hvað ef Weiskopf líkar ekki við mig?
Þetta er leikur upp á tommur.
Þú þarft að gefa honum 110%.
Ég hunsa þig.
Á ég að segja "það er heiður að hitta þig, Weiskopf"
eða er það... - Of smeðjulegt.
Já, einmitt.
Ég verð að fá þetta, Trey.
Það eina sem getur mögulega stöðvað þig ert þú.
Ég verð sein.
Allt í lagi. Kýldu þá kalda.
Já. Rassinn á þér er flottur í þessum gallabuxum.
Aftur? Ég er ekki bara kjötflykk...
Þá það, en við verðum að drífa þetta af.
Bless.
Allt í lagi. Bless.
Það er sönn ánægja, Weiskopf, að sýna þér
hvað við höfum verið að gera í Kjörkaupsbúð 151.
Ánægjan er okkar. Taktu eftir, Arthur,
að Kjörkaupsbúðin í Ozone Park selur helmingi meira en næsti keppinautur.
Leyfið mér að sýna ykkur ástæðuna. Velkomnir í netbúðina okkar.
Besta vinkona mín, Joan Volpentesta, samstarfskona, sendi son sinn Dilly
í búðina með farsímann sinn til að lyfta upp hverri einustu sirloinsteik
fyrir kjötréttinn hennar og þá fékk ég hugmyndina.
Þetta er streymi í beinni. Áhugavert.
Já. Frá heimili sínu geta áskrifendur okkar valið tiltekið laxaflak,
þriðju sítrónuna aftan frá, hvað sem þeir vilja.
Þeir versla fyrir hádegi, við afhendum fyrir klukkan 18 í 30 kílómetra radíus.
Það stækkar samfélagið okkar. Stækkar sölumagnið okkar.
Og eykur hagnað okkar til muna.
Og hérna hófst þetta allt.
Mánudagsmömmur? - Já. Maya átti hugmyndina.
Þetta er áðurnefnd Joan.
Halló.
Hæ, ég er tveggja barna móðir sem var gift ónytjungi
og ég var að deila raunum mínum með öðrum mömmum þegar Maya lagði til
að við hefðum vikulega kvörtunarhátíð... - Félagsklúbb.
Félagsklúbb.
Höfða til mánudagsforeldra. Og það vatt upp á sig.
Bíddu. Ertu að tala um viðskiptavini eða starfsfólk?
Bæði. Hæ, Suzi da Vinci. Ég kalla þetta Kjörkaupsmeðferð. Við erum verslunarvinir.
Við skiptumst á sögum og afsláttarmiðum. - Eiginmönnum.
Ó, nei, ekki mínum.
Ég veit ekki hvað ég á að segja
annað en að Arthur verður afar lánsamur að hafa þig sem næstráðaanda sinn
svo ég ætla að gefa ykkur næði til að kynnast betur.
Weiskopf, get ég fengið andartak?
Þó þau væru tvö.
Takk. Ég undirbjó mig fyrir þennan fund vikum saman.
Og þú stóðst þig vel.
Ég hef lagt 15 ár af lífi mínu í þessa búð
og eftir að ég varð astoðar- verslunarstjóri fyrir sex árum
höfum við slegið met í söluaukningu.
Ég meina það ekki illa, en hvað veist þú um þessa búð
eða fólkið sem verslar hér?
Ég sérhæfi mig í hópefli.
Arthur er með MBA-próf frá Duke.
Þú munt sjá að hann er hæfasti maðurinn í starfið.
Nei, herra minn. Ég er það.
Hvar varst þú í háskóla, væna?
Ég er með jafngildi stúdentsprófs.
Ég virði það. Svo sannarlega.
En við gerum lágmarksmenntunarkröfur fyrir stöður af gildri ástæðu.
Og hver er sú ástæða?
Ég vil að þú vitir hvað við metum mikils þig og tryggð þína.
Maður hefði haldið að stjórnin vildi einhvern úr söludeild í stöðuna.
Víðara samhengi.
Þú átt frábæran kærasta, Trey, sem er að kaupa hring á þessu augnabliki.
Bíddu, hann hvað?
Fjárinn!
Hví myndirðu segja mér það?
Ég sagði "fjárinn", svo augljóslega... En það ætti ekki að koma á óvart.
Þið hafið verið saman í fimm ár.
Þetta snýst ekki um... Hann vill börn.
Og það er slæmt af því að...?
Ég ætla ekki að ræða þetta núna.
Hvernig get ég orðað þetta fallega? Ég get það ekki. Hvað um þetta?
Í kvöld detturðu í það eftir veisluna og lætur barna þig.
Þú mátt nota gestaherbergið mitt.
Hvaða veislu?
Fjárinn!
Hvaða veislu?
Gerðu mér greiða, láttu eins og þú sért hissa. Viltu gera það fyrir mig?
Ekki vera eigingjörn. Engin þolir eigingjarna stelpu.
Óvænt!
Heyrðu! Farðu aftur inn.
Nei, burt með þetta.
Hey.
Sæll, öll. Ef þið gætuð þagnað aðeins. Þið þurfið að... -Ja hérna.
