ആദ്യത്തെ 191 വരികൾ.
HUANCHACO - PERÚ SUÐUR-KYRRAHAFI
VANCOUVER-EYJA - KANADA NORÐUR-KYRRAHAFI
Við höldum að hann hafi rekið á land fyrir klukkututíma.
Kom með háflóðinu.
Maður með hund fann hann.
Var víst þegar dauður.
Tarfurinn.
-Ha? -Þetta er tarfur.
Hluti af hjörð sem kemur árlega til Vancouver-eyjar.
Ég hef ekki séð hann síðan í fyrra.
Vindáttin er norðlæg.
Norðvestlæg...
Hann hefur verið dauður í tvo til þrjá tíma.
-Þá hefur hann verið við... -Murray Cove.
Sjáum hvað þau hafa að segja.
Geturðu snúrað staðinn af?
Einhver frá stofnuninni breiðir yfir hann.
Eru þetta bitför?
Hvað færi að bíta háhyrning?
-Leon. -Hvað segirðu, Kit?
-Jack. -Kit.
-Langt síðan síðast. -Of langt.
Heyrðir þú eitthvað um háhyrninginn
sem rak upp á ströndina í morgun, Kit?
Kláraðu fyrir mig. Ég kem eftir smástund.
Ég vil sýna ykkur dálítið.
Er þetta eftir háhyrning?
Talaði við strákana. Þetta gerðist snemma í morgun.
Synti upp að bátnum nokkrum sinnum.
Þeir héldu að hann væri forvitinn, þar til hann varð ágengari.
Þeir reyndu að ýta honum frá, en hann hélt áfram
að stanga bátshliðina eins og brjálæðingur.
Svona stór hvalur og þetta lítill bátur?
Þeir urðu að berjast á móti
með krókstjökum, hnífum... öllu sem þeir áttu.
Urðu?
Heldurðu að þeir færu að berjast við háhyrning út af fiski?
Veiðin fer minnkandi.
Ef dýr lendir milli manns og takmarks hans,
er ótrúlegt hvað hann getur gert.
Enginn hérna myndi vilja meiða háhyrning.
Ef þeir segja að hann hafi gert árás,
þá gerði hann það.
Ég verð að koma mér.
-Sjáumst, Leon. -Sjáumst.
SKAW - HJALTLANDSEYJUM SKOTLANDI
SÆKI SÍMTAL
RANNSÓKNARSTOFNUN Í SJÁVARLÍFFRÆÐI KIEL - ÞÝSKALANDI
-Hvernig er kletturinn? -Fullur af músum.
-Þetta er bara í nokkrar vikur. -Og ískaldur.
Hvernig líður Lehmann prófessor?
Góðu eða vondu skapi?
Fer eftir viðmælandanum.
Líklega betra að hún tali ekki við mig.
Þess vegna hringi ég, en ekki hún.
-Hvað segirðu? -Hún breytti botnsvæðinu
sem hún vill kortleggja. Ég sendi þér ný hnit.
Ókei.
Ha?
Hún vill nota sjálfstýrða kafbátinn
í 25 metra hæð yfir botninum,
áður en hann fer á 10.
Það eru hundruð kílómetra, Rahim.
-Ég veit. -Ég verð föst hér í allt sumar.
Ég veit.
Af hverju þarf að byrja á 25 metrum?
Svo þú strandir ekki kafbátnum.
-Eins og þú gerðir... -Síðast, ég veit.
Engar hjáleiðir, ókei?
Charlie!
-Við söknuðum þín í gær. -Í gær?
Ég fékk ruglingsleg skilaboð frá þér klukkan fimm.
Fórstu eitthvað að sofa?
Ég sef í flugvélinni.
Þarftu eitthvað?
Hvar á ég að byrja?
Láttu mig vita ef það er eitthvað.
Það er eitthvað skrýtið að gerast. Verð að fara.
Ókei.
Fjárinn.
HAFRANNSÓKNASTOFNUN VANCOUVER-EYJU MURRAY-VÍK - KANADA
Takk fyrir að hringja í mig.
Nei, ég er að leita að áhrifum bylgjumælinga á sjávarspendýr.
Ég las skýrsluna þína um jarðfræðirannsóknir
og olíuleit.
Já, ég er frá Alþjóðahaffræðinefndinni.
Það væri frábært ef þú gætir sett upp almennilegt viðtal.
Ég verð í Kanada í mánuð í viðbót.
Já, skjáviðtal gæti gengið.
Það er Alicia Delaware.
Já, eins og fylkið.
Hjá w-o-c-punktur-org.
Frábært. Heyrumst þá.