Slökkvið á tónlistinni. Mig langar að...
Mig langar að segja nokkur orð um afmælisstúlkuna.
Almáttugur.
Þegar ég var að þjálfa í polladeildinni...
Nei! Nei...
Jú, það var föstudagskvöldsleikur á Pezzicola-velli.
Einn strákur fellur á köldu þriðja vindhöggi og upp úr þurru
kemur skerandi öskur frá áhorfendapöllunum.
Einhver snaróð kona er að hundskamma dómarann.
Svo ég sný mér við til að sjá þennan klikkhaus
og bamm, þarna er hún.
Falleg, frökk og funheit og hver sá fyrirtækisauli
sem kann ekki að meta hvað þessi kona er stórkostleg...
Elskan, eins og sagt er: "Þessu lýkur ekki fyrr en því lýkur." Dilly.
Þessu lýkur ekki fyrr en því lýkur. - Dilly.
Dansaðu við mig. Komdu. Já. - Hamingjan góða. Núna?
Núna fyrir framan alla.
Þú ert gullfalleg.
Þú ert ekki svo slæmur.
Gott og vel.
Ég þarf að þrífa á afmælisdaginn minn. Huggulegt.
Sannir vinir gera það.
Ég ætla að halda upp á afmælið mitt hér á hverju ári.
Haltu kjafti. Er í lagi með þig?
Til fjandans með þá.
Já, til fjandans með þá. Hverja?
Þá. Þú veist, menntaða fólkið í fínu húsunum sínum
sem nefnir börn sín eftir ávexti og klífur Kilimanjaro.
Já, til fjandans með það.
Gerir það þig ekki óða að bara af því þú laukst ekki prófgráðu 18 ára
þá telstu ekki hæf í starf þegar þú ert fertug?
Í fyrsta lagi, hver sagði að lífið væri sanngjarnt, ha?
Ég meina, guðsonur þinn fer í Stanford á Google námsstyrk,
það jafnar hlutina aðeins, finnst þér ekki?
Svona nú, Maya, þetta er starfstitill. Hann skilgreinir þig ekki.
Segir konan sem getur ekki sagt nafn sonar síns
án þess að nefna að hann fari í Stanford.
Það er satt. Allt í lagi.
Og þú átt að gera það.
Það er stórkostlegt.
En ég... ég veit ekki.
Ég hélt bara að núna... Ég veit ekki.
Snýst þetta um Söru? Gott og vel.
Hvenær ætlarðu að fyrirgefa þér það? Í alvöru.
Kannski þarf ég bara að hætta að berja höfðinu við steininn.
Þegar heimurinn segir manni nógu oft hver maður er
er kannski tímabært að fara að trúa því.
Það eru ótal önnur störf í boði, M frænka.
Drottinn minn! Viltu hætta að liggja á hleri?
Og nú kom hann með köku svo ég get ekki verið honum reið.
Jæja, ein ósk á afmælinu þínu.
Gott og vel. Ég vildi óska...
Ég vildi óska að við lifðum í heimi
þar sem götuvit jafngilti bókviti.
Ég vildi óska...
Heyrðu. Þú gerðir þitt besta. Alveg rétt.
Já.
Svona nú. Blástu á það. Við vitum að þú blést.
Svo er sagt. Ég er ekki að segja það.
Blástu á það. Við getum ekki verið hér í allt kvöld.
Ég hef alltaf verið hrifinn af hugmyndinni um hringborð.
Sem drengur voru eftirlætis- sögurnar mínar þær þar sem Cane...
Fröken Davilla, andartak.
Ég veit að þú vildir þessa stöðu
og það sem meira er, ég tel í einlægni að þú hafir átt hana skilið.
Hugmyndir þínar, þó óheflaðar séu, hafa samt gildi. Ég meina...
Hvað er óheflað við þær?
En þegar þú ranghvolfir augunum gerirðu lítið úr hópeflisæfingu
og það sundrar okkur. Þú ert hægri höndin mín.
Við erum öll við sama borðið. Já?
Eins og ég var að segja, ég vil að við lítum öll á okkur sem riddara,
hvert með sína eigin visku og lén.
Svo, Sir Vondell Jones, þú verður riddari belgjurta
og Sir Alex Gibbian, þú verður markgreifi kjöts.
Hvað í fjandanum er belgjurt?
Og Shaniqua Harris,
þú ert riddari kvenhreinlætisvara.
Ég er á breytingaskeiðinu.
Ég á þetta víst skilið.
Einhver kona hringdi í þig.
Eitthvað varðandi starfsviðtal hjá F&C.
Franklin og Clarke?
Ég veit það ekki.
Þau sem gera helminginn af vörunum á gangi 7, 8 og 11.
Einmitt.
Ég sótti ekki um starf þar.
Þá það, þú veiddir það upp úr mér. Manstu eftir afmælisóskinni þinni?
Hvað? Dilly?
Hann notaði lögnafn þitt. Hann sendi inn umsóknir fyrir nokkur störf. Hann.
No comments yet. Be the first to leave one.