Ég frétti af háhyrningnum.
Fyrsta hval ársins rekur dauðan á land?
Já.
Hvað heldurðu að sé á seyði?
-Þeir hafa áður verið seinir. -Ekki svona.
Fyrirgefðu, þetta er slæmur tími.
Ókei. Fyrirgefðu.
Sé þig seinna.
VELKOMIN Í HVALASKOÐUN
Það eru engar tryggingar, en við getum boðið ferðina á hálfvirði
ef einhver vill reyna aftur á morgun.
-Hvað heitir hann? -Brian.
Leitt að vinir Brians hafi ekki sést í dag.
Stundum eru þeir feimnir.
Kannski láta hvalirnir sjá sig á morgun.
Getum við farið?
-Takk. -Takk.
-Takk. -Takk.
Svart, tveir molar.
-Sítróna, engir ísmolar. -Takk.
Annar hópur hætti við. Þetta er sá fjórði í vikunni.
Ef þetta heldur svona áfram,
gætirðu þurft að selja bátinn.
Ég verð að fá að eiga ferðina okkar inni.
Ég get ekki eytt peningum sem ég á ekki núna.
Ef þú þarft aðstoð til að brúa bilið...
-Með þínum tekjum? -Ég á sparnað.
Þess vegna heitir það sparnaður. Maður sparar hann.
Þú gafst mér vinnu þegar ég ætlaði að hætta í háskóla.
Pabbi minn, og þú vannst fyrir því. Það var ekki lán.
Þú getur borgað mér til baka
þegar fyrsta bókin þín kemur út.
Í kann virkilega að meta það,
en ég get ekki tekið lán.
Ekki án þess að vita hvenær ég endurgreiði.
Ókei.
Þú þekkir fyrirlestrana mína um hvalahljóð hjá stofnuninni.
-Hvað með þá? -Ég flyt hann hérna.
Á hvalstöðinni. Nokkur kvöld á viku meðan vertíðin er.
-Þú mátt halda aðgangseyrinum. -Takk, Leon.
Ef allt fer til fjandans þá vantar alltaf stýrimenn á stofnuninni.
Ég er ekki það örvæntingarfull.
Charlie!
Velkominn á Klettinn!
-Hvað geturðu stoppað lengi? -Ekki neitt!
Við verðum að komast að Juno og með þyrlu aftur heim í kvöld.
Getið þið hjálpað mér?
Gaman að sjá þig sömuleiðis, Tomas.
-Hvað gerðist? -Ekki hugmynd.
Hann missti ferð. Ég kom með hann til baka.
Einangrunin virðist hafa bráðnað.
-Skoðaðirðu hann fyrir brottför? -Auðvitað.
Engir lausir vírar hérna.
Ég kann að undirbúa sjálfstýrðan kafbát, Tomas.
Hvernig útskýrirðu þá þetta?
Ég get það ekki.
Hann missti bara ferð.
Gerðir þú það örugglega ekki?
-Hvað er hann að segja? -Að hún sé að baktryggja sig.
-Láttu þetta vera. Ég skal. -Ég skal gera það.
Ef þú skemmir annan er mitt starf í hættu.
Hvenær siglirðu af stað?
Á morgun, frá Húsavík.
Það verður fínt að komast út.
Eyða tíma á vettvangi.
Það verður frábært.
Ég vildi óska að þú kæmir.
Og missa af þessu?
Vinnan er mikilvæg, veistu?
Gögnin úr kafbátnum eru mikilvæg,
en að stýra honum er verk fyrir fyrsta árs nemanda.
Þú þekkir ástæðuna.
Ég vinn verkið, virði reglurnar og allt verður fyrirgefið.
Þar til næst.
Hæ.
-Viskí. -Við eigum nóg af því.
Eitthvað sérstakt?
Eitthvað gott.
Macnally klikkar aldrei.
Fínt.
Hafðu það tvö, Iona.
Hvað gerðirðu?
-Með hvað? -Strákinn í fyrrasumar,
á stöðinni...
Stefan?
-Einmitt. -Hvað með hann?
Hann sagðist hafa kveikt í í Þýskalandi.
Já, brenndi stofuna næstum til grunna.
Ég kveikti ekki í, ef þú ert að meina það.
Hvað þá?
Ég vil gera hluti á minn hátt.
Hvernig líst yfirmönnum þínum á það?
Leiðbeinandanum.
Ekki vel...
Svo þegar þú ert ekki að pirra þá,
-hvað gerirðu? -Reyni að klára doktorinn.
Og?
Ég vil ekki vera leiðinleg.
No comments yet. Be the first to leave one.